Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 11

Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. júní 1993 - DAGUR - 11 Hjúkrun - Áfram veginn: Ráðstefna heilbrigðisdeild- ar Háskólans á Akureyri Ráðstefna á vegum heilbrigðis- deildar Háskólans á Akureyri verður haldin í safnaðarheimili Akureyrarkirkju dagana 14.-15. júní nk. Ráðstefnan er ætluð heilbrigðisstéttum og er öllum opin. Tveir aðalfyrirlesarar ráðstefn- unnar koma frá Noregi og Kan- ada. Dr. Ulla Quarnström, pró- fessor í hjúkrunarfræði við há- skólann í Bergen mun flytja fyrir- lesturinn: „Nursing Science and its Implications on Academic Education and Nursing Practice in the Nordic Countries“ eða „Hjúkr- unarvísindi og þýðing þeirra fyrir fræðilega menntun og hjúkrunar- starfið á Norðurlöndum“. Þá kem- ur dr. Hanneke M. Th. van Maan- en frá Toronto háskóla, sem hefur verið gistiprófessor í öldrunar- hjúkrun við Gautaborgarháskóla í vetur. Hún mun flytja fyrirlestur- inn „Healthy Aging into the Next Century". Þá eru á ráðstefnunni fjöldi annarra fyrirlesara og margar nýj- ar rannsóknir kynntar. Dr. Kristín Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur, flytur fyrirlestur er hún nefnir: „Mótun hjúkrunarstarfsins: Orð- ræða, völd og athafnir". Fyrirlest- urinn byggir á doktorsritgerð hennar er hún varði við Columbia háskóla í New York á síöasta ári. Magna Birnir, hjúkrunarfræðing- ur, kynnir lokaverkefni sitt til Mastersprófs í hjúkrunarfræðum og nefnir erindi sitt „Völd, forræði og áhrif hjúkrunar innan heil- brigðiskerfisins". Þá verða kynntar tvær nýjar rannsóknir sem unnar hafa verið af kennurum heilbrigðisdeildar í vetur. Sigfríður Inga Karlsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, lektor við H.A., kynnir rannsókn um „Upplifun kvenna á umhyggju og umhyggjuleysi í fæöingu" sem hún og Sigríður Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og forstöðu- maður heilbrigðisdeildar, hafa unnið að í vetur og Margrét Arna- dóttir, hjúkrunarfræðingur og lekt- or við H.A., kynnir rannsókn um „Upplifun ungra kvenna á líkama sínum“. Þá verða kynntar þrjár rannsóknir nýútskrifaðra hjúkrun- arfræðinga frá Háskólanum á Ak- ureyri. Rannsóknir þessar eru: „Upplifun kvenna á því að verða mæður á unglingsaldri og á stuðn- ing á þeim tíma“, „Upplifun að- standenda alnæmissjúkra á al- næmi“ og að lokum verður kynnt rannsóknin „Að vera HIV jákvæð- ur á Islandi". Þess má geta að þessar rannsóknir eru brautryðj- endarannsóknir á þessu sviði. Meðal flytjenda er Blásarasveit æskunnar og Karlakór Akureyrar-Geysir. Seiiuii tónleikarnir á Vorkiið ’93 Seinni tónleikarnir á Vorklið ’93 verða annað kvöld, sunnu- dagskvöld kl. 20.30 í íþrótta- skemmunni á Akureyri. Þar verður flutt tónlist eftir George Gershwin, sem er eitt af fræg- ustu amerísku tónskáldum á þessari öld. Skal þar fyrst telja „Rhapsody in Blue“, sem Gershwin samdi 1924. Þetta verður frumflutningur Richard Simm, píanóleikari, fcr með einlcikshlutverkið í „Rhaps- ody in Blue“. Þá eru á ráðstefnunni mjög at- hyglisverðir fyrirlestrar, t.d. mun dr. Guðmundur Heiðar Frímanns- son, heimspekingur og forstöðu- maður kennaradeildar H.A., flytja fyrirlestur sem hann nefnir: „Hver á að ráða?: Forræðishyggja í um- önnun og lækningu", Hermann Oskarsson, félagsfræðingur og lektor við H.A., mun flytja fyrir- lestur um „Breytt samfélag - fjöl- skyldulíf og félagstengsl” og Hildur Helgadóttir, hjúkrunar- fræðingur um „Alnæmi og líknar- meðferð". Þátttaka tilkynnist til skrifstofu heilbrigðisdeildar í síma 96- 11770. Þátttökugjald er kr. 4000. Einnig er hægt að skrá sig til þátt- töku í einn dag og er gjaldið þá kr. 2500. Greióa skal þátttökugjaldið við afhendingu ráðstefnugagna að morgni 14. júní. í tengslum viö ráðstefnuna veróur sýning á bókum og hjúkr- unargögnum í salarkynnum safn- aöarheimilsins. Unglingar 13-16 ára Langar ykkur til að vera með í skemmtilegum hópi 15.-19. júlí í Sumarbúðunum við Vestmannsvatn í Aðaldal? Skráning stendur yfir í síma 96-43553. Verð kr. 7.900. Bátar, hestar og margt fleira á dagskránni. Leitið upplýsinga. Sumarbúðirnar Vestmannsvatni. hér á landi á Rhapsodíunni í sinni upprunalegu mynd eins og Gersh- win samdi hana fyrir hina frægu djasshljómsveit Pauls Whitman. Með einleikshlutverkið fer Ri- chard J. Simm, píanóleikari. Ekki síður er þekkt óperan „Porgy and Bess“, sem frumflutt var í New York 1935 og öðlaðist þá strax fádæma vinsældir og hefur síðan verið sett upp reglulega í óperu- húsum víða um heim. Flutt veröa þekktustu lögin úr þessari óperu, sem náð hafa hvað mestum vin- sældum. Hefur stjórnandi Blásara- sveitar æskunnar, Roar Kvam, út- sett þessi lög fyrir sinfóníska blásarasveit í anda Gershwins. Blásarasveit æskunnar, sem kemur fram á þessum tónleikum, er skipuð 30 hljóðfæraleikurum og hefur starfað af krafti í vetur og eru þetta þriðju og síðustu tón- leikar hcnnar á starfsárinu. I allt koma fram 70 flytjendur á þess- um tónleikum. Einsöngvarar verða Jóhanna Linnet, sópran, og Michael Jón Clarke, baritón. Aðr- ir flytjendur eru félagar úr Kór Leikfélags Akureyrar, Passíu- kórnum og Karlakór Akureyrar- Geysi. Kynnir verður Aóalsteinn Bcrgdal en stjórnandi Roar Kvam. (Úr fréttatilkynningu.) Lít 09 fiör alla helg<na KnattspVJ'^ ^on. ; ?|SSr"- 1 i' E“"B' Flugieiðir bjóða flug til og frá Egilsstöðum á tilboðsverði fyrir þátttakendur í mótinu Til sölu er jörðin Hólar, Eyjafjarðarsveit Á jörðinni er 192 fm íbúðarhús byggt 1952, 32 bása fjós auk lausagöngu og fjárhús fyrir 150 fjár. Fram- leiðsluréttur á mjólk er 67.000 Itr. Ræktuð tún 37 ha auk mikilla ræktunarmöguleika og afrétt. Upplýsingar gefur Ólafur Jónsson, Hólum, í síma 31263 til 15. júní 1993. KVENNAKNATTSPYRNA á Egilsstöðum Stórmót sumarsins! Dagana 2.-4. júlí nk. verður haldið glæsilegt hraðmót í knattspyrnu á Egilsstöðum, hjá meistarafl. kvenna. Leikið verður í 7 manna liðum á hálfan völlinn. í tilefni af þessu móti verður ekkert leikið í 1. og 2. deild þessa helgi. Þátttökugjald er kr. 10.000 fyrir hvert lið, en sendi sama félag fleiri en eitt lið þá er gjaldið kr. 5.000 fyrir hvert aukalið. Öllum þátttakendum verður útvegað svefnpokapláss. pettkan á -gjgSffl Ekl)awfs 3.10« Skráning og nánari upplýsingar veittar í síma 97-11579 eða 97-11991 (Hilmar), eftir hádegi alla daga. íþróttafélagið Höttur Egilsstöðum. Sjáumst!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.