Dagur - 12.06.1993, Qupperneq 5
Laugardagur 12. júní 1993 - DAGUR - 5
Fréttir
Útflutningsmöguleikar á lambakjöti:
Evrópubúar eru að uppgötva gæði þess
- eigum að snúa okkur til sérverslana og veitingahúsa, segir Erlendur Garðarsson, markaðsstjóri
Útflutningsmöguleikar á lamba-
kjöti eru fyrir hendi en skila-
boðin eru einnig skýr. Markað-
urinn vill fá kjötið ferskt og
einkum sérstaka hluta lamba-
skrokksins frágengna í fallegum
umbúðum. Þetta kom meðal
annars fram í máli Erlends
Garðarssonar, markaðsstjóra, á
fundi um stöðu og framtíðarsýn
íslenskrar sauðfjárframleiðslu,
sem haldinn var á Hvamms-
tanga nýverið. Erlendur sagði
að um 20% aukning hefði orðið
á sölu lambakjöts í Evrópu að
undanförnu og lambakjötið nyti
vaxandi vinsælda.
Erlendur sagði aó leggja bæri
áhcrslu á markaðsstarf í Evrópu.
Island væri þekkt í álfunni sem
matvælaframleiðsluland og hrein-
leiki landsins væri á vitorði
margra. Hann benti á mikla sölu-
aukningu á lambakjöti í álfunni að
undanförnu - nokkuð mismunandi
cftir einstökum löndum og sagði
að Evrópubúar væru að vakna til
vitundar um að lambakjötið væri
hreinni náttúruafurð cn kjöt af
öðrum sláturdýrum.
Erlendur sagði að íslenskir út-
flytjendur lambakjöts ættu ekki að
Fjárhagsáætlun
Höfhahrepps:
Hlutaíjárkaup
og gangstéttagerð
- eru stærstu einstöku
kostnaðarliðir
Sveitarstjórn Höfðahrepps af-
greiddi fjárhagsáætlun þessa
árs í maí s!.. Heildartekjur eru
áætlaðar 90 milljónir kr., en
helstu framkvæmdir ársins
verða við gatnagerð, þ.e. lagn-
ingu gangstétta o.fl.. Hreppur-
inn kaupir hlutafé upp á 6 millj.
í skóverksmiðjunni Skrefínu.
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri
segir fátt nýtt við þessa fjár-
hagsáætlun, annað en lægri
tekjur vegna minnkandi afla og
hann er svartsýnn á að sveitar-
félögum verði bættur tekjumiss-
ir vegna afnáms aðstöðugjalds í
framtíðinni.
I fjárhagsáætluninni er gert ráð
fyrir 90 millj. kr. heildartekjum,
þar af 74,3 millj. í skatttekjur,
rekstrargjöld eru áætluð 55,7
millj., greiðslubyrði lána 12,8
millj., gjaldfærð fjárfesting 10,1
millj. og eignfærð fjárf. 7,9 millj.,
þar af 5 millj. vegna gatnagerðar.
Ný langtímalán nema 6 millj.
króna, vegna hlutabréfakaupa,
eins og áður segir. Stærstu rekstr-
arliðir eru fræðslumál, 16 millj.,
yfirstjórn 9,7 millj. og almanna-
tryggingar 9,8 millj..
Að sögn Magnúsar eru fá ný-
mæli í þessari áætlun, nema hvað
skatttekjur eru um 6 millj. kr.
lægri en á síðasta ári. Skýringin er
minni afli og missir aöstöðugjalds,
sem ríkió bætir upp að hluta á
þessu ári. Sagði Magnús að sveit-
arstjórnarmenn hefóu brugóist í
þessu máli, þar sem ekki hefði
verið gengið frá hvaó tæki við eft-
ir þetta ár. Hann kvaðst ekki trú-
aður á að ríkið haldi áfram aó
bæta sveitarfélögunum upp tekju-
tapið og ef aðstöðugjald eða bætur
í þess staó falla algerlega nióur
tapar Höfðahrcppur um 20 millj. á
ári, m.v. síðustu ár. sþ
leggja áherslu á að koma vörum
sínum inn í stórmarkaði Evrópu.
Til þess væri það verð sem mark-
aðirnir greiddu of lágt og við
hefðum einnig alltof lítið magn að
bjóða stórum verslunarkeðjum.
Okkar markaðshópur yrði að vera
innan veitingahúsa og lítilla sér-
verslana með matvörur, sem legðu
sérstaka áherslu á ómengaðar og
náttúrulegar vörur. Erlendur sagði
einnig að nú væri lag fyrir okkur
aö hefjast handa við slíkt mark-
aðsstarf af fullum krafti. Lamba-
kjötið nyti vaxandi vinsælda í
Evrópu og svaraði vel auknum
kröfum neytenda um hrein og góð
matvæli. Hann sagði að nokkum
tíma tæki að vinna íslensku
lambakjöti sess á þessum markaði
og byggðist á því hvemig okkur
tækist til við að koma hinum evr-
ópsku neytendum í skilning um
gæði framleiðslu okkar.
Erlendur sagði ennfremur að
mögulegt væri að koma innmat úr
sauðfé á evrópskan markað. Lifur
þætti lostæti - til dæmis í Frakk-
landi en lifur úr evrópskum slátur-
dýrum væri í flestum tilfellum
óæti þar sem þau lifðu við mun
meiri mengun en hér væri til stað-
ar. Aðspurður sagði Erlendur
Garðarsson að ekki hefóu verið
gerðir kynningarbæklingar um
Iambakjötið á erlendum tungumál-
um til að dreifa á meðal innkaups-
aðila og almennra neytenda er-
lendis á sama hátt og ullar og
skinnavörur hafa verið kynntar.
Slíkt væri þó brýn nauðsyn og
huga þyrfti að fjárveitingum
vegna slíks verkefnis. ÞI
r
Auglýsing frá
Alþýðusambandi
r
Islands
Vegna nýgerðra kjarasamninga ASÍ og viðsemjenda hækkuðu niðm'greiðslur á tilteknum
innlendum landbúnaðarafurðum frá 1. júní s.l. sem jafngildir að virðisaukaskattur á þessar
vömr í smásölu hafi verið lækkaður í 14%. Við þessa breytingu skapast forsendur til að lækka
verð í verslunum sem hér segir:
»■ ' .....——I" ■ II .... .... .... ..... " " ' I I II »'11 I... ■„
Lækkun %
Svínakjöt 5,3%
Kjúklingar 5,5%
Egg 5,8%
Unnar mjólkurvörur aðrar en
smjörvörur 8,5%
Algengustu flokkar nautakjöts 3 - 4%
Hér á eftir eru nefnd til frekari viðmiðunar dæmi um væntanlegar verðbreytingar á nokkrum
algengum vörum. í þeim verslunum þar sem viðkomandi vörur hafa verið seldar á lægra
verði en hér er nefnt, eru forsendur til þess að þær verði áfram á lægra verði. Miðað
er við verðupptöku Samkeppnisstofiinnar í maí og verðlista Mjólkursamsölunnar.
Var í maí Ætti að verða
Kjúklingar kr/kg 592 559
Eggkr/kg 365 344
Brauðostur kr/kg 799 732
AB mjólk 1/1 117 107
Rjómi 1/4 148 136
Jógúrt trefja 180 gr. 46 42
Tilefni er til verðlækkana á unnum kjötvörum þar sem kostnaðarhluti kjöts er um
helmingur af framleiðslukostnaði. Því eru forsendur til þess að unnar kjötvörur lækki
í verði um tvö til þrjú prósent.
Alþýðusambandið skorar á almenning og forystumemi verkalýðsfélaga að fylgjast vel með
verði ofangreindra vöruflokka í verslunum og ganga eftir því við verslunareigendur að þær
verðlækkanir sem að ofan greinir nái til neytenda. Sérstaklega ber að fylgjast með því, að
verðiækkun á kjöti gangi eftir.
Alþýðusambandið mmi sjálft leggja sitt að mörkum til þess að fylgja ofannefhdum
verðlækkunum eftir.