Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Síða 11
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
11-
Fréttir
Starfslok Kísiliðjunnar við Mývatn árið 2010?
Undirskrift ráðherrans er
háð samþykki Alþingis
- segir Sighvatur Björgvinsson iönaöarráöherra - átta mig ekki á þessum leikaraskap, segir Gísli Már Gíslason
„Undirskrift ráðherra undir eitt-
hvað sem Alþingi á að afgreiða getur
aldrei orðið meira virði en það að
ráðherra muni beita sér fyrir því við
Alþingi. Það er eins og alltaf ef ráð-
herra skrifar undir eitthvað sem er
háð samþykki þingsins, þá gerir
hann það með fyrirvara um sam-
þykki Alþingis," segir Sighvatur
Björgvinsson iðnaðarráðherra.
Brigður eru bomar á að Jón Sig-
urðsson, fyrrverandi iðnaðarráð-
herra, og Eiður Guðnason, fyrrver-
andi umhverfisráðherra, hafi getað
gefiö skriflegt loforð fyrir því
snemma á síðasta ári að starfsleyfi
Kísiiiðjunnar við Mývatn verði ekki
framlengt eftir árið 2010, en þaö
munu þeir hafa gert er starfsleyfi
Kísiliðjunnar var endurnýjað.
„Þegar starfsleyfið var endumýjað
7. apríl á síðasta ári kynntu ráðherr-
amir lagafmmvarp sem þeir myndu
leggja fram,“ segir Gísli Már Gísla-
son, formaður Náttúmrannsóknar-
stöðvar við Mývatn.
Gísli segir að í nýju lögunum hafi
átt að bætast við málsgrein þar sem
segir: „Kísilgúmám á botni Mývatns
er óheimilt. Þó er heimilt að vinna
kísilgúr úr botni á tilteknu svæði í
Ytri-Flóa til ársloka 2010. Svæði þetta
er skilgreint nánar í námaleyfi Kísil-
iðjunnar hf. útgefnu af iðnaðarráð-
herra 7. apríl 1993.“
Gísli segir furðulegt að þingmenn
og ráðherrar geti nú komið fram og
talað um leynisamning milli ráð-
herranna Jóns Sigurðssonar og Eiðs
Guðnasonar við Nátttúruvemdar-
ráð. „Friðrik Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, kemur
af fjöllum og ég get ekki áttað mig á
þessum leikaraskap," segir. Gísli.
„Þegar framlengingin á námaleyf-
inu var kynnt var einnig kynnt að
umhverfisráðherra myndi beita sér
fyrir breytingum á lögum um Laxá
og Mývatn. Það var hins vegar marg-
ítrekað við okkur að um væri að
ræða tvö aðskilin mál, annars vegar
Aðalverktak-
ar gáf u björg-
unartæki
Ægir Már Kárasan, DV, Suöumfisjuin:
íslenskir aðalverktakar á Keflavík-
urflugvelh gáfu Bmnavömum Suð-
umesja nýlega að gjöf fullkominn
færanlegan lyftibúnað, sérhannaö-
ann til að lyfta meðal annars bílum
á slysstað. Á honum eru tveir. loft-
púðar. Annar getur lyft 11 tonnum
en hinn 20 tonnum.
Gjöfin kemur sér mjög vel fyrir
Brunavarnir sem áttu ekki slíkan
búnaö fýrir. Lyftibúnaðurinn kostar
á þriðja hundrað þúsund krónur.
Lántaka vegna
Helguvíkurhafnar
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
Hafnarstjóm Keflavíkur og Njarð-
víkur hefur samþykkt að taka tilboði
Verðbréfamarkaðar íslandsbanka
um 90 milljóna króna lán vegna hafn-
ar í Helguvík. Stjórnin hefur fengið
heimild til að taka allt að 160 milljón-
ir króna til að klára fyrsta áfanga
hafnarinnar. Stálþiliö eitt og sér mun
kosta 60 milljónir króna.
námaleyfíð og hins vegar þessi laga-
breyting sem umhverfisráðherra
myndi leggja fram. Efni þessarar
lagabreytingar var ekki tilkynnt um
leið og námaleyfið var gefið út, en
fljótlega þar á eftir. Við höfum aldrei
vifjað viðurkenna að starfsemi fyrir-
tækisins verði hætt árið 2010, en það
verður að sjá hvemig þingleg með-
ferð málsins verður," segir Pétur
Torfason, formaður stjórnar Kísiliðj-
unnar.
mánudag 9-21 þridjudag 9-21
í húsi Ingvars Helgasonar hfað Sœvarhöfða 2. Þar fœrð
á frábœru
og jafnvel
fyrstu 6-8 mánuðina.
fyrsta hálfa árið fylgir bílnum og
Ingvar
Helgason hf.
____ Sœvarhöföa 2
^3==- Simi 674848