Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995 13 Feluleikur í Hafnarfirði Þaö er sorglegt til þess að vita að einn úr röðum okkar sjálfstæð- ismanna hefur orðið til þess að færa óstjórn fyrri ára aftur til valda í Hafnarfirði. Þaö er morgunljóst að kratar, nú með stuðningi Jó- hanns Bergþórssonar, munu leita allra ráða til að stinga undan gögn- um um fjármálaóstjórn og misferli fyrri ára. Þeir munu skírskota til þess að horfa þurfi fram á veginn og slá þannig ryki í augu bæjarbúa að ekki verði kallað eftir því hvern- ig þeir fóru fram á sínum tíma. Við bæjarbúar munum þá engan botn fá í allt sukkið í kringum Listahá- tið, né hvemig aðilum, einstakling- um sem fyrirtækjum, var hyglað á kostnað annarra. Allt verður hvít- þvegið og fortíðin ekki til! Þáttur Jóhanns Bergþórssonar Það er sárast fyrir okkur sjálf- stæðismenn að Jóhann Bergþórs- KjaUaiinn Halldór Halldórsson varaformaður Þórs, félags sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í launþegastétt „Atburðir síðustu daga, svo og yfirlýs- ingar Jóhanns, opinberlega og 1 sam- tali við hann, hafa nú fært mér heim sanninn um það að hann er óhæfur til að gegna stjórnunarstöðu í opinberu starfi.“ son skuli taka þátt í þessum ljóta leik. Það verður þvi að greina hvað veldur að fyrrum oddviti okkar í málefnum bæjarins skuli svíkjast aftan að kjósendum með þessum hætti. Þáð \dta alhr að Jóhann hef- ur staðið í orrahríð með fyrirtæki sín. Oft hefur hann átt samúð okk- ar og stuðning í þeirri baráttu, sem virtist á stundum taka á sig mynd stríðs litla mannsins gegn óarga- dýri kerfisins. En stríðið tapaðist með ómældum sársauka, ekki síst fyrir þá íjöl- mörgu einstaklinga sem nú eiga um sárt að binda eftir að glata fé og fyrirhöfn til einskis. Menn héldu auðvitað að öll spil hefðu verið uppi á borðum í þeim leik og því er enn sárara fyrir þá sem trúðu á framtíð fyrirtækja Jó- hanns Bergþórssonar að sjá að hann hefur um langt skeið verið í nánum tengslum við íjármála- óstjórn krata. Þetta var á sama tíma og hann sat sem oddviti minnihiutans í bæjarstjórn og lýsti fjálglega á fundum okkar í hverju óstjórn krata væri fólgin og tillög- um sínum til úrbóta. Það er því þegar af þessari ástæðu skiljanlegt að Jóhann velji nú þann kost að fela fortíðina og fegra sinn hlut. Þá er komið að Jóhanni og bæjar- verkfræðingsembættinu. Við vor- um fjöldamörg sem sáum í Jóhanni þann kraft og drífanda sem til þyrfti í það starf. Um menntun hans, þekkingu og reynslu var ekki deilt og á þeim tíma vissum við Jóhann Bergþórsson, bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. - Sárt að sjá að hann hefur um langt skeið verið í nánum tengslum við fjármálaóstjórn krata, segir greinarhöf. m.a. ekki betur en að sama gilti um sið- ferðisþrekið. Af samtölum við Jó- hann varð ekki heldur annað ráðið en að hann væri á þeirri skoðun að forðast bæri í hvívetna hags- munaárekstra í pólitísku starfi. Það var því aldrei spurning í min- um huga að yrði Jóhann ráðinn sem bæjarverkfræðingur í Hafnar- firði þá myndi hann segja af sér sem bæjarfulltrúi. Skortir hæfileika Atburðir síðustu daga, svo og yf- irlýsingar Jóhanns, opinberlega og í samtali við hann, hafa nú fært mér heim sanninn um það að hann er óhæfur til að gegna stjórnunar- stöðu í opinberu starfi. Það verður nefnilega líka að gera kröfur um heilbrigða dómgreind og hæfni í mannlegum samskiptum til þeirra sem gegna eiga jafn mikilvægu embætti sem bæjarverkfræðings- staðan er. Jóhann Bergþórsson hefur sýnt alþjóð með eftirminni- legum hætti að hann skoi-fir þessa hæfileika. Fyrir mér er nú ljóst að svona hlaut aö fara að lokum. Kratar uröu að komast til valda á ný til að moka yfir flórinn og njóta nú til þess fulltingis leiguþýs úr okkar röðum, því miður. Þeir ætla nú að fara í pólitískan feluleik viö bæj- arbúa. Oft var þörf, en nú er nauð- syn, að sýna fullkomna hörku í andstöðu viö nýjan meirihluta. Eft- ir megni þarf að koma upplýsing- um um óstjórn og misferli fyrri ára á framfæri við bæjarbúa og ganga aldrei undir þagnarheiti í bæjar- ráði og bæjarstjórn um þau mál- efni. Halldór Halldórsson í skjóli „þjóðarsáttar“ í lok ársins 1994 sáum við loks fyrir endann á þeirri „þjóðarsátt" sem staðiö hefur yfir í fjögur ár. Þessi sáttmáh á milU verkalýðs- hreyfingar annars vegar og at- vinnurekenda og ríkis hins vegar leit vel út á pappírum og þótti lofa góðu fyrir þjóðarbúið. Nú er ljóst að það fór eftir. Þjóðarbúinu var bjargaö og atvinnufyrirtæki standa mun betur nú en fyrir fjórum árum, þrátt fyrir mikinn samdrátt í fiskveiöum. Að minnsta kosti á heimamiðum. Úthafsveiðar hafa aukist til mikfila muna á þessum tíma. Peningar ekki pólitik „Þjóðarsáttin" var eins og nafnið bar með sér sátt á vinnumarkaði og átti að skapa svigrúm til hag- ræðingar hjá fyrirtækjum bæði al- mennum og í opinberum rekstri. hagræðingin fólst hins vegar í al- mennum samdrætti á vinnumark- aði og auknum álögum á almenn- ing frá hinu opinbera í formi alls kyns gjalda, þó aðaUega þjónustu- gjalda. Einnig hefur hið opinbera fært álögur af fyrirtækjum yfir á ein- stakUnga s.s. aðstöðugjöldin, auk þess að færa aukin verkefni tii sveitarfélaga sem kalla á hækkað útsvar. Á meðan verkalýðshreyf- ingin svaf „svefninum langa“ voru stórauknar álögur lagðar á laun- þega landsins og fjármálaráöherr- KjaUaririn Baldur J. Jósefsson starfsmaður Veðurstofu íslands ann hafði ekki undan að sannfæra fólk um að skatttekjur ríkissjóðs hefðu ekkert hækkað í bókhaldinu. í skjóli þessarar „þjóðarsáttar" urðu því hinir verst stöddu enn verr úti, en þeir sem betur mega sín notuðu tímann til að taka sér enn stærri skerf af þjóðarkökunni. Það er einfaldlega staðreynd að það eru peningar sem ráða ferðinni en ekki póUtík. Þeir menn sem stjóma ferðinni í þessu þjóðfélagi koma aldrei nálægt póUtík nema þegar þarf að láta ráðherra setja lög sem vernda peningamennina. Hver ber ábyrgðina Almennir launþegar mega sín lít- ils i þessu þjóðfélagi og eru varla meira virði en peð á taflboröi. í einni af þeim nýtísku hagfræði- kenningum sem nú ryðja sér til rúms segir að „hæfilegt atvinnu- leysi sé gott við ákveðnar aöstæð- ur“. íslenskir hagfræðingar vilja varla vera eftirbátar kollega sinna í öðrum löndum og hafa vafalaust tileinkað sér þessar kenningar. Eitt er víst, að stjórnmálamenn virðast flestir orðnir sáttir við núverandi ástand og þylja í sífellu einhverja rullu sem enginn skfiur nema hag- fræðingar. Verkalýðshreyfingin sem á að bera ábyrgð gagnvart launþegum brást jú skjótt við og fann ekkert þarfara en að boða samúðarverk- foll svo að losna mætti við sam- keppnisaðUa Flugleiða. Hvað hafa forystumenn verka- lýðsfélaga verið aö gera sl. fjögur ár? Þeir hafa allavega ekki fylgst með að þessi „þjóðarsátt" héldi, svo margoft hefur hún verið brotin. Þeir hafa ekki hugsað um hvernig ætti að endurheimta þann kaup- mátt sem við höfum misst. Það sést allavega ekki á þeim kröfum sem á að setja fram við næstu samninga. Þar eru menn að tala um fasta krónutöluhækkun á laun. Eru menn ekki enn farnir að sjá að svona hækkun skUar sér að sára- Utlu leyti til launþega. Eftir Ijög- urra ára rólegheit hjá þessum for- kólfum gætu þeir verið aðeins frumlegri í kröfugerð. Það væri þarft verk að setja for- ystumenn verkalýðsfélaga á nám- skeið þar sem þeim væri kennt að færa venjulegt heimUisbókhald svo þeir sæju með eigin augum þann vanda sem venjulegt heimih á við að etja. Mér virðist oft sem þessir menn séu álíka langt frá raunveru- leikanum og stjórnmálamennirnir. Baldur J. Jósefsson „Hvað hafa forystumenn verkalýðsfé- laga verið að gera sl. fjögur ár? Þeir hafa alla vega ekki fylgst með að þessi „þjóðarsátt“ héldi, svo margoft hefur hún verið brotin.“ Meðog Spurningakeppni framhaldsskólanna Óhæf íitúver- andiformi „Keppnin hefur færst i það horf að skólarmr hafa ekki ein- asta haft keppnisUðið heldur stóran hóþ áháng-: enda. Þetta i . i . Valdimar Gunnarsson, kostaðl hins skólamaistari Mennta- vegar of Skólans ó Akureyri. mikla ijármuni. Ég held aö það sem einnig mæhr á móti keppn- inni i núverandi mynd sé sú stað- reynd að óþarflega mikið var dregið úr skemmtiatriðum sem skólarnir lögðu sjálfir fram. Nemendum fannst að keppnin yrði með þessu einUtaðri og að sfiómandinn léti þar með meira á sér bera. Stundum kastaðist í kekki á mUU stjómanda og kepp- enda, nokkuð sem nemendur gátu iUa sætt sig við. Mér er minnisstætt þegar Stefán Jón Hafstein var með glósur um Guðna við MR-inga. Það var mjög ósmekklegt. Síðan var stjómand- inn með brandara á kostnað krakkanna sem hötðu misþykk- an skráp tU að taka þeim. Komið sem fyllti mælinn var þegar skól- unum voru send bréf frá sjón- varpinu um að keppnin ætti að fara fram í vetur. Formenn skóla- félaganna sendu þá dagskrár- deUd sjónvarpsins svarbréf. Þar var farið fram á tUteknar breyt- ingar í þriggja síðna greinargerö. Víð því kom mjög einfalt svar þar sem óbeint var fullyrt að sjón- varpinu væri alveg sama hvað keppendur væru að tuða. Þá fauk í mína menn. Síðan var Uði safn- að og menn sögðu sig úr keppni. Keppnin er þess vegna óhæf í því formi sem hún er fyrirhuguð í vetur.“ Eigum samleið meðungufólki „Spurn- ingakeppnin er dagskrár- liður sem hef- ur notið vin- sælda í mörg ár. Þama eig- um við sam- leiðmeðungu ! fólki sem viö ?*ei"NÖT1:!’?, höfum auð- vitað áhuga á son, dagskrárstjórí Inn- lendrar dagskrárgeröar Sjonvarpsíns. að gera. Þaö hefur komið i ljós að eins og mál hafa þróast lita skólafélögin svo á að þau þurfi að fara sem allra fjölmennust á keppnisstað sein auðvitað hefm' kostnað í för með sér. Við lítum svo á að það hafi verið eðlUegt fyrir okkur sem keppnishaldara að greiða fargjald og gistingu fyr- ir Uðin sjálf og Uðsstjóra. Auk þess höfum við greitt 35-70 þús- und krónur í styrk tU viðkomandi keppnisfélags vegna þátttöku þess. Við föllumst hins vegar eng- an veginn á að það eigi að falla i okkar hlut að sjá um greiðslur fyrir áhangendur liðanna - ekki frekar en þegar framhaldsskól- ai'nir keppa í íþróttum. Ég hef rætt viö annan bréfritara þátttak- enda á Noröurlandi og tel að við höfum gert út um okkar mál hvað varðar samskipti okkar um þátt- töku í næstu keppni. Ég sé ekki ástæðu tU að fjalla um það nema við viðkomandi en viö erum sara- mála um aö horfa til framtíðar- innar og stefna að þátttöku sem flestra í keppninni árið 1996.“ -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.