Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1994 5 dv_______________________________Fréttir Valgeir Víðisson enn ófundinn eftir 47 daga leit og rannsókn: Rætt um að rannsaka hvarf ið sem morðmál - ítarlegri rannsókn þó nauðsynleg áður en til þess kemur Lögreglumenn á vegum lögregl- unnar í Reykjavík og Rannsóknar- lögreglu ríkisins funduðu á fimmtu- dag um rannsóknina á hvarfi Val- geirs Víðissonar. Samkvæmt upplýs- ingum DV var rætt um að RLR kæmi meira inn í rannsókn málsins og aukið samráð yrði um rannsóknina. Forræði málsins hefur til þessa verið í höndum lögreglunnar í Reykjavík en í samvinnu við RLR. Var rætt um að koma á vinnuhópi til að hafa umsjón með rannsókninni og er þetta meðal annars gert til að koma í veg fyrir tvíverknað og fleira. Valgeir fór heiman frá sér 19. júní og hófst leit skömmu síðar. Við rann- sókn málsins og við yfirheyrslur fjölda aðila hefur komið fram að Valgeir hafi sést eftir þann tíma á ýmsum stöðum. Fram hefur komið að Valgeir tengdist fíkniefnaheimin- um. Einnig hafa komið fram upplýs- ingar um að honum hafi verið hótað lífláti og er sá möguleiki að honum hafi verið banað kannaður nú. Háttsettur lögreglumaður, sem DV ræddi við, sagði að rannsókninni miðaði í rétta átt. Hans skoðun væri að málið bæri að rannsaka sem morðmál en ekki væru allir á þeirri skoðun. Ljóst væri að aðilar sem hafa verið yfirheyrðir væru tvísaga um einstök atriði sem þeir hafa verið spurðir um. í ljósi þessa segir hann þörf á að yfirheyra þá frekar, jafnvel að kreíjast gæsluvarðhaldsúrskurð- ar yfir einstaka aðilum. Ef til þess kæmi hins vegar þyrfti rökstuddur grunur að vera fyrir hendi, annars væri betur heima setið en af stað farið. Spenningur á hlutabréfamarkaði: Von er á góðu uppgjöri Granda -hlutabréf íslandsbanka og Obs eftirsótt Undanfarna daga hefur nokkurs spennings gætt á íslenskum hluta- bréfamarkaði. Eftirspum hefur auk- ist nokkuð um leið og framboð hefur verið takmarkað. Þetta hefur leitt til verðhækkunar á bréfunum. Hins vegar hafa viðskipti í krónum talið ekki verið svo mikil. Um miðjan dag í gær voru viðskipti vikunnar i heild upp á tæpar 8 milljónir króna. Mikil eftirspurn eftir hlutabréfum í Olís og íslandsbanka var í gær. Um miðian dag fór gengi Olís-bréfanna í 2,45 sem er 15% hærra verð en á miðvikudag. Þá fór gengi hlutabréfa íslandsbanka yfir 1,00 sem hefur ekki gerst síðan í kringum aðalfund bank- ans í vor. Þessi aukni spenningur er fyrst og fremst rakinn til góðra milliuppgjöra fyrirtækja á hlutabréfamarkaði sem vænta má næstu daga og vikur. Þannig er von á milliuppgjöri eftir helgi frá Granda þar sem vænta má nokkurs hagnaðar eftir fyrstu sex mánuði þessa árs. Sömuleiðis er búist við góðu milliuppgjöri frá Eim- skip á næstunni. „Islenskur hlutabréfamarkaður er það grunnur að minnsta eftirspurn setur hlutina verulega af stað. Það hefur verið stemning ríkjandi í þess- ari viku. Menn eiga von á að milli- uppgjörin sýni betri útkomu en í fyrra. Sögusagnir um góða afkomu fyrirtækja virðast nægja til þess að menn eru tilbúnir að kaupa. í raun þarf ekki nema einn kaupanda í stuði,“ sagði einn verðbréfasali í samtali viö DV. EKTA SVEITABÖLL Á MÖLINNI Á HÓTEL ÍSLANBI LAUBABBABSKVÖLB ______ Fanar, ein vinsælasta; jkráarhljómsveit landsins °9 ihljómsveitin Brimkló ásamt Björgi/inHalldórsson ' f Aðsið opnaá Itl. 22. !. Verð aðeins kr. 500; fiOTFJi 1Á,LAND Sími 687111. STÖÐVUM BÍLINN eff viö þurfum aö tala í farsímann! UMFERDAR Stell: 100% Tange CR-MO Bremsur: Shimano Alloy Skiptar: Shimano STX-SE GJaröir: Araya TM-18 Dekk: Maxxis II, 26x2,10 MTB Black Skinwall Verð áður kr. 69.899 Afborgunarverö 55.919 fjallahjól Allir fylgihlutir með 15% " afslætti Allt að helmingsafsláttu á hjólum Takmarkað nilgri MONGOOSE alvöru Stell: Tange CR-MO Bremsur: Shimano Alloy Skiptar: Shimano STX Gjaröir: Araya AP-21 Dekk: 26x2,10 MTB Black Skinwall Verð áður kr. 45.599 Útsöluverð tcr. 36.480 stgr. Afborgunarverð 38.759 Hill Topper Switchback Stell: Tange CR-M0 Bremsur: Shimano Alioy Skiptar: Shimano Alivio Gjaröir: Araya AP-21 Dekk: 26x1,95 MTB Black Skinwall Verð áður kr. 34.450 Útsöluverö kr. 24.116 stgr. j Afborgunarverð 25.837 Tvö fyrir eitt dekk 26x2,10 verð kr. 1.150 GA? !•■«!', verð áður kr. 29.900, útsöfuvertt kr. 20.930 stgi., afborgunarverð kr. 22.425. VCAMoRi , verðáöurkr. 39.900,; fovertt kr. 27.330 stgr., afborgunarverö kr. 29.925. , verð áður kr. 55.500,: L- ÍJr. 44.399 stgr., afborgunarverð kr. 47.174. VISA G.A. PETURSSON HF Faxafen 14 • Sími 685580 Opið mán. ■■ föst. kl. 9:00 18:00. Laugard. kl. 10:00 -14:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.