Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Síða 16
28
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
JÓLASTEIK?
Vorum aS taka í notkun
nýian og glæsileaan
tækjasal meS CYdEX
líkamsræktartækjum frá
USA. Þau bestu á
markaSnum í dag.
Nú er tilvaliÖ aS takast
á viS jólasteikina í
glæsilegri aSstöSu og
góSu andrúmslofti.
V'*
jj Stórhöfða 17 v. Gullinbrú
Simar: 587 2111 & 587 2116
tenms
• Innritun á námskeið
fyrip byrjendur og lengra komna
• Morgunnámskeið
- barnagæsla á staðnum
• Símar: 564 4050 & 564 4051
Dalsmári 9-11 Kópavogi
Byggðu þig upp
á nýju ári með
Gencompte*
iGilsuhúsið
Görcomrpr#
A nýju ári er
rétt að hrista af
sér slenið og
byggja sig upp með
hreyfingu, hollum mat og
góðum bætiefnum.
Þúsundir íslendinga viðhalda
heilbrigði sínu með Gericomplex.
Regluleg neysla þess bætir
starfsþrekið og eykur viðnám
gegn sleni og slappleika.
Gericomplex inniheldur valin
vítamín, steinefni og lesitín og
það er eina fjölvítamínið sem
inniheldur Ginsana G115.
Kringlunni sími 689266 Skólavörðustíg simi 22966
GERICOMPLEX - MEST SELDA BÆTIEFNI Á ÍSLANDI
Heilsa
S á elsti sem
æflr þolfimi
- Sigurjón Guðjónsson er 64 ára og æfir 3-5 sinnum í viku
„Frá þvi að ég byrjaði að stunda þolfimi hefur mér iiðið rniklu betur,“ seg-
ir Sigurjón Guðjónsson sem án efa er elsti íslendingurinn sem stundar
þolfimi. Hér er hann á fleygiferð innan um ungar stúlkur í líkamsræktarstöð-
inni Aerobic Sport. DV-mynd ÞÖK
Hann Sigurjón Guðjónsson lætur
ekki aldurinn aftra sér frá því að
stunda þolfimi. Hann fór í fyrsta þol-
fimitímann árið 1986 og hefur síðan
þá æft þolfimi af kappi. Siguijón er
án efa elsti íslendingurinn sem æfir
þolfimi en hann er 64 ára gamall og
það má segja að þegar hann er að
æfa sé hátt í 50 ára aldursmunur á
honum og þeim yngstu.
„Ég reyni að komast í þolfimi 3-5
sinnum í viku og fer í alla tíma. Frá
því ég byrjaði í þessu hefur mér liðið
betur og hef getað haldið mér í góðu
formi.“
Sigurjón segist hafa stundað íþrótt-
ir á sínum yngri árum. Hann var á
íþróttaskólanum í Haukadal hjá Sig-
urði Greipssyni 1946-47 og um tví-
tugsaldurinn æfði hann frjálsar
íþróttir. Eftir tvítugsaldurinn fór
hann út í nám, síðan að vinna úti á
sjó og flutti út á land þar sem hann
starfaði í 20 ár. í kjölfarið hætti hann
að stunda íþróttir.
Leið ekki vel í skrokknum
og varð að gera eitthvað
„Það má segja að ég hafi ekki gert
neitt í að hreyfa mig á þessum árum
og það var ekki fyrr en árið 1980,
eftir að ég flutti í bæinn, að mér
fannst ég vera að slappast til heil-
sunnar. Mér leið ekki vel í skrokkn-
um. Ég fékk kransæðastíflu, var með
vöðvabólgu og ég varð hreinlega að
gera eitthvað í mínum málum.
Fyrsta skrefið sem ég tók var að fara
í jóga. Síðan datt mér í hug að prófa
þolfimi, hún var að ryðja sér til rúms
á þessum árum, og ég sé svo sannar-
lega ekki eftir því að hafa reynt það.“
Er stundum alveg
að gefast upp
„Með þolfiminni heldur maður lík-
amsþyngdinni niðri og maður verður
allur styrkari á sál og líkama. Hjarta-
læknirinn minn samþykkir alveg að
ég stundi þolfimi svo framarlega að
ég stundi hana á skynsamlegan hátt.
Ég er ekkert ílinkur í þessu en fyrir
mig skiptir það engu, ég er að þessu
fyrir mig og mína heilsu. Mér líkar
mjög vel við þessa íþrótt. Slys eru
nær engin og æfingar eru góðar og
halda manni liðugum. Ég viðurkenni
að þetta er dálítið puð og maður er
stundum alveg að gefast upp en þeg-
ar tímanum er lokið finnur maður
fyrir vellíðan," segir Sigurjón.
Rannveig búin að stökkva og það eru ekki aliir
á áttræðisaldri sem geta státað af svona tilburð-
um. Á innfelldu myndinni er Rannveig Kristjáns-
dóttir við brettið i Sundhöll Reykjavíkur.
DV-myndir ÞÖK
Rannveig Kristjánsdóttir, 77 ára gömul:
Stingur sér til sunds af brettinu
Hún Rannveig Kristjánsdóttir, sem 200-300 metra í hvert sinn. Það sem
verður 77 ára gömul í næsta mán- meira er. Hún stingur sér til sunds
uöi, kemur í Sundhöll Reykjavíkur afsundbrettinuílauginniogþeireru
nær daglega og syndir yfirleitt ekki margir sem geta státað af shku
Hvað gerir þú til að börn og
unglingar byrji ekki að reykja?
TÓBAKSVARNANEFND
á þessum aldri.
„Ég byrjaði ekkert að stunda sund-
ið fyrr en ég var að verða sjötug. Ég
hætti að vinna 67 ára og tveimur
árum síðar hóf ég komur mínar í
Sundhöllina. Sundið gefur mér mikið
og ég reyni aö komast daglega í laug-
ina,“ segir Rannveig.
„Eftir að ég fór að stunda laugarnar
hefur mér liðið betur og ég ætla að
halda þessu áfram með heilsan leyf-
ir,“ segir Rannveig.
Frægust er Rannveig fyrir að nota
brettið í lauginni en fyrsta verk
hennar þegar hún kemur í sund er
að stinga sér af því.
„Ég reyni alltaf að komast á brettið
þegar það er niðri. Mér finnst það
ómissandi þáttur í þessu og mjög
skemmtilegur," segir Rannveig.