Dagur - 12.06.1993, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 12. júní 1993
Fréttir
Breytingar og nýbygging við Sundlaug Akureyrar:
OHum frumtiHögum arldtekta og hönnuða hafnað
- þó leitað eftir samstarfí við Form hf. og Teiknistofu Halldórs Jóhannssonar
Starfshópur um nýbyggingu við
Sundlaug Akureyrar hefur
ákveðið að hafna öllum 6 frum-
tillögum arkitekta og hönnuða
um breytingar og nýbyggingu
við Sundlaug Akureyrar. Hins
vegar hefur starfshópurinn
ákveðið að leita eftir samstarfí
við Arkitektastofuna Form hf.
um útfærslu bygginga og
Teiknistofu Halldórs Jóhanns-
sonar um útfærslu á skipulagi
lóðar sundlaugarinnar.
Starfshópur skipaður þeim
Gunnari Jónssyni, formanni
Skólavist í VMA:
Umsóknir aldrei fleiri
Heldur fleiri umsóknir hafa
borist um skólavist við Verk-
menntaskólann á Akureyri á
komandi haustönn en var á sl.
ári, eða 1018 umsóknir. Búast
má þó við að einhverjar um-
sóknir eigi eftir að berast með
pósti á allra næstu dögum. Mjög
mikil aðsókn er í iðngreinarnar
og virðist sem áhugi á verklegu
námi sé að aukast á kostnað
þess bóklega.
24 umsóknir bárust um nám í
grunndeild tréiðnaðar og 18 um-
sóknir í framhaldsdeild sem er
mctaðsókn. I rafdeild bárust 24
umsóknir í grunndeild og 12 um-
sóknum er hægt aó sinna í fram-
haldsdeild en þar hefur þegar
myndast biðlisti. I málmiðnaðar-
deild bárust 28 umsóknir í grunn-
deild svo þar verður biðlisti og 6
umsóknir bárust í framhaldsdeild.
20 nemendur hafa sótt um nám
vió fyrsta stig vélstjómar sem er
mjög gott, en alls bárust 55 um-
sóknir um nám við deildina sem
er svipaður fjöldi og verið hefur
undanfarin ár.
„Aðsókn að verklega náminu
er mjög góð og það er góðs viti
hversu margir sýna slíku námi
áhuga og augljóslega á verklegt
nám traust margra í ljósi framtíð-
armöguleika á atvinnumarkaðin-
um,“ segir Bernharð Haraldsson
skólameistari VMA. GG
íþrótta- og tómstundaráós, Sigríði
Stefánsdóttur, formanni bæjar-
ráðs, og Þórami E. Sveinssyni,
bæjarfulltrúa, lagði mat á frumtil-
lögurnar ásamt Jóni Þór Þorvalds-
syni, arkitekt í Reykjavík, og var
niðurstaða þeirra eftirfarandi:
„Það er samhljóða álit starfshóps-
ins, að cngin hinna innsendu til-
lagna svari til fullnustu forsögn
keppninnar. Það er sameiginlegt
með öllum tillögunum að þær fara
langt út fyrir gefin stærðarmörk.
Þetta gefur hugsanlega til kynna
að 330 fermetra rýmis ósk for-
sagnar sé e.t.v. í þaó knappasta og
verða því stærðir tillagna ekki
látnar stjóma endanlegu áliti
hópsins."
Þrátt fyrir að hafa hafnað öllum
tillögunum taldi starfshópurinn
vænlegast að leita eftir samstarfi
við tvo tillöguhöfunda, Form hf.
um útfærslu bygginga og Teikni-
stofu Halldórs Jóhannssonar um
útfærslu á skipulagi lóðar.
Þess má geta að allar sex frum-
tillögumar verða til sýnis í dag, á
morgun og mánudag í anddyri
Iþróttahallarinnar. I dag og á
morgun verður opið kl. 14-18 og
kl. 16-20 á mánudag. óþh
Bæjarráð Akureyrar:
Árni skrifi greinargerð
Bæjarráð Akureyrar fól sl.
fímmtudag Arna Olafssyni,
skipulagsstjóra Akureyrarbæj-
ar, að skrifa greinargerð þar
sem hann útskýri hvað hann eigi
nákvæmlega við í bókun sinni í
bygginganefnd Akureyrar 26.
maí sl.
I bókun Arna segir að mörg
vandamál hafi komið upp vegna
slakrar hönnunar og hann varar
við því „að litið verði á vandræða-
gang vegna hönnunarfúsks og
slælegs undirbúnings verkefna og
byggingaframkvæmda sem afleió-
ingu skipulagsgerðar.“
Bókunin varð tilefni umræðna
á fundi bæjarstjómar Akureyrar sl.
þriðjudag og Ami ræddi síðan
málið við bæjarráó sl. fimmtudag.
Niðurstaðan var að fela Ama að
skrifa greinargerð til bæjarráðs
um málið með ábendingum um
það „á hvern hátt standa megi bet-
ur að málum.“ óþh
Nýbygging við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Sairaiingur undimtaður
á Akureyri í gær
Eyþing skipar umdæmanefhd
Stjórn Eyþings - samtaka sveit-
arfélaga á Norðurlandi eystra -
hefur skipað fímm manna nefnd
sveitarstjórnarmanna í svokall-
aða umdæmanefnd, sem ætlað
Akureyri:
Órói vegna
17. júní
Nokkurs óróa hefur gætt vegna
17. júní hátíðarhaldanna á Ak-
ureyri í ár. Knattspyrnufélag
Akureyrar sér um framkvæmd
hátíðarhaldanna að þessu sinni,
en eigendur fyrirtækja við Gler-
árgötu hafa sent erindi til sýslu-
manns þar sem óskað er eftir
leyfí til að halda útiskemmtun í
götunni á þjóðhátíðardaginn.
Sýslumaóurinn á Akureyri
sendi bréf til bæjaryfirvalda þar
sem leitað var eftir umsögn um er-
indi fyrirtækjaeigenda við Glerár-
götu. Málió var til umræðu á bæj-
arráðsfundi sl. fimmtudag og þar
kom fram aö athugasemd hafi bor-
ist frá K.A. um erindið og bæjar-
stjóri og formaður bæjarráðs hafí
átt fund með forsvarsmönnum
K.A. og Glerárgötufólki um mál-
ið.
í bókun bæjarráðs er tekió fram
að K.A. sjái um hátíðarhöld 17.
júní í ár í umboói bæjarstjórnar og
því sé það vilji bæjarráðs að þeir
sem hyggist standa fyrir skemmt-
un í bænum á þeim degi geri þaó í
samráði við K.A. óþh
í dag má búast vió austlægri
átt og skýjuóu meó köflum en
breytilegri eóa suólægri átt á
morgun og léttskýjuðu inn til
landsins en skýjuðu við strend-
ur. Á mánudag og þriðjudag er
gert ráð fyrir sunnanátt og létt-
skýjuóu og umtalsverðum hlý-
indum. Gera má ráð fyrir að á
Akureyri t.d. geti hitinn farió í
allt að 18 gráðum yfir hádag-
inn. Sem sagt, upp með sól-
gleraugun og nióur með
prjónabrókina.
er að leggja fram tillögur að
sameiningu sveitarfélaga í kjör-
dæminu fyrir 15. september nk.
I nefndinni eru Bjami Aðal-
geirsson, Húsavík, Guðmundur
Guðmundsson, Raufarhöfn, Guð-
ný Sverrisdóttir, Grenivík, Sigríð-
ur Stefánsdóttir, Akureyri, og Sig-
urður Rúnar Ragnarsson, Mý-
vatnssveit.
Akveðið er aó ráða starfsmann
til að starfa meó nefndinni.
Stjórn Eyþings átti í gær fund á
Akureyri með hinni nýskipuðu
umdæmanefnd. óþh
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
á fundi sínum sl. fímmtudag, að
breytingar á staðfestu aðal-
skipulagi Akureyrar 1990-2010
varðandi orlofshúsabyggð við
Kjarnaskóg verði fariö með
samkvæmt tillögu skipulags-
nefndar með þeim breytingum
sem gerðar hafa verið á skipu-
lagsuppdrætti og greinargerð.
Bæjarstjórn hafði áður vísað er-
indi skipulagsnefndar til bæjar-
ráðs með heimild til fullnaðaraf-
greiðslu.
Það cr því ljóst að hugmyndir
Urbótamanna um orlofsíbúðir við
Kjarnaskóg, norðan Kjarnalundar,
verða að veruleika. Þar er gert ráð
fyrir 38 orlofshúsum úr timbri, 45
og 55 fermctrar að stærð.
Sveinn Heiðar Jónsson, einn
Urbótamanna, var að vonum
ánægöur með afgreiðslu erindis-
ins. „Vió erum að vinna að stofn-
un hlutafélags um þessa uppbygg-
ingu. Einnig þarf í framhaldinu aó
ganga frá samningi við Akureyr-
arbæ um formlega úthlutun svæð-
isins og fleira sem því tengist.“
Smíði húsanna verður boðin út
og sagði Sveinn Heiðar að stefnt
væri aó því að bjóða verkið út fyr-
ir haustið, þannig að hægt yrði að
vinna alla verkstæðisvinnu í vetur.
„ Einnig þarf að huga að útboði á
í gær var skrifað undir samning
um nýbyggingu við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Heil-
brigðisráðherra kom norður yf-
ir heiðar og undirritaði samn-
inginn af hálfu heilbrigðisráðu-
neytisins og ríkisstjórnarinnar.
Bæjarráð Akureyrar samþykkti
á fundi sínum sl. fímmtudag
drög að þríhliða samningi Ak-
ureyrarbæjar, fjármálaráðu-
neytis og heilbrigðisráðuneytis
um 840 fermetra nýbyggingu
við Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri.
Eins og fram hefur komið sam-
þykkti stjóm Fjórðungssjúkra-
jarövegsvinnu og vegagerð á
staðnum. Þá erum við á leið í vió-
ræður vió verkalýðshreyfinguna
um samstarf og eins við Náttúru-
lækningafélag íslands, varðandi
hússins drögin sl. miðvikudag.
I bókun bæjarráðs segir að það
fagni þeirri stefnumörkun heil-
brigðisráðuneytisins og ríkis-
stjórnar að „aðalaðgeróasjúkra-
hús“ verði á tveimur stöðum á
landinu, annars vegar í Reykjavík
og hins vegar á Akureyri, og bæj-
arráð fól bæjarstjóra að skrifa
undir samninginn með fyrirvara
um samþykki bæjarstjómar.
Samþykkt bæjarráðs felur það í
raun í sér aó bærinn, sem á að
greióa 15% stofnkostnaðar á móti
85% frá ríkinu, skuldbindur sig til
að reiða fram meira fé en honum
ber vegna byggingarinnar á árun-
Kjarnalund en hugmyndin er aó
tengja orlofshúsabyggóina að
einhverju leyti við starfsemina í
Kjarnalundi.“
Vonast er til að hægt verði að
um 1996 og 1997 og nemur um-
framfjármögnunin 30 milljónum
króna.
I niðurlagi bókunar bæjarráðs
kemur fram aó bæjarstjóra hafi
verió falið að koma á framfæri at-
hugasemdum bæjarráðs við
ákvæði 5. greinar samningsins um
vaxtagreiðslur. Eftir því sem næst
verður komist kveður þessi grein á
um endurgreióslu ríkisins af lán-
um frá Akureyrarbæ á árunum
1998 og 1999. Gert er ráð fyrir
greiðslu veróbóta en ekki vaxta og
við það gera bæjarráðsmenn at-
hugasemdir og fólu því bæjar-
stjóra aó koma á framfæri athuga-
semdum. óþh
setja húsin niður næsta vor eða
snemma sumars og sagðist Sveinn
Heiðar vonast til að hægt yrði að
taka húsin í notkun næsta sumar.
KK
Deiliskipulag orlofshúsabyggðar norðan Kjarnaskógar, sem unnið hefur verið af Arkitektastofunni í Grófargili. Þar
er gert ráð fyrir 38 orlofshúsum úr timbri.
Orlofshúsabyggð norðan Kjarnaskógar samþykkt:
Stefnt að því að taka hnsin í notkun næsta sumar
- hlutafélag stofnað um þessa uppbyggingu á næstunni