Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 Viðskipti kg Þri Mi Fi Fö M6 Álverð erlendis 1940 1920 1900 1880 1860 1840 Jenið lækkar Þorskur á fiskmörkuöum hefur að meöaltali selst frá 106 til 118 króna kílóið aö undanfórnu. Á mánudag var kílóveröið 109,50 krónur. Þingvísitala hlutabréfa fór hæst í 1032 stig 1 síðustu yiku sem er sögulegt hámark. Á mánudag stóð vísitalan í 1025 stigum. Verðsveiflur hafa verið á áli á erlendum mörkuðum. Stað- greiðsluverðið var 1884 dollarar tonnið þegar viöskipti hófust í gærmorgun. Japanska jenið hefur verið að lækka í verði að undanfömu. í gær var sölugengið komiö niður í 0,6861 krónu, rúmu prósenti lægra en fyrir viku. Hlutabréfaverð í kauphöllinni í London hefur sveiflast upp og niður síðustu daga. FT-SE100 var 3019 stig í gærmorgun. Makaskipti á Holiday Inn og Sambandshúsinu: Landsbankinn tef ur samninga - vill hærra verð fyrir baklóð Sambandshússins Um það bO mánuður er liðinn síð- an íslandsbanki og Samvinnulífeyr- issjóðurinn ætluðu að vera búnir að skrifa undir makaskiptasamning á Hohday Inn hótehnu og Sambands- húsinu við Kirkjusand. Nú herma heimildir DV að töfin sé vegna þess að Landsbankinn, eigandi baklóðar og skemmu við Sambandshúsið, vilji fá hærra verð fyrir eignina en ís- landsbanki er thbúinn aö sætta sig viö. Sömu heimildir herma aö for- ráðamenn íslandsbanka séu óhressir með hvað langan tíma hefur tekið að ræða við Landsbankamenn. Hægt hefði verið að ganga frá mákaskipt- unum fyrir löngu. íslandsbanki ætlaði að flytja höfuö- stöðvar sínar í Sambandshúsið og Samvinnulífeyrissjóðurinn ætlaði að taka yfir hótehð og tvær hæðir í Húsi verslunarinnar. Samvinnulíf- eyrissjóðurinn var svo búinn að ákveða að taka tilboði Þróunarfélag- ins í hótehð og Þróunarfélagið ætlaði sér að leigja rekstur þess til Flug- leiða. ÖU þessi áform bíða eftir því aö makaskiptasamningurinn gangi í gegn en eins og áður segir er það ósamkomulag íslandsbanka og Landsbanka um verð á baklóðinni sem tefur undirskrift. Auk Landsbankans og Samvinnu- lífeyrissjóðsins hafa íslenskar sjáv- arafurðir komið að samningunum við íslandsbanka en fyrirtækið á eina hæð í Sambandshúsinu en lífeyris- sjóðurinn fjórar. Óvist er hvert skrif- stofur íslenskra sjávarafurða flytj- ast. Tilraunir DV til að hafa uppi á þeim forráöamönnum Landsbankans sem hafa með þetta mál að gera báru ekki árangur í gær. Forráðamenn ís- landsbanka vildu ekki tjá sig um málið. Landsbankinn og Reuter semja Landsbankinn hefur gerst aðili aö nýrri fjármálaþjónustu Reuters sem kahast Deahngs 2000-1 og kalla mætti Fjarsamning. Samningur þessa efnis var undirritaður um mánaðamótin. Fjarsamningur veitir beinan að- gang að tölvukerfi sem nær um víða veröld. Hægt er að sjá á tölvuskjá verð á gjaldeyri hjá fjölmörgum bönkum og grípa svo tækifærið þeg- ar verðið er hagstæðast. Þá er send inn pöntun fyrir ákveðnu magni af gjaldeyri, síðan ýtt á takka, kaupin gerð á því augnabliki og tölvan send- ir út kvittanir báðum megin. Með þessum samningi telja Landsbanka- menn sig spara mikla fjármuni en gjaldeyrisviðskipti bankans nema árlega um 100 milljörðum króna. Við' undirskrift Fjarsamnings Landsbankans og Reuters. Sitjandi frá vinstri eru Kerstine English frá Reuter, Björn Sigurðsson frá Landsbankanum og Ivan Mulcahy, yfirmaður Reuters á Norðurlöndum. Standandi frá vinstri eru Gunnar Egedius, sölufulltrúi Reuters í Noregi, og Þorsteinn Thorarensen, fulltrúi Reuters á íslandi. DV-mynd ÞÖK Hlutabréfaviðskipti að glæðast: Styttist í áramótagleðina Viðskipti með hlutabréf eru að glæðast ef marka má síðustu viku og byrjun þessarar. Nú styttist í ára- mótin og reikna verðbréfafyrirtækin með miklum viðskiptum í þessum mánuði söku skattaafsláttarins. Lánafyrirgreiðsla þeirra til hluta- bréfakaupa kemur til með að skipta þar miklu. Þingvísitala hlutabréfa náði sögu- legu hámarki sínu í síðustu viku, um 1032 stigum. Viðskipti síðustu viku námu tæpum 27 milljónum króna og sl. mánudag var höndlað fyrir 8,4 mihjónir. Viðskipti gærdagsins lágu ekki fyrir þegar þetta var ritað. Mestu viðskiptin í síðustu viku voru með hlutabréf Ohs, Eimskips og Flugleiða. Þess má geta að hlutabréf Flugleiða hafa hækkað um rúm 3% síðustu daga. Ágætt verð í Þýskalandi Afh úr tveimur íslenskum togurum var seldur í Þýskalandi í síöustu viku. Akurey RE fékk rúmar 24 millj- ónir fyrir 166 tonn. Breki VE náði aðeins betra meðalverði sl. fóstudag þegar um 136 tonn seldust fyrir rúm- ar 20 milljónir. í gámasölu í Englandi seldust 293 tonn í síðustu viku fyrir 46 mihjónir. Verðsveiílur eru miklar á álmörk- uðum erlendis um þessar mundir, allt að 100 dollurum á degi hveijum. Staðgreiðsluverðið var 1884 dollarar tonnið í gærmorgun. Framleiðsla áls hefur sums staðar verið að aukast hjá álframleiðendum sem standa ut- an samkomulagsins sem helstu framleiðendur heims gerðu fyrr á þessu ári um aö draga úr framleiðslu til að hækka verðið. \ Útflutningsafurðir, gjaidmiðlar og verðbréf 69 68^ 67 1 / 65 68,89 Kr. s 0 N D ESMBH Þingvísit. húsbr. DV 22 hlutafélög komináVerð- bréfaþingið Stjóm Verðbréfaþings islands samþykkti nýlega að taka á skrá hlutabréf Lyfjaverslunar íslands hf. sem áður hét Lyfjaverslun rík- isins. Viö bætist að undanfamar vikur hafa hlutabréf fjögurra hlutafélaga verið tekin á skrá á Verðbréfaþingið. Þetta em hluta- bréf Skeljungs, Shdarvinnslunn- ar, Haraldar Böðvarssonar og Olíufélagsins. Markaðsvirði hlutabréfa á skrá er áætlaö rúm- ur 31 milljarður en ahs eru bréf 22 félaga skráð á þinginu. { tilkynningu frá Verðbréfa- þingi kemur fram að á árinu hafa 102 flokkar skuldabréfa og 3 flokkar hlutdehdarskírteina ver- ið teknir á skrá á þinginu. Við- skipti það sem af er árinu nema ríflega 82 milljörðum króna sem er um 9% aukning miöað við öh viöskipti síðasta árs. Stjórn Verðbréfaþings bendir á að hún hafi orðið vör við yflrlýs- ingar ákveðinna aðila um að hlutabréf þeirra verði skráð á þinginu án þess að hafa sótt um shkt. Stjórnin ítrekar að hún ein taki ákvörðun um hvaða bréf veröi skráð og það sé ekki á valdi annarra að lýsa yiír slíku. 1,5 milljarða verðbréfakaup erlendis Áætlað er að lífeyrissjóðimir hafi á fyrstu níu mánuðum ársins keypt erlend verðbréf fyrir 1,5 mihjaröa króna. Þetta kemur fram í fréttabréfi Sambands al- mennra lifeyrissjóða. Stærsti hluti kaupanna, um900 mihjónir, eru skuldabréf keypt á eftirmark- aði sem Norræni fjárfestingar- bankinn gaf út í íslenskum krón- um fyrir nokkmm árum. Áætlað er að lífeyrissjóðirnir hafi keypt hlutdehdarskírteini í erlendum verðbréfasjóöum fyrir um200mihjónir, erlendhlutabréf fyrir um 100 mihjónir og önnur erlend skuldabréf fyrir um 300 mhljónir. Reiknað er með aö er- lend verðbréfakaup lífeyrissjóð- anna á þ'essu verði nemi rúmlega 4% af ráðstöfunarfé þeirra. Smáritum stefnumarkandi áætlanagerð Út er komið smáritiö Stefnu- markandi áætlanagerð sem er sjöunda ritiö í ritröð Viðskipta- fræðistofnunar Háskólans og Framtíðarsýnar. Höfundur rits- ins er Þorkell Sigurlaugsson, við- skiptafræðingur og fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim- skips. Ritið fjallar um vinnubrögð við steftiumarkandi áætlanagerð og í því má m.a. finna yfirlit yfir þau atriði sem huga þarf að við stefnumótun í fyrirtækjarekstri. Hótelrými lokað áólafsfirði Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirö; „Ferðamannaeiningin hjá Hót- el Ólafsfirði ber sig ekki og verö- ur henni því lokað. Rekstrinum á sjoppunni og veitingasölunni mun hins vegar verða haldið áfram," segir Siguijón Magnús- son, annar þeirra aðila sem keyptu hótehð af Skeljungi í vor. Sigurjón segir að ahir hafi vhj- að hafa hótel í bænum en fæstir séu tilbúnir til að styðja rekstur- inn í verki. Þremur starfsmönn- um hótelsins hefur verið sagt upp störfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.