Dagur - 21.01.1995, Blaðsíða 18
I
18 - DAGUR - Laugardagur 21. janúar 1995
Þorri hinn gamli
svo er það sagt...
í gær var fyrsti dagur þorra en
þorri byrjar ætíö á föstudegi á
tímabilinu 19.-25. janúar og hefst
því þorri meö fyrsta móti í ár. Aó
fomu tímatali var þorri fjórði
mánuður vetrar. Síðasti dagur
þorra, þorraþræll, er laugardagur-
inn 18. febrúar þá gengur góa í
garð og er fyrsti dagur góu sunnu-
dagurinn 19. febrúar nefndur
konudagur.
Þorri viróist hafa verið vetrar-
vættur til forna en opinber dýrkun
hans var bönnuð við kristnitök-
una. Árni Bjömsson segir að þorra
sé jafnan lýst í kvæðum sem stór-
skomum öldungi með hrímgrátt
skegg. Þorri var ýmist talinn líkj-
ast þurfandi förumanni eða ábúð-
armiklum fornkappa eða víkingi
en undir lok kvæóanna rann það
oft upp fyrir skáldunum að hann
væri í raun ekki annað en klaka-
dröngull. Oftast var þorri talinn
harður og grimmur en stundum
fyrst og fremst heimtufrekur og
geðstirður. KLJ
Hér er kominn höldur grár,
harðindanna faðir,
í traðir,
Þorri karl, og það er mér sagt
þyngri drótt með sinni makt
svo skerpist skaði.
Ami Þorvarðarson.
Þorrablót
Upphaflega vom þorrablót ávallt á
fyrsta degi þorra og enn þann dag í
dag eru haldin þorrablót fyrstu helg-
ina í þorra í nokkrum norðlenskum
sveitun til dæmis í Lýtingsstaða-
hreppi og í Bárðdælahreppi.
I Sögu daganna eftir Áma
Bjömsson segir: „Þegar kristni var
lögtekin, hefur auðvitað verið bann-
að að blóta slíkar heiðnar vættir,
enda nóg af kirkjulegum stórhátíð-
um allt um kring. Því hlutu þorra-
blótin fomu aó falla í gleymsku. En
auðsætt er þó, að þorri hefur verið
blótaður á laun á venjulegum heim-
ilum fram á okkar daga. I tengslum
við rómantíkina og sjálfstæðisbar-
áttuna á 19. öld virðist sú hugmynd
hafa kviknað aó efna til þorrablóta
„að fomum sið“. Hafnarstúdentar
sýnast hafa riðið á vaðið eins og á
svo mörgum sviðum öðrum, og
fyrsta þorrablót í nýjum sið, sem
vitað er um, er haldið í Kaup-
mannahöfn 24. janúar 1873. Næstir
taka Akureyringar siðinn upp á
þjóðhátíðarárinu 1874, og virðist
hann hafa haldist þar óslitið síðan.“
Frá þorrablóti sem haldió var á
Akureyri árið 1884 hefur varðveist
veislublöðungur eða söngtexti. Eitt
kvæðanna sem sungið hefur verið á
þessu blóti fyrir 111 árum var svo
hljóðandi:
Hjer er átveizla stór,
Hjer er ólgandi bjór
Drukkinn ákaft í skrautlegum sal.
Hjer er hangikjöt heitt,
Hjer er hnakkaspikfeitt,
Hjer er hákall og magála val.
Bóndadagur
Fyrsti dagur þorra er nefndur
bóndadagur. I bók Árna Bjömsson-
ar, Þorrablót á Islandi, segir að það
sé skylda bænda að fagna þorra eða
bjóða honum í garð. Að morgni
bóndadags skal bóndinn rísa fyrstur
úr rekkju fara út á skyrtunni einni
berlæraður og berfættur en í annarri
brókarskálminni, hina brókarskálm-
ina á hann að draga á eftir sér. Þeg-
ar út kemur á bóndinn að hoppa á
öðrum fæti kringum bæinn.
„Vissulega getur það sýnst með
nokkrum ólíkindum, að bændur
hlaupi nær naktir út í morgunsárið
um miðjan janúar og bjóði kuldan-
um birginn á ekki skemmri stund
en tekur að hoppa á öðrum fæti
kringum bæjarhús, hvernig sem
viðrar. En ekki þyrfti það samt
að vera nein
frágangs-
sök
sjálfu sér. Menn sváfu oftast naktir
í baðstofunni, sem oft gat verið hél-
uð innan á morgnana, svo að þar
hefur ekki verið öllu hlýrra en í
venjulegum kæliskáp nú á dögum.
Viðbrigðin að koma út úr bænum
þurftu því ekki að vera neitt gífur-
leg,“ segir í áður nefndri bók Árna
Bjömssonar.
Af eldri heimildum má þó ráða
að það hafi verið húsfreyja sem hafi
átt að taka á móti þorra. En heim-
ildum ber saman um að á bónda-
degi skuli húsfreyja gera vel við
bónda sinn, gefa honum bestu mat-
arbitana og jafnvel færa honum
matinn í rúmið.
Sá siður að konur gefi bónda
sínum blóm á bóndadaginn er ekki
gamall og samkvæmt bókinn
jk. Þorrablót á íslandi voru
\ bóndadagsblóm fyrst
auglýst hér á landi
í hádegisútvarp-
inu árið 1980.
KU
ÚAMLA MYNDIN
ftí fi[ fii
fil
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvern á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beðnir að snúa sér til Minja-
safnsins, annaó hvort með því að
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma
24162 eða 12562 (símsvari).