Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 17

Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 17
Laugardagur 12. júní 1993 - DAGUR - 17 Popp Magnús Geir Guðmundsson Annað verk Sugar: Magnað meistarastykki Félagarnir í Sugar hafa ástæðu til að brosa breitt, því báðar plöturnar þeirra, Copper Blue og Beaster þykja afbragðsverk. Það er oftar en ekki viðleitni hjá okkur poppskrifurunum og öðrum popppælurum að skil- greina þá tónlist sem við sinn- um eóa bera hana saman við eitthvað annað sem áður hefur verið gert. Veróa slíkar bolla- leggingar oft hinar skemmtileg- ustu og sýnist þar sitt hverjum eins og gengur. Má segja að þetta sé að mörgu leyti eðlilegt þar sem það á að heita að ekk- ert sé lengur nýtt undir sólinni í tónlistinni sem flestu öóru nú til dags, nú þegar hafi allir mögu- leikar í sköpuninni verió nýttir. Það kemur þó fyrir mig endr- um og eins að eiga erfitt með aó átta mig á einstaka verkum þ.e.a.s. aó ég get ekki svo glatt skilgreint eóa flokkað viðkom- andi tónlist. Er ekki laust vió aó maóur sé bara nokkuð ánægó- ur þegar það gerist og á þaó þá sérstaklega við þegar vió- leitnin til að líkja við lætur ekki á sér kræla. Það er líka undan- tekningarlítið vísbending um að mér muni falla sú tónlist vel í geð og hún muni lifa vel og lengi með mér. Þannig er því einmitt farið hjá mér varðandi aóra plötu Bob Mould og félaga í Sugar, Beaster, sem er sex laga að EP/mini gerð. Reyndar væri rangt aó halda því fram að tón- listina á henni væri ekki hægt aó flokka, því það er vissulega hægt. Það er hins vegar hinn magnaði andi sem svífur yfir vötnum á henni í lagasmíðun- um sem gerir hana sérstaka og verður ekki lýst auðveldlega með orðum. Kyngimagnað, of- urkröftugt og seióandi eru helstu orðin sem manni dettur í hug til að lýsa þeirri rokktónlist sem Beaster geymir og er þá ekki mikió sagt. A þetta við um öll lög plötunnar sem saman mynda mjög sterka og jafna heild. Hef ég þá skoðun nú eftir aó hafa heyrt Beaster að tón- listarmenn mættu á ný að fara aó gera styttri plötur upp á sex til átta lög. Þær yrðu þá eflaust fleiri heilsteyptari og meira að- laðandi til hlustunar frá upphafi til enda en nú er. Þróunin hefur nefniiega orð- ið sú í kjölfar geisladiskabylt- ingarinnar að plötur hafa lengst vegna meira pláss á þeim þ.e. að í stað um á að gíska tíu laga að meðaltali á LP plötu, eru þau sjaldnast færri en 12 á geislaplötu og oft fleiri nú. Gjalda því margar annars að mörgu leyti góðar plötur fyrir það að á þeim eru of mörg lög og þá einhver innan um þau góóu _ sem hefðu mátt missa sín. Á þessu eru þó að sjálf- sögðu undantekningar sem betur fer og auóvitað geta disk- ar með færri lögum líka verið misjafnir að gæðum. En sem sagt hvað Beaster með Sugar varðar þá er um eitt lítið stykki meistaraverk að mínu mati að ræða sem eflaust verður talið eitt þaó besta þeg- ar árið verður gert upp. Er svo- lítið erfitt að trúa því að svo gott verk hafi verið unnið sem hjáverk frá vinnunni á stóru plötunni Copper Blue á síðasta ári, eins og Mould hefur skýrt frá, en þannig mun það víst hafa verið. Virðist því kappan- um þeim allt takast vel nú eftir frekar misheppnaðar tilraunir undir eigin nafni, en Mould gerði einar tvær sólóplötur eftir að hljómsveitin hans fræga Hu- sker Du leið undir lok. Hefur Sugar notió mikilla vinsælda sérstaklega í Bretlandi með plöturnar, sem hefur að ofan- sögðu verið vel verðskuldað. Er vonandi að nýja stóra platan sem nú er í bígerð verði eins vel heppnuð, þannig að hljóm- sveitin festist endanlega í sessi. Þá er einnig vonandi að sögur þess efnis að Mould hyggist setja hana í salt séu ekki réttar, því það yrði mikil synd. Ur ýmsum áttum Nýtt lag komið út frá Pet Shop Boys eftir langt hlé. Iframhaldi af viðtalinu vió „Hún AndaH er rétt aó láta nafnió á tvöfalda diskinum fljóta hér með, en það gleymd- ist óvart í viótalinu. Nefnist hann því skemmtilega nafni Núll og Nix og geymir eins og frá var greint yfir þrjátíu lög. Auk óþekktari nafna koma þar við sögu Björk, Júpiters og fleiri. En Hún Andar er ekki eina akureyrska hljómsveitin sem á lag á nýrri safnplötu, því Amma Dýrunn, sú ágæta rokk- sveit hér í bæ, er með eitt lag á safnplötunni Lagasafnið 3 sem Axel Einarsson stendur fyrir. Er sú plata nú rétt í þann mund að líta dagsins Ijós. Nú á dögunum vorum við ís- lendingar nokkuð spenntir vegna kvikmyndahátíðarinnar í frönsku borginni Cannes. Átt- um vió þar tvær myndir í tveim- ur hliðarkeppnum hátíðarinnar Sódómu Reykjavík í keppni um gullnu myndavélina og Ævintýri á okkar tímum í flokki stutt- mynda. Ekki unnu okkar mynd- ir til verðlauna, en eins og kunnugt er vakti Sódóma mikla athygli, sem e.t.v. kann að koma íslenskri popptónlist til góða, sem var gegn- umgangandi í myndinni. Þaó vakti athygli við verðlauna- myndina í stuttmyndaflokknum aó þar fóru tveir frægir tónlist- armenn meó einu hlutverkin, þeir Tom Waits og Iggy Pop. Nefndist hún Kaffi og sígarettur og var leikstýrt af þeim þekkta Jim Jarmusch. Er þetta reynd- ar ekki í fyrsta skipti sem þess- ir tveir reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu, en líklega hefur árang- urinn ekki verið betri fyrr. Það er svo frekar af Iggy að segja að kappinn er í tónleikahug- leióingum þessa dagana auk þess sem ný plata er á dag- skrá með haustinu. Eftir eins og hálfs árs hlé geta nú aðdáendur bresku popphljómsveitarinnar frægu Pet Shop Boys glaðst, því hún er nú nýbúin að senda frá sér nýtt lag sem kallast Can You Forgive Her. Kemur það út eins og nú er algengt í fleiri en einni útgáfu og fylgir þar einnig meira nýtt efni meó. Verða þessar útgáfur í það minnsta fjórar, þar sem lagið birtist í ýmsum mismunandi myndum með mismunandi aukaefni. í sumar mun svo væntanlega vera von á fleiri lögum úr smiðju þeirra Neil Tennant og Chris Lowe, en ný plata í fullri lengd lítur ekki dagsins Ijós fyrr en í september. Hljómsveitin Quiet Riot sem ásamt Bon Jovi, Van Halen og fleirum kom bandarísku þungarokki í tísku í upphafi síðasta áratugar, en hvarf síð- an helst til skjótlega af sjónar- sviði frægóarinnar, er nú aftur komin á kreik. Er væntanleg ný plata frá henni nú í júní, sem geyma mun fyrsta nýja efnió í yfir tíu ár auk órafmagnaðar út- gáfu á Small Faces laginu fræga Itchycoo Park. Mun plat- an nefnast Terrified og verður sú sjötta frá hljómsveitinni þeg- ar allt er talið. Var það með plötunni Metal Healt sem Quiet Riot sló í gegn meó, en hún seldist í milljónum eintaka. Var meóal annars á henni gamli Sladeslagarinn Cmon Feel The Noise sem náði gríðarmiklum vinsældum. Skipa nú Quiet Ri- ot tveir af upprunalegu meðlim- unum þeir Kevin DuBrow söngvari og Carlos Cavazo gít- arleikari auk bassaleikarans Kenny Hillary og og trommu- leikarans Bobby Rondinelli sem eitt sinn var í Rainbow. Megadeth, kraftsveitin sem nú hefur nýlokið við aö halda tónleika meó Metallica í Englandi, fékk skömmu áður en kom að þeim heldur ógeð- feldar fregnir um ákæru á hendur sér í tengslum við morðmál. Nánar tiltekið hefur hljómsveitin blandast inn í mál fimmtán ára þungarokksaðdá- anda sem myrti móður sína með voðalegum hætti fyrir nokkru. Segist drengurinn, sem er frá Houston í Texas, hafa myrt móður sína eftir boði frá kölska sjálfum sem á víst að hafa birst honum oftar en einu sinni. Hafa verjendur hans gripió þá skýringu á lofti og tengt hana tónlistinni og þá sérstaklega tónlist Megadeth með þeim rökum að hún sé af hinu illa. Er lag Megadeth Go To Hell sérstaklega tínt til, en það á að hafa hljómað í eyrum drengsins er hann framdi verknaðinn. Er þetta eins og gefur að skilja lagt fram í þeim tilgangi aó fá mildari dóm yfir drengnum, jafnvel til að fá hann dæmdan ósakhæfan vegna brjálsemi. Hvort það tekst eða ekki á eftir aó koma á daginn, en það er augljóst aó vandinn er dýpri en svo að rekja megi hann til tónlistar Megadeth, sem þó er býsna kröftug og árásargjörn á köfl- um. Er þetta í þriðja skipti á til- tölulega skömmum tíma sem rokktónlistarmenn blandast inn í dómsmál meó þessum hætti, en áóur höfðu Ozzy Osbourne og Judas Priest lent í slíku sem meintir sökudólgar í sjálfs- Izzy Stradlin hefur á ný um stund- arsakir hafið leik með Guns N' Ftoses. morðsmálum. í þeim tveimur tilfellum var um málaferli að ræða, sem fóru á þá lund að bæði Ozzy og meðlimir Judas Priest voru sýknaðir. að verður ekki annað sagt en að skammt hafi verið stórra högga á milli hjá rokk- sveitinni vinsælu og umdeildu Guns N Roses að undanförnu. Eins og sagt var frá hér í Poppi fyrir skömmu lenti gítarleikarinn Gillby Clarke í mótorhjólaslysi fyrir nokkru þar sem hann braut á sér annan handlegginn m.a.. Var vonast til að hann næði sér fyrir tónleika hljóm- sveitarinnar í Englandi um síð- ustu mánaðamót, en svo varð ekki þannig að góð ráð voru dýr. Varð því úr mörgum að óvörum að fá Izzy Stradlin, sem Clarke leysti af hólmi fyrir um tveimur árum, til að hlaupa í skarðið á tónleikunum tveimur til að bjarga þeim fyrir horn. Kom þetta ekki hvað síst á óvart vegna þess að mikið gekk á þegar Stradlin hætti og hafa síðan, eða þar til nú, margar kaldar kveðjur gengið á milli hans og Axel Rose söngv- ara Guns N Roses. Ekki hafa ennþá borist fregnir af hvernig svo til tókst, en væntanlega hefur Stradlin ekki verió í vand- ræöum með sitt hlutverk. Hljómsveitin Stone Roses frá Manchester var mikið í fréttum fyrir rúmu ári vegna alls kyns vandræðagangs og vit- leysu bæði innanbúðar og ut- an. Meðal annars og reyndar einna helst átti hljómsveitin í útistöðum við Silvertone útgáf- una, sem vildi ekki láta hana lausa fyrr en í fulla hnefana til risans Geffen, en varð þó að gefa sinn hlut eftir dómsúr- skurð. Var þá talið að þessi ein efnilegasta sveit Bretlands í langan tíma væri með pálmann í höndunum, en annað virðist nú vera að koma á daginn. Það kann nefnilega svo að fara að hljómsveitin yfirgefi Geffen áður en hún hefur hljóðritað eitt eóa neitt fyrir fyrirtækið og er þá allt erfiðið sem á undan er gengið farið fyrir lítið. Það er þó ekki vegna þess að fyrir- tækið vilji hætta við allt sam- an.eða að Stone Roses vilji losna að svona geti farið, held- ur vegna nokkuð sérstakrar klásúlu í samningnum þeirra á milli er snertir aðilann sem hafði milligöngu fyrir hönd Gef- fen um hann við hljómsveitina. Stendur þar að ef viðkomandi, Gary Gersh, hætti slíkum störf- um hjá fyrirtækinu, sé hljóm- sveitinni einnig frjálst að yfir- gefa það. Hefur nú þessi staóa einmitt komið upp og hefur Gresh flutt sig yfir til Capitol út- gáfunnar. Það verður þó að teljast líklegt að Stone Roses verði áfram hjá Geffen þrátt fyrir þetta og sveitin sendi frá sér sína aðra plötu undir merki hennar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.