Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1994, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1994 Neytendur___________________________________________ Innflutningur einstaklinga á GSM-farsímum: Skylt að greiða vask af innfluttum GSM-símum - þarf líka að greiða virðisaukaskatt af fríhafnarfarsímunum Neytendasíðan leitast aö þessu sinni við aö fá upplýsingar um innflutning einstaklinga á GSM-farsímum, þ.e. hvaða kvaðir fylgja því og hvort það borgar sig. DV-mynd ÞÖK „í 99% tilvika þegar menn eru að koma með GSM-farsíma til íslands hefur Fjarskiptaeftirlitið engin af- skipti af því. Ef þeir eru merktir eins og framkvæmdastjórnin í Brussel fyrirskipar, með svokallaðri CE- merkingu, skiptir það okkur engu máli hvort um ér að ræða eitt tæki, tvö eöa tíu þúsund. Hvað tollurinn gerir hins vegar skal ósagt látið,“ sagði Guðmundur Ólafsson, for- stöðumaður Fjarskiptaeftirlits ríkis- ins, við DV. Neytendasíðunni hafa borist ófáar fyrirspumir varðandi innflutning slíkra farsíma, þ.e. hvort fólk geti keypt sér GSM-síma erlendis, þar sem þeir era oft og tíðum miklu ódýr- ari, og komið meö til landsins. „Ef GSM-farsímamir eru ekki með CE-merkingu og einungis er um eitt tæki aö ræða höfum viö heldur engin afskipti af því, sama hver á í hlut. Ef hins vegar er um tvö eða fleiri ómerkt tæki að ræða þurfum við að fletta þeim upp í sérstakri töflu til að athuga hvort viðkomandi tæki er á bráðabirgðasamþykki í einhverju Evrópuríki. Ef það er samþykkt ein- hvers staðar kostar það innflytjanda flmm þúsund krónur að fá bráða- birgðasamþykki hér en einstakling 5000-7200 krónur," sagði Guðmund- ur. Aðspurður sagðist hann ekki telja það dýrt að greiða fimm þúsund krónur fyrir að láta fletta tækinu upp í töflu. „Við þurfum að endumýja töfluna vikulega og það kemur iðu- lega fyrir að tækin eru ekki á sein- ustu útgáfu af töflunni. Þá þurfum viö að hringja út pg hafa samband viö gagnabanka á írlandi, senda fax og slíkt,“ sagði Guðmundur og taldi það réttlæta kostnaðinn. Tollurinn tekur vaskinn Hjá tollinum fengust þær upplýs- ingar að borga þyrfti virðisaukaskatt af símunum við innflutninginn svo þá bætist 24,5% við innkaupsverðið. Einstaklingur sem kaupir síma sem kostar 60.324 kr. erlendis borgar því samtals 79.900 kr. fyrir hann hingað kominn með vaski. Sams konar sími og kostar t.d. 79.900 kr. út úr búð hér kostar 59.900 kr. í fríhöfninni. Þá er samt ekki öll sagan sögð því samkvæmt lögum er mönnum skylt að greiða virðisauka- skatt af öllum innkaupum í fríhöfn- inni umfram 18.000 krónur. Þannig leggjast 24,5% ofan á 41.900 kr. og því myndi síminn úr fríhöfninni kosta samtals 70.166 kr. heim kominn. Óprúttnir náungar „Ég hef heyrt dæmi um að óprúttn- ir sölumenn úti í heimi séu að plata saklausa sveitamenn frá íslandi meö því aö selja þeim mjög ódýra GSM- síma án þess að taka þaö fram að þeir taki bara kort frá ákveðnum aðila í viðkomandi landi. Þá er búið að möndla eitthvað við tækið svo önnur kort passi ekki í það,“ sagði Guðmundur. Aðspurður hvernig foröast megi slíkt sagöi hann fólk geta keypt íslenskt kort áður en þaö fer til útlanda og mátað það og prófað að hringja í þeim síma sem það hefur hug á að festa kaup á. Tilboð með skilyrðum Hrefna Ingólfsdóttir, upplýsinga- fuUtrúi Pósts og síma, sagði vert að vara fólk við ýmiss konar tilboðum erlendis. „Ég hef heyrt dæmi um söluaðila í Svíþjóð sem seldi á 50 þúsund ákveðinn farsíma sem kostar 75 þúsund hér. Það var hins vegar með því skilyrði að viðkomandi keypti kort af þeim aðila og notaði í símann. Svona góðum tilboðin fylgja oft einhver skilyröi, annaðhvort um búsetu, ríkisborgararétt eða fólk verður að ábyrgjast notkun í ákveð- inn tíma,“ sagði Hrefna. Dæmi um ákveðna tegund GSM-farsíma 79.900 o —i •Verftlö er misi DV Ágæti hf. fær vottun fyrir lífrænni vöru: Möguleikar á útflutningi lífrænt ræktaðs grænmetis „Þetta hefur verið í undirbúningi undanfarin misseri en svo var fyrir- tækið tekið út í sumar og við fengum vottun um að geta markaðsfært líf- rænt ræktað grænmeti," sagði Matt- hías H. Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Ágætis hf., en Ágæti og Stefán Gunnarsson, grænmetis- framleiðandi á Dyrhólum í Mýrdal, hafa fyrstir allra aðila á íslandi feng- iö slíka vottun frá viðurkenndri vott- unarstofu. „Lífrænt ræktað þýðir m.a. að ekki má nota tilbúinn áburö, skordýraeit- ur eða illgresislyf og aö merkja verð- ur vömna á sérstakan hátt. Hún verður að vera aðskilin frá annarri vöru og við verðum að fylgja sérstök- um hreinlætisstaðli varðandi hús- næði og annað," sagði Matthías. Þaö er Tún hf. sem sér um vottun Matthías (t.v.) og Aðalsteinn eru hér með sýnishorn af lífrænni framleiðslu lífrænnar framleiðslu hér á landi og en hún er geymd i sérhólfi á lager fyrirtækisins. DV-mynd GS eftirUt með því en hún fylgir starfs- reglum breska vottunarfyrirtækis- ins Soil Association. Það er eitt elsta slíkt fyrirtæki í heiminum og eru staðlar þess leiðandi víða um lönd. Hugsanlegur útflutningur „Kannanir erlendis lofa góðu og við teljum því líkur á að hægt sé að flytja út lífrænt ræktað grænmeti í fram- tíðinni. Verðiö á íslenska grænmet- inu hefur t.d. gegnumsneitt veriö lægra í sumar en grænmeti erlend- is,“ sagði Aðalsteinn Guðmundsson, gæða- og lagerstjóri Ágætis hf. „Við bindum helst vonir við gul- ræturnar varðandi útflutninginn því þær em hlutfallslega dýrari erlendis en annað grænmeti. Við emm auk þess fullvissir um að við emm með betri vöru,“ sagði Aðalsteinn. Slátur- markaður í tilefni verðkönnunar okkar á slátri á neytendasíðunni í gær hafði Björn Jónsson, markaðs- stjóri Kjötumboðsins Goða, sam- band og vildi koma því á fram- færi að þar hefði verið farið af stað með sláturmarkað í gær. „Við seljum bæði Borgarnes- slátur og slátur frá okkur sjálfum á góöu verði. Markaðurinn stend- ur til 15. október og verður opinn frá kl. 10-18 virka daga en 10-14 á laugardögum," sagöi Björn. Markaðurinn er á Kirkjusandi við Laugarnesveg, í kjallara hússins, en þar kosta fimm slátur t.d. 2445 kr., hjörtu í lausu kosta 359 kr. kg, nýru í lausu 169 kr. kg og lifur 232 kr. kg. Fyrstu ávís- anirnar Nú hafa rúmlega 400 safnkorts- hafar hjá Olíufélaginu hf. (Esso) náö því marki að safna sér inn 10 þúsund punktum frá 1. júní í sumar eða rúmlega 1% korthafa. Þeir fá því senda þúsund króna ávísun í pósti næstu daga sem þeir geta ýmist notað sem greiðslumiðil hjá Esso eða fengið peningana. Líkamslykt Líkamslykt veröur oftast til þegar sviti og bakteríur samein- ast. Með því að þvo sér vel með sápu og vatni á þeim svæðum lík- amans sem era líkleg til að lykta mest hverfa báðir „sökudólgarn- ir“. Þetta kemur fram í nýju læknabókinni, Heilsugæsla heimilanna, ásamt ellefu öðrum ráðleggingum um hvemig fólk getur losað sig við líkamslykt. Þar kemur einnig fram aö nátt- úrleg efni eins og bómull draga betur í sig svita en gerviefni. Svit- inn sem skyrtan hefur tekið í sig getur gufað upp úr bómullinni. Sérstakir burstar í sömu bókinni er fólki sem svitnar mikið og hefur tilhneig- ingu til að lykta illa sagt að e.t.v. dugi ekki venjuleg svitalyktar- eyðandi sápa eða svitalyktar- eyðir. „í slíku tilfelli skaltu reyna að nota sérstakan bursta gegn bakteríum sem seldur er í lyfja- verslunum," segir í Heilsugæslu heimilanna. Venjuleg lykteyðandi sápa er mjög virk til að dylja þef úr hand- arkrikum flestra. Hún skilur eftir efni á húðinni sem drepur bakter- íur sem kalla fram lykt. Ef hún dugir ekki til gæti verið að nota þurfi svitastillandi efni. Þau eru í gmndvallaratriðum lyf sem draga úr svitamagninu sem lík- aminn framleiöir og eru mörg hver bæði svitastillandi og lykt- areyðandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.