Dagur - 09.12.1989, Page 21

Dagur - 09.12.1989, Page 21
Laugardagur 9. desember 1989 - DAGUR - 21 Byggðin undir Borginni: Saga Skagastrandar og Höfðahrepps komin út Út er komin bókin Byggðin undir Borginni - Saga Skagastrandar og Höfðahrepps. Eins og nafnið ber með sér er í bókinni rakin saga byggðar undir Spákonufells- borg á Skagaströnd frá fyrstu tíð og fram til síöustu áramóta. í ársbyrjun 1987 ákvað hrepps- nefnd Höfðahrepps að láta skrá sögu sína í tilefni þess að nú í ár eru liðin 50 ár frá stofnun sveitar- féiagsins. Var Bjarni Guðmars- son sagnfræðingur ráðinn til verksins. Hann hóf störf vorið 1987 og hefur unnið að verkinu allar götur síðan. í bókinni greinir frá fyrstu nafngreindu ábúendunum í nú- verandi Höfðahreppi, einokunar- verslun á Skagaströnd og þéttbýl- Samvmnuháskólirm á Bifröst verður sjálfseignarstoftiun - Nýtt þorp er risið við skólann á Bifröst Samvinnuháskólinn á Bifröst verður gerður að sjálfseignar- stofnun á næstunni. Ymis skipu- lagsatriði í því sambandi, og einnig vegna breytingar skólans í sérskóla á háskólastigi árið 1988, verða formlega ákvörðuð um leið. Starfsemi Samvinnuháskólans gengur mjög vel um þessar mundir. Aðsókn er miklu meiri en unnt hefur verið að veita skólavist. í óformlegum tengslum við stofnunina starfa nú bæði grunnskólasel og barnaheimili og telur háskólasamfélagið á Bifröst alls um 180 manns enda hafa nemendur á leigu tæplega tuttugu fjölskyldubústaði í nágrenninu. Nemendur á Bifröst eru nú 90 og meðalaldur 28 ára. Kennsluskip- an Samvinnuháskólans, sem skipar honum algera sérstöðu hér á landi, hefur nú verið mótuð til fulls eftir fyrstu reynslu á sl. vetri. Nýlega fóru reicstrarfræða- stúdentar námsför til fyrirtækja á Akureyri, og á næstunni vinna þeir lokaverkefni misserisins í einum 16 fyrirtækjum í höfuð- borginni og víða um land. Skipulagsskrá fyrir Samvinnu- háskólann var nýlega samþykkt í stjórn Sambands ísl. samvinnu- félaga og í skólanefnd. Með skipulagsskránni er nafni skólans breytt í „Samvinnuháskólinn“ í samræmi við þá miklu umbreyt- ingu sem varð á stofnuninni í fyrra er skólinn varð sérskóli á háskólastigi með viðurkenningu menntamálaráðuneytisins, og er þessi nafnbreyting í samræmi við það sem áður hefur gerst í öðrum sambærilegum fræðslustofnunum í landinu. Þá eru í skipulags- skránni ákvæði m.a. um mark- mið skólans, um eignir og fjármál, um dómnefndir vegna mannaráðninga o.fl. eins og tíðk- ast í skóium á háskólastigi. Samkvæmt skipulagsskránni verður Samvinnuháskólinn að sjálfseignarstofnun en hann hefur hingað til verið í eigu Sambands ísl. samvinnufélaga. Gert er ráð fyrir að Samvinnuháskólinn muni leigja fasteignirnar á Bifröst en þær eru sameign Sambandsins, Olíufélagsins og Vátryggingafé- lags íslands. Hins vegar mun sjálfseignarstofnunin væntanlega eignast skólalóðina í samræmi við ákvæði í gjafabréfi jarðeig- enda Hreðavatns. iti Móðir mín og tengdamóðir, SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Ægisgötu 4, Akureyri, andaðist 30. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram. Alda Kristjánsdóttir, Guðlaugur Halldórsson og aðrir vandamenn. Utför móður minnar, þorgerðar ólafsdóttu r, sem andaðist sunnud. 3. des. s.l. fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12. desember kl. 13.30. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Aðalgeir Axelsson. ismyndun á 19. öld. Þá er rakin ítarleg þróun atvinnuhátta og félagslífs á þessari öld og einnig greint frá ráðagerðum nýsköpun- arstjórnarinnar um að byggja stórbæ á Skagaströnd, svo nokk- uð sé nefnt. Byggðin undir Borginni er um 330 bls. að stærð og prýdd fjölda ljósmynda sem margar hverjar hafa ekki birst áður, auk teikn- inga og uppdrátta frá ýmsum tímum. Höfðahreppur gefurbók- ina út en Prentverk Odds Björns- sonar á Akureyri sá um alla prentvinnu. Heilræði , #*£ íl'. 1 -L' Börn eiga aldrei að leika sér á og við ak- brautir. Ekki má mikið útaf bera til, að þau gleymi sér og hlaupi á eftir bolta út á götu. Þannig hala mörg alvarleg slys ordið á börnum. Teppa- og húsgagnahreinsun Fiber-Seal óhreininda- vörn. Pantanir, upplýsingar og bæklingar. Fiber-Seal á Akureyri Sími 96-27261 Ný versl un! Opnum nýja raftækjaverslun í dag, laugard. 9. desember, viÖ Hvannavelli Mikið úrval raftækja t.d.: raf magnshandverkfæri loftpressur háþrýstidælur og margt fleira IWALUUSI rafsuðuvélar Op/ð frá kl. 10-18 í dag, laugardag NÝTT NORÐURLJÓS v/HvannavelH sími 96-22411 Getraunanúmer KA er Getraunanúmer Þórs er þÓRSHAMAR HF. Við Tryggvabraut • Akureyri Sími 22700 Fax 27635 □AIHATSU Feroza ’QQ Bíll fyrir þig

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.