Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
31
Fréttir
Bor garfl arðarbrúin í hættu:
Steypuskemmdir og
grefur undan stöplum
Steypuskemmdir eru orðnar vandamál á Borgarfjarðarbrúnni.
Olgeir R Ragnaisson, DV, Borgarbyggð:
Allt útlit er fyrir að viðhald brúar-
innar yfir Borgarfjörð eigi eftir að
aukast á næstu árum ef fram heldur
sem horfir. Grafið hefur undan stöpl-
um brúarinnar og þurft mikla grjót-
fylhngu að þeim. Einnig hefur komið
í ljós síðustu ár að töluverðar steypu-
skemmdir hafa oröið á stöplum á því
svæði þar sem flóðs og fjöru gætir
og hefur steypan flagnað af á köflum.
Þess eru dæmi að ber járngrindin
blasi við.
Þegar brúin var hönnuð var gert
ráð fyrir að settur yrði upp grjót-
þröskuldur milli stöpla og upp að
öllum stöplunum. Hins vegar voru
menn ekkert vissir um hvort grafa
myndi frá stöplunum og þá hversu
mikið. Fjárfesting í brúnni var gífur-
leg og tóku menn þá ákvörðun að
fylgjast vel með ástandinu og fylla
að með gi-jóti þar sem þurfti.
Síðan kom í ljós að það gróf frá
stöplunum og byrjaði gröfturinn að
sunnanverðu og færðist norðureftir.
Keyrt var jafnóðum grjóti í þá stöpla
sem gróf frá og er nú langt komið
aö keyra þann grjótþröskuld í brúna
sem upphaflegar hugmyndir gerðu
ráö fyrir að þyrfti. Þetta hefur verið
skoðað í neðansjávarmyndavél og
virðist þröskuldurinn halda í stórum
dráttum þó gera þurfi smávægilegar
lagfæringar á honum.
Flögnun steypu af stöplunum var
Stöpull á Borgarfjarðarbrúnni sem
farinn er að láta á sjá vegna steypu-
skemmda. DV-myndir Olgeir Helgi
ekki fyrirséð. Rannsóknir hafa farið
fram á hvernig á því vandamáli
stendur og er væntanleg skýrsla um
máliö í lok mánaðarins. I grófum
dráttum virðist niðurstaðan sú að
þetta séu frostskemmdir og klaka-
burður hjálpi til að rífa steypuna af.
Birgir Guðmundsson, umdæmis-
verkfræðingur Vegagerðarinnar í
Borgarnesi, sagði í samtali við DV
aö þó flögnunin væri ekki nema ein-
hveijir millímetrar og að hámarki
sentímetri á ári þá gerðist það smátt
og smátt að stöplarnir þynntust og á
endanum næði þynningin inn í járn
og járnið ryðgaði. Skemmdimar eru
á því bili sem gætir flóðs og fjöru,
um tveir metrar á hverjum stöpli.
Ekki er fyllilega ljóst hvað veldur
skemmdunum en ákveðnar hug-
myndir eru um það. í steypuna er
blandað svokölluðu loftblendi til þess
að fá loftbólur í hana, þannig að þeg-
ar raki er í steypunni fái vatnið pláss
í loftbólunum til að þenjast út í frosti.
Þessar loftbólur, í ysta lagi steypunn-
ar, era hins vegar fullar af einhverju
seti þannig að vatnið í steypunni
kemst ekki inn í þær og sprengir þar
af leiðandi út frá sér í frosti.
Þetta vandamál er viðvarandi í öll-
um brúum sem standa í sjávarfóllum
við landið, en sýnu mest í brúum í
Borgarfirði, Borgarfjarðarbrúnni og
Brákarsundsbrúnni í Borgarnesi,
sem er reyndar álitin ónýt.
Verið er að skoða hvað það er sem
sest að í bólunum og í framhaldi af
því verður leitað lausna á því hvern-
ig hægt verður að koma í veg fyrir
að þetta gerist áfram.
Seyðisfjörður:
Hátíð á aldaraf mæli
Jóhann Jóhaimsson, DV, Seyðisfiröi:
Undanfari afmæhshátíðarhalda
vegna 100 ára afmælis Seyðisfjarðar
1. janúar 1995 var sá að 30. desember
voru tendruð ljós á myndarlegu
ljósaborði, sem sett var upp undir
hlíðum Bjólfsins, ofan við bæinn. Þar
Ijómaði í sólarhring ártalið 1994, sem
breyttist í 1995 kl. 24 á gamlárskvöld
og þá bættist við „100 ARA“ til heið-
urs hinu aldargamla afmæhsbami.
Á gamlárskvöld var vegleg brenna
og fjölmennti fólk í kyrru en frost-
köldu vetrarveðri. Eftir miðnætti
dunaði dans í Herðubreið við leik
hljómsveitarinnar „Austurland að
Glettingi". Þar var mikið fjölmenni
fólks á öllum aldri - ánægja og gleði
ríkjandi við hæfi á hátíðarstundum.
Á nýársdag var gengið til kirkju.
Þar flutti Þorvaldur bæjarstjóri
ávarp í tilefni hátiðarinnar. Séra
Kristján messaði með aðstoð kirkju-
kórs og Barnakórs Seyðisfjarðar.
Útvarp Seyðisfjarðar var með
beina útsendingu úr kirkjunni og
hélt áfram útsendingu eftir þaö í 3
tíma á margs konar fjölbreyttu seyðf-
Þorvaldur bæjarstjóri Jóhannsson
flutti afmælisávarp fyrir guðþjónustu
á nýársdag. DV-mynd Jóhann
irsku efni frá síðustu 3 áratugum,
hlustendum til óblandinnar ánægju
enda ylja góðar minningar ávaht.
Björgunarsveitin ísólfur hafði síð-
an glæsilega flugeldasýningu um
kvöldið og lauk þar með fyrsta degi
ársins og hátíðarinnar.
Borgarráð:
Nef nd vinni að ferlimálum
Borgarráð hefur samþykkt að
kjósa nefnd til að vinna að ferhmál-
um fatlaðra. Nefndin verður skipuð
fulltrúum frá Borgarskipulagi, emb-
ætti borgarverkfræðings, bygginga-
fuhtrúa og Sjálfsbjörg.
Nefndin á að hafa hhðsjón af tillög-
um um úrbætur á aðgengi fatlaðra
sem unnar hafa verið af Sjálfsbjörg
í samvinnu við starfsmenn gatna-
málastjórans í Reykjavík.
Pitsa varð þjóf um að falli
Greiðslukorti var stohð af manni
í miðbænum sl. fimmtudagskvöld og
aðfaranótt fóstudags var þjófnaður-
inn kærður til lögreglu. Þjófnaður-
inn var einnig kærður til greiðslu-
kortafyrirtækisins. Um nóttina var
svo hringt á pitsustað og pitsa pönt-
uð. Kaupandinn gaf upp númer
greiðslukorts, sem hann hugðist nota
til að borga pitsuna með, og kom þá
í ljós að kortið var það sem stohö
hafði verið um kvöldið en kortið var
á vákortalista.
Pitsasendih fór á staðinn með pitsuna
og kom höndum yfir kortið en tveir
menn, sem grunaðir era um að hafa
pantað pitsuna, voru handteknir og
gistu þeir fangageymslur um nóttina.
Horfóu tilframtíðar
Hvað endast litmyndimar þínar lengi? Það fer eftir því hvaða ljósmyndapappír er notaður.
Myndir á lélegan pappír geta glatað gæðum á örfáum árum.
Samkvæmt rannsóknum óháðra vísindamanna m.a. við Tækniháskólann í Rochester í
Bandaríkjunum og upplýsingum í bókinni „The Permanence and Care of Color
Photographs“ eftir Henry Wilhelm, þá endist FUJICOLOR ljósmyndapappír,
FJÓRUM SINNUM LENGUR, en sá næstbesti.
Myndir á FUJICOLOR ljósmyndapappír halda fullum litgæðum með réttri geymslu
íyfirlOOár.
Tryggðu raunveruleg gæði og endingu myndanna þinna og láttu framkalla myndimar þínar
hjá þessum framköllunarstofum, sem nota aðeins FUJICOLOR
hágæða ljósmyndapappír:
Reykjavík:
Mosfellsbær:
Borgames:
Sauðárkrókur:
Siglufjörður:
Egilsstaðir:
Höfn í Homafirði:
Vestmannaeyjar:
Selfoss:
Garðabær:
Ljósmyndavörur hf., Skipholti 31
Úlfarsfell, Hagamel 67
Express litmyndir, Suðurlandsbraut 2
Regnbogaframköllun, Síðumúla 34
Bókabúðin Ásfell, Háholti 14
Framköllunarþjónustan, Borgarbraut 11
Ljósmyndaþjónusta Stefáns Pedersen, Aðalgötu
Nýja Bíó, Áðalgötu 30
Myndsmiðjan, Dynskógum 4
Ljósmyndastofa Jóhönnu, Hafnarbraut 25
Fótó ljósmyndaþjónustan, Bárustíg 8
Ljósmyndastofa Suðurlands, Austurvegi 44
Hraðframköllun Garðabæjar, Garðatorgi 1
FUJICOLOR
Langbestu myndgœðin nœstu 100 ár.