Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1994, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 1994
Félagsheimili - Mötuneyti - Einstaklingar
Tilboð óskast í 125 stk. rauða stálstóla, 20
stk. kringlótt borð á stálfæti, 7 ferköntuð
borð á stálfæti, 28 stk. 3ja fóta stóla með
trésetum. Tilboð óskast í allan pakkann eða
einstakar einingar. Allar nánari upplýsingar
í símum 37801 og 37810 milli kl. 9 og 18.
Fréttir
^Saumasponiö
spor til sparnaðar
Bernina, New Home og Lew-
enstein heimilis-, lok- og iðn-
aðarsaumavélar. Ykk - fran-
skir rennilásar og venjulegir
rennilásar í úrvali, frá 3 cm
upp í 200 m. Giitermann-
tvinni, saumaefni og smávör-
ur til sauma. Föndurvörur.
Saumavéla- og fataviðgerðir.
Símar 45632 og 43525 - fax 641116
ISPRAY
HÁRSPRAY
Hárspray sem stífnar
ekki strax. Unnið úr
náttúrulegum efnum.
HARGREIÐSLUSTOFAN
Klapparstíg,
sími 13010
UTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið:
„Nesjavallaheimreið - klæðing"
Verkið felst í að endurbæta og leggja efra burðarlag
og klæðingu á um 800 m kafla af Nesjavallaheim-
reið á Nesjavöllum. Einnig skal koma fyrir Ijósastólp-
um og ganga frá veglýsingu ásamt lagningu raf-
strengja með fram vegarkaflanum.
Helstu magntölur eru: Neðra burðarlag, 2000 m3
Efra burðarlag, 500 m3
Tvöföld klæðing, 5000 m2
Ljósastólpar, 22 stk.
Verkinu skal lokið 1. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn 15.000 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
24. ágúst 1994, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - simi 25800
Opna úr Alt for damerne þar sem sagt er frá „draumabrúðkaupinu“ á Tahítí.
Einar Már Guðvarðarson og Susan Christiansen frá Danmörku:
Fengu „draumabrúðkaup“
á Tahítí í verðlaun
- urðu hlutskörpust í smásagnasamkeppni tímaritsins Alt for dameme
Par búsett á Islandi gekk nýlega í
hjónaband á Tahítí eftir að hafa hlot-
ið „draumabrúðkaup" í verðlaun
fyrir þátttöku í smásagnasamkeppni
danska tímaritsins Alt for damerne.
Þetta voru þau Einar Már Guðvarð-
arson myndhöggvari og Susan
Christiansen frá Danmörku. Þau eru
búsett aö Ljósaklifi í Hafnarfirði.
Einar Már sagði í samtah við DV
að það hefði átt vel við að gifta sig á
framandi slóðum þar eð þau Susan
væru hvort frá sínu landinu. Hann
sagði að ferðin hefði verið metin á
um hálfa milljón króna.
Hjónin gengu í það heilaga á eyj-
unni Moorea sem er skammt frá
Tahítí - fyrst með borgaralegri vígslu
en síðan á hefðbundnari hátt að hætti
innfæddra. Blaðamaður frá Alt frá
Damerne fylgdist með öllu saman og
fór brúðkaupiö fram með miklum
glæsibrag á framandi hátt af hálfu
þeirra sem að því stóðu.
Greint er frá brúðkaupi Einars Más
og Susan á Tahití í tölublaði tímarits-
ins sem kom út þann 23. júní. Um-
fjöllunin er á fimm síöum og birtist
m.a. opnumynd af hamingjusömu
parinu.
Sagan í smásagnakeppni blaðsins,
sem varð til þess að parið vann ferð-
ina til Tahítí, var valin úr rúmlega
hundrað sögum sem sendar voru í
keppnina. Susan sá um að skrifa sög-
una sem fjallar m.a. um par sem er
ákveðið í að eigast. Hún hefur verið
birt í danska tímaritinu.
Menning
Sigurður Ami Sigurðsson á Kjarvalsstöðum:
Tréogekki tré
I skrá að sýningu Sigurðar Áma
vitnar Bernard Marcadé í orð
Leonardos um það að upphaf mál-
arahstarinnar megi rekja til
„skuggamyndar af manni sem sól-
in varpar á vegg“. Ennfremur
minnir Marcadé á frásögn Plíníus-
asr eldri um Díbutate, dóttur leir-
kerasmiðs í Sýkíon. Elskhugi
hennar var aö fara í langferð og
hún teiknaði útlínur skuggamynd-
ar hans á vegg. Þetta atvik hefur
einnig verið nefnt upphaf málara-
hstarinnar en sýnir jafnframt, að
áhti Marcadé, að málarahstin snú-
ist fyrst og fremst um hverfulleik-
ann; það sem ekki er til staðar.
Málverk Sigurðar Árna geta mæta-
vel fallið undir slíka skilgreiningu,
jafnvel þótt þau séu fyllilega til
SKOUTSALA
ecco
Laugavegi 41 - sími13570
(X&WRSLic^
PÓ'RÐA'R
gpceðb' Ofy pj&vuAátoi/
KIRKJUSTRÆTI8
SlMI 14 18 1
staðar sjálf. Sigurður fæst við
blekkingagaldur öðram þræði og
bendir á að ekki sé allt sem sýnist.
Heimur blekkinga
Margar mynda Sigurðar Áma
eru þess eðlis að íjarskj og nánd
eru afstæð hugtök. Myndheimur
Sigurðar Árna er í stórum dráttum
kúlur sem verða að götum og öfugt.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Sjónarspilið er í formi endurtekn-
inga og sjónhverfinga líkt og hjá
M.C. Escher, en þó innan náttúru-
legs myndmáls. Málverk Sigurðar
Árna sigla lygnan sjó á milli hins
þekkta og hins óþekkta. í þeim má
í senn þekkja mótíf á borð við tré,
ost, skálar, landslag o.fl. En um
leið verður ljóst að þar er einungis
um að ræða samspil frumforma á
striga. Þannig týnist áhorfandinn
ekki í eigin blekkingu, heldur opn-
ar málverkið og lokar eins og
glugga sem hann getur skoðað
beggja vegna. Jafnframt því opnast
honum fleiri gluggar að leyndar-
dómum málverksins. Vinnubrögð
á borö viö þessi minna á fleiri
meistara ljóðrænna sjónblekkinga
á borð við súrrealistann Magritte.
Sigurður Árni hefur undanfarið
búið í París og án efa gætir áhrifa
frá dvöl hans þar í þessum verkum.
Náttúrutengsl og garðar
Leikur Sigurðar aö frumformum
hefur leitt hann frá stjörnum him-
ingeimsins að loftmyndum af trjá-
krónum lystigarða. Og nú er hsta-
maðurinn upptekinn við að gera
líkön af slíkum görðum þar sem
samspil kúlu- og hringforma og
skugga þeirra er ágengara en í
málverkunum, jafnframt því sem
náttúrutengshn eru skýrari. Út-
færsla slíkra hugmynda hlyti þó
fremur aö veröa á plani hins leik-
hússlega en hversdagslega. Til að
veita garðahugmyndum síniun
rómantískara yfirbragð og kveikja
e.t.v. tengsl við ævintýraheima,
útópíur og paradísir, hefur Sigurð-
ur jafnframt gert vatnslitamyndir
sem eru afar athyglisveröar vegna
næmrar útfærslu í anda Muggs.
Rómantíkin svífur einnig yfir vötn-
um í erótískri myndröð þar sem
hugmyndin um það sem hulið er
sjónum togast á við hið sýnilega
líkt og í málverkum hstamannsins.
Hér er um að ræða sýningu sem er
í senn heilsteypt og veitir innsýn í
þá baráttu á milii innri og ytri
veruleika, fyrirmyndar og fom-
myndar, sem á sér stað á mörgum
vígvelh samtímahstar. Sigurður
Ámi er greinilega að fikra sig yfir
í þrívíddina og verður spennandi
að sjá hvort blekkingagaldurinn
helst samur þar og í málverkum
hans.