Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 16

Dagur - 12.06.1993, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 12. júní 1993 Umsjón: Vilborg Gunnarsdóttir HALLO KRAKKAR! Nú eru aðeins nokkrir dagar til 17. júní og þá er nú venjulega gaman að skreppa í bæinn. Það verður margt um að vera á Akureyri eins og í flestum bæjum; skrúðgöngur og fleira en á Akureyri verður líka kraftakeppni, söngvara- keppni, bamaball og margt fleira. Vonandi verður alls staðar gott veður svo hátíðarhöldin gangi vel. Góða skemmtun! Þótt hvalir séu mörg tonn af þyngd og músin sé aðeins lítið kvikindi, hefja þau bæði lífsgöngu sína í móður- kviði og þá eru þau næstum því jafn stór. SVONA TEIKNUM VIÐ... veika önd. PÚSL Hversu gamall er maðurinn? Leggið allar tölurnar sam- an og þá komist þið að því! •sje 1.9 ja uubh :usnei Rebbi Hólms Einhver stal silfurpeningi úr myntbúöinni í morgun. Rebbi Hólms spyr nærliggjandi kaupmenn hvort þeir hafi séö einhvern grunsamlegan á ferð. Bakarinn segist hafa séö laumulegan þvottabjörn með silfurpeninga læðast út úr myntbúðinni. Þá tekur Rebbi eftir dálitlu í bakaríinu sem bendir til þess að bakarinn sé hugsanlega að segja ósatt. Hvað sá hann? 'uuunjolcf jo uubh 'QiQnejq \ uui ujn -uBuiuadjnjijs qiqojj jnjaq uuuE>|Bg 0|i>) e bqo pund g jn69A |uuu6ia b qi -gnBjq qb jACf jijjs jn)|S| iqqag :usnEq Raðið snjókörlunum i röð þannig að sá sem mest er eftir að laga sé númer eitt og svo koll af koli. •q-g :p-t> :b-c ‘a-Z :p-t :usnBi Hvers vegna dillar kanínan nefinu? a) Vegna þess að hana klæjar. b) Til að reka í burtu óvini. c) Til að halda nasaholunum hreinum. (q :usnB-| RÓBERT BAIMGSI heimboðið „Kannski heyra þau ekki tii okkar,“ segir Eddi. „Komum inn og athugum hvort við sjáum einhvem." Róbert samþykkir þetta og gengur á undan þeim inn um blæju- dyrnar og inn í forstofu þessa forvitnilega húss þar sem Torfhildur býr ásamt föður sínum, kínverska sjónhverfingamannin- um. Félagar hans koma á eftir en um leið og þeir eru komnir inn í forstofuna lokast dyrnar á eftir þeim með smelli. Um leið heyrist dularfullt suð og þeim til undrunar byrjar gólfið að síga niður um þröng göng.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.