Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
Neytendur____________________________________
Jón Múli Ámason borðar fyrir 67 krónur á dag:
Breytti um mataræði og
léttist um tugi kílóa
- borðaði kartöflur og grænar baunir á jólunum
Sértilboð og afsláttur:
Þínverslun
Austurver, Breiðholtskjör,
Garðakaup, Melabúðin, Horniö,
Selfossi, Sunnukjör, 10-10
Hraunbæ, Suðurveri og Norður-
brún og Plúsmarkaöir í Grafar-
vogi, Grímsbæ og Straumnesi.
Tilboðin gílda til miövikudags.
Þar fást pökkuð svið á 198 kr. kg,
Freyjustaurar, 2 stk., á 89 kr.,
Luxus ananas, 'A d., á 59 kr.,
Luxus niðursoðnir tómatar á 49
kr. dósin, Goða beinkonbúðingur
á 339 kr. kg, Ömmupizzur, 600 g,
með pepperoni, skinku eða
nautahakki á 376 kr. stk.
Höfn Þrí-
hyrningur
Tilboð frá fóstudegi til sunnu-
dags: Dinner’s mint m/kaffinu á
198 kr. og Korni flatbrauð á 78
kr. Tilboð frá föstudegi til
fimmtudags: Frón mjólkurkex á
99 kr., Frón súkkul. Marie á 74
kr., þýsk heílkorna rúgbrauð á
76 kr„ þýsk bóndabrauð á 108
kr„ jógúrtbrauð á 97 kr. og Höfn
rjómalöguð lifrarkæfa á 630 kr.
kg. Aðeins á Selfossi: Super app-
elsínusafi, 1 1, á 49 kr. og Super
þvottaefni, 3 kg, á 156 kr.
Tilboðin gilda til miðvikudags.
Þar fæst Federichi pasta, 3 teg„
500 g, á 39 kr„ Búrfells svína-
skinka, 2x15 sn„ á 699 kr. kg,
kúrbítur og eggaldin á 299 kr. kg,
blómkál á 139 kr. kg, rjómaostur,
400 g, á 194 kr„ léttostur, 2 teg., á
129 kr„ Ali beikon á 799 kr. kg,
Myllu hvitlauksbrauö, fin/gróf, á
99 kr. og Blátoppur sódavatn, 500
ml, á 59 kr.
_cyn)\GAu >rar
Steiktarhrognabrækur.
Hráefni:
2 stk. meðalstórar
hrognabrækur
fiskikrydd Pottagaldra
ólífuolia
pipar eftir smekk
vatn og safi úr sítrónu
1 tsk. Oscar fiskikraftur
/2—1 ds. sýrður rjómi
sætt sinnep
Hitið olíuna á pönnu. Veltið
hrognunum upp úr hveiti og
steikið hægt báðum megin.
Kryddið og piprið. Þá er vatni
bætt á og sítrónusafa og þau lát-
in sjóða hægt í 10 mín.
Fjarlægið hrognin af pönnunni.
Bætið fiskikraftinum út í og svo
sýrða rjómanum til sósugerðar.
Sósan er síðan bragðbætt með
t.d. sætu sinnepi og örlitlu meira
af fiskikryddi Pottagaldra.
Jón Múli heldur hér á dós af grænum baunum sem verða í matinn hjó honum í dag og á morgun. Hann breytti
um mataræði fyrir tveimur árum og borðar nú hvorki kjöt, fisk né fugl. DV-mynd GVA
„Ég lýsti því yfir fyrir tveimur
árum að ég ætlaði aldrei framar að
borða kjöt, fisk eða fugl og hef staðið
við það síðan. Eftir 6-8 mánuði hafði
ég lést um þó nokkur kílógrömm án
fyrirhafnar og hef haldið minni kjör-
þynd síðan. Ætli matarkostnaður
minn sé ekki kominn niður í 67 krón-
ur á dag,“ sagði Jón Múh Árnason,
fyrrum útvarpsmaður, í samtali við
blaðamann DV.
Jón sagðist hafa velt þessu fyrir sér
í fjölda ára og sífellt orðið sannfærð-
ari um að það hentaði fólki betur að
hfa á grænmeti og jurtum en spen-
dýrum og fuglum. „Svo sannfærðist
ég endanlega þegar ég sá sjónvarps-
þátt um „iðnvæðingu hænsnfugla".
Þar var því lýst í smáatriðum hvern-
ig dælt er í fuglana fóðri eftir að þeir
hafa misst vitið og þeim síðan gefin
lyf svo þeir verði ekki veikir í kjölfar-
ið. Þá ofbrauð mér og ákvað að taka
ekki þátt í þessu lengur," sagði Jón
Múli.
Hann segist hafa úr nægu hráefni
að velja þótt hann sleppi þessum vin-
sælu dýrategundum. „Ég horða mik-
ið af kartöflum, grænum baunum,
káli, lauk, brauði, rúsínum, ferskj-
um, döðlum, vinberjum, hnetum,
ávöxtum, sojabaunum og grjónum,
svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Jón
Múli. Hann segist ahtafvakna klukk-
an hálffimm á morgnana og fá sér
AB-mjólk með sveskjum ásamt 1
matskeið af hunangi, b- og c-vítamín,
te og hrökkbrauð með osti. Svo er
algengur kvöldmatur þessa dagana
soðnar kartöflur með grænum baun-
um. Jón Múli segist vera eini maður-
inn á heimilinu sem fylgi þessu mat-
aræði og hann gerir aldrei minnstu
tilraun til að snúa ætt sinni til „réttr-
ar trúar“.
„Á aðfangadagskvöld sat ég t.d.
með fjölskyldunni, hátt í 20 manns,
við matarborð þar sem allir kepptust
við aö rífa í sig kjöt og sósur. Þá sat
ég og borðaði mínar soðnu kartöflur
og grænu baunir og fannst rosalega
gott að hafa Paul Newman dressingu
út á. Að vísu mundi ég hvað hangi-
kjötið gat verið djöfulli gott en það
freistaði mín ekki,“ sagði Jón.
Hann segist alsæll með þetta nýja
mataræði og aldrei hafa liðið betur.
Inntur eftir því hvort hann hefði vilj-
að taka þessa ákvörðun fyrr svaraði
hann neitandi. „Ég held ég hafi tekið
hana á nákvæmlega réttum tíma, á
vorjafndægrum laugardaginn 20.
mars 1993.“
60%
Hlutfall þeirra sem stunda líkamsrækt reglulega
55 55
Karlar ■ Konur
15-19 ára 20-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70-89 ára
Þeim fjölgar sem stunda líkamsrækt:
Konur eru duglegri en karlar
Konur eru duglegri við að stunda
líkamsrækt en karlar, íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu stunda frekar lík-
amsrækt en fólk á landsbyggöinni
og þeir sem hafa langa skólagöngu
að baki og hærri tekjur eru líklegri
til að stunda líkamsrækt en aðrir.
Þetta eru niðurstöður skoðanakönn-
unar sem Hagvangur gerði fyrir
tímaritið Heilbrigðismál í september.
í heild sögðust 41% aðspurðra
stunda líkamsrækt reglulega en fyrir
fimm árum var hlutfalhð 32%. At-
hygh vekur að á aldrinum 40-49 ára
eru konur áberandi duglegri en karl-
ar við að stunda líkamsrækt, eöa 55%
kvenna á móti 28% karla. Á aldrin-
um 60-69 ára snýst þetta hins vegar
við, þá stunda 38% karla reglulega
líkamsrækt en einungis 22% kvenna.
DV
Sértilboó og afsláttur:
Heilsútilboðin gilda til sunnu-
dags. Þar fæst nautagúllas á 698
kr. kg, Burger hrökkbrauð, 250
g, á 98 kr„ pastaskrúfur, 500 g, á
45 kr„ Knorr pastasósa Carbon-
ara á 98 kr„ Korni flatbrauð, 300
g, á 86 kr„ samlokubrauð hafra á
98 kr„ skyr, 500 g, á 55 kr„ lamba-
hakk á 380 kr. kg og díet Coke, 'A
1, á 48 kr. Einnig standa yfir af-
sláttardagar, herra-, kven- og
barnafatnaður með allt að 70%
afslætti.
11-11
Tilboðin gilda til miðvikudags.
Þar fæst saltkjöt, 2. fl., á 249 kr.
kg, bóndabrauð á 94 kr„ Jacobs
pítubrauð, 6 stk„ á 109 kr„ appel-
sínur á 59 kr. kg, Garpur, 11, á
85 kr„ Garpur, '/2 1, 3 pk„ á 79
kr„ Hy-Top kornfleks, 510 g, á 129
kr„ Heinz bakaðar baunir, 4x420
g, á 159 kr„ Everyday handsápa,
6 stk„ á 60 kr. og Fluor tannkrem,
2 túpur, á 142 kr.
Fjarðar-
kaup
Tilboðin gilda til föstudags. Þar
fæst reykt úrb. folaldakjöt á 558
kr. kg, London lamb á 680 kr. kg,
nauta- og lambahakk á 498 kr. kg,
appelsínur á 59 kr. kg, All hran,
375 g, á 149 kr„ Bran flakes, 500
g, á 219 kr„ Weetabix, 430 g, á 169
kr„ Fis eldhúsrúhur á 149 kr„
Garpur, 11, á 87 kr„ Uncle Ben’s
pokagrjón, 500 g, á 139 kr. og
Garpur, 3 pk„ á 77 kr.
Kjötogfiskur
Tilboðin gilda til fimmtudags.
Þar fást svínalærissneiðar á 598 -
kr. kg, hreinsuð svið á 279 kr. kg,
‘/2 kg hakk/spaghetti/sósa á 295
kr„ Vendelbo sultur, 900 g, á 188
kr„ túnfiskur í vatni á 69 kr„ tún-
fiskur í olíu á 69 kr„ heill asparg-
us í glösum, 330 g, á 165 kr. og 'A
1 Super mýkingarefni á 119 kr.
Bónus
Tilboðin gilda til fimmtudags.
Þar fást Humal fiskibollur á 299
kr. kg, KF úrvals skinka og beik-
on á 695 kr. kg, kjötfars á 239 kr.
kg, Bónus síld, 450 ml, á 135 kr„
MS maltbrauð á 49 kr„ greipaldin
á 39 kr. kg, rófur á 25 kr. kg,
Burtons súkk.bitakökur á 99 kr„
Lerum marmelaði, 2 teg„ á 169
kr„ kornílögur, 1 kg, á 197 kr„
Snickers, 8 stk„ á 209 kr„ þvott-
askrúbba m/skafti á 199 kr. og
kvennærbuxur eða toppur á 197
kr. Sérvara í Holtagörðum: hvítir
T-bolir, 3 stk„ 100% bómuh, á 599
kr„ vinnuhanskar á 147 kr„
gólfmottur á 99 kr„ Hosen hita-
sokkar herra á 149 kr„ snyrtisett,
5 stk„ á 199 kr. og appelsínu-
pressa á 79 kr.
Garðakaup
Tilboðin gilda til sunnudags.
Þar fást svínabógsneiðar á 515 kr.
kg, kindakæfa á 599 kr. kg,
Ömmupizzur, 600 g, á 376 kr„
Breton saltkex, 225 g, á 119 kr„
Yes uppþvottalögur, 500 ml, á 145
kr. og grísasulta (að dönskum
hætti) á 578 kr. kg.
10—11
Tilboðin gilda th miðvikudags.
Þar fæst Goða skinka á 798 kr.
kg, Samsölu beyglur, 4 teg„ á 99
kr„ Weetabix, 430 g, á 145 kr„ ísl.
rófur á 45 kr. kg, E1 Marino kaffi,
'A kg, á 289 kr„ Ora túnfiskur i
vatni/olíu á 68 kr„ Weetos morg-
unmatur á 178 kr„ Meistara
möndlukaka á 159 kr. og Freyju
rískubbar, 12 stk„ á 129 kr.