Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995 Fréttir DV Skólastjóri Austurbæjarskóla sendur 1 veikindaleyfi af ráðherra: Múgsefjun eða brot í starfi? - óánægja með skólastjórann hefur farið stigvaxandi síðustu ár Verúleg óánægja er meðal kennara og foreldra bama í Austurbæjar- skóla með stjórnunarhætti í skólan- um. Gagnrýni á Alfreð Eyjólfsson skólastjóra hefur farið stigvaxandi síðustu misseri en upp úr sauð snemma í haust vegna húsnæðis- mála svokallaðs skólavers og svo skömmu síðar þegar skólastjórinn rak starfskonu í skólaveri fyrir að kvarta viö formann Skólamálaráðs. í framhaldi af þessu ákváðu foreldr- ar í samráði við kennara að ganga fram fyrir skjöldu og krefjast stjórn- sýsluúttektar á skólanum. Búist er við lokaskýrslu frá fræðslustjóran- um í Reykjavík innan tíðar og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið. Svo virðist sem óánægjan í Austur- bæjarskóla hafi kraumað lengi þó að sæmilegur starfsfriður hafi haldist í skólanum fram á haustdaga. Upp úr sauð í haust þegar foreldrar sendu frá sér kvörtun yfir því að ekki heföi verið gengið frá sómasamlegu hús- næði fyrir heilsdagsskólann og börn- in látin hírast í lélegu húsnæði, með- al annars í risi skólans. í desember kvartaöi starfsmaður heilsdagsskól- ans við formann Skólamálaráðs yfir þvi að forstööukona heiisdagsskól- ans, eiginkona skólastjórans, væri sjaldan í vinnu og starfsmönnum gert að gefa rangar skýringar á fjar- verunni. Skólastjórinn sagði starfsmannin- um tafarlaust upp störfum. Vísar ábyrgð yfir á aðra Kennarar hafa ekki gagnrýnt skólastjóra Austurbæjarskóla opin- berlega til að halda starfsfrið í skól- anum. Samkvæmt heimildum DV eru þó dæmi þess að börn hafi verið lögð í einelti vegna gagnrýni foreldra þeirra á skólastarfiö. í samráði við kennara hafa foreldrar nú gengið fram fyrir skjöldu og óskað eftir stjórnsýsluúttekt. Þær raddir heyr- ast að skólastjórinn sé vanhæfur til aö stjóma skólanum, það birtist með- al annars í því hversu mjög allar framkvæmdir dragist á langinn, skólastjórinn sé sjaldan við og van- ráðherra hefur veitt Alfreð veikinda- leyfi meðan hann gengst undir augn- aðgerð á spítala og farið er yfír mál- ið. Óvíst er hvort og hvenær hann kemur aftur til starfa í skólanum. Ráðherra segist hafa fullan hug á því að taka á þessu máli og segist gera það þegar lokaskýrsla frá fræðslu- stjóranum í Reykjavík hefur borist. Ekki séu nein timamörk á skýrslunni þó að hún hljóti aö berast innan nokkurra daga. „Ég get tekið undir mörg ágrein- ingsatriði sem hafa komið fram. Ég vissi ekki að skólastjórinn hefði ekki mætt til vinnu um miðjan ágúst held- ur rétt áður en skólinn átti að hefjast þó að skólastjórar eigi að láta mig vita ef þeir eru ekki að störfum á þeim tíma sem þeir eiga að vera. Þá kom stúlka til mín í byrjun janúar til að bera fram kvörtun vegna æru- meiðinga og trúnaðarbrots skóla- stjórans í hennar garö á fundi með kennurum í desember. Ég er ekki þeirrar skoðunar að ég hafi brotið lög með því að senda skólastjórann í leyfi,“ segir Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík. Margir foreldrar eru þeirrar skoð- unar að Austurbæjarskólamáliö sé komið út í pólitík. Menntamálaráð- herra Sjálfstæðisflokksins hafi veitt ílokksbróður sínum í skólastjóra- stöðunni ákveðna uppreisn æru um leið, veitt fræðslustjóranum áminn- ingu og keypt sér tíma til að taka á .málinu fram yfir kosningar í vor. Samkvæmt heimildum DV er Áslaug fræðslustjóri flokksbundin fram- sóknarmaöur. Alfreð Eyjólfsson hefur verið skólastjóri í Austurbæjarskóla í 15 ár og kennt við skólann í 25 ár. Sam- anlagður aldur hans og starfsaldur eru 101 ár þannig að hann hefur möguleika á því aö fara á eftirlaun ef hann svo kýs. Ekki er vitað hvort þessi möguleiki hefur verið ræddur í ráðuneytinu en ljóst er að skóla- stjórinn hefur ekki verið áijáður að fara í veikindaleyfi þegar það mál hefur borið á góma. Olafur G. Einarsson menntamálaráðherra hefur veitt Alfreð Eyjólfssyni, skólastjóra i Austurbæjarskóla, veikinda- leyfi og óskað eftir lokaskýrslu um stjórnsýsluúttekt Áslaugar Brynjólfsdóttur, fræðslustjóra í Reykjavík. Búist er við að skýrslan liggi fyrir innan nokkurra daga og ætti lokaákvörðun ráðherra þá að koma í Ijós. ræki skólastarfið. Stundatöflur hafi ekki verið tilbúnar þegar skóli hófst í haust og skólabækur ekki borist fyrr en nokkrir dagar voru hðnir. Skólastjórinn hefur verið gagn- rýndur fyrir aö hafa marga af sínum nánustu í vinnu í skólanum. Sam- kvæmt heimildum DV hafa dóttir hans og sonur kennt í skólanum og eiginkona hans var forstöðukona skólavers. Þess eru dæmi að foreldr- ar hafi haft böm í skólanum í mörg ár án þess að sjá skólastjórann og telja sumir foreldrar að yfirkennar- inn hafi oft bjargað skólastarfinu fyr- ir horn. Tregurífrí „Ég get ekki séð að ég hafi gerst brotlegur í starfi. Ég hef farið yfir stöðuna í huganum og rætt við að- stoðarskólastjórann. Við höfum Fréttaljós reynt að leysa þau vandamál sem upp hafa komið á sem bestan hátt. Ljóst er að foreldrar koma sífellt með meiri gagnrýni á skólastarfið og ein- staka kennara með kröfu um að þeir séu látnir víkja. Þegar um múgsefjun er að ræða og fólk kemur ekki með gagnrýni undir nafni er erfitt að taka á hlutunum því að það þarf ekki nema einn gikk í hverja veiðistöð. Ég hef alltaf lagt á það höfuðáherslu að hagur barnsins væri ofar öllu,“ segir Alfreð Eyjólfsson skólastjóri. „Margt af því sem hefur verið gagn- rýnt hefur veriö þess eðlis að aðstæð- ur hafa verið óviðráðanlegar. Sjálf- sagt hefur verið eitthvað til í þessari gagnrýni líka án þess að ég vilji til- taka einstök atriði. Það getur verið erfitt fyrir mig að meta aöstæður því að máhð er mér of skylt,“ segir Guð- mundur Sighvatsson, aðstoðarskóla- stjóri í Austurbæjarskóla. Lokaskýrsla frá fræðslustjóra Málefni skólastjórans í Austurbæj- arskóla hafa verið til umfjöllunar hjá fræðslustjóra og menntamálaráð- herra að undanfórnu. Menntamála- FJOLSK\ HÓPAFSí Fjölgun á Suðumesjum: Karlmenn í meiri- hluta í öllum sveitarfélögunum Ægir Már Kárason, DV, Sudumesjum; íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 108 milli ára, voru 15.656 hinn 1. des- ember 1994 en 15.548 á sama tíma 1993. Þetta eru bráðabirgðatölur. Mesti mannfjöldinn er í nafnlausa sveitarfélaginu, Keflavík, Njarðvík, Höfnum, eða 10.347 sem er fjölgun um 67 frá 1993. Þá voru þeir 10.280. í Grindavík eru 2144 íbúar og þar hefur fækkað um 12 milli ára. í Sand- gerði voru 1358 íbúar 1. des. 1994 og fjölgaði þar um 41. í Gerðahreppi voru 1120 íbúar. Fjölgun um 10. í Vatnsleysustrandarhreppi voru íbú- ar 687 - fækkaði um tvo. Karlmenn voru fleiri í öllum sveit- arfélögunum en konur. í nafnlausa sveitarfélaginu voru 5300 karlmenn á móti 5047 konum. í Sandgerði 689 á móti 669, í Gerðahreppi 572 á móti 542 og í Vatnsleysustrandarhreppi 371 karlmaður á móti 316 konum. Ísaíjörður: Framhaldsskólanum gef in dísilrafstöð Siguijón J. Sigurösson, DV, fsafiröi: Orkubú Vestfjarða færði Fram- haldsskóla Vestfjarða dísilrafstöö að gjöf 3. janúar. Rafstöðin veröur í nýju verkmenntaskólahúsi sem tek- ið var i notkun 4. jánúar og verður notuð til kennslu í vélstjórnar- og rafiðnaðargreinum. Vélin, árgerð 1959, var fyrst ljósavél togarans Vík- ings en 1962 keypti Rarik hana. Kristján Pálsson, stöðvarstjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, afhenti skólan- um rafstöðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.