Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994
7
Hafrannsóknastofnun:
Fylgst með
hvölum um
gervihnött
- skotið í þá rafeindamerkjum
Hafrannsóknastofnun vinnur nú
að því að merkja hvali með rafeinda-
merkjum.
Fyrir helgina fóru menn frá Hafró
á sjó með Leifi Eiríkssyni í þeim til-
gangi að merkja hvali. Það á að
merkja tvo langreyði á þann hátt að
merkjunum verður skotið í þau.
Merkin munu síðan senda frá sér boð
sem móttekin verða um gervihnött.
Þannig má fylgjast með ferðum dýr-
anna á meðan merkið endist eða í
u.þ.b. tvö ár.
Þetta er í fyrsta sinn sem Hafró
merkir hvali á þennan hátt. Verkefn-
isstjóri er Jóhann Sigurjónsson sjáv-
arlíffræðingur.
Hitaveita Suðumesja:
Notendurfá
ennþá
óhreint vatn
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Það er unnið eins hratt og nokkur
kostur er við að leysa þetta vanda-
mál. Óhreinindi í vatninu eru af
tvennum toga, annars vegar flögur
og hins vegar htun. Þessu til viðbótar
hefur þó nokkuð verið kvartað um
lykt,“ segir Albert Albertsson, að-
stoðarforstjóri Hitaveitu Suðurnesja,
í samtah við DV en umtalsverðar
kvartanir hafa borist til hitaveitunn-
ar vegna óhreininda í heita vatninu.
„Þessi óþægindi stafa fyrst og
fremst af því að tíl þess að koma í
veg fyrir súrefni og tæringu í kerfinu
er blandað í það natríumsúlfít sem
gengur í samband við kopar í kerfum
hjá fólki og við það myndast þessi
sicítur. Við erum langt komnir með
að loka tönkum veitunnar. Þeir
verða fyhtir fyrir ofan vatnsborð
með gufu en þar á ekkert súrefni að
komast inn og þar með eigum við að
geta hætt þessari natríumsúlfít
blöndu. Þar með á þessi htur, flögur,
óhreinindi og lykt að heyra sögunni
til.“
Albert segir natríumsúlfatið, sem
fyrirtækið hefur heimild frá yfir-
völdum til að nota, með öllu hættu-
laust en það sé nj,a. mikið notað í
matvælaframleiðslú.
Fjöll gránuðu
í Fljótum
Öm Þóiaiinssan, DV, íljótum;
Þegar Fljótamenn vöknuðu á föstu-
dagsmorgun hafði gránað í fjöll um
nóttina. Leiðindaveður var á
fimmtudaginn, stíf norðanátt, kalt
og rigning á láglendi en slydda til
fjaha. Veður breyttist um nóttina
þannig að um morguninn var komiö
glampandi sólskin.
Þrátt fyrir þetta skammvinna
norðanskot hefur tíðarfar í Fljótrun
síðustu sex vikur verið sérlega gott,
hátt í 20 stiga hiti og sólskin flesta
daga.
®BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ISLANDSBANKI
*
SPARISJÓÐIRNIR
# 1 NÝJUIXG SEM LÉTTJR PÉR LÍFIÐ.
Minnislykillinn er nýjung sem auðveldar þér að varðveita á einum stað
öll leyninúmerin þín fyrir debet- og kreditkort, kortasíma Eurocard,
þjónustusíma bankanna, aðgangsnúmer að bankareikningum o.s.frv.
Með Minnislyklinum eru leyninúmerin á öruggum stað
- en samt alltaf við hendina.
• f EITTIXÚMER / STAÐ MARGRA.
Þú þarft aðeins að muna eitt aðgangsnúmer sem opnar þér ieið að
öllum leyninúmerunum sem vistuð eru í Minnislyklinum.
Minnislykillinn fæst íöllum bönkum og sparisjóðum - og hjá Kreditkorti hf.
500
# ÍO MIJXIXI.
Minnislykillinn hefur 10 minni, eitt fyrir hvert leyninúmer. Á bakhlið
Minnislykiisins eru númeraðir reitir, einn fyrir hvert minni.
Þar ritar þú nafn korts, kortasíma eða aðra tilvísun.
Þannig veist þú hvaða leyninúmer er geymt í hverju minni.
Lepinúmerin þín eru vel
geymd í Minnislyklinum!
Örugg geymsla fyrir leyninúmer - sem passar í seðlaveskið.
BELTIN
1 111 y rXferðar
Opið virka dacpa til Kcl. 21 -OO
HAGKAUP
Skeifunni • Hólagaröi • Grafarvogi • Seltjarnarnesi • Akureyri
Líka á kvöldin !