Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Fréttir
Rætt um 8 prósenta kaup-
hækkun á tveimur árum
- ekki eining innan verkalýðshreyfingarinnar um málið
Þær óformlegu viðræður milli for-
ystumanna Alþýöusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins, sem DV
hefur áður greint frá, eru komnar
nokkuö á veg. Samkvæmt heimild-
um DV er verið að ræða um kjara-
samning til tveggja ára og samtals 8
prósenta launahækkun. A þessu ári
kæmi 5 prósenta kauphækkun og 3
prósenta á næsta ári. Þá er og rætt
um sérstakar bætur til handa þeim
Tjónið hjá
Ingólfi nemur
10-15
milljónum
Talið er að Björgunarsveitin Ingólf-
ur í Reykjavík hafi orðið fyrir 10-15
milljóna króna tjóni þegar eldur kom
upp í húsakynnum sjóflokks sveitar-
innar við Grandagarð aðfaranótt
laugardagsins. Nánast allur búnaður
sjóflokksins eyðilagðist í eldinum.
Eldsupptök eru ekki fullkönnuð en
talið að þau hafi verið í rafhlöðum í
flotgöllum sem nýlega höfðu verið í
notkun þegar eldurinn kom upp.
Gallarnir voru því enn blautir.
Esther Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri SVFÍ, sagði í samtali
við DV aö tjón Ingólfs væri verulegt
en allur búnaðurinn hefði verið
tryggður. Þarna eyðilögöust 16 flot-
gallar, köfunarbúnaður og ýmsir
persónulegir munir í eigu björgunar-
sveitarmanna. Um dýran búnað er
að ræða. T.d. kostar hver galli um
80 þúsund krónur.
Steingrímur Njálsson:
Handtekinnvegna
grunsumnýtt
kynferðisafbrot
Steingrímur Njálsson var hneppt-
ur í varðhald um helgina vegna
gruns um kynferðisafbrot gagnvart
27 ára karlmanni sem mun vera ör-
yrki, samkvæmt heimildum DV.
Voru þeir saman í íbúð Steingríms
en þangaö er hann talinn hafa tælt
til sín manninn. Samkvæmt heimild-
um DV tilkynnti móðir öryrkjans um
atburðinn.
RLR fer með rannsókn málsins en
vildi ekki gefa neinar upplýsingar í
gærkvöldi.
Sundlaug Akureyrar:
Klæðlitlir
næturgestir
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii
Lögreglan á Akureyri handtók sex
næturgesti við sundlaugina á Akur-
eyri í fyrrinótt en fólkið, sem var af
báðum kynjum, hafði klifrað yfir
girðingu og skellt sér í heita potta á
sundlaugarsvæðinu.
Að sögn lögreglu var fólkið mislítið
klætt í pottunum, sumir á Evu- og
Admasklæðunum einum saman, aðrir
lítt klæddir. Fólkið var flutt á lögreglu-
stööina og fær væntanlega aö greiða
kostnaö vegna hreinsunar á pottunum.
sem eru á allra lægstu töxtum. Varð-
andi það sem að ríkisvaldinu snýr
er í umræðunni að fá fram skatta-
lækkun og krafa er um afnám láns-
kjaravísitölunnar auk aðstoðar viö
skuldugustu heimilin í formi ein-
hvers konar skuldbreytingar.
„Ég hef aöeins heyrt af þessum við-
ræðum en veit aö öðru leyti ekkert
um þær. Þær breyta heldur engu fyr-
ir okkur. Við munum halda okkar
striki," sagði Guðmundur J. Guð-
múndsson, formaður Dagsbrúnar,
sem er í Flóabandalaginu svokallaða
meö Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur.
Samkvæmt heimildum DV er ekki
eining innan verkalýðshreyfingar-
innar um það sem forystumenn ASÍ
eru að gera. Óttast sumir forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar að
til klofnings geti komið innan hreyf-
ingarinnar í samningunum. Þá er því
líka haldið fram að Alþýðusamband-
iö muni gera að engu sérkjarasamn-
inga þá sem verkalýðsfélögin sum
hver hafa lagt mikla áherslu á að fá
fram að þessu sinni.
Magnús Gunnarsson, formaður
Vinnuveitendasambandsins, sagði í
samtali við DV í gær að hann teldi
mjög miklu skipta að samningar
gætu tekist sem allra fyrst. Hann
sagði VSÍ óska eftir tveggja ára
samningi. Hann sagði skilning á því
hjá vinnuveitendum að tekið yrði á
sérkjarasamningamálunum og fyrir
utan almenna launahækkun vildu
menn leita leiöa til að bæta hag
þeirra sem eru á lægstu töxtunum
eða eru verst settir.
Stuttar fréttir
MenningíReykjavík
Nefnd á vegum ReyKjavikur-
borgar og ríkisins undirbýr nú
umsókn til ESB um aö Reykjavík
verði menningarborg Evrópu ár-
ið 2000.
ísienskir karlarbestir
íslenskir karlar geta vænst þess
að veröa eldri en aörir karlmenn
oða tæplega 77 ára. Næstbestu
lífslíkur hafa japanskir karlar en
þeir geta vænst þess að verða 76
ára. Islenskar konur eru í fjórða
til fimmta sæti hvað varöar ævi-
lengd. RÚV greindi frá þessu.
Ólafur Ragnarefstur
Ólafur Ragnar Grímsson fékk
flestar tilnefningar í skoðana-
könnun Alþýðubandalagsins á
Reykjanesi um skipan framboös-
lista flokksins. Alls tóku 376 þátt
í könnuninni og fékk Ólafur
Ragnar 80% tilnefninga. Sigriður
Jóhannesdóttir fékk 55% tilnefn-
inga og hafnaði í öðru sætinu.
Hagræðing og spamaður
Formaður stjómar sjúkrahúss-
ins á Hvammstanga telur aö hægt
sé að ná fram spamaði og hag-
ræðingu meö þvi að sameina
rekstur sjúkrahússins og heilsu-
gæslunnar á staönum. Sjónvarp-
iö greindi frá þessu.
ÓvissaumPál
Ekki er gefið að Páll Pétursson
alþingismaður sætti sig við aö
’ hafna i ööm sætinu í prófkjöri
Framsóknarflokksins á Noröur-
landi vestra. Prófkjörið veröur
um næstu helgi. Sjónvarpið
greindi frá þessu.
Tveirhryggbrotnir
Bill valt á fóstudagskvöld á
móts viö bæinn Garðsvik á Sval-
barðsströnd. Fjórir vom fluttir á
slysadeild, tveir taldir hrygg-
brotnir, einn axlarbrotinn en
einn minna meiddur.
Færri umferðaróhöpp
Bílum í bótaskyldum tjónum
fækkaöi á síðasta ári miöað við
árið á undan. Kostnaður trygg-
ingafélaganna vegna bóta lækk-
aði um 100 mOljónir. Mbl. greindi
frá þessu.
Ekiðáhross
Ekið var á hross á Svalbarðs-
strönd á laugardagsmorgun.
Hrossið drapst samstundis og
bíllinn er rnikið skemmdur.
-kaa
Slökkviliðsmenn i brunarústunum hjá björgunarsveitinni Ingólfi.
DV-mynd S
Ólga innan Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Hópur sósíalista
íhugar sérframboð
- helmingslíkur, segir Einar Valur Ingimundarson
Hópur alþýðubandalagsmanna í
eykjavík íhugar aö efna til sérfram-
oös í komandi alþingiskosningum.
(ugmyndin á sér einkum hljóm-
runn innan Sósíalistafélagsins sem
aðild að Alþýðubandalaginu.
Að sögn Einars Vals Ingimundar-
Dnar, formanns félagsins, hefur enn
ngin ákvörðun verið tekin um sér-
•amboð en aðspurður segir hann
elmingslíkur á því eins og mál
tandi í dag. Endanlegrar ákvörðun-
r sé ekki að vænta fyrr en fyrir liggi
vernig framboöslisti flokksins verð-
r. Einar Valur segir hugmyndina
m sérframboð hafa vaknað í kjölfar
þess að ákveðið var að hætta við
prófkjör og stilla þess í staö upp
framboðslista.
Einar Valur segir að við uppstill-
inguna hafi ekki verið rætt við neina
félagsmenn í Sósíalistafélaginu og
veki það furðu. Máliö verður tekiö
til umræðu á félagsfundi í kvöld og
er líklegt aö þá verði ákveðið að fé-
lagiö hætti öllum afskiptum af fram-
boðslista Alþýðubandalagsins.
Innan Alþýðubandalagsfélagsins í
Reykjavík er einnig nokkur óánægja
með þá aðferð að stilla upp lista.
Hópur félagsmanna, með þær Auði
Sveinsdóttur, Stefaníu Traustadótt-
ur og Álfheiði Ingadóttur í broddi
fylkingar, hefur ákveðiö að taka ekki
þátt i kosningaundirbúningi flokks-
ins í mótmælaskyni við það aö hætt
var við prófkjör. í samtali við DV í
gærkvöldi vildi Auður hvorki játa
né neita þeim möguleika að ganga til
hðs við sérframboð ef af því verður.
Svavar Gestsson vildi í gær ekkert
tjá sig um ólguna innan flokksins.
Aðspurður sagöist hann fullviss um
að yfirgnæfandi meirihluti flokks-
manna yrði ánægður með framboðs-
lista flokksins. Frá listanum yrði
gengið á næstunni.
-kaa
Dagrún dregin vélarvana til hafnar
Togarinn Dagrún frá Bolungarvík
varð vélarvana á laugardagskvöldið
skammt út af Vestfjörðum, á Hala-
miöum. Sveifarás brotnaði og við það
hrundi vélin. Annar togari í eigu
Ósvarar, Heiðrún, kom Dagrúnu til
hjálpar og tók skipiö í tog til Bolung-
arvíkur.
Innan stjórnar Ósvarar hefur veriö
rætt um að gera endurbætur á Dag-
rúnu og breyta henni í frystiskip.
Að sögn Björgvins Bjamasonar út-
gerðarstjóra mun óhappiö um helg-
ina að öllum líkindum flýta þeim
áformum. Hugmyndin sé aö lengja
skipið um 10 metra og setja í það afl-
meiri vél.
-kaa