Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Blaðsíða 32
44
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Stefán Guömundsson.
Sæti á lista
erekki
fasteign
„... Sæti á framboðslistanum
er engin fasteign sem einhver á.-
Prófkjör gengur út á það að menn
gefa kost á sér í sæti en síðan er
það fólksins að velja...,“ segir
Stefán Guðmundsson í DV.
Formaðurinn var í 2. sæti
...Ég er hins vegar ekkert að
hóta því að ég geti ekki tekið 2.
sætið. Annað sætið er öruggt
þingsæti ef menn fara ekki að
haga sér eins og hálfvitar. Og ég
bendi á að Ólafur heitinn Jóhann-
esson taldi sig fullsæmdan af því
sæti. Og var formaður flokksins
í því sæti,“ segir Páll Pétursson í
DV.
Ummæli
Mönnum treyst en síðar
ritskoðaðir
„ ... Ef mönnum er treyst til
ákveðinna verkefna þá er þeim
væntanlega treyst. Það er ekki
boðlegt að ritskoða síðan efnið
eða hafa fingurna í því eftir á.
Þetta viögengst eingöngu í ein-
ræðisríkjum," sagði Ásta Ragn-
heiður Jóhannsdóttir, útvarps-
ráðsfulltrúi í DV.
Vel séður í kvikmyndum
„Menntaður, menntun? Þetta er
nú bara eins og með rithöfund-
ana, þeir þurfa að vera vel lesnir,
ég er vel séður," segir Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndgerðar-
maður í DV.
Heilaga Ingibjörg
og Árni litli
„Hinni heilögu Ingibjörgu Sól-
rúnu hefur tekist að valta yflr
Árna htla Sigfússon. Hann hefur
leyft henni að komast nánast óá-
reittri upp meö skattahækkan-
ir... ,“skrifar Þorsteinn Arnalds
ÍDV.
Táknfræði
og tákn í
myndlist
Fyrirlestur dr. Gunnars Krist-
jánssonar um táknfraeði og tákn
í myndhst verður í Hafnarborg í
kvöld kl. 20.00. Að fyrirlestrinum
loknum verða samræður um við-
Fundir
fangsefnið í kaffistofunni fram
eftirkvöldi. Þettaerannaraffjór-
um fyrirlestrum Gunnars um
myndlist í trúar- og trúarheim-
spekilegu ljósi,
ITC-deildin Eik
ITC-deildin Eik heldur fund í
kvöld kl. 20.30 í Fógetanum, Aðal-
stræti 10. Allir velkomnir. Uppl.
gefur Svandís í síma 44641.
Stinningskaldi norðanlands
í dag verður norðaustankaldi sunn-
ahlands og gert er ráð fyrir að það
birti til þegar líður á daginn. Á norð-
Veðrið í dag
anverðu landinu verður kaldi fram-
an af degi og síðar stinningskaldi úr
norðri með éljagangi. Gert er ráð
fyrir stormi á suðausturdjúpi. Víðast
hvar á landinu verður 0 til 6 gráða
frost. Á höfuðborgarsvæðinu verður
suðaustan- og austangola eða kaldi
og dálítil snjómugga framan af degi.
Þegar hður á daginn léttir til með
norðaustankalda og frosti.
Sólarlag í Reykjavík: 16.02
Sólarupprás á morgun: 11.06
Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.25
Árdegisflóð á morgun: 01.06
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri snjók. á síö. klst. -2
Akurnes úrk.í grennd -3
Bergstaðir úrk. í grennd -3
Bolungarvik snjóél -2
Egilsstaðir skýjað -2
Grímsey skýjað -3
Keíla víkurílugvöUur úrk. í grennd 2
Kirkjubæjarklaustur snjóélásíð. klst. -4
Raufarböfn snjóél -3
Reykjavík úrk. í grennd 2
Stórhöfði snjóélásíð. klst. 1
Bergen skýjað 5
Helsinki alskýjaö 1
Kaupmannahöfn þokumóða -2
Stokkhólmur snjókoma -1
Þórshöfn rigning 3
Amsterdam súld 1
Berlín þokumóða -7
Feneyjar þokumóða 4
Frankfurt súld -5
Glasgow hálfskýjað 6
Hamborg mistur -4
London rigning 11
LosAngeles rigning 14
Luxemborg þokumóða -4
Sigmar Gunnarsson, hlaupari og pípari:
Olgeir H. Ragnarsson, DV, Borgarbyggð:
Sigmar Gunnarsson hlaupari
vann gamlárshlaup ÍR sem hlaupið
var á gamlársdag. Það er 9,6 kíló-
metrar, ákveöinn hringur sem
hlaupinn hefur veriö mörg undan-
farin ár. Var þetta í þriöja skiptið
sem Sigmar tók þátt í hlaupinu og
Maöur dagsins
bætti hann árangur sinn um rúma
mínútu frá því hann hljóp það síð-
ast í hittifyrra. Hann sagði þó að
það væri erfltt að bera saman tím-
ann ár frá ári. „Síðast var færið
leiðinlegt, hálka og nýfallinn snjór,
en mun betra núna.“
Sigmar er nýorðinn 29 ára og
hefur verið einn fremsti hlaupari
landsins síðan árið 1992 og vann
öll hlaup sem hann stillti upp í á
síðasta ári nema þtjú, bæði á götu
og braut. „Ég hleyp frá flmmtán
hundruð metrum og upp í tíu kíló-
Sigmar Gunnarsson.
metra hlaup. Það hefur ekki alveg
lukkast með hálfmaraþonið enn
sem komið er.“
Sigmar býr ásamt konu og tveim-
ur börnum í Rauðanesi í Mýrasýslu
og eiga þau hjón von á þriðja barn-
inu um Jónsmessuna. Hann starfar
sjálfstætt sem pfpulagningamaður
og er um þessar mundir að vinna
við pípulagnir í nýrri kirkju sem
er að rísa í Reykhofti.
Sigmar hefur fleiri áhugamál en
hfaupið. Hann hefur gaman af ölfu
mótorsporti og skotveiði en hefur
fítið getað sinnt þvi síðustu árin þar
sem hlaupið tekur nánast allan
hans frítima. Hann byrjaði að æfa
haustíð 1987 og segir að gegnum-
brotið hafi komið 1992 og þá náði
hann sínum besta árangri á braut.
„Það fara svona frá einum og hálf-
um og upp í þrír tímar, fimm til sex
daga vikunnar, í æfingar og maður
hleypur tólf til átján kílómetra. Ég
var í Svíþjóð i þijú ár og þá var
æft sex og sjö sinnum í viku.“
Hvað er svo fram undan hjá
Sigmnari? „Stjörnuhfaup FH og
fleiri götuhlaup en svo stefhi ég að
því að fara á sænska meistaramótið
og danska meistaramótið innan-
húss og reyna að keyra aðeins upp
hraða og ná betri árangri."
Myndgátan
Enginn verður óbarinn biskup
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Lög úr söng-
leikjum
Listakfúbburinn hefur nú starf
sitt á nýju ári í Þjóðleikhúskjall-
aranum í kvöld en þá munu þrjár
ungar og upprennandi söngkon-
ur flytja gestum fög úr söngleikj-
Tónleikar
um við pianóundirleik. Söngkon-
urnar eru Ágústa S. Ágústsdóttir,
Harpa Harðardóttir og Ingveldur
Ýr Jónsdóttir. Píanóleikari er
Kristinn Arnar Kristinsson. Árni
E. Blandon ijallar um sögufegan
bakgrunn laganna með aðalá-
herslu á Leonard Bemstein, höf-
und tónlistarinnar í West Side
Story sem frumsýndur verður í
Þjóðleikhúsinu í febrúar. Annað
parið af tveimur, sem koma til
með að leika Maríu og Tony syng-
ur lög úr verkinu við undirleik
Jóhanns G. Jóhannssonar hljóm-
sveitarstjóra. Dagskráin hefst kl.
20.30.
Skák
Þessi staða er frá alþjóðlegu móti í Isra-
el sem fram fór í lok ársins. Alþjóðlegi
meistarinn Liss, frá ísrael, hafði svart og
átti leik gegn landa sínum Sutovskij.
Svartur hefur fómað peði til þess að fá
þessa stöðu fram. Hvað hafði hann í
Eftir 34. - Dxe3! 35. fxe3 Bg3! gafst
hvitur upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Nú er lokið 9 umferðum í Reykjavíkur-
mótinu í sveitakeppni og baráttan hörð
um efstu sætin. í Á-riðlinum er sveit S.
Ármanns Magnússonar efst en þar á eft-
ir koma sveitimar Kátir piltar, Metró og
VÍB. í B-riðlinum leiðir sveit Landsbréfa
en á hæla henni koma sveitir Roche,
Tryggingamiðstöðvarinnar og Hjól-
barðahallarinnar. Fjórar efstu sveitimar
í hvorum riðh komast áfram í útsláttar-
keppni. Eftirfarandi spil kom fyrir í 6.
umferð í leik Roche og Málningar hf.
Sagnir gengu þannig á öðra borðinu:
♦ ÁG84
♦ Á9
♦ 83
+ D8762
♦ K9652
f 73
♦ D965
+ G4
♦ D1073
V G85
♦ ÁK1042
+ 9
V KD10642
♦ G7
Norður Austur Suður Vestur
14 Pass 1* 4V
44 Dobl p/h
Vestur ákvað að hefja vömina á því að
spila út laufásnum og eftir það áttu AV
sér ekki viðreisnar von. í öðrum slag
spilaði vestur hjartakóngum, sagnhafi
drap á ás, tók ÁK í tígli, trompaði tígul,
trompaði lauf og trompaði tígul. Næst
kom lítið lauf úr blindum, austur henti
hjarta, sagnhafi trompaði, spilaði tígul-
tíunni og henti hjarta í blindum. Austur
var altrompa, trompaði lágt og spilaði
spaða en sagnhafi stakk upp drottningu,
trompaði hjarta með spaðaásnum og
tryggði sér 10. slaginn með því að spila
fimmta laufmu. Austur gat ekki komið í
veg fyrir að sagnhafi fengi slag á spaða-
tiuna. Á hinu borðinu vom spilaðir 4
spaðar ódoblaðir, einn niður.
ísak Örn Sigurðsson