Dagur


Dagur - 21.01.1995, Qupperneq 8

Dagur - 21.01.1995, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 21. janúar 1995 100 ár iiðin frá fæðingu Davíðs Stefánssonar Heimsókn í Davíðshús Við Bjarkarstíg 6 á Akureyri var heimili Davíðs Stefánssonar og þar er nú rekið saí'n helgað minn- ingu hans. Davíð bjó í húsinu í 20 ár, frá árinu 1944 og til dauða- dags. Hörður Bjarnason, síðar húsameistari ríkisins, teiknaói húsið fyrir skáldið og er það afar stílhreint og fallegt. Akureyrarbær eignaðist það síðan að Davíó látn- um og sér um rekstur þess. Heim- ili Davíðs var á efri hæðinni og hefur það verið varðveitt alveg eins og þaó var meðan skáldió bjó þar. Á neðri hæðinni er íbúó ætluð lista- og fræðimönnum til Þcssi mynd af þjóðskáldinu mun hafa verið tekin 1932. Davíð og Sæmundur á Sjónarhæð í 48. árg. af Norðurljósinu, ár- ið 1967, skrifar Sæmundur á Sjónarhæð merkilega grein um samskipti hans og Davíós Stef- ánssonar. Sæmundur kcmur víóa vió. Meðal annars segir hann: „Ég gekk við hliö hans nokkur skref. Þá fannst mér, sem urn hann léki stór hjúpur, er lagóist upp aó mér. Eg skynjaði frcntur með líkama mínum, hcldur cn ég sæi það, að í hjúpi þessum voru rákir eóa rendur, þræðir upp og nið- ur, mismunandi litir. Bar mjög mikió á dökkum línum eóa rákum, en ljósari litir voru þó innan um. Þctta mun hafa vcr- ið ára Davíðs, sá Ijóshjúpur, er sumir skyggnir menn segjast sjá utan um fólk. Aörir segja, að sérhver mannslíkami sé raf- kcrfi, og heilinn útvarpsstöð, er scndir frá sér rafbylgjur. Þaó mun nú vera vísindalega sannað.“ Af frásögn Sæmundar má ráóa að hann ræddi oft trúmál við Davíð. Um þctta segir Sæ- mundur m.a.: „Ég sagói því einhverju sinni viö Davíð, að hann ætti aö taka opinbera af- stöóu með Kristi. „Eg hefi gcrt það,“ sagói hann. Vitnaði hann þá til oróa í leikriti sínu „Vopn guðanna" „Krossinn sigraði sverðið." Ég hafói ekki þá lesió leik- ritið, en hefi gert það síðan. Skil ég því nú, betur en áóur, afstöðu hans. Allur þorri ís- Ienzkrar þjóðar afneitar krossi Krists. Davíð skarst úr leik. Hann semur leikritið, virðist mér, til að boóa sigur kross- ins.“ óþh harði Jónssyni er ekki síður falleg- ur, en hann fékk Davíð einnig í fimmtugsafmælisgjöf frá Páli Isólfssyni, Ríkharði og fleirum. Á veggjum eru m.a. myndir eftir Ás- grím Jónsson úr þjóðsögunum og fjögur verk eftir Kjarval eru einnig meóal málverka í húsinu. Margir reka einnig augun í gaml- an kirkjuskáp frá 1667, en ekki er vitað hver smíðaði gripinn. I öðrum herbergjum hússins er einnig marga merka muni að finna og víða eru bækur. I svefnherbergi Davíðs er m.a. skrifborð Ólafs Davíðssonar þjóðsagnasafnara, sem var móðurbróðir hans. Hér hefur aðeins verð sagt frá örfáum af þeim þeim fjölda dýr- gripa sem voru í eigu skáldsins og auóvitað er erfitt að lýsa með orð- um því sem fyrir augu ber. Heim- sókn í Davíshús ætti svo dæmi sé tekið að vera skylda hjá sem flest- um þeirra skólanemenda sem læra ljóð skáldsins og einnig ættu fleiri Ákureyringar að gefa sér tíma til aó líta við í Bjarkarstíg 6, því það er svo sannarlega heimsóknarinn- ar virði. HA Ámi Krist- jánsson um Davíð Davtð kaus einveruna, skrifar Ámi Kristjánsson í grein sinni „Fáeinar minningar um Davíð“ í bókinni Skáldið frá Fagra- skógi. „Einvcran er mitt hlut- skipti í lífinu, og ég sætti mig við það,“ sagói hann eitt sinn við ntig. Hann gat, með því að kjósa hana, lokað sig úti frá öllu því, sem hann vildi ekki samþýðast og sem andsiætt var eðli hans og anda. „Ég hcl' aldrei gcngið í þann kór, sem djölúllinn dírígerar, og syng þá heldur sóló í mínu homi,“ hef- ur Árni eftir Davíð. Ámi scgir að stundum hafi Davíð fundiö sárt til cinvcr- unnar og þá hafi hann saknað vina. „í skammdeginu sótti að honurn beygur," skrifar Ámi og vitnar til jólabrél's scnt hann fékk firá Davíð um jólin 1950: „Oft er cinvcran þung, cn dag- arnir líða, skarnmdegió styttist, senn ler sól aó hækka á lofti, - enginn flýr örlög sín, og senn tekur þetta allt enda, dauðinn nálgast hægt og hægt eins og vorið. Ég cr hættur að láta mér blöskra um of háska og hatur mannanna." óþh Skrifborð skáldsins, sem hann smíðaði sjáifur þegar hann var í gagnfræða- skóla. Myndir Halldór. Skáldlega vaxinn Steingrímur J. Þorsteinsson lýsir Þetta var skáldskapurinn sjálfur, Davíð Stefánssyni á eftirfarandi holdi kiæddur. hátt í bókinni Skáldið frá Fagra- Róntur hans var djúpur og skógi: karlmannlegur, hlýr, hreimfagur, hljómríkur. Það voru ógleyman- „Davíð var einstaklega skáld- legar hátíðarstundir, þá sjaldan lega vaxinn maður. Hann var hár hann las ljóð sín eöa fiutti ræöur vexti, fríður sýnum og tígulegur, - Svo persónulegur var flutning- gekk hratt um götur, meðan Ur hans, þróttmikill, stílfastur, hann var í fullu fjöri, og frcmur mcð mikilli hrynjandi. Það var álútur. Mér fannst í æsku, eins eins og samruni skáldskapar og og hann hlyti oftast að vcn í tónlistar. Var sem flest hlyti þá skáldleiðslu og liti því sjaldan aukið gildi eða áhrifamagn.“ upp. Svona átti skáld aó vera. óþh skemmri dvalar. Þar er t.d. núna Arnar Jónsson leikari, sem á reyndar sama afmælisdag og skáldið. Safnvörður er Ragnheiður Stef- ánsdóttir. Safnið er opið alla daga vikunnar yfir sumartímann og eft- ir samkomulagi yfir vetrartímann. Að sögn Ragnheiðar kemur ein- hver í safnið nær alla daga yfir sumartímann, þó gestir séu oft ekki margir í hvert sinn. „Það fólk sem hingað kemur, er fólk sem þykir vænt urn Davíð og elskar hans Ijóó. Fyrstu árin eftir að Davíð dó var mikil aðsókn og það sem ég hef fundið þennan tíma sem ég hef verið hér, er að ungt fólk er farið að koma í rneira mæli, sem mér finnst afskaplega skemmtileg þróun,“ sagði Ragn- heiður. Bókasafnið vekur athygli Sent fyrr segir er íbúðin eins og hún var meóan Davíð bjó þar og er hægt að ganga herbergi úr her- bergi og skoða alla þá muni sem voru í eigu skáldsins, sem margir eru hreinustu dýrgripir, bæði mál- verk og annað. Bókasafnið vekur að sögn Ragnheiðar mikla athygli og aó- dáun en þar þekja bækur alla veggi, en Davíó unni bókum mjög og í safni hans má finna margar merkilegar gamlar bækur af ýmsu tagi, t.d. gamlar guðsoróabækur, fræóibækur, bækur um þjóöleg efni o.fl. o.fl. Skrifborðið er stórt og voldugt, smíðaó af Davíð sjálf- urn á gagnfræðaskólaárunum. I bókaherberginu gefur einnig að líta kistil útskorinn af Bólu- Hjálmari, fiðlu sem faðir hans gaf honum sem dreng, auk gamals langspils og banjós. Þar inni er einnig flygill og ofan á honum liggur afar merkileg og falleg biblía frá 1756. Bókasafnió hefur ekki verið skráð, en það stendur til að gera ef fjárveiting fæst. í bókaherbcrginu þekja bækur alla veggi, margar stórmerkilegar. Ofan á flyglinum er biblía frá 1756 og skírnarskál Davíðs. Fjórtán ára gamall að aldri. Mynd- ina tók P. Brynjólfsson „Konung- legur Hirðfotograf“ í Rcykjavík. Þessi veglegi bóka- og skjalaskápur úr hnotu var gjöf til Davíðs frá svcitung- um hans í Arnarncshreppi á fimmtugsafmælinu. Fyrir ofan hann hangir málvcrk frá scinni hluta 18. aldar, síðasta kvöldmáltíðin, málað af Hallgrími Jónssyni, scm bjó á Naustum ofan Akureyrar. Þarna sat Davíð löngum stundum, með útsýni út Eyjafjörðinn. Á veggnum er mynd sett saman úr vcrkum Sölva Helgasonar. Davíð sat gjarnan í herbergi fyrir framan bókaherbergið þar sem hann hafði útsýni út Eyja- fjörðinn sem hann unni svo mjög. Þar á vegg er m.a. stór mynd, sett saman úr verkurn Sölva Helgason- ar, sem varð Davíð sem kunnugt er að yrkisefni í Sólon Islandus. Margt að sjá I stofunni eru ekki síður fallegir gripir, m.a. stór bóka- og skjala- skápur úr hnotu sem sveitungar hans í Arnarneshreppi gáfu hon- um á fimmtugsafmælinu. Lampi útskorinn í íslenskt birki af Rík-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.