Dagur - 02.11.1991, Page 12
12 - DAGUR - Laugardagur 2. nóvember 1991
Dulspeki
Einar Guðmann
Tilgangur iffsins
frá sjónarsviði J. Krishnamurti
Sjónarmið mannanna og viðhorf
til lífsins eru ef til vill jafn mörg
og þeir eru margir. En einn er
sá maður sem þekktur hefur
verið fyrir einstaka innsýn sína í
hin andlegu mál og skrifað hef-
ur margar bækur um þau efni en
það er J. Krishnamurti. J>að
merkilega við skrif hans og
sjónarmið er hve hlutlaus þau
eru og hve samræmanleg þau
eru við okkar daglega líf ásamt
því að þau einkennast af því að
hann lítur alla menn jöfnum
augum óháð trúarbrögðum.
Fyrir ekki alls löngu rakst ég á
kafla eftir hann úr bókinni
„Frjálst líf“ þar sem hann ræðir
stuttlega tilgang lífsins. Pað er
skemmst frá að segja að sjón-
armið hans í þeim efnum eru
nokkuð stórbrotin og leyfi ég
mér að hafa eftir honum stutta
frásögn úr þessari bók:
„Að morgni, þegar skuggarn-
ir teygðust af tindum og ilmur-
inn barst með andvaranum um
loftið, sá ég örn koma svífandi
ofan úr fjöllunum. Hann sveif
alla leið niður í dalinn án þess
að baða vængjunum og hvarf
þar í skugga dökkra fjalla. Um
kvöldið sá ég hann aftur hverfa
upp til háfjallanna, þar sem
heimkynni hans eru, langt frá
barningi og baráttu heimsins.
Þannig er sá maður, sem hef-
ur séð ljóma sannleikans; sá
sem hefir sett sér hið eilífa
markmið í baráttu og striti
þessa heims. Þó að hann reiki
um meðal hverfulla hluta og
virðist týna sjálfum sér innan
um skuggana, þá er takmarkið
leiðtogi hans og vörður alla ævi.
Eins og örninn sækir upp til
heimkynna sinna, þannig lyftir
hann sér upp yfir harma og
hverfula gleði.
Það eru grundvallar skilyrði
fyrir þann, sem losna vill úr lífs-
flækjunum, að setja sér þetta
sígilda takmark. En það má
ekki vera takmark annars
manns, heldur það takmark,
sem fætt er af eigin reynslu, eig-
in andstreymi og þjáningu. Af
eigin skilningi. Þegar maðurinn
hefur einu sinni sett sér þetta
takmark, mun það varpa ljósi
J. Krishnamurti ræðir við
nemendur í Rajghat Bcsant
skólanum nærri Benares.
yfir og greiða úr hugsanaflækj-
um hans, svo tilgangur lífsins
skýrist fyrir honum.
Eins og áttavitalaust skip
hlýtur að lenda í hafvillum,
þannig týnist sá maður í hafróti
heimsins sem ekki skynjar þetta
algilda, eilífa takmark. Eins og
skipstjórinn stefnir beint til
þeirrar hafnar sem hann ætlar
til og kemst leiðar sinnar með
hjálp áttavitans, þótt svartnætt-
ið grúfi yfir og stormar æði um
höfin. Þannig getur sá maður
sem þekkir takmark sitt sett
stefnu lífs síns eftir áttavita
skilningsins.
Mennirnir vita hvorki upp né
niður í vandamálum sínum af
því að þeir þekkja ekki tilgang
lífs síns. Viðfangsefni heimsins
eru óleyst af því að einstakl-
ingunum tekst ekki að ráða
fram úr eigin erfiðleikum.
Vandamál hvers einstaks
manns eru vandamál heimsins.
Ef einstaklingurinn er vansæll,
óánægður og fáfróður þá er
umhverfi hans það líka. Á með-
an einstaklingarnir sjá ekki tak-
mark sitt finnur heimurinn
heldur ekki sitt takmark. Þér
getið ekki skilið einstaklinginn
frá heildinni. Heimurinn og ein-
staklingarnir eru eitt. - Ef ein-
staklingarnir ráða fram úr við-
fangsefnum sínum með skiln-
ingi, þá mun einnig verða ráðið
fram úr viðfangsefnum heims-
ins. Þér verðið fyrst að öðlast
skilning sjálfir, áður en þér get-
ið gefið hann öðrum. Þegar þér
hafið gróðursett sannleikann í
hugum yðar og hjörtum, mun
hann dvelja þar um alla eilífð.
Einu sinni þegar ég var í
Benares, fór ég á báti niður eftir
hinu heilaga Gangesfljóti. Ég
horfði á fólkið beggja megin
fljótsins. Það leitaði að hamingju
í tilbeiðslu og hugðist finna
takmark sitt og veginn til þess
með því að tilbiðja guðina. Ég
sá mann einn í djúpri hug-
leiðslu. Hann gleymdi öllu
umhverfis sig en hugsaði um
það eitt að komast að takmark-
inu. Ég sá annan hafa um hönd
helgisiði þá sem tilheyrðu yoga-
kerfi hans. Þriðji sökkti sér nið-
ur í sálmasöng og sinnti engu
öðru. Þeir leituðu allir hins
sama sem þér leitið og hver ein-
asti maður í heiminum leitar að
þegar þráin er heit og hugurinn
kafar dýpst. Sá sem veit ekki
hvað hann vill og skilur ekki til-
gang lífs síns hrekst undan
straumi tilfinninga sinna og
langana eins og bátur undan
fallþunga fljótsins. Óreiðan og
írafárið kemur af því að tak-
markið er óákveðið og leiðin til
þess er óviss! Þess vegna er hug-
urinn fullur af efasemdum og
spurningum. Á meðan efinn
ræður ríkjum hugans er þar
hvorki friður né fullvissa eða
eldmóður ákveðins ásetnings.
Svona er ástandið í heiminum
en alls staðar má þó finna hugs-
andi menn og tilfinninganæma.
Óafvitandi leitast hver maður
við að losa sig frá smásálarskap
sínum og þröngsýni. Að síðustu
finnur hann svo frelsi og full-
sælu. Hann leitar á ýmsum leið-
um en allar valda þær nýjum
flækjum. Líf eftir líf ráfar hann
frá einu altarinu til annars, frá
einni trúarjátningu til annarrar.
Safnar reynslu, velur, hafnar og
velur á ný - þannig þokast hann
áfram að marki því sem bíður
hans. Að markinu sem bíður
allra. Á meðan hann velur og
hafnar veit hann ekki hvar
huggunar er að leita, en við það
að leita huggunar í sérstökum
stöðum, ánetjast hann og situr
fastur. Útskýrendur sannleik-
ans eru margir, trúin og trúar-
kerfin með ýmsu inóti. Vegir
liggja sinn í hverja áttina og allt
kemur í bága hvað við annað.
Þess vegna villast mennirnir í
öllum þessum völundarhúsum.
Eins og fiðrildið flýgur beint á
rúðuna, til þess að komast út í
hreina loftið, þannig fer
manninum áður en hann hefur
séð bjarmann af takmarkinu
framundan. - Og þó er það auð-
fundið. Það er aðeins vegna
þess að mennirnir sitja í myrkri,
að þeim sýnist takmarkið vera í
fjarlægð."
Ljóð
Berjaferð
Ég brá mér um daginn í berjamó
með berjafötu og tínu,
og bráðlega sá ég af berjum nóg,
þá búmannshjarta mitt ákaft sló,
ég fyllti víst fljótt mína skrínu!
Og allstaðar berin mér blöstu við
svo bústin og full af safa,
áfram skreið ég, og út á hlið,
ofan í skorning, og sneri svo við
því mikið vill meira hafa!
Ég veltist um móinn uns bringa og bak
berjalit á sig fengu.
Að endingu hreinlega úr mér lak,
og allstaðar heyrðist í skrokknum brak,
eirði nú nánast engu!
Ég klóraði í lyngið og krafsaði ber
klofvega sitjandi á þúfu,
hvernig sem gengur og hvernig sem fer
og hvernig sem sný ég, ég bjarga mér
uppí loft eða á grúfu!
Að endingu fór ég þó aftur úr mó,
um annað var tæpast að ræða.
Með blárauðar hendur, buxur og skó,
og bráðlega fékk ég að vita nóg
um allt sem var innan klæða!
Hvernig konunni varð svo við
er við skyldum ganga til náða
er barði hún augum sér blámann við hlið.
Baðst hún þá vægðar, og hrópaði á grið?
Nei, konur margt kunna til ráða!
Sigfús Þorsteinsson.
(Höfundur býr á Hauganesi).
Vöruskiptin við útlönd janúar-september 1991:
Vöruskiptajöfnuðurimi hag-
stæður um hálfan milljarð
í septembermánuði voru fluttar
út vörur fyrir um 7.000 millj. kr.
og inn fyrir 6.200 millj. kr. fob.
Vöruskiptajöfnuðurinn í sept-
ember var því hagstæður um 800
millj. kr. en í september í fyrra
var hann hagstæður um 1.750
millj. kr. á sama gengi.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 69,4
milljarða kr. en inn fyrir 68,9
milljarða kr. fob. Vöruskipta-
jöfnuðurinn á þessum tíma var
því hagstæður um hálfan milljarð
kr. en á sama tíma í fyrra var
hann hagstæður um 6,2 milljarða
kr. á sama gengi.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutningsins
1% minna á föstu gengi en á
sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir
voru um 81% alls útflutningsins
og voru um 3% meiri en á sama
tíma í fyrra. Útflutningur á áli
var 8% minni og útflutningur kís-
iljárns var 36% minni en á sama
tíma á síðastliðnu ári. Útflutn-
ingsverðmæti annarrar vöru (að
frátöldum skipum og flugvélum)
var 14% minna janúar-septem-
ber en á sama tíma í fyrra, reikn-
að á föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutningsins
fob fyrstu níu mánuði ársins var
8% meira en á sama tíma í fyrra.
Breyting einstakra liða innflutn-
ings frá fyrra ári er mjög misjöfn.
Verðmæti innflutnings sérstakrar
fjárfestingarvöru (skip, flugvélar,
Úandsvirkjun) er helmingi minna
í ár en í fyrra og verðmæti inn-
flutnings til stóriðju er 11%
minna en á sama tíma á sl. ári.
Verðmæti olíuinnflutnings er
hins vegar um 9% meira en á
sama tíma í fyrra, reiknað á föstu
gengi. Þessir innflutningsliðir eru
jafnan breytilegir frá einu tíma-
bili til annars, en séu þeir frátald-
ir reynist annar innflutningur
(81% af heildinni) hafa orðið um
20% meiri en í fyrra, reiknað á
föstu gengi.
Smásögur og Ijóð
Lesendum stendur til boða að fá birtar smásögur og Ijóð í helgarblaði Dags. Hugverkunum
skal skilað á vélrituðum blöðum og verður fullt nafn höfundar að fylgja ásamt heimilisfangi.
Æskileg lengd smásagna er 1-5 bls. Ljóðin mega vera jafnt óbundin sem hefðbundin að
formi. Þeir sem fást við Ijóða- eða smásagnagerð eru hvattir til að nota þetta tækifæri. Dagur
áskilur sér rétt til að hafna aðsendum verkum eða taka þau til birtingar. Nánari upplýsingar
gefa Bragi V. Bergmann, ritstjóri, og Stefán Sæmundsson, umsjónarmaður helgarblaðs, í
síma 24222.
Heimilisfang: Dagur, Strandgata 31, 600 Akureyri.