Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Page 19
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1994
19
Þegar ég virði fyrir mér Snorralaug
í Reykholti og nánasta umhverfi
hennar verður mér oft hugsað til
þess hve einkennilegt verðmæta-
mat þessarar þjóðar er á stundum.
Hér, nánast á barmi hinnar fornu
laugar og á bæjarhólnum gamla,
höfum viö reist stórt og mikið
skólahús sem trónir frekjulega yfir
minjunum og skekkir öll hlutfóll á
þessum stað. Skyldu erlendir
ferðamenn sem hingað koma þús-
undum saman á ári hverju ekki
velta því fyrir sér hvers vegna
svona er umhorfs þar sem eru fom-
minjar sem íslendingar segja hinar
merkustu hér á landi?
Skammsýnin
og arfleifðin
Sumarið 1930 horfðu íslendingar
stoltir um öxl og minntust þess með
veglegum hátíðarhöldum á Þing-
völium að liðin vora eitt þúsund
ár frá stofnun Alþingis. Það er
kaldhæðnislegt að um sama leyti
tóku fílefldir vinnuhópar verka-
manna grunn Héraðsskólans í
Reykholti og afmáðu þá í full-
komnu hugsunarleysi stóran hluta
af minjum þúsund ára mannvistar
á einhverjum merkasta sögustað
þjóðarinnar.
Héraðsskólinn í Reykholti, sem
Jónas frá Hriflu hafði forgöngu um
að reisa, er að sönnu merkilegt
mannvirki og dugnaðarlegt fram-
tak. En þessi bygging, sem var svo
Snorralaug í Reykholti frá 13. öld eða jafnvel þeirri 10., merkustu forn-
minjar íslendinga. Héraðsskólinn frá.1930-1931 í baksýn.
DV-mynd Brynjar Gauti
Snorralaug
óskaplega brýn nákvæmlega á
þessum stað fyrir rúmum sex ára-
tugum og varð þá að ryðja burt tíu
öldum sögunnar, hefur nú um ára-
bil verið vandræðabara stjórn-
valda; fyrir hana er tæpast þörf
lengur. Svona getur nú skammsýn-
in oft unnið arfleifðinni tjón.
Kirkja komin
á ll.öld
í Reykholti hefur liklega verið
komin kirkja þegar í lok 11. aldar.
Þar bjó Snorri Sturluson á árunum
1206-1241 og þar var hann veginn
sem frægt er. Oddur Gottskálks-
son, sem þýddi Nýja testamentið á
íslensku fyrstur manna, hélt stað-
inn á 16. öld. í Reykholti fór brúð-
kaup Eggerts skálds Ólafssonar
fram 1767 en af því hafa farið mikl-
ar sögur. Þar fæddist sá merki
klerkur Jón Halldórsson sem
kenndur er við Hítardal. Finnur
sonur hans, höfundur Kirkjusögu
íslands og síðar biskup í Skálholti,
var prestur í Reykholti um árabil
á18. öld.
En það eru fornminjarnar sem
eftir eru í Reykholti, einkum
Snorraiaug og jarðgöngin upp frá
henni, sem halda frægð staðarins á
lofti. Laug í Reykholti er nefnd í
Landnámu en henni er ekki lýst. í
Sturlungu er á nokkrum stöðum
nefnt að menn sitji í laugu í Reyk-
holti og ræði saman. Jarðgöng frá
lauginni og upp í bæjarhús eru
einnig nefnd. „Það var eitt kveld
er Snorri sat í laugu að talað var
um höfðingja. Sögðu menn að þá
var engi höfðingi slíkur sem Snorri
og þá mátti engi höfðingi keppa við
hann fyrir sakir mægða þeirra er
hann átti. Snorri sannaði það að
mágar hans væru eigi smámenni.
Sturla Báröarson hafði haldið vörð
yfir lauginni og leiddi hann Snorra
heim...“ segir á einum stað í Sturl-
ungu.
Frá dögum Snorra
Elsta lýsing á Snorralaug er í
riti Páls Vídalíns um fornyrði Jóns-
bókar frá 1724. „Til er laugin í
Reykholti með hekkjum fornaldar-
manna og vindauga því er útrás
vatnsins af lauginni skammtar. Er
allt þetta meðalmönnum vorrar
aldar svo hæfilegt sem það heföi
fyrir þá gjört verið,“ skrifar hann.
Nákvæmari lýsingar á lauginni eru
síðan til í sýslu- og sóknarlýsingum
frá 18. og 19. öld og í ferðabókum
frá sama tíma, enn fremur í merkri
skýrslu séra Eggerts Guðmunds-
sonar Reykholtsklerks til dönsku
fornleifanefndarinnar 1817.
Þorkell Grímsson, fyrrverandi
Land og minjar
k S W'jt Guðmundur
■ -mm Magnússon
tó SnW skrifar
safnvörður í Þjóðminjasafninu,
hefur líklega manna best kannað
ritaðar heimildir um Snorralaug
og borið saman við staðhætti í
Reykholti. Sumarið 1959 annaðist
hann mikla viðgerð á lauginni og
fremsta hluta jarðganganna sem
frá henni hggja og ritaði um það
verk vandaða grein í Árbók Forn-
leifafélagsins 1960.
Þorkell telur ekki vafa leika á því
að Snorralaug nútímans sé sama
laugin og nefnd er í Sturlungu en
um laugina sem nefnd er í Land-
námu sé ekkert hægt að fullyrða.
„ Arfsögnin eignar Snorra Sturlu-
syni laugina, frægasta og auöug-
asta ábúanda staðarins fyrr og síð-
ar. Mikið orð fór af stjórnsemi hans
og verkhyggni og mæhr ekkert á
móti því aö þessi vandaða stein-
laug, sem virðist ekki hafa átt sinn
hka hér á landi, sé gerð fyrir at-
beina Snorra," skrifar Þorkeh
Grímsson.
Friölýstl817
Vatnið í Snorraiaug kemur frá
Skriflu sem er hver um 120 metra
frá lauginni. Þaðan var vatnið leitt
um stokk til laugarinnar. Hafa
tveir slíkir fundist, gerðir úr til-
höggnu hveragrjóti, og eru þeir hin
vönduðustu mannvirki. Er talið að
sá háttur hafi verið hafður á til
forna og um aldir að veita brenn-
andi heitu vatninu úr hvernum um
stokkana í laugina að kvöldi og
baöa sig í henni að morgni þegar
vatnið var orðið hæfilega kalt.
Skipt var um vatn með því að láta
það renna frá lauginni.
Snorralaug er, eins og myndin að
ofan sýnir, kringlótt að lögun.
Þannig hefur hún aö hkindum ver-
ið alla tíð. Sams konar lögun er á
fleiri fornum laugum hér á landi,
s.s. Vígðulaug á Laugarvatni og
Krosslaug að Reykjum (Reykja-
laug). Samkvæmt mælingum á veg-
um Þjóðminjasafns er Snorralaug
tæpir fjórar metrar í þvermál og
nærri 90 sm djúp. Um það bil 20 sm
tilhöggvið set er með hliðarveggj-
um laugarinnar. Botninn er þakinn
stórum flötum hellum sem ef til
vill hafa verið þar frá upphafi.
Mesta vatnshæð nú mun vera 70
sm.
Árið 1817 gáfu dönsk stjórnvöld
út tilskipun um friðlýsingu tíu
fornminja á íslandi, þar af þriggja
minjastaða, og var Snorralaug einn
þeirra. Laugin var svo friðlýst á
ný af Matthíasi Þórðarsyni þjóð-
minjaverði haustið 1930. Hefur
honum vafalaust blöskrað atgang-
urinn á staðnum og viijað tryggja
að hin foma laug yrði ekki fyrir
frekariáníðslu.
Athugasemdir og ábendingar
frá tesendum um efni þessara
þátta eru vel þegnar. Hafið
samband við höfundinn í síma
63 27 00 á vinnutíma eða send-
ið línu: Land og minjar, DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Haustlistinn kominn
c
c
1
r
BÆJARHRAUNI 14 • HAFNARFIRÐI