Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1995, Side 28
40
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Hringiðan
Sigriður Beinteinsdóttir knúsar af-
mælisbarnið, Gunnar Þórðarson,
eftir að hafa flutt eitt af lögum hans,
ásamt hljómsveit sinni, Stjórninni, á
fimmtugsafmæli hans á Hótel ís-
landi sl. laugardag.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
varði doktorsritgerð sína í Hátíðar-
sal Háskóla íslands á laugardaginn.
Mikill fjöldi fólks var saman kominn í hátíðarsal Háskóla íslands á laugardaginn var. Þar varði Árni Björnsson
cand. mag. rit sitt, Sögu daganna. Meðal gesta var rektor Háskóla íslands, Sveinbjörn Björnsson, og stjórnaði
dr. Vésteinn Ólason prófessor athöfninni.
Það var mikið um hamingjuóskir á afmælishátíð Gunnars Þórðarsonar á
Hótel íslandi á laugardag. Björgvin Halldórsson og Egill Ólafsson voru í
banastuði þegar þeir sungu einn af smellum Gunnars og óskuðu honum
svo til hamingju með tilheyrandi faðmlögum.
Á laugardag opnaði Einar Garibaldi sýningu á verkum sínum í Gerðarsafni
i Kópavogi. Hér má sjá listamanninn ræða við Björgvin Ólafsson og
Sigrúnu Kristjánsdóttur.
Heilir sturtuklefar með botni,
blöndunartæki og sturtubúnaði,
horni fram eða heilli hurð og
vatnslás.
Verð kr. 28.800
Sturtuhorn, 70x90 cm
Verð frá kr. 7.800
Sturtuhurðir, 70x90 cm.
Verð frá kr. 8.600
Baðkarshlífar
Verð frá kr. 7.600
Stakir sturtubotnar,
70x70 og 80x80 cm
Verð frá kr. 3.400 ^
Gunnar Þórðarson hélt upp á fimmtugsafmælið sitt á Hótel íslandi á laugar-
dagskvöldið með pompi og prakt. Það má segja að blómi islenskra tónlist-
armanna hafi verið á staðnum ásamt ýmsum fyrirmönnum þjóðarinnar.
Fjölskylda, ættingjar og vinir hylla afmælisbarnið.
Sýning á verkum Jóhannesar Kjarvals var opnuð á laugardag á Kjarvals-
stöðum. Sýnir hún fjölbreytileika og frumleika verka hans en þar eru teikn-
ingar, oliuverk og tússmyndir. Eiríkur Smith listmálari og sonarsonur Kjarv-
als, Jóhannes Kjarval, voru meðal gesta á opnuninni.
Gœði ágóðu
vetðí- _ JD'
Fæstínœstu JLf Hetur | f
versiun Aetursson hi
Sturtuklefar
/ Y
\ &
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. kl. 9-18
laugard. 10-14
Leirlist á Islandi var yfirskrift sýningarinnar sem opnuð var á Kjarvalsstöð-
um á laugardaginn. Hún spannar sögu leirlistar á íslandi sem hófst um
1930. Feðgunum Bárði Erni og Gunnari Erni fannst sýningin tilkomumikil
en þeir voru mættir á opnunina með bros á vör.
Tryggvi Guðmundsson, t.v., og Gunnlaugur Ólafsson virtu fyrir sér leirlistar-
þróun íslands á viðamikilli sýningu á Kjarvalsstöðum sl. laugardag.