Dagur - 02.12.1995, Side 4

Dagur - 02.12.1995, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 2. desember 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 464 1585, fax 464 2285). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Fríður eða ófríður á vinnumarkaði? í kjölfar niðurstööu launanefndar VSÍ og ASÍ í fyrra- dag um að segja ekki upp kjarasamningum hefur skapast sérkennileg staða á vinnumarkaðnum, þar sem nokkur verkalýðsfélög halda engu að síður til streitu uppsögn samninga, en ósvarað er enn hvort uppsögn nú er lögleg eða ekki. Það ræðst væntan- lega af máli verkalýðsfélagsins Baldurs á ísafirði í næstu viku. Þessi staða er merki um óeiningu í verkalýðshreyf- ingunni og hún hlýtur að vera áfall fyrir það fólk sem treyst hefur á að samtakamáttur verkalýðshreyfing- arinnar í landinu sé besta vopnið í baráttunni fyrir bættum kjörum. Frá síðustu heildarkjarasamningum hafa gerst hlutir sem ógnað hafa forsendum samn- inganna og þegar á árið leið kom í ljós að margir hóp- ar voru að semja um meiri hækkanir en náðust í heildarkjarasamningunum. Strax þá var ljóst að óró- leiki var að skapast á vinnumarkaðnum. í kjölfar úrskurðar kjaradóms í haust sauð endan- lega upp úr enda þar á ferðinni launabætur til æðstu embættismanna þjóðarinnar, sem voru langt út úr takti við þá línu sem mörkuð hafði verið. Vafalítið hafa margir litið svo á að með stuðningi sínum við uppsögn samninga hafi þeir verið að leggja lóð á vogarskál til þess að launanefndin segði samningum upp en þegar ljóst er að niðurstaða hennar er sú að hreyfa ekki við þeim er staða þeirra félaga sem sagt hafa upp orðin erfið. Sérstaklega þegar vafi leikur á að uppsögnin sé lögleg. Lægstu laun í landinu eru alltof lág og vissulega er kórrétt að launataxtarnir þurfa að vera miklu hærri og að sama skapi minna um eingreiðslur. Óánægjan er kraumandi undir yfirborðinu og hún magnast enn þegar félögin ganga sitt í hverja áttina á viðkvæmum tímapunkti eins og núna. Óhjákvæmilegt er að ræða aðferðir í baráttunni fyrir bættum kjörum og velta upp þeirri spurningu hvaða aðferðum til árangurs eigi að beita í framtíðinni. í UPPÁHALDI Fjörleg helgi hjá organistanum Jóhann Baldvinsson, organisti og stjórnandi Kórs Glerárkirkju, er í uppáhaldi í dag. Jó- hann hefur í mörg horn að Hta í desember, enda aðventan „vertíð“ starfs- manna kirkjunnar. A morgun kl. 16.30 stýrir Jóhann Kór Glerárkirkju og Barnakór Glerárkirkju á aðventutón- leikum í kirkjunni þar sem sungin verður tónlist tengd aðventu og jólum. Á efnis- skránni eru m.a. nokkur lög sem Jóhann liefur raddsett. HvaÖa matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Ég nefni heimagert Lasagne. Vppáhaldsdrykkur? Tvímæialaust vatn, ég drekk al- veg óhemju af vatni. HvaÖa heimilisstörffinnst þér skemmtilegust/leiðinlegust? Mér þykir skemmtilegast að elda en uppvaskið er leiðinlegast. Stundar þú einhverja markvissa lireyfingu eða líkamsrœkt? Ekki markvissa, en ég reyni að ganga eins mikið og mögulegt er. Ert þú í einhverjum klúbbi eðafé- lagasamtökum? Nei, það held ég bara ekki. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Jóhann Baldvinsson. Ég kaupi Dag og er með helgar- áskrift að Mogganum. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Það er bók eftir Piet Hein og síð- an er þar önnur ákafiega athygl- isverð bók sem fjailar um bama- sjúkdóma. I hvaða stjörnumerki ert þú? Ég er vatnsberi. Hvaða hljómsveitltónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? Ég nefni að sjálfsögðu Kór Gler- árkirkju og ég hef mikið álit á kollega mínum í Akureyrar- kirkju, Bimi Steinari Sólbergs- syni. Uppáhaldsíþróttamaður/leikari? Ég hef alltaf mætur á Magnúsi Scheving, þolfimimanni, og af leikurum nefni ég Dustin Hoff- mann. Hvað horfirþú mest á ísjónvarpi? Fréttir. Á hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Ég held ég nefni Þorstein Páls- son. Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Akureyri. Það þarf ekki annað en horfa út um gluggann til að sann- færast um það. Hvar vildirðu lielst búa ef þú þyrftir að fiytja búferlum nú? Til Hafnarfjarðar. Þar hef ég bú- ið og líkaði það afskaplega vel. Ef þú ynnir stóra mninginn í lottó- inu, hvernig myndir þú eyða pening- unum? Skipta um gler í íbúðinni minni. Hvernig viltþú helst verja frístund- um þínum? í rólegheitunum með fjölskyld- unni. Hvað œtlarðu að gera um helgina? Á laugardag (í dag) verð ég nieð æfingu fyrir aðventutónleika og á sunnudag verður bamastarf, messa og síðan sjálfir tónleikarn- ir. Það verður því nóg að gera um helgina. óþh JARÐBRYR ATU RÚNAR HALLDÓRSSON Bakþvottur og Bessastaðir Sú var tíðin að ég dreif mig norður minnst tvisvar á ári til að þvo á mér bakið. Það var eftir að ég flutti í höfuðstaðinn og fór að þrífa búk- inn reglulega. Aldrei var hægt að Ijúka verk- inu hér syðra, því ekki fann ég bakþvottabursta á neinum sund- stað á öllu Faxaflóasvæðinu og hef ekki fundið enn þann dag í dag. í Sundlaug Akureyrar er hins vegar alltaf hægt að ganga að bakþvotta- bursta vísum í þar til gerðri búk- skúringafötu í sturtuklefanum. Fleiri sækja hreinsun á bakhliðinni norður en ég, því einu sinni að sumarlagi þegar ég fór í sund á Akureyri kom ég að manni í sturt- unum sem stóð við skúringaföt- una. Hann skrúbbaði ákaft á sér bakið sem orðið var eldrautt af núningi. Við lá að húðin léti undan einsog þegar Grettir klóraði karli föður sínum forðum. I ljós kom að þetta var gestur að sunnan í viku- dvöl í orlofsíbúð þar nyrðra. Hann ætlaði að njóta til síðustu mínútu bakþvottarins í Sundlauginni og geyma í minningunni til næsta sumarfrís á Akureyri. Þetta litla áhald hefur sennilega meiri áhrif á ferðamannastrauminn en bæjaryf- irvöld gera sér grein fyrrir. Bak- þvottaparadísin Akureyri. Hljómar vel í auglýsingunum. Tímarnir breytast og hreinlætið með. Nú þarf ég ekki lengur að sækja bakþvottinn norður. Þá þjónustu fæ ég rétt upp úr klukkan sjö á hverjum virkum morgni í Sundlaugunum í Laugardal. Einkaframtakið blívur. Mér hefur tekist eftir morgunsund í 11 ár að ná öruggri stöðu í bakþvottaliðinu. Það er meiri áfangi en komast í landsliðið í fólbolta. Tveir karlar úr hópnum sem hangir fyrir utan laugadymar í öllum veðrum á hverjum morgni og bíður eftir að klukkan slái sjö mæta með sér- hannaða þvottapoka til bakhreins- unar. Þeir veita útvöldum hópi manna þjónustu í sturtunni. Um miðjan síðasta áratug lét ég mig ekki einu sinni dreyma um að fá strokur og varð að sætta mig við að óhreinindi söfnuðust á þann stað aftan til sem ómögulegt er að ná til verkfæralaust. Skánin var svo skrúbbuð af bakinu í næstu Akureyrarferð. Svo liðu árin og ég fór að lauma mér í þvottaröðina þegar heildsalar úr fastaliðinu voru er- lendis í innkaupaferð, bankastjórar í laxveiði, ráðuneytismenn í dag- peningaferðum eða alþýðumenn veikir heima. Þetta voru óregluleg þrif lengi vel, en nóg samt til að koma í veg fyrir að skánir mynd- uðust. Eftir vistaskiptin í haust gerðist það svo skyndilega. Ég var kom- inn með frátekna stöðu í liðinu. Einkaframtaksmenn hleyptu mér fram fyrir sig í þvottaröðinni í virðingarskyni við flóttamann af ríkisjötunni. Ríkisstarfsmenn hleyptu mér líka fram fyrir sig til að sýna að þeir hefðu ekki snúið baki við fyrrverandi þjáningar- bróður - sem fyrr en síðar myndi líka gefast upp á kroppi og harki á hinum frjálsa markaði. Blíðulætin gengu svo langt að einn morgun- inn var ég bakþveginn fyrstur allra. Þá sáu menn strax að full vel var gert við Svarfdæling og létu eldri og lífsreyndari menn ganga fyrir næst. Svona samfélög eru sjálfsagt svipuð alls staðar. I Laugardalnum leggja morgunmenn í sömu bfla- stæðin dag eftir dag, ár eftir ár. Sömu menn standa næst hurðinni þegar hún er opnuð á slaginu sjö og þvagan veltur inn. Sami skáp- urinn dag eftir dag, sama sturtan, sömu tvö eða þrjú hundruð metr- amir í lauginni, sama sætið í heita pottinum. Halldór E. Sigurðsson, fyrrver- andi ráðherra, var með sama núm- erið á bílnum sínum, ávísanareikn- ingnum og fataskápnum í Laugar- dalnum. Eg nota skáp númer 42 í Sundlaugunum og ávísanareikning 542 í Sparisjóði Svarfdæla. Síðar- nefnda númerið er nauðsynlegt að vinir mínir og samherjar festi sér í minni til að víkja að mér aurum í baráttusjóð ef ég skyldi nú stíga skrefið á næstu vikum. Ég útiloka nefnilega ekkert - frekar en Ellert Schram og séra Heimir. Ríkisstjómir eru sígiit og óþrjótandi umræðuefni í heitum pottum að morgni dags. Sund og pólitfk eru líka á vissan hátt tengd fyrirbæri þegar að er gáð. í sundi eru menn jafnir, naktir og nafn- lausir. í kjörklefa em menn að vísu í fötum en jafnir. Þar er gengi rón- ans skráð jafn hátt og séntilmanns- ins. Eða öfugt. Ríkisstjórnin Dav- íðs og Jóns Baldvins var sérlega hátt skrifuð hjá sundmönnum, því hún sá þeim endalaust fyrir um- ræðuefni að morgni dags. Allt kjörtímabilið. Um stjómina sem nú situr er lítið talað. Stundum bara hreint ekki neitt, rétt einsog menn hafi gleymt að hún væri til. Meira að segja Bjami Guðnason er sem næst hættur að tjá sig um stjómarliðið í hugvekjum um stjómmál sem hann les yfir okkur. Inngjöf prófessorsins er á við dag- legan skammt af lýsi og full af andlegum bætiefnum. Forsetakosningarnar næsta sumar eru helsta málfundarefni heitu pottanna nú um stundir. Um- ræðan er þar kornin, að menn velta fyrir sér hvort einhver frambjóð- andi sé finnanlegur sem gæti stungið Davíð af á leiðinni til Bessastaða. Sú leil hefur lítinn ár- angur borið ennþá. Það er með öðrum orðum löngu búið að ákveða í sturtunum í Laugardal að Davíð fari fram. Það er nánast ákveðið líka á sama vettvangi að Guðrún Péturs fari fram. Fleiri rík- isstarfsmenn með sterkar stoðir í Sjálfstæðisflokknum eru nefndir. Hvar em fulltrúar einkaframtaks- ins? Minn leyndi draumur er að Sunnlendingum takist að koma Þorsteini Páls í forsetaframboð. Stjómmál eiga að vera skemmtileg og auðvitað myndi það gleðja bæði sundmenn og aðra lands- menn að Davíð og Þorsteinn reyndu með sér á þessum spretti. Ég á mér reyndar líka þann hliðar- draum að Jón Baldvin verði for- sætisráðherra ríkisins fljótlega eftir að Davíð kemst inn fyrir þröskuld á Bessastöðum. Þá yrði nú kátt í höllinni og heitu pottunum. Bjöm tæki við Flokknum og séra Heimir við Lýðveldishemum. Hvað á að gera við Hrafn?

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.