Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
3Z>V
99-15-00
Lesendaþjónusta
DVopin allan
sólarhringinii
Til að mæta lesendum DV og
öðrum sem vilja koma á framfæri
skoðunum sínum á einu eða öðru
í umræðu dagsins bjóðum við
þeim að hringja inn til blaösins i
síma 99 -15 - 00 og skilja eftir talað
mál eða skilaboð. Þjónusta þessi
er opin allan sólarhringinn. í
þessu númeri má heyra frekari
upplýsingar um framkvæmdina.
Mínútan kostar kr. 39,90.
- Eins og áður áskilur DV sér
rétt til að stytta aösend lesenda-
bréf og skilaboö gegnum símann.
- Fastur símatími fyrir lesendur
er að venju milli kl. 14 og 16 í
aðalsímanúmeri DV, 563 2700.
Lausná
vinnudeilum
Sigurður skrifar:
Mikið þykir mér leiðigjarnt að
hlusta á sífelldar vangaveltur um
hvernig standa.eigi að kjaradeil-
um og hvernig þetta er gert að
viðamiklu vandamáli frá degi til
dags. - Ekkert er annað fyrir séð
en yfirstandandi vinnudeilur
verði leystar með kauphækkun-
um í einhverju formi og flestir
vita niöurstöðuna fyrir fram - að
mestu leyti. Ég legg nú til að sam-
ið verði skjótt og örugglega um
aö 10 þús. kr. komi á laun upp
að 100 þús. króna markinu og ein-
ungis 6% á launaskala þar fyrir
fyrir ofan. Hálaunataxtar yrðu
einfaldlega ekkert til umfjöllunar
að sinni.
Þúhýri
Hafnarfjörður
Sirrý hringdi:
Það ætlar ekki af Firðinum okk-
ar að ganga. Alltaf einhverjar
uppákomur og þær ekki allar
geðslegar. Nú er það Jói okkar
Begg sem stendur að stuðínu.
Mér flnnst hann ekki eigi aö
koma sér í þetta klandur að
óþöríú. Hann má vlta að kratarn-
ir eru bara að spila með hann og
þeir vilja hann.ekki aftur nema á
meðan verið er að klekkja á nú-
verandi bæjarsijórn. Hvers kon-
ar stjómmálamenn þurfum við
eiginlega að sitja uppi með? - í
bæjarstjórnum, á Alþingi? Hvers
átt þú aö gjalda, þú hýri Haíhar-
fjörður?
Einnölogúf
íumferðina
Björn Árnason skrifar:
Hvað var ég ekki búinn að segja
aö með tilkomu alvöruöls hér á
landi myndi slysum fækka, um-
ferðin batna og landinn spekjast
að mun í umgengni. Þótt vita-
skuld haldi viss óöld áfram í þjóö-
lífinu og glæpir þá er það ekki
af völdum áfenga ölsins. Og nú
birtast fréttir um aö umferðar-
slys séu mun færri eftir tilkomu
bjórsins. En allt verður þetta að
vera í hófl að sjálfsögðu. Hitt er
staðreynd að þótt menn fái sér
einn öl og íari síðan út í umferð-
ina er þaö bara til bóta, menn
verða mýkri á manninn og ekki
eins ofsafengnir við stýriö.
RÚV-enní
kjarnorkunni
Friðjón hringdi:
Mánudagsinn 9. jan. sl. hlýddi
ég á þáttinn Að utan. Mér varð
hugsað til hinna gömlu góðu daga
þegar Ríkisútvarpið stóð dyggi-
lega við hliðina á Sovétríkjunum
og fyigiríkjum þeirra í baráttunni
gegn frelsinu. I þessum þætti var
það kjarnorkan og mengunin frá
henni sem plagaði. Kjarnorku-
mengun við Grænland, sagðiþar.
Allt frá Kananum. Að sjálfsögðu!
Spumingin
Lesendur
Jón Baldvin og Bryndís
Borðar þú hollan mat?
Dagný Pétursdóttir og Frímann
Snær Guðmundsson: Já, ég hugsa
það.
Dís Gylfadóttir: Stundum en ekki
alltaf.
Ingibjörg Benediktsdóttir: Já, frekar
oft.
Sveinn Jónsson skrifar:
Að undanfomu hefur utanríkis-
ráðherra og formaður Alþýðuflokks-
ins, Jón Baldvin Hannibalsson orðið
fyrir óvenju höröum árásum, eink-
um pólitískra andstæðinga sinna. -
Ekki ér ég alþýðuflokksmaður en
mér virðist engu að síður þessar
árásir á Jón Baldvin falla undir það
að menn fari ofíari og yfirskjóti al-
varlega því það er óumdeilanlegt að
frammistaða Jóns sem stjórnmála-
manns hefur verið frábær.
Hér á ég líka við hæfni hans sem
samningamanns og glæsilegan mál-
flutning á alþjóðavettvangi. Jón
Baldvin er tvímælalaust snjallasti
ræðumaður Alþingis í dag. Ensku-
mælandi menn, sem honum hafa
kynnst kalla hann „spellbinding or-
ator“, eða „leiftrandi mælskumann".
- Þar minnir Jón Baldvin mjög á
hinn fræga fóður sinn, Hannibal
Valdimarsson, sem mestur hefur
verið „folketaler" íslenskra stjórn-
málamanna.
í tilefni af nýlegri úthlutun friðar-
verðlauna Nóbels, kemur í hugann,
að fyrir fáeinum árum kom Jón Bald-
vin sterklega til greina við úthlutun
þeirra verðlauna, vegna forgöngu
hans við frelsun og viðurkenningu
Eystrasaltsþjóðanna frá áratuga
kúgun Kremlarvaldsins.
Aö lokum er vert að minnast hér á
hina glæsilegu og geðþekku konu
Jóns Baldvins, Bryndísi Schram,
sem hvarvetna vekur athygli og hef-
ur verið landi sínu og þjóð til sóma.
Hún á því einnig þakkir skildar.
Frjáls verðlagning
- hvert leiðir hún?
Kristjana Erlingsdóttir: Já, ég held
það.
Guðmundur Jónsson og Egill Trausti
Guðmundsson: Já, já. Ég geri það.
Einar Páll Einarsson: Já, en kannski
ekki alltaf.
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Sagt er að samkeppni sé af hinu
góða. Og vissulega er stunduð hér
hörð og köld keppni um krónur
kúnnans. - Hinu er samt ekki að
neita að frjálsræðið sem var innleitt
hér fyrir fáeinum árum hefur breytt
þessu „landslagi" heilmikið. í dag
eru ýmis tilboö í gangi sem ekki
þekktust áður, nema ef vera skyldi
eftir hinar hefðbundnu áramótataln-
ingar verslana, á útsölum í kjölfar
þeirra.
í dag eru tilboðin auglýst nánast
daglega þótt þau séu einna síst á
matvælasviðinu. En hvað um þaö;
tilboðin veita fólki tækifæri til að
nálgast góðan hlut á góðu verði. -
ísskápur, ryksuga eða eldavél er
nauðsynlegt tæki á hverju heimili.
Þegar rætt er um vöruverð er varla
hægt að láta hjá líða að minnast á
Bónus-búðirnar. - Mér er það t.d.
minnisstætt er ég kom i fyrsta skipti
inn í eina slíka verslun, fyrir tveimur
árum, að mig rak í rogastans er ég
sá hið lága verð sem í boði var á
ýmsum vörutegundum. Það má segja
að maður hafi þurft að vinda sér að
næsta manni til að kanna hvaða mál
hann talaði til að fullvissa sig um að
maður væri enn staddur á íslandi en
ekki í einhverri erlendri verslun - i
draumi. Verðlagningin var slík, t.d.
á matvöru, að annað hafði maður
ekki séð hér á landi.
Ég tel að haldbær skýring finnist á
hinu lága verði sem Bónus býður
viðskiptavinum sínum. Það liggur
ekki, að mínu mati, einvörðungu í
góðri staðsetningu verslananna,
góðu verslunarviti eigandans eða í
beinum hagstæðum innkauupum.
Þetta verð tel ég ekki síst liggja í því
aö þessi verslunarkeðja hefur þær
vörur einúngis á boðstólum sem
menn nota dagsdaglega. Áherslan er
líka á að selja hratt og örugglega og
að hafa stanslaust gegnumstreymi,
þannig að vörurnar Uggi ekki í hill-
unum óþarflega lengi.
Hérna skilur á milli, t.d. Bónus-
verslana og kaupfélagsverslana í
landinu. Þær neyðast til að eiga „allt
fyrir alla“. Þær verða einnig að sinna
þörfum „sérvitringanna“. Af þessu
leiðir að vörulager þeirra þarf að
vera nokkuð umfangsmikill til að
þær megni að sinna þessum þörfum.
-_yöruverð í hinni dreifðu byggð
hlýtur því ávallt að verða hærra en
á Reykjavíkursvæðinu.
í kaupfélagsverslun. - „Allt fyrir alla“ getur reynst þungt i skauti til verðlækkana í slíkri verslun.
Hendrix og heróinið
Ingvi skrifar:
Margir kannast ef til vill við sög-
una um manninn sem varð það á að
tilkynna um þjófnað og bar ávallt
eftir það viðurnefnið þjófur. - Þetta
og álíka hvarflar að manni viðlestur
laugardagsblaðs DV og sér síðu sem
nefnist Sviðsljós (á sömu síðu er
dálkur sem kallast .Úlyginn
sagði... “ sem tákn um vafasaman
uppruna fréttanna).
Þarna er verið að segja frá baráttu
um arf eftir Jimi Hendrix og enn einu
sinni er japlað á þeirri langlífu (og
-lygnu) tuggu um að hann hafi látist
af of stórum skammti af heróíni.
Hringiö í síma
563 2700
milli kl. 14 og 16
-eða skrifíð
Nafn ok símanr. veróur ad fylsja bréfuin
Jimi Hendrix tónlistarmaður. - Neytti
aldrei eiturlyfja á borö við heróin,
segir bréfritari m.a.
Sem hljómlistarmaður og aðdáandi
umrædds gítarleikara frá fyrstu tíð
hefur mér alltaf leiðst afar mikið að
sjá og heyra í fjölmiðlum farið með
þessa staðleysu. - Einn þeirra sem
hvaö mest umgekkst Hendrix síöustu
vikurnar í lífi hans var söngvarinn
Eric Burdon (áöur í hljómsveitinni
The Animals). Hann segir í bók sinni
„I Used to Be an Animal but I’m All
Right Now (Faber and Faber 1986),
að Jimi Hendrix hafi aldrei neytt eit-
urlyíja á borð við heróín svo vitaö
sé enda vafamál að maðurinn hafi
getað náð þeim árangri sem hann
náði hefði hann verið langt leiddur
eiturlyfj asj úklingur.
Burdon segir að Hendrix hafi um
það leyti sem hann lést tekið lyf
vegna tímabundins þunglyndis. Er
hann svo freistaðist til aö drekka all-
mikið af víni ofan í lyfjaskammtinn
eitt kvöldið fór svo að hann sofnaði
eða „dó“ eins og kallað er, ældi án
þess að vakna og kafnaði í ælunni.
Þetta staðfesta læknaskýrslur og þar
með allar almennilegar músík-
handbækur og fræðibækur um rokk-
tónhst. - Væri ekki ráð að orðrómi
um stórfellda eiturlyfjaneyslu og
dauða af þeim sökum sé nú gefinn
hvíldin eftir fjórðung úr öld og reynt
að hafa það sem sannara reynist.