Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1994, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
9
Utlönd
Sex ára drengur og 4 ára stúlka týnd 120 daga í óbyggðum Argentínu:
Daniel að þakka að
systir hans er á líf i
Farþegaskip
hætt komið
Breska farþegaskipið Can-
berra, með rúmlega 2400 manns
innanborðs, er nú á leið til hafnar
í Southampton eftir að hættu-
ástand kom upp þegar drapst á
vélum þess í ofsaveðri undan suö-
urströnd Englands í nótt. Skipið
var á reki í rúma klukkustund
áður en áhöfninni tókst að ræsa
vélarnar að nýju. Skipið var að
koma úr skemmtisiglingu I
Karíbahafi. Rcuter
„Það leikur ekki nokkur vafi á að
þetta er kraftaverk. Þótt þau séu
mjög ung tókst þeim að hafa þetta
af vegna þess að þau hafa búið í
óbyggðunum alla sína ævi. Þau vita
því hvað þau mega borða og hvaöa
dýr eru hættuleg."
Þetta sagði einn fjölmargra björg-
unarmanna sem tóku þátt í víðtækri
leit að tveimur systkinum, sex ára
gutta og fjögurra ára stúlku, í
óbyggðum Argentínu. Börnin fund-
ust á sunnudag eftir tuttugu daga
vist á fjöllum meðal rándýra, hræ-
gamma og eitraðra snáka. Þau voru
þá komin 95 kílómetra frá heimih
sínu.
Daniel og Ramira Quispe höfðu
ráfað í burtu frá bóndabænum þar
sem þau búa í Jujuy-héraði í norður-
hluta Argentínu. Þau ætluðu að leita
foreldra sinna sem höfðu tafist úti í
haga þar sem fjallaljón hafði ógnað
nautgripahjörðinni þeirra. Á meöan
I New York eru menn orðnir svo þreyttir á að láta tattúera sig í bak og fyrir
að þeir hafa gripið til brennimerkingar, eins og gert er við nautgripi. Hér
hefur Mike Dolce látið brennimerkja orðið „brennimerktur“ á sig fyrir ofan
hægri geirvörtuna, með arabísku letri. Símamynd Reuter
RÖSE-ráðstefna í upplausn
Tveggja daga leiðtogafundi Ráð-
stefnunnar um öryggi og samvinnu
í Evrópu (RÖSE) lauk í algjörri upp-
lausn í gær vegna innbyröis deilna
um stríðið í Bosníu þar sem menn
sökuðu hveijir aðra um að bera
ábyrgð á áframhaldandi stríðs-
rekstri. Rússar beittu neitunarvaldi
til að koma í veg fyrir að Evrópurík-
in samþykktu ályktun um Bosníu.
Leiðtogamir urðu þó ásáttir um að
senda friðargæsluliða til Nagorno-
Karabakh-héraðs í fyrrum Sovétríkj-
unum og vinna að því að koma í veg
að átök eins og í fyrrum Júgóslavíu
blossuðuupp annars staðar. Rc uter
' Heimilistækjadeild Fálkans •
Dættigur
og koddar
Umboðsmenn um land allt
Góða
nótt og
sofðu rótt
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 91-814670
ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 91-670100
• Heimilistækiadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Fálkans •
á villuráfinu stóð fékk Daniel systur
sína til að borða villiepli og drekka
vatn úr lófa hans.
Börnin voru flutt til byggða í gær
þar sem fjöldi fréttamanna beið
þeirra.
„Ekkert borgarbarn hefði lifað
meira en nokkra daga við þessar
aðstæður," sagði björgunarmaður-
inn Miguel Angel Estevez við frétta-
menn þegar hann kom til byggða á
undan börnunum. „Daniel sagði
varla orð þegar við fundum hann og
þau grétu ekki einu sinni."
Estevez sagði að björgunarmenn-
irnir hefðu grátið af gleði þegar þeir
fúndu börnin. Ramira var svo að-
framkomin af vatnsskorti að hún gat
ekki gengið. „Daniel er mjög klár og
það er honum að þakka að systir
hans er á lífi í dag,“ sagði Estevez.
Tveimur dögum áður höfðu björg-
unarmenn séð hrægamma sveima
hringi yfir einhveiju sem þeir héldu
aö væru lík bamanna.
„Blóðið fraus í æöum okkar. Þegar
þessir hrægammar nálgast þýðir það
að eitthvað er dautt. Við hlupum eins
og fætur toguðu þangað sem þeir
voru en þetta reyndist þá vera kálf-
ur,“ sagði Estevez. Reuter
Steffens
mini face
Mikið úrval af barna-
fatnaði í stærðum
68-86 cm
Peysa 1.770,-
Buxur 1.390,-
10% staðgreiðsluafsl.
Ekkert
póstkröfugjald
LAGJÖF
HEIiVIILISIJNrS
- Á GÓÐU VERÐI
• Nicam Stereo
hljómgæði
• íslenskt
textavarp
• Super Planar
myndlampi
• og margt fleira...
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
69.800
STGR.
SjÓNTORPSMIÐSTÖÐIN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16