Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994 3 I I I I Fréttir íslensk ígulker hf. í Njarðvlk: Áttatíu manns verða ráðnir í vinnu Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Viö munum heíja vinnslu um miðjan mánuðinn og það verður ráð- ið í helmingi fleiri stöður en voru á síðustu vertíð. Við erum búnir að selja allar afurðir sem við munum framleiða og það má segja að það sé beðið eftir hverri einustu öskju sem við sendum til Japans,“ sagði Ellert Vigfússon, framkvæmdarstjóri ís- lenskra ígulkera hf. í Njarðvík, en fyrirtækið er þessa dagana að ráða til sín 80 manns í vinnu. „Okkur vantar fleiri til vinnu en við erum þegar búnir að ráða 50. Við höfum tekið allt það fiskvinnslufólk sem var á atvinnuleysiskránni en það eiga fleiri eftir að skila sér. Ástæðan fyrir þessari aukningu á mannskap er að við fórum út í vöru- þróunarátak og einnig höfum við bætt við okkur bát. Við fórum mjög hægt út í allar stækkanir en þetta kemur hægt og bítandi hjá okkur,“ sagði Ellert. ÞVOTTAVÉUAR UPI’ÞVOTTAVÉLAR ELDUNARTÆKl KÆLISKÁPAR SiÓNVÖRP MYNDBANDSTÆKl RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68 Fagor þvottavélar hafa sannað ágæti sitt hérlendis sem og víðar í Evrópu. Fjöldi ánægðra viðskiptavina er okkar besta viðurkenning. FE-54 39.900 kr. stgr. FE-83 48.900 kr. stgr. Munalán, Visa og Euro-raðgreiðslur Jk ÞVOTTAVÉLAR UPPÞVOTTAVÉLAR ELDUNARTÆKI KÆLISKAPAR SJÓNVÖRP MYNDDANDSTÆKl . I I I \ í ) I ► I Skipulag hálendis: Opnuð hafa verið hjá Ríkiskaupum tilboð vegna útboðs á skipulagsráð- gjöf við gerð svæðisskipulags fyrir miðhálendi íslands. AIls bárust 9 til- boð frá yfir tuttugu arkitektastofum. Næst verða tilboðin yfirfarin og met- in með tilliti til tæknilegra úrlausna og fleiri þátta. Áætlun um kostnað lá ekki fyrir. Lægsta tilboð var frá Alfa hf., Fjar- hitun hf. og Hagvangi hf. upp á 24,7 milljónir króna. Næsta tilboð var frá Landmótun upp á 26,7 milljónir. Hæsta tilboð kom frá Vinnustofu arkitekta hf. og Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen upp á tæpar 150 milljónir króna. Næsthæsta tilboð var 54 milljónir króna þannig að hæsta tilboð var nokkuð hátt miðað við hin. Fyrri áfanga skipulagsvinnunnar skal vera lokið fyrir marsmánuð 1996 og síðari áfanga í september 1997. Lögreglan lagði hald ábát Ómar Garðaisson, DV, Vestm.eyjum: Fyrir skömmu lagði lögreglan í Vestmannaeyjum hald á lítinn bát sem var um borð í bát sem staddur var í Vestmannaeyjahöfn. Að sögn lögreglu hafði henni borist tilkynning frá Reykjavík um að bát hefði verið stohð og væri hann senni- lega um borð í öðrum sem væri í Vestmannaeyjum á leið til útlanda. Þegar lögreglan fór og kannaði máhð gátu skipverjar ekki fært sönnur á að eiga bátinn og sögðust vera að flytja hann út fyrir annan mann. Ekki gátu þeir fært sönnur á það heldur og var því lagt hald á litla bátinn og héldu skipverjar héðan án hans. Jón Baldvin Regína Thoiarensen, DV, Selfossi: Ég veit að Jón Baldvin Hannibals- son er stórgreindur maður og ráðrík- ur, með refsaugu og flinkur við að dáleiða fólk og þá sérstaklega Davíð. Svo glotti Jón svo fahega í sjónvarp- inu þegar hann var búinn að dáleiða Davíð varðandi kosningamar. Davíð á bara að taka sér frí með sínum meirihluta í ríkisstjóm og vera án kaups þar til Jón leyfir al- þingiskosningar. RENAULT fer á kostutn! Hann er litli, sæti ærslabelgurinn - fullur af orku, fljúgjandi liðugur og skemmtilegur. Aðrir í fjölskyldunni eru auðvitað mjög stoltir af Twingo litla. Twingo - einstakur bíll á frábæru verði - frá kr. 838.000.“ Komdu og kynntu þér hann betur! (..þú rnunt elska hann eins og við hin.) Bflaumboðið hf. Krókhálsi 1 • Reykjavík • Sími 876633 HLJÓMFLUTNINGSTÆKl ÞVOTTAVÉLARIJPPÞVOTTAVÉLAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.