Dagur - 12.06.1993, Qupperneq 24
Stjórn íslensks skinnaiðnaðar
hf. á Akureyri fór í gær fram á
að fyrirtækið yrði úrskurðað
gjaldþrota. Pegar blaðið fór í
prentun í gær var búist við að
gjaldþrotaúrskurður yrði kveð-
inn upp síðdegis. Þetta er gífur-
legt áfall fyrir atvinnulíf á Ak-
ureyri, enda hefur fyrirtækið
veitt um 200 manns atvinnu og
þar með verið einn stærsti at-
vinnurekandi bæjarins.
Akvörðun um að óska eftir
gjaldþrotaskiptum var kynnt
starfsmönnum fyrirtækisins í
gærmorgun.
Að sögn forsvarsmanna ís-
lensks skinnaiðnaðar hefur fyrir-
tækið átt á síðustu mánuðum í
verulegum rekstrarerfiðleikum og
hefur einkum óhagstæð þróun á
helstu sölumyntum félagsins, sem
eru ítölsk líra og breskt pund, auk
efnahagslegra þrenginga á Ítalíu,
gert fyrirtækinu erfitt fyrir. Ítalía
er langstærsti markaður heims
Norskt fyiirtæki
reynir nýja aðferð í
vegagerðhérá landi
- á vegarkaflanum frá Gili að Engimýri
í Öxnadal
„Bikfesta“ er nafn á aðferð í
vegagerð sem ekki hefur verið
reynd hér á landi áður, en
norska fyrirtækið Vegdekke
mun, samkvæmt þróunarsamn-
ingi við Vegagerð ríkisins, prófa
á vegarkaflanum frá Gili að
Engimýri í Öxnadal í sumar.
„Við ætlum að gera tilraun með
bikfestu, en þar er um að ræða
kaldblöndun asfalts og steinefna í
námu. Þessari efnisblöndu er keyrt
út í veg og hún lögð átta senti-
metra þykk með malbikunarvél.
Ofan á þetta er lögð tvöföld klæð-
ing. Annars vegar er ætlunin að
reyna svokallað froðubik og hins
vegar bikfeitu. Við klæðningar í
dag er notað asfalt og „white
spreat“, sem þykir ekki nógu gott
fyrir náttúruna og er bannað víða
erlendis. Við blöndun bikfeitunn-
ar er hins vegar notað asfalt og
vatn, sem er að sjálfsögðu mun
náttúruvænni aðferð. Til þessa
höfum við lagt tólf sentímetra efra
burðarlag úr möluðu steinefni og
þriggja sentímetra klæðningu.
Samkvæmt þessari nýju aðferð er
lagt fjögurra sentímetra efra burð-
arlag úr steinefnum eins og áður,
en síðan er lagt átta sentímetra
þykkt lag, blönda af asfalti og
steinefnum, sem við köllum bik-
festu. Auk þess sem þessi aðferð
er talin náttúruvænni en gamla
aðferðin á hún að skila sterkari
vegi,“ sagði Sigurður Oddsson,
umdæmistæknifræðingur hjá
Vegagerðinni á Akureyri.
Sigurður sagði að Norðmenn-
imir ætluðu að byrja að framleiða
þennan efnismassa að rúmri viku
liðinni og áætlað væri að byrja að
keyra efninu ofan í veginn 24.
júní og verkinu yrði lokið um
miðjan júlí.
Þessi nýjung í vegagerð hefur
verið reynd með góðum árangri í
Noregi og víðar erlendis. „Ég fór
til Noregs í fyrrahaust til þess að
kynna mér ýmsar nýjungar í
vegagerð þar í landi og þar á með-
al var þessi kaldblöndun. Málið
æxlaðist þannig að norska fyrir-
tækið Vegdekke reyndist tilbúið
að gera þróunarsamning við
Vegagerð ríkisins um að reyna
þetta hér á landi. Auk vegarkafl-
ans í Öxnadal er ætlunin að nota
bikfestu í Hellistungunum, á
Holtavörðuheiði Borgarfjarðar-
megin,“ sagði Sigurður.
Vegdekke mun ekki sjá um að
leggja efhið út. Þann verkþátt
annast Festun hf., sem er sam-
starfsfyrirtæki Klæðningar hf. í
Reykavík, Loftorku í Reykjavík,
Taks í Búðardal og Króksverks í
Sauðárkróki. óþh
fyrir mokkaskinn, sem er aðal
framleiðsluvara fyrirtækisins. Á
fyrri hluta þessa árs hefur verið
mikill samdráttur í sölu á mokka-
skinnum og afgreiðsla pantana
hefur færst í töluverðum mæli yf-
ir á síðari hluta árs. Á síðasta ári
var fyrirtækið rekið með bullandi
tapi og neikvæð þróun hefur
haldið áfram það sem af er þessu
ári. Forráðamenn íslensks skinna-
iðnaðar segja fyrirtækið einfald-
lega ekki hafa burði til að taka
þessi áföll á sig óstutt, enda sé
það mjög skuldsett.
Þetta er þriðja gjaldþrot stórra
iðnfyrirtækja á Gleráreyrum á
stuttum tíma. Fyrir réttum tveim
árum varð Álafoss hf. gjaldþrota,
skóverksmiðjan Strikið í fyrra-
sumar og nú íslenskur skinnaiðn-
aður hf., sem stofnaður var upp
úr Skinnaiðnaði SIS.
Þær upplýsingar fengust hjá
Iðju - félagi verksmiðjufólks á
Akureyri, að í síðasta mánuði hafi
158 félagsmenn í Iðju verið á
launaskrá hjá Islenskum skinna-
iðnaði. Þetta er því enn eitt stóra
áfallið fyrir Iðju og fyrir voru um
100 Iðjufélagar á atvinnuleysis-
skrá.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjómar Akureyrar, sagði að
þetta væri enn eitt áfallið í at-
vinnumálum í bænum. Bæjar-
stjóm stendur nánast vamarlaus í
stöðunni. Við munum að sjálf-
sögðu ekki skorast undan því að
ræða þetta mál við eignaraðila og
aðra þá sem málið snerta, en það
em ekki uppi nein sjónarmið um
það að bæjarfélagið fari að koma
inn í þessa mynd. Til þess hefur
það enga burði. En því má ekki
gleyma að Islenskur skinnaiðnað-
ur hefur veitt um 200 manns at-
vinnu og fyrirtækið hefur haft
gífurleg áhrif á allt atvinnu- og
efnahagslíf í bænum og lagt bæj-
arfélaginu til verulegar tekjur með
sinni starfsemi. Því miður stönd-
um við þama andspænis sama
dæmi og þegar Niðursuðuverk-
smiðja K. Jónssonar varð gjald-
þrota og það sama má segja um
gjaldþrot Álafoss árið 1991 og
skóverksmiðjunnar Striksins á síð-
asta ári,“ sagði Sigurður J. Sig-
urðsson. óþh
A
SUMIR HAFA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ. EN ÞU?
Ef ekið er á ökutæki sem
skilið hefur verið eftir á vegi,
vegna bilunar eða af öðmm
ástæðum en umferðarslysi, án
þess að kveikt sé á viðvörunar-
ljósum og viðvörunarþríhyrn-
ingur notaður, er ekki víst að
eigandi bifreiðarinnar fái tjón
sitt bætt að fullu ef ekið er á
ökutækið.
í 30 gr. umferðarlaga segir
til um skyldur ökumanns þegar
ökutækið stöðvast vegna vélar-
bilunar eða af öðmm orsökum.
Hafi ökutækið stöðvast á stað
þar sem af því geta skapast
hætta eða óþægindi skal það
strax flutt af staðnum og öku-
maður gera ráðstafanir til að
vara aðra vegfarendur við þar í
til ökutækið hefur verið flutt £
á brott. |
Tillitssemi í umferðinni 3
er allra mál.
smvtnrm mfnnar
AKUREYRINGAR 0G AÐRIR LANDSMENN
ofnm opnað eitt glæsilegaséa kaffikús landsins,
. í eiim söguifrægasta liuisi Ikæjarins 11 Grámnfélagsliúsiim
POLLINN
\
nr~w~
Æm iiQill H Hl
i|||i|ji M
Q],D3
CQ
fflj
' mm
sureyn
_ Sí®4*
VERIÐ VELKOMIN!
/T