Dagur - 21.01.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 21. janúar 1995
FRÉTTIR
Blönduós:
Hús rýmt og
leiksvæði lokað
I fyrrakvöld rýmdi lögleglan á
Blönduósi eitt hús og lokaði
leiksvæði í útjaðri bæjarins.
Astæðan er sú að þar slúttu
fram miklar snjóhengjur og höfðu
menn áhyggjur af því að þær gætu
fallið fram með ófyrirsjánalegum
afleiðingum. Umrætt svæði er í
útjaðri bæjarins, norðan Blöndu.
Um miðjan dag í gær var búið að
fá snjóbíl með tönn og átti að
reyna að sprengja hengjurnar
fram. HA
Sundlaug Húsavíkur:
Metaðsókn í fyrra
Metaðsókn var að Sundlaug
Húsavíkur á síðasta ári þegar 53
þúsund almennir sundgestir
sóttu sundstaðinn. Árið þar áður
var einnig metaðsók, en þá
mættu um 47 þúsund gestir í al-
Bæjarráð Húsavíkur:
Flugsam-
göngur ræddar
- við Flugleiðamenn
Bæjarráð Húsavíkur vill fá betri
þjónustu og tíðara flug til Húsa-
víkur. Þjónusta Flugleiða við
Húsvíkinga og Þingeyinga var
til umræðu á fundi bæjarráðs sl.
fímmtudag og mættu Páll Hall-
dórsson og Bergþór Erlingsson
frá Flugleiðum á fundinn.
Stefán Haraldsson, bæjarfull-
trúi (B), sagði að óvissa væri enn
varðandi sumaráætlunina og þaó
kæmi sér illa fyrir ferðaþjónustu-
aðila, sem í mörgum tilfellum
seldu feróir og gerðu áætlanir með
margra mánaða fyrirvara. Hann
sagði að Flugleiðir væru inni á því
að auka ferðatíðnina og bjóða
ferðir kvölds og ntorgna þrjá daga
í viku í sumar, enn væri þó ekkert
frágegnið í þessum efnum.
Stefán sagði að málin hefðu
verið reifuð og framtíðin rædd á
fundinum, og þar væri mikill
munur á eða þegar Flugleiðir
hefðu fækkað ferðum umræðu-
laust fyrir örfáum árum, en það
hefði einmitt bitnað harkalega á
ferðaþjónustuaðilum. IM
Raf-
geymar
Bása-
moftur
Réttarhvammi 1
Sími12600
mennt sund. Ef kennslusund er
tekið inn í dæmið hafa sundlaug-
argestir verið um 70 þúsund, en
þá er æfíngarsund Völsungs ekki
reiknað með.
„Sumarið var gott og ég verð
var við meiri áhuga fólks á að
hreyfa sig. Svo hefur verió heilsu-
efling í gangi hér og ég á von á
mikilli aðsókn á þessu ári, ekki síst
í sumar vegna bættrar útiaðstöðu,“
sagði Sveinn Rúnar Arason, for-
stöðumaður, aðspuröur um þessa
auknu aðsókn.
Rúnar sagði að framkvæmdir
við útiaóstöðuna og heitan pott í
sumar hefóu verið þess valdandi
að í þrjár vikur var eingöngu sund-
laguin opin en ekki heitir pottar
eða vaðlaug. Aðsókn hefði alveg
dottið niður á þessu tímabili og
hann reiknaði með að sundlaugar-
gestir hefðu verið um 1500 fleiri ef
aðstaða við laugina hefði einnig
verið opin þennan tíma, sam-
kvæmt venju. IM
Brim við Húsavíkurhöfn
Mikið brim hefur bulið á ströndinni sunnan Húsavíkur undanfarna daga. Gefið hcfur upp á Norðurgarðinn, en þcg-
ar myndin er tekin er fjara við Suðurgarð þó myndarlega skvetti við hafnarmannvirkin. Mynd: IM
Hrafnagilsskóli:
Eyjafjarðarsveit yfirtekur eign-
arhuta Svalbarðsstrandarhrepps
Eyjafjarðarsveit hefur yfirtekið
eignarhluta Svalbarðsstrandar-
hrepps í Hrafnagilsskóla. Samn-
ingur um þetta efni var gerður
skömmu fyrir síðustu áramót og
miðaðist við yfírtöku frá 1. janú-
ar sl. Samningurinn hefur verið
samþykktur í sveitarstjórnum
Vísbendingar um atvinnuleysi í janúar:
Búist við að atvinnuleysi aukist
Atvinnuástandið versnar að
jafnaði mikið í janúar en gera
má ráð fyrir rúmlega 30% árs-
tíðarsveiflu að jafnaði en hún
var rúm 18% í fyrra en aðeins
rúm 3% árið 1992.
Atvinnulausir eru að meðaltali
um 880 færri í desember sl. en í
desember 1993 og þeir eru einnig
um 902 færri nú í lok desember en
1993. Aö þessu leyti ætti atvinnu-
leysi nú í janúar að verða minna
en í janúar í fyrra, sem var um
7,5%.
Ekki er þó að búast við að físk-
vinnslan fari mikið í gang fyrr en
líða tekur á janúar, auk þess sem
iðnaðarmönnum, verslunarfólki,
bifreiðastjórum auk verkafólks
fjölgar jafnan mikið á atvinnu-
leysisskrá í mánuðinum. Sam-
kvæmt þessu má búast við aö at-
vinnuleysið aukist nokkuð í janú-
ar, alls staðar á landinu og verði
líkast til á bilinu 6,3% til 6,8%,
segir í fréttatilkynningu frá
Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráóuneytisins. KK
sveitarfélaganna tveggja.
Samkvæmt samningnum yfir-
tekur Eyjafjarðarsveit lán, bæði
hjá Lánasjóði sveitarfélaga og
Iðnlánasjóði, yfirtekur viðskipta-
skuldir og hluta í áföllnu viðhaldi.
Samtals eru þessir liðir metnir á
20,2 milljónir króna.
Jafnframt samningnum um
yfirtöku á eignarhluta Svalbarðs-
strandarhrepps í skólanum var
gerður viðaukasamningur þar sem
Eyjafjarðarsveit skuldbindur sig
til að taka við nemendum úr Sval-
barðsstrandarhreppi í 9. og 10.
bekk án gjaldtöku til vors 1996.
Opinber framlög, s.s. jöfnunar-
framlög, vegna þeirra nemenda
sem stunda nám við Hrafnagils-
skóla fram að þeim tíma renna því
til Eyjafjarðarsveitar. JOH
Aldarafmæli Kvenfélags Húsavíkur:
Kvenfélagskonurnar hafa unnið
mikið menningar- og mannúðarstarf
- og stuölaö að guðsótta og góðum siðum í plássinu
Kvenfélag Húsavíkur minnist
aldarafmælis síns á þessu ári.
Kvenfélagið var stofnað 13.
febrúar 1895 og var fyrsti for-
maður þess Aðalbjörg Jakobs-
dóttir. Þórdís Ásgeirsdóttir var
formaður félagsins í 25 ár sam-
tals, þegar lögð eru saman þrjú
tfmabil er hún gegndi formanns-
starfínu, en það er lengst allra
formanna félagsins. Núverandi
formaður er Svala Hermanns-
dóttir og hefur hún gegnt for-
mennskunni í tvö ár.
Kvenfélagskonur hafa byrjað
afmælisárið af röskleika í starfi,
svo sem þeirra var von og vísa.
Fyrstu helgina í janúar buðu þær
bömum bæjarins á jólatrés-
skemmtun, barnaball, en sá háttur
hefur verið á hafður nær óslitið
síðan 1908, samkvæmt fundar-
gerðarbókum. Þó var ekki hægt að
útvega jólatré 1915 og því var
samkoman þá felld niður. Um síð-
ustu helgi hélt kvenfélagið sitt ár-
lega þorrablót og nk. mánudag
verður haldinn aðalfundur félags-
ins.
Afmælisfundur verður haldinn
á afmælisdaginn, 13. febrúar. Ef
veður leyfir verður haldið í blys-
för frá kirkjugarðinum og látinna
kvenfélagskvenna minnst. Síðan
verbur gengið að Félagsheimilinu,
þar sem fundurinn verður haldinn.
Þann 18. febrúar verður hátíð-
arsamkoma í Félagsheimilinu, í
tilefni afmælisins. „Við vonum að
sem flestir Húsvíkingar, nær-
sveitamenn og aðrir fagni þar með
okkur, meðan að húsrúm leyfir,"
sagði Svala, en hægt er að panta
miða hjá kvenfélaginu. Vandað
verður til hátíðarsamkomunnar á
allan hátt og bæði heimatilbúin og
aðfengin skemmtiatriði verða
flutt.
Fleira verður gert í tilefni af-
mælisársins, því félagskonur ætla
í ferðalög sjálfum sér til upplyft-
ingar. Einnig mun félagið láta gott
af sér leiða samkvæmt venju og
hefur þegar ákveðið að gefa end-
urhæfingastöðinni í Hvammi 100
þúsund krónur, og fleiri verkefni
eru á döfinni.
Svala hefur undanfarió verið að
kynna sér sögu félagsins og segir
það hafa verið fróðlegt. Félags-
konur hafi á þessum 100 árum
tekió sér mýmargt fyrir hendur og
látið sér flest mannlegt vera við-
komandi. Húsavíkurkirkja hafi
löngum notið starfskrafta félags-
kvenna, svo og kirkjugarðurinn.
Guðsótti og góðir siðir hafi greini-
lega verið í öndvegi hjá frum-
kvöðlum félagsins. Sem dæmi um
margvísleg störf á vegum félags-
ins má nefna; síðan 1967 hafa fé-
lagskonur árlega staðið fyrir lauf-
arbrauösgerð og selt laufabrauðió
til fjáröflunar. En 1895 sáu kven-
félagskonurnar um uppfræðslu
ungra stúlkna á sunnudagsmorgn-
um og kenndu þeim réttritun, lér-
eftasaum, prjón og hekl. Þær sem
ekki sinntu fræðslumálunum tóku
að sér að gefa fátækum bömum
eina máltíð á dag, í jafnlangan
tíma og aörar konur unnu við til-
sögnina. Á sumrin var ull safnaö
og þeir sem ekki höfðu vinnu á
veturna voru þá látnir vinna úr ull-
inni. Árið 1909 var bókuð sú álits-
gerð á fundi að konur ættu að fá
jafnrétti á við karla í öllum grein-
um. Eitt sinn aðstoðaði félagið vió
að ráða hjúkrunarkonu til bæjar-
ins.
Það er ekki að efa að Kvenfé-
lag Húsavíkur hefur unnið mikið
menningar- og mannúðarstarf í
bæjarfélaginu á umliónum áratug-
um. IM