Dagur


Dagur - 21.01.1995, Qupperneq 14

Dagur - 21.01.1995, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Laugardagur 21. janúar 1995 Um þessar mundir stendur einmitt yfir innritun hjá dansskólanum á Akureyri, Dansstudioinu, sem danskennararnir Sigurbjörg Sig- fúsdóttir og Anna Breiðfjörð Sig- urðardóttir, sem báðar eru búsettar á Akureyri, eiga og reka. Það er því opin leið fyrir þá sem vilja læra að dansa aö hafa samband við þær stöllur og fá að njóta þekkingar þeirra. 4 ára og upp úr Sigurbjörg hefur rekið dansskóla á Akureyri síðan árið 1988, Dans- skóla Sibbu, en í haust gekk Anna til liðs við hana og þær stofnuðu dansskólann Dansstudioið. Sibba er fædd og uppalinn á Blönduósi en hefur búið á Akureyri í tólf ár en Anna er Reykvíkingur, sem flutti til Akureyrar fyrir þremur árum. Þær stöllur kenna fólki allt frá fjögurra ára og upp úr og elstu nemendumir eru á áttræðisaldri. Kennslustaður Dansstudiosins er að Oseyri 6 á Akureyri en einnig kenna þær Anna og Sibba öldruó- um í Víðilundi og nemendum í grunnskóla á Akureyri. Ymist er um að ræða hefðbundna hóptíma eða sémámskeiö fyrir félagasam- tök eða hópa. Auk þess hafa þær tekið að sér einkatíma. Dans er fyrst og fremst æfing - Hafa margir sótt einkatíma hjá ykkur? Má bjóða þérupp í dans? „Nokkur pör, en ef til vill of fá, því að nokkrir einkatímar í dansi geta oft leyst vandamál sem ann- ars skapast á dansstöóum og auð- vclt er að komast hjá. Oft er það þannig að annar aðilinn hefur gaman af því að dansa og langar til þess að dansa við maka sinn, sem ef til vill er ekki jafn áhuga- samur. Þá geta nokkrir einkatímar verið lausnin. Að þeim loknum eru flest pör fær um að taka sporið á böllum án nokkurra vandræða eða tilbúin til þess að fara í hóp- tíma. H/F HYRNA BYGGINGARVERKTAKI / TRÉSMIÐJA Dalsbraut 1 ■ Akureyri ■ Sími 96-12603 • Fax 96-12604 Smíðum fataskápa, baðinnréttingar, eldhúsinnréttingar og innihurðir Teiknum og gerum föst verðtilboð, þér að kostnaðarlausu Greiðsluskilmálar við allra hæfi %fi %fi %ft %fi %* %* %* %* V* %* %* %* %^ %*■ %* %* %* V* •A %* •A %^ %^ %^ Þorrablót í Öngulsstaðahreppi hinum forna Þorrablót verður haldið í Freyvangi laugardags- kvöldið 28. jan. nk. og hefst kl. 21.00 stundvíslega. Hljómsveitin Namm leikur fyrir dansi. Forsala miða verður í Freyvangi miðvikudagskvöldið 25. jan. og fimmtudagskvöldið 26. jan. milli kl. 20 og 22. Einnig er hægt að panta miða í síma 31196 sömu kvöld. Miðaverð er kr. 1.500.- Hittumst hress! Nefndin. v* %* •A %A %A %* %A v* v* %A %A %A %A %A %A %A %A %A %A v* %A v* En svo sækir fólk líka einka- tíma einfaldlega vegna þess að það vill fá einkakennslu og fá að læra nákvæmlega þá dansa sem það hefur áhuga á. Við leitumst við að koma til móts við óskir fólks, þetta er ekkert mál, bara að hafa samband,“ sögðu danskenn- ararnir. - Þið takið að ykkur sérnám- skeið fyrir hópa. Hverjir hafa einkum nýtt sér þá þjónustu? „Það hafa nú verið ýmsir, til dæmis hópar úr framhaldsskólun- um hér á Akureyri, klúbburinn Líf og fjör, starfsfólk ákveðinna vinnustaða og jafnvel sauma- klúbbar. Það er alltaf sérstök stemmning þegar allir þekkjast á námskeiðinu og mikið fjör.“ Gamli góði rællinn - Nú má vænta þess að næstu mánuóina fari margir á árshátíðir eða þorrablót. Hvaða dansar nýt- ast fólki best á þessum hefð- bundnu böllum? „Það eru jive, tjútt og samba en gamli góði rællinn er líklega í fyrsta sæti. Ef fólk kann vel að dansa ræl er hægt að dansa hann við flest diskólög, ekki eingöngu hefðbundin lög. Það er til dæmis mjög gaman að dansa ræl vió lög Bubba og KK. Það sama má raun- ar segja um polkann." - Er þá rællinn það fyrsta sem fólk lærir þegar það kemur í dans- tíma til ykkar? „Já, þessi skiptispor eru algjör Allir verða að byrja á því að læra grunnsporin en svo má endalaust bæta fótafimina. undirstaða og þess vegna er best að læra þau fyrst. Við byrjum að kenna litlu krökkunum okkar og öðrum byrjendum grunnsporið, hliðar saman hliðar, og það er spor sem er notaó í ræl, jive, vals, chacha, quick stepp og fleiri döns- um. Þeir sem kunna þessi grunn- spor vel hafa góða undirstöðu til að dansa flesta dansa. Kanntu að tjútta En svo koma líka mjög margir til þess að læra tjútt. Það tjútt sem við erum að kenna í Dansstudio- inu er sænskt að uppruna og í Sví- ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ %^ Þessir ungu hcrrar eru heppnir því það er að mati danskennaranna emi mikilvægara fyrir stráka en stclpur að kynnast danssporunum snemma. amerísku ívafi, svona sömbu- takti.“ Vopn gegn feimni I dansskólanum eru böm frá fjög- urra ára aldri og Anna og Sibba benda á að börnunt gefist nánst ekkert annað tækifæri til að kynn- ast hreyfingum dansins en í dans- skóla. Þegar þau svo ná þeim aldri að geta sótt diskótek í félagsmið- stöðvum eða skólum eru þau í mörgum tilfellum of feimin til að fara aó dansa ef þau hafa aldrei dansað. Þeim finnst því mjög erf- itt að fara af stað ef þau hafa aldrei fengið neinar leiðbeiningar í því að hreyfa sig eftir tónlist. Þess vegna er dans mjög mikil- vægur í baráttunni gegn feimni unglingsáranna. Að sögn Sibbu og Önnu er dansnám enn mikilvæg- ara fyrir stráka en stelpur því það eru sterkari líkur á að stelpumar fari sjálfar af stað út á dansgólfið en strákarnir. „Dansinn nýtist fólki líka á margan annan máta en á dansgólf- inu. Ungur skíðamaður sagði okk- ur til dæmis að dansinn hefði hjálpaó honum að ná samhæfingu og stjóm á eigin hreyfinum og því hefði danskennslan tvímælalaust hjálpað honum í skíðabrekkunum. Dansinn hefur hjálpað mörgum, fullorðnum, unglingum og böm- um, að fá aukið sjálfstraust og vinna bug á óframfæmi og feimni,“ sögðu þær Sibba og Anna. KLJ Nú fer í hönd tími þorrablóta og árshátíða og ef til vill má segja að næstu mánuðir séu sam- kvæmistímabil hér á íslandi. Það er í það minnsta nokkuð öruggt að næstu helgar verð- ur víða sest að veilsuborði, sungið og dansað í félagsheimilum og samkomuhúsum. Já, ein- mitt dansað, dansað af hjartans list og mis mikilli fótafimi. Allir geta dansað með sínu lagi en það veitist vissulega ekki öllum jafn auðvelt að fínna taktinn eða fylgja herranum sínum eða dömunni. Sumum fínnst það allt í góðu lagi en aðrir vilja gjarnan bæta eigin danshæfni og ná valdi á nýjum töktum og sporum. Sigurbjörg og Anna danskenn- arar Dansstudiosins á Akureyri. Myndir: Robyn þjóð er það kallað bugg og kennt í skólum. Þetta er auðlært tjútt mjög líkt gamla góóa tjúttinu, sem margir eldri dansarar dansa af list.“ - Þið segið að þessi tegund tjútts sé auðlærð. Getur hver sem er lært það? „Já, það er í alvöru auðvelt að læra það. Það er gott aö ná takti því að þaó er tekið eitt spor fyrir hvem slátt og þetta er allt byggt upp á göngusporum, sem auðvelt er aö ráða við.“ Doop og groove - En svo eru alltaf einhverjir nýir dansar í tísku. Hverjir eru vinsæl- astir í ár? „Vinsældir hip hops, sem hóf- ust fyrir um það bil fjórum árum, virðast ætla að haldast en nýjustu dansamir eru til dæmis doop og kahlua groove. Doop er dans sem hefur komið í kjölfar lags meó sama nafni, sem var gefið út á geisladisknum Reif í tætlur. Dans- inn var kenndur á síðasta vorþingi íslenskra danskennara og er því einn af nýjum dönsum á þessu ári. Þetta er einstaklingsdans það er að segja það er ekki dansað í haldi, og er nokkurskonar diskódans. Kahlua groove er svipaður dans nema hvað hann er með suður- í danstímum yngstu kynslóðarinnar er bæði farið í skemmtilega lciki og ◄ lært aö dansa af áhuga og al- vöru.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.