Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Side 27
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1994 35 „Mér finnst stundum eins og ég sé staddur í partíi sem í raun er lokið. Tiigangsleysi lífsins er yfirþyrmandi." Þegar partí- inu er Iokið „Má ég setjast hjá þér?“ sagði maður, dapurlega. Nökkvi læknir sat einn að snæðingi á skyndibita- stað á Akureyri og lét sér leiðast. Maturinn var skelfilegur útlits og viðkomu og umhverfið þrúgandi. Nökkvi leit snöggt á manninn og bauð hann velkominn að sóðalegu plastborðinu. „Þakka þér fyrir,“ sagði maðurinn, settist og lagði frá sér óhrjálega körfu með kjúklinga- bitum, frönskum kartöflum og bleikri sósu í litlu plastboxi. Þeir snæddu þegjandi um stund, daprir á svip. „Eiginlega er þetta síöasta kvöldmáltíðin mín,“ sagði maður- inn upp úr eins manns hljóði. „Ég er orðinn svo óendanlega þreyttur á lífinu og tilverunni." Á næsta borði rak kona á miðjum aldri upp hnegg og sleikti síðan á sér fing- uma. Barn grét sárt við afgreiðslu- borðið. „Mér fmnst líflð einskis virði lengur," hélt hann áfram og nagaði kjúklingalegg. „Nú er mál að tygja sig til farar." Yfirþyrmandi tilgangsleysi Nökkvi lagði frá sér hálfétinn fit- ugan væng og horfði á manninn. Þetta var góðborgari á óræðum aldri, vel klæddur, grár í vöngum meðvasaúrogslifsisnál. „Já,“ sagði Nökkvi. „En þú hefðir nú getað valið þér lystugri matstað." Maðurinn leit upp. „Til hvers?“ sagði hann. „Ég er búinn að borða á bestu veitingastöðum þessa sól- kerfis. Það kemur mér ekkert á óvart lengur. í mínum augum er þessi þreytti kjúklingabitastaður hvorki betri né verri en 10 stjömu staðir Parísarborgar. Matsölustað- ir og konur. Þetta er allt eins eftir ákveðinn tíma.“ Hann tók upp úriö sitt, leit á það og hélt áfram. „Mér finnst stundum eins og ég sé stadd- ur í partíi sem í raun er lokið. Til- gangsleysi lífsins er yfirþyrmandi. Partíið hefur fyxir löngu leyst upp. Það er ekkert lengur til að drekka. Fólk er tekið að þreytast. Allir sem einhver miðmundi er að eru löngu farnir. Ég er búinn að heyra hvert Á læknavaktinni einasta lag sem þanið er á geisla- spilaranum. Ekkert kemur mér lengur á óvart. Dagarnir líða áfram í endalausum tómleika. Ég hangi áfram í þessu partíi þótt ég ætti að vera löngu farinn og hiusta á sömu lögin, sömu brandarana, sama innihaldslausa hjalið, sömu ræð- urnar eina ferðina enn. Ekkert minnisstætt hefur gerst í lífi mínu í mörg ár. “ Maðurinn þagnaði og tók aftur hraustlega til matar síns. Honum virtist sama um allt. Hann dýfði feitri franskri kartöflu ofan í sósudallinn og smjattaði, kæru- leysislegur á svip. „Nú er ég eigin- lega búinn að fá nóg,“ sagði hann. „Eg ætla að binda enda á þetta allt saman í nótt. Með þessari síðustu kvöldmáltíð á þessum kjúklinga- bitastað er ég að lýsa yfir tak- markalausri lífsfyrirlitningu." Hangið af gömlum vana Nökkva var svarafátt. Hann skildi afstöðu mannsins til lífsins. Sjálfur hafði hann oft fundið fyrir þessu endalausa tilgangsleysi til- verunnar, tómleika og þreytu. Oft- sinnis var eins og partíinu væri lokið en hann héngi áfram við grammófóninn af gömlum vana og biði einhvers sem aldrei kæmi. Þeir horfðust í augu um stund og skildu hvor annan fullkomiega. Heimurinn stöðvaðist um stund. Tíminn nam staðar. Grilllyktin hvarf úr vitum þeirra, skvaldrið þagnaði. Nökkvi hallaði sér aftur og sagði: „Feginn vildi ég fara með þér á áfangastað í nótt en ég lofaði henni ömmu minni þvi eitt sinn að gefast aldrei upp. Þess vegna ætla ég að hanga áfram í partíinu um stund og bíða átekta. Kannski ger- ist eitthvað bitastætt." Maðurinn horfði á hann vonleysislega. Makleg málagjöld Skyndilega slokknuðu öll ljós á staðnum, kviknuðu síðan aftur og blikkuðu nokkrum sinnum. Böm ráku upp vein og kvennakór í skemmtiferð fór að syngja „Skín við sólu Skagafjörður!" Kjúklingá- bitamir í soðpottunum skriðu sam- an, hristu af sér fituhjúpinn og breyttust í ránfugla. Þeir hópuðust saman og réðust á eiganda og starfsfólk kjúklingabitastaðarins. Fuglarnir gogguðu í þau og kvök- uðu í sífellu: „Svona matargerð er glæpur gegn mannkyninu!" Nökkvi og maðurinn horfðu dolfaUnir á lætin. Loksins hafði eitthvað bita- stætt gerst á skyndibitastaö. En töfrunum lauk eins skyndilega og þeir komu. Allt varð eins og áður, tíminn hóf göngu sína á ný. „Það er karmski von,“ sagði maðurinn og brosti í fyrsta sinn. „Lífmu er ekki lokið fyrr en dómarinn hefur blásið leikinn af,“ sagði Nökkvi. Þeir ýttu frá sér matarkörfunum og gengu út í kvöldhúmið. Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis- menntað starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla og skóladagheimili: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488 Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 71240 Drafnarborg v/Drafnarstíg, s. 23727 Efrihlíð v/Stigahlíð, s. 18560 Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230 Funaborg v/Funafold, s. 679160 Gullborg v/Rekagranda, s. 622455 Hagakot v/Fornhaga, s. 29270 Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360 Hálsakot v/Hálsasel, s. 77275 Jöklaborg v/Jöklasel, s. 71099 Klettaborg v/Dyrhamra, s. 675970 Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290 í 50% starf e.h.: Seljaborg v/Tungusel, s. 76680 Klettaborg v/Dyrhamra, s. 675970 Þá vantar leikskólakennara eða annað uppeldis- menntað starfsfólk í leikskólann Lindarborg v/Lindar- götu, s. 15390. í Lindarborg er fyrirhugað þróunar- starf í málefnum nýbúabarna. Einnig vantar leikskólakennara og þroskaþjálfa í stuðningsstarf í leikskólann Drafnarborg v/Drafnar- stíg, s. 23727, og eftir hádegi í leikskólann Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar og forstöðumenn. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Dregið í Aladdinleiknum Valentína Tinganelli og Anna Kristín Heiðarsdóttir draga út vinningshafana. Dregið hefur verið í Aladdinleiknum. Þátttaka var mjög góð og bárust mörg skemmtileg bréf og myndir. Vinningshafar: 1. vinningur. Ferð fyrir tvo til Euro Disney í París með Flugleiðum: Guðrún J. Jónsdóttir, Grænabakka 7, Bíldudal. 2. -11. vinningur. Pitsa, kók og Aladdinís í boði veitinga- hússins Ítalíu: Ásbjörg Ýr Einarsdóttir, Kúskerpi, Varmahlíð. Guðrún M. Jónsdóttir, Kjartansgötu 13, Borgarnesi. Hólmfríður L. Þórhallsdóttir, Fálkagötu 26, Reykjavík. Hörður Jónsson, Kríubakka 3, Bíldudal. Lilja K. Gunnarsdóttir, Yrsufelli 38, Reykjavík. Margrét Ýr Ingimarsdóttir, Vindási 3, Reykjavík. Sigrún Ólafsdóttir, Valdastöðum, Kjós. Sunna Sigurðardóttir, Hjaltabakka 30, Reykjavík. Una Rut Jónsdóttir, Hverfisgötu 37, Hafnarfirði. Þorsteinn Andri Haraldsson, Veghúsum 25, Reykjavík. Vinningshafar, leitið upplýsinga í síma 91-874337. FLUGLEIÐIR ísbjörninn VEíTINGAHUSJÐ ÍTALIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.