Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1994, Síða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994
59
Iþróttir
Iþróttir
Stef nir í líflegt sumar hjá
knattspyrnuliði Kef Ivíkinga
Knattspyrnuliö Keflvíkinga á fyrir
höndum líflegar fimm vikur á miöju
næsta sumri. Keflavík verður full-
trúi íslands í fyrstu UEFA-TOTO-
keppninni, nýrri Evrópukeppni fé-
lagsliða, og hún fer fram á tímabilinu
24. júní til 29. júlí.
Á þessu tímabili leika Keflvíkingar
sex leiki í keppninni, þrjá hér heima
og þrjá erlendis. Á meðan eru leiknar
íjórar umferðir í 1. deildinni, einnig
16-liða og 8-liða úrslitin í bikarkeppn-
inni, auk þess sem undanúrslit bik-
arkeppninnar eru áætluð tveimur
dögum eftir að Evrópukeppninni
lýkur.
Þetta þýðir að ef Keflavík á góðu
gengi að fagna í bikarnum gæti liðiö
leikið aflt að 13 leiki í þremur mótum
á 38 dögum, sem þýðir leikur á
þriggja daga fresti að meðaltali.
Leikirnir í UEFA-TOTO-keppninni
fara fram sex laugardaga í röö og
samkvæmt tillögum sem lagðar hafa
verið fram um leikdaga í 1. deildinni
verður fyrst og fremst spilað í miðri
viku, til hagræðis fyrir Keflvíkinga.
„Það er ekki spurning um að hliðra
til þannig að íslensk lið geti tekið
þátt í þessari keppni. Hún er mjög
spennandi og síöan liggur fyrir milli-
þinganefnd að koma á deildabikar-
keppni, þannig að í framtíðinni gæti
lið sem vinnur hana að vori farið í
þessa Evrópukeppni um sumarið,"
sagði Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, í spjalli við DV.
Samkvæmt tillögunum, sem Egg-
ert og Geir Þorsteinsson hafa lagt
fram, hefst 1. deild og lýkur á sama
tíma og hún gerði í ár, það er að segja
20. maí og 23. september. Leikirnir
dreifast svipað og í ár, 3 umferðir
leiknar í maí, 3 í júní, 4 í júlí, 4 í
ágúst og 4 í september.
FrábærthjáOB
Það urðu heldur betur óvænt
úrslit í 3. umferð UEFA-keppn-
innar í knattspyrnu í gær.
Danska liðið OB gerði sér þá lítið
fyrir og sló stórlið Real Madrid
út úr keppninni meö fræknum
sigri á Spáni, 0-2.
Real Madrid vann fyrri leikinn
í Dannmörku, 2-3, og flestir ef
ekki allir áttu von á að eftirleik-
urinn yröi auðveldur fyrir Spán-
verjana. En það sló þögn á hina
50.000 áhorfendur á Santigago
Bernabeu leikvanginum þegar
varamaðurinn Mortens Bisgárd
skoraði síðara mark OB á 90.
mínútu. Þar með hefur OB slegið
út tvö stórlið. í 1. umferð sló það
út Linfield frá N-írlandi, í 2. um-
ferð Kaiserslautem og nú Real
Madrid.
„Að kyngja þessum ósigri er
eins og að gleypa eitur,“ sagði
Jorge Valdani, þjálfari Real
Madrid, eftir leikinn.
Landsliösþjálfarinn 1 tennis:
Stunqinn af
Landsliðsþjálfarinn í tennis, Kró-
atinn Boso Skaramuca, hvarf spor-
laust á braut eftir þátttöku íslenska
unglingalandsliðsins í kvennaflokki
á Evrópumótinu í Portúgal á dögun-
um. Þegar hópurinn hélt áleiðis heim
til íslands 28. nóvember hvarf Skara-
muca á braut og lét íslenska hópinn,
sem skipaður var stúlkum á aldrin-
um 14-17 ára, koma sér heim til ís-
lands með einnar nætur gistingu í
Lundúnum. Það er mikill ábyrgðar-
hluti að hverfa svona frá hópnum en
hvað skyldi eiginlega búa að baki
slíkri ákvörðun?
Menn velta að vonum fyrir sér
skýringunni að baki brotthvarfsins
og er einna helst talið að Skaramuca
sé að hlaupa frá skuldum á íslandi.
Skömmu fyrir ferðina til Portúgals
stóð Skaramuca fyrir heimsókn
tennisleikara frá Króatíu. Þeir léku
sýningarleik í tennishöllinni og var
aðsókn mun lélegri en menn bjugg-
ust við. Kostnaður við heimsókn
tennisleikaranna til íslands var tal-
inn nema rúmum tveimur milljónum
króna og stóð því Skaramuca uppi
með talsverðar skuldir á bakinu.
Skaramuca hafði þjálfað hér á
landi um tveggja ára skeið við góðan
orðstír. Hann þjálfaði meðal hjá
Þrótti og landsliðin.
I kvöld
Handbolti - Nissan-deildin:
Stjarnan-ÍR 20.00
FH-ÍH 20.00
Valur-KA 20.00
Afturelding - KR 20.00
Víkingur-Selfoss.... 20.00
HK - Haukar 20.00
Körfubolti - bikar kvenna:
Njarðvík - Keflavík........18.30
Evrópumót félagsliða í knattspyrnu
UEFA-bikarinn-3. umferð, síðari leikir:
Real Madrid (Spánij-Odense (Danmörku)...................0-2 = 3-4
0-1 Petersen (71.), 0-2 Bisgárd (90.) Áhorfendur 50.000
Leverkusen (Þýskalandif-Katowice (Póllandi).............4-0 - 8-1
1-0 Schuster (11.), 2-0 Thom (13.), 3-0 Scholz (15.), 4-0 Hapal (28.)
Parma (Ítalíu)-Atletico Bilbao (Spáni)..................4-2 = 4-3
1-0 Zola (21.), 2-0 Baggio (39.), 3-0 Baggio (49.), 3-1 Vales (56.), 4-1 Couto
(65.), Guerrero (75.)
Juventus (Ítalíu)-Admira Wacker (Austurríki)............2-1 = 5-2
1-0 Ferrara (17.), 1-1 Wimmer (73.), 2-1 Vialli (86.)
Lazio (Italiu)-Trabzonspor (Tyrklandi)...................2-1:4-2
1-0 Cravero (25.), 2-0 Di Vaio (75.), 2-1 Soner (73.).
Dortmund (Þýskalandi)-Deportivo Coruna (Spáni)...........3-1:3-2
1-0 Zorc (50.), 1-1 Santaelena (102.), 2-1 Riedle (115.), 3-1 Ricken (118.)
Vilja útiloka kínverskt
sundfólk frá keppni í 4 ár
- kínverska ólympíunefndin fyrirskipar rannsókn á lyQamálinu
Helstu sundþjálfarar Ástralíu hafa
farið fram á það við Alþjóða sund-
sambandið að kínverskt sundfólk
verði útilokaö frá allri alþjóðlegri
keppni í ljögur ár, í kjölfar þess að
sjö kínverskir sundmenn féllu á
lyfjaprófum eftir Asíuleikana í síö-
asta mánuði.
Bannið myndi þýöa að Kínverjar
gætu hvorki tekið þátt í sundkeþpni
ólympíuleikanna í Atlanta 1996 né í
hemsmeistaramótinu í sundi í Ástr-
alíu 1988.
Ástralarnir fara einnig fram á að
bannið verði framlengt ef Kínverjum
tekst ekki að sýna fram á fyrir þann
tíma að þeir geti lyfjaprófaö sitt
sundfólk á fullnægjandi hátt.
Þjóðverjar hafa þegar tilkynnt að
þeir taki ekki þátt í neinum sundmót-
um í Kína fyrr en ljóst sé aö þar sé
ekki um skipulagða lyfjagjöf til sund-
fólks að ræða.
Kínverska ólympíunefndin hefur
fyrirskipað ítarlega rannsókn á lyfja-
málinu og heitir því að refsa hinum
brotlegu harðlega en ítrekar að það
séu íþróttamennirnir sem verði sér
úti um lyfin og ekki sé um kerfis-
bundið svindl að ræða.
Heimilisfang:
Sendið til:
íþróttamaöur ársins
DV - Þverhoiti 11
1P5 Reykjavík
Blikar unnu
Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyri:
Breiöablik komst í gær á topp
2. deildar karla i handknattleik
með þvi aö sigra Þór á Akureyri,
23-25. Blikar höfðu yfir í hálfleik,
12-13, en leikurinn var jafn og
spennandi.
Hjá Þór var Sævar Ámason
markahæstur með 9/5, Atli Rún-
arsson 7 og Páfl Gíslason 4/1 en í
liði Breiðabliks var Sigurbjörn
Narfason með 7 mörk og þeir
Eyjólfur Einarsson, Björgvin
Björgvinsson og Guðjón Hauks-
son með 4 mörk hver, Besti mað-
ur vallarins var markvörður
Blika, Elvar Guðmundsson, sem
varði 17 skot.
Guðni aftur til Spurs?
- heldur utan eftir helgina til æfinga og viðræöna við Lundúnaliðið
Svo kann að fara að Guðni Bergs-
son, landsliðsfyrirliði í knattspymu,
sé á leið aftur tfl enska úrvalsdeildarl-
iðsins Tottenham Hotspur. Forráða-
menn félagsins hafa rætt við Guðna
með það í huga að hann gerist leik-
maður með Mðinu að nýju enn eins
og kunnugt er þá hætti hann með
félaginu í kjölfar bakmeiösla árið 1993
og kom aftur heim. Guðni lék með
Val í sumar og hefur stefnt að því að
komast út í atvinnumennskuna að
nýju.
Enska úrvalsdeildarliðið Crystal
Palace bauð honum að koma út til
æfinga í haust og í kjölfarið lýstu forr-
áðamenn félagsins áhuga á því að fá
hann í sínar raðir. Þar sem Totten-
ham hefur enn forkaupsrétt að Guöna
þurfti Palace að ganga til samninga
við Tottenham og út úr þeim viðræð-
um hefur ekkert komið enn þá. Þá
hafa sænsk félög spurst fyrir um
Guðna meðan annars Örebro, lið Ar-
nórs Guðjohnsens og Hlyns Stefáns-
sonar.
„Ég fer utan eftir helgina og mun
þá æfa með Tottenham og eiga við-
ræður við forráðamenn félagsins. Á
þessum fundi verður það afgreitt
hvort af því verði að ég fari til Totten-
ham eða hvort ég gangi til liðs við
Crystal Palace," sagði Guðni við DV
í gærkvöldi.
„Að sjálfsögðu yrði það spennandi
að fara aftur til Tottenham. Totten-
ham er stór klúbbur og það er mikil
stemning í kringum liðið þessa dag-
ana,“ sagði Guðni ennfremur.
Vamarleikur Tottenham hefur ekki
verið upp á marga fiska á þessu tíma-
bili og það er ekki að ástæðulausu
sem forráðamenn félagsins eru að
leita leiða til að styrkja vörn liðsins.
Shaquille og Anderson
áttu frábæran leik
- þegar Orlando bætti enn einum sigrinum í safnið í Cleveland
Shaquille O’Neal og félagar hans í
Orlando Magic léku stórvel þegar liðið
gerði góða ferð til Cleveland í nótt.
Shaquille og Nick Anderson skoruðu 26
stig hvor en Anfernee Hardaway skoraði
20. Þessir þrír leikmenn báru liðið uppi
eins og þeir hafa gert í vetur. Orlando
gerði 42 stig í fyrsta leikhluta og vann
11 leiki í tólf viðureignum.
„Við vorum svolítið hræddir við kom-
una tfl Cleveland en það reyndist
ástæðulaust þegar á hólminn var kom-
ið,“ sagði Shaquille eftir leikinn í nótt.
Larry Johnson skoraði 28 stig fyrir
Charlotte í sigrinum gegn Utah Jazz.
Leikurinn var jafn framan af en Charl-
otte seig fram úr í lokin fyrir tilstifli
Dell Curry sem skoraöi 20 stig í leiknum.
Hornets fagnar góðu gengi þessa dagana
en þetta var fimmti sigurleikur liðsins í
sex leikjum. Malone var stigahæstur hjá
Utah með 31 stig.
Craig Ehlo gerði sigurkörfu Atlanta
þegar liöið lagði New Jersey á útivelli.
Ehlo var stigahæstur hjá Atlanta og
skoraði 21 stig.
Reggie Miller var sterkur á lokakafl-
anum þegar Indiana vann Detroit. Dale
Davis gerði 19 stig fyrir Indiana og Mill-
er 18 stig.
Seattle sýndi styrk sinn enn eina ferö-
ina, nú einnig þegar Houston kom þang-
að í heimsókn. Gary Payton var sterkur
hjá Seattle með sín 30 stig sem er met á
tímabflinu. Otis Thorpe gerði 21 stig fyr-
ir Houston.
DaUas gerir það ekki endasleppt og nú
varð San Antonio fyrir baröinu á Uðinu.
Framlengingu þurfti til að knýja fram
sigur og reyndist Dallas sterkara eftir
æsispenanndi leik. Jamal Mashburn lék
skínandi vel og gerði 34 stig og Ron Tarp-
ley 22 stig.
Nýhðinn hjá Denver, Jalen Rose, gerði
öU sín níu stig í síðasta leikhluta þegar
Denver vann Minnesota á útivelli. Dale
EUis var stigahæstur með 18 stig og
Brian WiUiams 17 stig og tók 13 fráköst.
Þjálfaraskipti hjá HK1 handknattleik:
Kmec látinn fara
Þjálfaraskipti urðu í gær hjá 1.
deUdar Uði HK í handknattleik.
Tékkanum Igor Kmec var vikið frá
störfum, í kjölfar lélegs árangurs
hðsins í Nissan-deildinni í vetur, og
í hans stað var ráðinn Ragnar Ólafs-
son. Ragnar er ekki ókunnugur HK.
Hann var einn af stofnendum þess
og lék um árabil með félaginu auk
þess sem hann hefur verið astoðar-
þjálfari liðsins. Fyrsti leikur HK-
liðsins undir hans stjórn er gegn
Haukum í kvöld.
„Það var samkomulag hjá okkur
aö Kmec hætti með liðið. Hann náði
því ekki út úr strákunum sem við
vonuðumst eftir, þó svo að hann sé
sprenglærður þjálfari og góður kenn-
ari, og því töldum við bestu lausnina
að láta hann fara,“ sagði Rögnvaldur
Guðmundsson, formaður handknatt-
leiksdeildar HK, við DV í gærkvöldi.
„Staða liðsins er óneitanlega svört
og við ætlumst ekki til að Ragnar
geri neitt kraftaverk. Hann þekkir
vel til þessara stráka og getur örugg-
lega fengið það besta út úr þeim,“
sagði Rögnvaldur ennfremur.
Ivar hættur þjátf un
Skagamanna í körfunni
- Elvar Þórólfsson tekur við þjálfarastöðunni
Ivar Ásgrímsson, þjálfari úrvals-
deildarliös Skagamanna í körfu-
knattleik, hefur ákveöiö að láta af
störfum sem þjálfari liðsins. ívar var
ekki ánægður með gengi liösins og
að höföu samráði við stjórn körfu-
knattleiksdeildar ÍA var ákveðið að
ívar hætti. Elvar Þórólfsson mun
taka við þjálfarastarflnu.
„Ég hef bara alltof mikið að gera
en auk þjálfarastarfsins stunda ég
nám í háskólnaum sem ég ætla aö
ljúka á næsta vori. Það fór einfald-
lega of mikUl tími í þetta. Eins var
ég orðinn leiður og í kjölfar síðustu
flögurra leikja Uðsins í deildinni var
ljóst að breytinga þurfti viö. Ég ræddi
við stjórnina og hún var meðvituð
um að eitthvað þyrfti að gera til að
rífa Uðið upp úr þeim öldudal sem
það er í. Það var því sjálfsagt að prófa
nýja hluti,“ sagði ívar Ásgrímsson í
samtali við DV.
ívar sagði það nokkuð ljóst aö hann
léki með Skagamönnum næstu tvo
leiki. Hann sagðist eftir þá ræða við
stjórnina um frekara framhald í
spilamenskunni.
Fortuna býður Margréti
á sterkt mót í Miami
Margréti Ólafsdóttur úr Breiða-
bliki, sem kosin var knattspyrnu-
kona ársins á síðasta keppnistíma-
bih, hefur veriö boðið að keppa með
danska liðinu Fortuna á sterku
knattspyrnumóti á Miami á miUi
jóla og nýárs. Auður Skúladóttir,
sem leikur meö Fortuna, benti forr-
áðamönnum Fortuna á Margréti
og höfðu þeir fullan áhuga að fá
hana til félagsins.
„Þeir reyndu að fá mig til að leika
með Uðinu á næsta tímabiU. Ég vU
þó klára skólann fyrst áður en ég
tek boði sem þessu. Þeir sögðust í
framhaldi ætla að hafa samband
við mig eftir tímabiUð heima næsta
haust. Ég er mjög spennt fyrir ferð-
inni tU Miami og það verður gaman
að prófa eitthvað nýtt. Þessi ferð
gefur mér hugmyndir um hvernig
svona dæmi lítur út,“ sagði Margr-
ét Ólafsdóttir í samtali við DV í
gærkvöldi.
Þess má geta að Fortuna varð
danskur meistari fyrir nokkrum
vikum og er það því mikfll heiður
fyrir Margréti að vera boðið með í
feröina til Miami og eins það að lið-
ið vUl fá hana í sínar raðir þó síöar
verði.
Doug West gerði 25 stig fyrir Minnesota.
Nick Van Exel skoraði 20 stig fyrir LA
Lakers í sigrinum gegn Golden State í
Forum. Leikurinn var í jámum lengst
af en Lakers beit frá sér í lokin. Cedric
Ceballos skoraði 28 stig en Lakers vann
þarna sinn sjöunda leik í átta leikjum.
Tim Hardaway skoraði 23 stig fyrir Gold-
en State.
Olden Polynice skoraði 22 stig fyrir
Sacramento og tók 16 fráköst í sigrinum
á MUwaukee í nótt.
Úrslit leikja í nótt:
New Jersey - Atlanta............91-94
Cleveland Orlando..............97-114
Indiana - Detroit...............90-83
Minnesota - Denver.............95-102
San Antonio - Dallas..........121-124
Utah Jazz - Chariotte..........97-106
LA Lakers - Golden State......113-101
Sacramento - Milwaukee.........108-95
Seattle - Houston..............103-90
New York Boston................104-90
Fyrsta tap Blika
KR stöðvaði sigurgöngu Breiða-
bhks í 1. deild kvenna í körfuknatt-
leik í gær. KR sigraði, 63-59, en Bhk-
ar höfðu yfir í hálfleik, 34-39. Það var
mikil spenna allan leikinn.Blikar
jöfnuðu metin, 59-59, 12 sekúndum
fyrir leikslok og skömmu síðar var
dæmt tæknivíti á þjálfara Breiða-
bhks en hann var þá óvart kominn
inn á völUnn. KR-ingar nýttu bæði
vítaskotin og skoruðu svo aðra körfu
á lokasekúndunni.
María Guðnadóttir skoraði 20 stig
fyrir KR, Guðbjörg Norðfjörð 17 og
þær Helga Þorvaldsdóttir og Elín-
borg Herbertsdóttir 10 hvor en fyrir
Blika, sem léku án Olgu Færseth, var
Penny Peppas með 22 stig, Hanna
Kjartansdóttir 14 og þær Erla Hend-
riksdóttir og Hildur Ólafsdóttir með
8 stig hvor.
í 1. defld karla sigraði Leiknir lið
Selfoss, 75-65.
Anthonytil
Breiðabliks?
Samkvæmt heimfldum DV
bendir flest til þess að Anthony
Karl Gregory gangi tíl Uðs við 1.
defldar Uð Breiðabliks í knatt-
spymu. Hann hefur verið í við-
ræðum við Kópavogsliðið og mun
að öllum líkindum ganga frá
samningi við félagið einhvem
naestu daga.
ÍBV og Valur hafa einnig átt í
viðræðum við Anthony en eftir
því sem DV kemst næst þá hefur
hann mestan hug á að fara tU
Blikanna. Á tíma leit út fyrir að
Anthony færi til ÍBV en að öUum
líkindum .verður ekkert af því
eftir að Tryggvl Guðmundsson
ákvað aö fara fram á það við KR
að losna frá félaginu og ganga í
raðir Eyjamanna.
KR og ÍBV hafa ekki náð sam-
komulagi en Tryggvi á eftir eitt
ár af samningi sínum við vestur-
bæjahðið. Samningaviðræður
em hins vegar í gangi og væntan-
lega næst lending í þessu máU.
Þingeyingar
unnu Laugamótið
Rúnax B. Gisfeœon, DV, Laugum:
HSÞ-b, Uð Þingeyinga, sigraði
KS í úrslitaleik karla á tólfta
Laugamótinu í innanhússknatt-
spymu sem haldið var dagana 25.
og 26. nóvember. Að loknum
venjulegum leiktíma og fram-
lengingu var jafnL Gripa þurfti
tíl bráðabana og fór svo að Þing-
eyingar urðu fyrri til að skora og
unnu þar með mótið í þriöja sinn
á pórum árum.
í undanúrsUtum mótsins vann
HSÞ-b sigur á Völsungi .og KS
vann Daivík. Dalvíkingar unnu
svo Völsunga í leik um þriðja
sætið. ÞátttökuUð í karlaflokki
voru 14.
B-lið KS sigraði í kvennaflokki
en þar voru fimm lið skráð til
leiks og spUuðu í einum riðU.
Stórliðí
míkilli hættu
Síðasta umferðin í riðlakeppni
meistaradeUdar Evrópu i knatt-
spyrnu verður leikin í kvöld en
að henni lokinni verða átta félög
eftir í keppninni. Þrjú stórlið eru
á barmi þess að faUa út, Bayern
Múnchen, AC Milan og Manc-
hester United.
Bayern berst við Dinamo Kiev
og Spartak Moskva um aö komast
áfram úr B-riðli og mætir Kiev á
heimavelU í nánast hreinum úr-
sUtaleik.
AC Milan sækir heim austur-
ríska félagið Saizburg, sem hefur
ekki tapað á heimaveUi í keppn-
inni, en Salzburg dugir jafhtefli
tíl aö komast áfram.
Manchester United fær Galat-
asaray í heimsókn og á mögu-
leika á aö komast áfram ef sá leik-
ur vinnst en aðeins ef Barcelona
tapar fyrir Gautaborg á heima-
veUi. MikU meiðsU eru í herbúð-
um Manchester-manna svo úflit-
ið er ekki ýkja bjart á Old Traf-
ford.
Benfica, Hajduk Split, Ajax,
Gautaborg og Paris SG eru þegar
komin í 8-liöa úrslitin.
Ásta sigraði
á Fis-móti
ísvigi
Ásta Halldórsdóttir sigraði á
FlS-móti á skíðum sem fram fór
I Kiruna í Svíþjóð um siðustu
helgi. Ásta keppti á tveimur mót-
um í svigi. Á því fyrra var hún
með besta tímann eftir fyrri um-
ferð en datt í þeirri seinni og var
þar með úr leik. Ásta vann svo
síðara mótið og hlaut fyrir það
17 Fis-punkta. Meðal keppenda
var allt B-Uð Sviþjóðar auk þess
sem keppendur komu alia leið frá
Japan.
Svelt íslands
Í3.sæti
ískylmingum
Lið Skylmingaféiags Reykja-
víkur hafnaði í þriðja sæti á
Eystrasaltsmótinu í skylmingum
sem fram fór í Kaupmannahöfn
um síöustu helgi en keppt var
með höggsverðum. Sveit Eng-
lands sigraðien níu þjóðir kepptu
á mótinu. í íslensku sveitinni
voru: Ólafúr Bjamason fyrirUði,
Kári Freyr Bjömsson, Ragnar
Ingi Sigurðsson og Reynir Öm
Guömundsson. í einstakUngs-
keppninni varð Reynir í 12. sæti
í keppni með höggsverð, Reynir
16. Kári 17, og Ragnar í-18. sæti
en keppendur voru 40. í keppni
með stungusverði varð Haukur í
17. sæti af 35 keppendum og í
keppni með lagsverö varð Hauk-
ur í 27. sæti en keppendur vom
50.
+