Dagur - 21.01.1995, Side 3
FRETTIR
Laugardagur 21. janúar 1995 - DAGUR - 3
Stormasömu prófkjöri framsóknarmanna á Norðurlandi vestra lokið:
Páll hélt fyrsta sætinu örugglega
- reglurnar urðu frjálslegri eftir því sem leið á prófkjörið
Laust fyrir miðnætti á fimmtudagskvöldið lágu fyrir úrslit í opnu prófkjöri
Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Óhætt er að segja að
um stormasama baráttu hafi verið að ræða og ekki eru allir á eitt sáttir
varðandi framkvæmd prófkjörsins og túlkun þeirra reglna sem farið var
eftir, sem urðu afar Qálslegar undir lokin, eins og einn frambjóðandi sagði.
Verða þau mál án efa mikið rædd á kjördæmisþingi flokksins, sem verður á
næstunni. Þingmenn flokksins, Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson,
sóttust sem kunnugt er báðir eftir fyrsta sæti listans og niðurstaðan er sú að
Páll mun skipa það sæti. Efstu þrjú sætin verða eins skipuð og fyrir síðustu
kosningar. Átta manns gáfu kost á sér í prófkjörinu. Þátttaka var afar góð,
en 2853 greiddu atkæði, ríflega 800 fleiri en greiddu flokknum atkvæði sitt í
síðustu Alþingiskosningum. Páll hlaut 1512 atkvæði í 1. sætið en Stefán
1173 og 1763 atkvæði í 1. og 2. sætið. Elín R. Líndal, Lækjamóti V.-Hún,
fékk 1364 atkæði í 3. sætið, sem hún skipaði einnig í síðustu kosningum. í
4. sæti verður Magnús B. Jónsson á Skagaströnd, sem hlaut 1366 atkvæði í
það sæti, en hann er nýr á listanum. Urslitin fyrir Qögur efstu sætin eru
bindandi og þannig mun því röðin verða á framboðslistanum í Alþingis-
kosningunum í vor. Herdís Sæmundardóttir á Sauðárkróki hlaut 1545 at-
kvæði í 5. sæti, Sverrir Sveinsson á Siglufírði hlaut 1343 atkvæði í 6. sæti,
en hann skipaði 4. sætið á lista flokksins í síðustu kosningum. Gunnar
Bragi Sveinsson á Sauðárkróki hlaut 1355 atkvæði í 7. sæti og Valur Gunn-
arsson á Hvammstanga 1380 í 8. sætið.
Páll Pétursson:
Kannast ekki við
brot á reglum
„Mér finnst
þetta afar góð
niðurstaða og í
2. og 3. sætinu
er fólk sem ég
mælti með að
yrði þar. Ég
hefði gjarnan
viljað hafa Sverri Sveinsson í 4.
sætinu áfram, ekki það að mjög
góður maður kcmur í 4. sætið,“
sagði Páll Pétursson, aðspurður
um úrslit prófkjörsins. Greini-
legt væri einnig að kjósendur
vilji hafa þá Stefán sem þing-
menn áfram.
Varóandi framkvæmdina sagist
Páll ekki skilja þá umræðu. „Ég
veit ekki til þess að neitt hafi ver-
ið gert sem er óeðlilegt eða frá-
brugðið þeirri framkvæmd sem
var á prófkjöri árið 1987. Ég
kannst ekki við það að reglur hafi
verið brotnar af mínum stuðnings-
mönnum. Mér finnst líka aó þeir
sem mest hafa talað um óeðlilega
framkvæmd hafi sýnt sig í að vera
góðir smalamenn líka og ég er
ekki að leggja þeim það til lasts.
Það er t.d. athyglisvert að aðeins
þriðjungur atkvæóa á Sauðárkróki
var greiddur á kjörstað. Þar hafa
því verið einhverjir menn á ferð.“
Hann sagði það sína skoðun að
listinn ætti að vera með þeim
hætti sem úrslit prófkjörsins segja
til um og nú ættu mcnn að fara að
hugsa til aðalbaráttunnar, þó alltaf
væri erfitt aö ná upp kosninga-
vinnu þegar prófkjör hafi verið
undanfari uppslillingar.
Stefán Guðmundsson:
Ánægður með út-
komuna en ekki
framkvæmdina
„Ég er ósáttur
við fram-
kvæmd próf-
kjörsins, en
síðan er annað
mál hvort ég er
ósáttur við nið-
urstöðurnar og
miðað við atkvæðafjölda flokks-
ins í síðustu kosningum er ég
mjög ánægur með að fá 1173 at-
kvæði í 1. sætið,“ sagði Stefán.
Stefán sagði það ekkert hafa
breyst að hann muni hlíta niður-
stöðum prófkjörsins. Hins vegar
sé hann jafn óánægður með aö
menn skuli ekki getað stýrt einu
prófkjöri á skikkanlegan hátt
þannig að reglur séu virtar. Eins
sé greinilegt að sú ákvöröun kjör-
dæmisþings að hafa prófkjör og
leyfa fólki að hafa áhrif á listann,
hafi ekki verið tekin að ástæðu-
lausu. Þessi ákvörðun hafi verið
vísbending um vilja til breytinga,
sem hafi verið undirstrikað í próf-
kjörinu. Það sjáist best af því að
Páll Pétursson fái rúman helming
atkvæða, eða tæp 53%, í fyrsta
sætið.
Hann sagði morgunljóst að á
kjördæmisþingi, sem haldið verð-
ur á næstunni, muni fara fram
miklar umræður um framkvæmd
prófkjörsins. „Sú umræða verður
að fara fram og við verðum að
hafa kjark til þess að þora að ræða
um framkvæmd prófkjörsins og
læra af þeim mistökum sem menn
hafa verið að gera.“
Hann óttaðist ekki samstarfs-
öróuglcika við Pál Pétursson á
næsta þingi, en vildi að endingu
ítreka þakkir til sinna stuðnings-
manna. „Ég hlýt að meta það al-
veg sérstaklega hvað ég átti mik-
inn stuðning hér á Sauðárkróki og
undirstrika hvað það var mér mik-
ils viröi að þeir sem þekktu mig
hvað best og störfuðu hér með
mér, studdu mig vel. Ég mun ætíó
meta það.“
Þróunarsjóður sjávarútvegsins veitti í desember
átta úreldingarloforð til norðlenskra skipa:
Drangey SK-1 eini togarinn
í þeim hópi
Eigandi Styrkur Rúml.
Húni HU-62 Ásver hf., Blönduósi 7.613.000 29,46
Aldey ÞH-l 10 Höfói hf„ Húsavík 25.785.000 100,82
Drangey SK-1 Skagfirðingur hf. Sauðárkr. 72.810.000 451,12
Andri OF-62 Sæbcrg hf„ Olafsfirði 2.262.000 11,53
Eyrún EA-155 Ril'hf., Hrísey 27.135.000 131,79
Óli SI-34 Sverrir S. Ólason, Sigluf. 1.296.000 8,20
Sænes EA-75 Sænes hf„ Grcnivík 60.750.000 111,13
Geiri Péturs ÞH-344 Geiri Péturs hf. Húsav. 38.245.000 121,51
Opið hús á Amts-
bókasafninu í dag
Stjórn Þróunarsjóðs sjávarút-
vegsins veitti átta skipum í eigu
Norðlendinga loforð um úreld-
ingarstyrki í desembermánuði
sl., alls að upphæð 238,9 millj-
ónir króna. Rúmlestatala þess-
ara skipa er 965,56 lestir. Einn
togari er í hópnum, Drangey
SK-1 frá Sauðárkróki. Á fundin-
um í desember voru alls veitt
loforð um úreldingu 34 skipa,
4.679 brúttólestir, alls að upp-
hæð 1,2 milljarður króna.
I byrjun þessa árs lágu fyrir 33
úreldingarbeiðnir, og er Kristbjörg
ÞH-44, eign Korra hf. á Húsavík,
þar á meóal. Einnig liggja fyrir
beiónir um úreldingu sex frysti-
húsa.
Á árinu 1994 voru því alls veitt
loforð um úrcldingu 176 skipa að
upphæð 3,6 milljarðar króna. Þau
eru alls 13.400 rúmlestir sem er
um 11% af heildarstærð íslenska
fiskiskipaflotans.
Norðlensku skipin sem fengu
loforð um úreldingu í desember
voru eftirtalin: GG
í tilefni þess að í dag eru 100 ár
liðin frá fæðingu Davíðs Stefáns-
sonar skálds frá Fagraskógi verð-
ur opið hús á Amtsbókasafninu á
Akureyri í dag kl. 10-18.
Fólki gefst kostur á að skoöa
salarkynni Amtsbókasafnsins og
kynna sér starfsemi þess. Rétt er
að geta þess að í dag verða sektir
vegna vanskila bóka felldar niður
og því er fólk hvatt til að skila
þeim bókum sem það hefur trass-
að að koma á safnið innan tiltek-
ins tínra. Þá er þess að geta að
gestum verður boðið upp á kaffi
og kökur í tilefni dagsins.
Klukkan 16 verður formlega
opnuð sýning í Amtsbókasafninu
á verkunr Davíðs, þ.m.t. handrit,
bækur og margt fleira. óþh
Elín R. Líndal:
Reglurnar frjáls-
legri með timanum
„Ég sóttist eftir
einu af þremur
efstu sætunum
og hlýt að vera
ánægð með að
ná því. Mér
finnst ég fá
góða kosningu
í 3. sætið,“ sagði Elín R. Líndal,
sem einnig skipaði 3. sætið á
framboðslistanum fyrir síðustu
kosningar.
Líkt og Stefán hafði hún ýmis-
legt að athuga við framkvæmd
prófkjörsins. „Ég lagði strax í upp-
hafi áherslu á að það giltu sömu
reglur á öllum svæðum og að þær
væru túlkaðar eins. Þannig hefur
ekki verið og reglurnar hafa oróið
frjálslegri með tímanum, það smá
losnaði um þetta og varð afar
frjáslegt undir lokin. Síðasta túlk-
un á reglunum náði ekki hingað í
V.-Húnavatnssýslu og ég er afar
sátt við það. Sú túlkun gekk svo
langt að hún var komin á ansi grátt
svæði að mínu mati,“ sagði Elín.
Þama var hún að vísa til þess að
trúnaðarmenn í hverju sveitarfé-
lagi voru famir að framselja trún-
að sinn og ábyrgð til annarra og
þannig búa til fleiri trúnaðarmenn
til að „hjálpa til“ við kosninguna.
„Mér finnst að fók verði að líta
í eigin barm að lokinni þessari
baráttu og spyrja hvort það sé sátt
við sjálft sig,“ sagði Elín.
Magnús B. Jónsson:
Ánægður með
árangurinn
Magnús B.
Jónsson á
Skagaströnd
kom nýr inn í
4. sæti Iistans
og velti þar úr
sessi Sverri
Sveinssyni á
Siglufirði. Hann kvaðst mjög
ánægður með sinn árangur, en
sagist ekki vera rétti maðurinn
til að útskýra þetta góða gengi.
Hann sagist lítið hafa um fram-
kvæmd prófkjörsins að segja.
„Framkvæmdin hér á Skagaströnd
var eftir þeim reglum sem viö
töldum bestar og réttastar. Við er-
um til í alla umræðu um hvemig
aó því var staðið. Hins vegar hef
ég enga skoðun á því hvað aðrir
menn hafa gert og engar sönnur á
þeim sögum sem verið hafa á
sveimi, aðallega í fjölmiðlum.“
Varðandi mikla þátttöku í próf-
kjörinu sagist hann vonast til þess
að hún benti til góðrar stöðu
flokksins í kjördæminu, þó varla
sé raunhæft að ætlast til þess að
allt þetta fylgi skili sér í Alþingis-
kosningunum. HA
4. Rammaáætlun ESB
Rannsókna- og tækniáætlanir
KYNNING Á AKUREYRI
Efni: Kynning á starfsemi Evrópusambandsins
varðandi rannsóknir og tækniþróun á
sviði iönaðar og matvælaframleiðslu.
Markhópur: Stjórnendur fyrirtækja og rannsóknar-
stofnana á Norðurlandi.
Staður: Hótel KEA, Akureyri.
Dagur: Þriðjudaginn 24. janúar 1995.
Tími: 13.00-15.30.
Fundarstjóri: Dr. Þorsteinn Gunnarsson.
DAGSKRÁ:
1. Kynning á 4. Rammaáætlun ESB.
Dr. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri.
2. Rannsókna- og þróunarstarfsemi:
• Rannsóknasamstarf (CRAFT).
Hörður Jónsson, Rannsóknarráði íslands.
• Tækniyfirfærsla og nýting á rannsókna-
niðurstöðum (VALUE, SPRINT).
Emil B. Karlsson, Iðntæknistofnun íslands.
• Fiskveiðar og landbúnaður (AIR).
Dr. Hjörleifur Einarsson, Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins.
3. Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna (KER).
Emil B. Karlsson, Iðntæknistofnun íslands.
4. Ferli umsókna.
Hörður Jónsson, Rannsóknarráði islands.
Iðntæknistofnun íslands - Akureyri.
Skrifstofa Atvinnulífsins á Norðurlandi.
Háskólinn á Akureyri.