Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Blaðsíða 22
34
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
Afenæli
Ólafur Þór Gunnlaugsson
Ólafur Þór Gunnlaugsson sund-
þjálfari, Fannafold 72, Reykjavík, er
fertugurídag.
Starfsferill
Ólafur hóf störf sem sundþjálfari
hjá Sundfélagi Hafnaríjaröar og KR.
Síðan varö hann sundþjálfari hjá
sunddeild Vestra á ísafiröi 1983-
1994. Setti hann þar á stofn sund-
skóla fyrir börn og vann brautryðj-
endastarf í ungbarnasundi í tvö ár.
í dag starfar Ólafur Þór sem aðal-
þjálfarihjá KR.
Ólafur hefur tekið þátt í ýmsum
námskeiðum í sundi og uppbygg-
ingu sundþjálfunar hjá Sundsam-
bandi íslands. Hann hefur hlotið
réttindi sem kennari í ungbarna-
sundi og er einn af stofnendum Fé-
lags ungbarnasundkennara. Þá hef-
ur Ólafur unnið mikið innan vé-
banda Sundsambands íslands, veriö
landsliðsþjálfari í sundi og verið
með þátttakendum á ólympíuleik-
um. Ölafur vann sem lagerstjóri lijá
Kristjáni Ó. Skagfjörð í nokkur ár
og sinnti einnig ýmsum öörum
störfum.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 29.8.1992, Svanhvíti
Guðrúnu Jóhannsdóttur, f. 21.9.1957,
læknafulltrúa á handlæknisdeild
Landspítalans. Hún er dóttir Jóhanns
Eiríkssonar, yfirfiskmatsmanns á
ísafirði, sem er látinn, og Halldóru
Guðmundsdóttur.
Börn Ólafs Þórs og Svanhvítar:
Ólafur Páll, f. 5.5.1990, og Ingunn
María, f. 1.3.1994. Fósturdóttir Ólafs,
dóttir Svanhvítar, er Halldóra Jó-
hanna Arnarsdóttir, f. 26.1.1976,
nemi í Kvennaskólanum.
Hálfsystkini Ólafs Þórs, sam-
mæðra, eru: Helga Hedvig, f. 5.10.
1942; Anna Herskind, f. 22.6.1944,
kvænt fjögurra barna móðir í
Bandaríkjunum; Ásdís Bára Magn-
úsdóttir, f. 6.3.1947, gift Ágústi
Schram og á hún tvo syni fyrir og
eina dóttur með Ágústi. Alsystkini
Ólafs Þórs eru: Guðmundur Ingi, f.
14.9.1951, sveitarstjóri á Hellu,
kvæntur Maríu Busk og eiga þau
fjögur börn; Gunnlaugur Birgir, f.
28.7.1956, tónlistarmaður í Reykja-
vík, kvæntur Signýju Guðbjarnar-
dóttur og eiga þau fimm börn; Þór-
hallur Ölver, f. 19.4.1958, verslunar-
maður í Reykjavík, kvæntur Bertu
Richter og eiga þau þrjú börn; Fann-
ey, f. 7.7.1960, búsett í Bandaríkjun-
um, og á hún einn son. Hálfsystkini
Ólafs, samfeðra, eru: Jens Kristján,
f. 2.10.1949, verslunarmaður í
Reykjavík, kvæntur Kristínu Guð-
mundsdóttur og eiga þau eitt barn;
Einar Viðar, f. 10.8.1966, kvæntur
Sigríði Þóru Magnúsdóttur og eiga
þautvö börn.
Foreldrar Ólafs Þórs: Gunnlaugur
B. Daníelsson, sölustjóri hjá O.
Johnson og Kaaber, og Elín Bjarn-
veig Ólafsdóttir húsmóðir. Gunn-
laugur var alinn upp hjá Kristjönu
Guðlaugsdóttur og Tryggva Björns-
syni, móðurforeldrum sínum, og hjá
móðursystur, Fanneyju Tryggva-
dóttur.
Ólafur Þór Gunnlaugsson.
Ætt
Gunnlaugur er sonur Daníels
Bergmann bakarameistara og Þur-
íðar Tryggvadóttur Möller húsmóö-
ir.
Elín er dóttir Ólafs Ólafssonar
veitingamanns og Helgu Jóhannes-
dóttur.
Ingi Bogi Bogason
Ingi Bogi Bogason, upplýsinga- og
fræðslufulltrúi hjá Samtökum iðn-
aðarins, Háaleitisbraut 155, Reykja-
vik, er fertugur í dag.
Starfsferill
Ingi Bogi fæddist á Akranesi en
ólst upp í Reykjavík. Hann lauk
cand. mag. prófi í íslenskum bók-
menntum árið 1986 frá Háskóla ís-
lands. Á árunum 1980-1988 starfaði
hann við kennslu í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti en á næstu tveim-
ur árum var hann lektor við Christ-
ian-Albrecht háskólann í Kiel. Frá
1990-1992 hóf hann aftur störf við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
stundaði einnig kennslu á sumar-
námskeiðum viö Háskóla íslands.
Frá árinu 1992 hefur Ingi Bogi
unnið við upplýsinga- og fræðslu-
störf hjá Samtökum iðnaðarins. Þar
á hann sæti í ýmum nefndum og
ráðum fyrir samtökin. Frá árinu
1989 hefur hann skrifað bókmennta-
gagnrýni fyrir Morgunblaðið. Ingi
Bogi hefur einnigfjallað um íslensk-
ar bókmenntir í sjónvarpi og út-
varpi og skrifað um efnið í innlend
sem erlend tímarit. Hann var að-
stoðarritstjóri Nordisk litteratur
áriö 1993.
Meðal verka Inga Boga eru heim-
ildarmyndimar Jóhann Jónsson,
sem sýnd var í sjónvarpinu 1991, og
Steinn, sem sýnd var 1988, ritgerðin
Til að mála yfir litleysi daganna, um
Jóhann Jónsson skáldskap hans og
expressjónisma og birist í Skírni
1991, Das Werk von Steinn Steinarr,
sem er ritgerð um ævi og verk Steins
Steinarrs, unnin í samvinnu við dr.
Gert Krautzer. Hún birtist árið 1991
í nýrri útgáfu af Kindlers Litera-
Ingi Bogi Bogason.
turlexikon. Ingi Bogi vann einnig
Nordisk litteratur 1993, tímarit um
norrænar bókmenntir, gefið út af
Norræna félaginu og On the Ideo-
logical Sources in Steinn Steinarr’s
poetry fyrir Modernismen í skand-
inavisk litteratur. Það var gefið út
árið 1991 í háskólanum í Þránd-
heimi. ■
Fjölskylda
Ingi Bogi kvæntist 14.6.1975 Hall-
gerði Bjarnhéðinsdóttur hjúkrúnar-
fræðingi, f. 30.9.1955. Foreldrar
hennar: Bjarnhéöinn Hallgrímsson,
d. 1989, og Dagný Pálsdóttir, f. 1926,
hjúkrunarfræðingur (fædd Weld-
ing).
Börn Inga Boga og Hallgerðar:
Tómas f. 5.7.1978; Hrefna 10.1.1984;
Hörður 10.7.1987.
Foreldrar Inga Boga: Bogi Ragnar
Eyjólfsson, f. 16.10.1909, d. 1975, og
Elín Karitas Bjarnadóttir, f. 11.2.
1917.
Ingi Bogi verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Uppboð
Framhald uppboðs á Þorra GK-183, skipaskrárnúmer 1077, þingl. eig.
Útgerðarfélagið Barðinn hf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Byggða-
stofnun atvinnutryggingardeild, Lífeyrissjóður Austurlands, Lífeyrissjóður
sjómanna og Ríkissjóður, fer fram í dómsal embættisins að Vatnsnesvegi
33, Keflavík, miðvikudaginn 18. janúar 1994 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn í Keflavík
10. janúar 1995
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Þingholtin
Endurbætur á gatnamótum Skothúsvegar, Laufás-
vegar, Þingholtsstrætis og Hellusunds.
Á Borgarskipulagi Reykjavíkur eru til sýnis 3 mismun-
andi tillögur að endurbótum á ofangreindum gatna-
mótum.
Gögnin verða til sýnis á Borgarskipulagi Reykjavík-
ur, Borgartúni 3, 3. hæð, virka daga frá kl. 8.30-
16.00 frá 12. janúar til 10. febrúar 1995. Athuga-
semdum og ábendingum ef einbverjar eru skal kom-
ið til Borgarskipulags fyrir lok kynningartíma.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ingibjörg Svein-
bjömsdóttir
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir hús-
móðir, Möðruvöílum í Kjós, er átt-
ræðídag.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist aö Hámundar-
stöðum í Vopnafirði og ólst þar upp.
Hún lauk barnaskóla í farskóla í
Vopnafirði, stundaði nám að Laug-
arvatni 1931-32 og lauk iönskóla-
prófi frá Iðnskóla Siglufjarðar 1941.
Ingibjörg flutti frá heimahögum
16 ára og vann á heimih Guðmundar
Jónssonar, verslunareiganda
Brynju, og konu hans, Júlíönu
Sveinsdóttur. Sumarið eftirvinnur
Ingibjörg að Bessastöðum. Árið 1933
vann hún sem framreiðslustúlka að
Hótel Borg en árið eftir vann hún
sömu störf á sumarhótelinu að
Laugarvatni. Eftir það vann hún hjá
Jónasi frá Hriflu en síðan lá leiðin
norður á Akureyri árið 1935 og
starfaði hún á Hótel Akureyri um
árabil. Ingibjörg dvaldist og starfaði
meira og minna á Hvammstanga og
Siglufirði árin 1937-41. Árin 1942-47
starfaði Ingibjörg í Reykjavík, m.a.
hjá Guðmundi Oddssyni í Alþýðu-
brauðgerðinni. Snemma árs árið
1948 flyst hún að Möðruvöllum í
Kjós og hefur búiö þar síðan. Þangað
kemur hún sem ráðskona til bræðr-
anna Þorgeirs og Jónmundar Jóns-
sona. Ingibjörg eignaðist tvo drengi
áður en hún kom að Mööruvöllum.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 11.11.1953 Þor-
geiri Jónssyni, f. 12.8.1921, b. að
Möðruvöllum í Kjós. Foreldrar hans
voru Jón Bergþór Guðmundsson og
Ólöf Jónsdóttir.
Börn Ingibjargar og Þorgeirs:
Guðbjörg Eygló, f. 23.9.1951, rekur
fótaaðgerða- og sjúkranuddstofu við
Langhöltsveg, gift Reyni Pálmasyni,
bifvélavirkja hjá SVR, og eiga þau 3
börn, Ingibjörgu, Eyjólf og Ragn-
heiði Helgu; Ólöf Jóna, f. 10.12.1952,
sendiferðabílstjóri, gift Sigurði Ás-
geirssyni sendiferðabílstjóra og
börn þeirra eru Jón Þorgeir og íris,
Ingibjörg á fyrir dótturina Evu Eð-
valdsdóttur; Jón Bergþór, f. 20.12.
1955, verslunarmaður í Húsasmiðj-
unni, í sambúð með Rakel Jóhanns-
dóttur. Börn hans frá fyrra hjóna-
bandi eru tvö; Hugrún, f. 25.4.1960,
sjúkraliði, snyrti- ogfótaaðgerða-
fræðingur á Reykjalundi, búsett í
Mosfellsbæ, gift Ólafi Sigurjónssyni
kennara, nú starfandi sendibílstjóri,
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir.
og eiga þau saman dæturnar Jónu
Björgu og Fannýju Dögg.
Ingibjörg eignaðist son, Viðar, f.
28.4.1936, d. 11.4.1948, með Þórhalli
Pálssyni, útvarpsvirkja á Akureyri.
Ingibjörg á son, Kára Jakobsson, f.
10.10.1946, járnsmið og bifvélavirkja
í Kópavogi, kvæntan Elínu Ingi-
mundardóttur sjúkrcdiða og eiga
þau tvo syni, Ingimund og Viðar.
Faðir Kára er Jakob Lárusson,
píanóleikari á Harrastöðum í Dala-
sýslu.
Ingibjörg er ein af 19 systkinum.
95 ára
un, föstudag, á milli kl. 20 og 23.30
í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn.
40ára
Anna Sigríður
Guðmunds-
dóttir,
húsmóðir,
Brautarholti,
Staðarhr., V-
Hún.
Annadvelurnú
á sjukrahúsinu
Hvammstanga.
Eiginmaður hennar var Bjöm Guð-
mundsson, b. Faiiandastöðum og
Brautarholti.
60ára
Jónína Þórðardóttir,
Skálatúni, Mosfellsbæ.
Ásmundur Ari Sigurjónsson,
Flyðrugranda 4, Reykjavík.
50 ára
80 ára
Guðjón Ingimundarson,
Bárustíg6, Sauðárkróki.
Kristín Kristjánsdóttir,
Bláskógum 12, Reykjavík.
70 ára
Jarþrúður Jónsdóttir,
Varmalæk, Andakilshreppi.
Jens Guðnason,
Reykjabraut 16, Þorlákshöfn.
Jens tekur á móti gestum á morg-
Andrés Friðrik Árnmarsson,
Heiöarvegi 17, Reyöarfirði.
Ása S. Guðmundsdóttir,
Krummahólum 6, Reykja vík.
Jón Rúnar
Ragnarsson,
framkvæmda-
stjóri,
Akraseli20,
Reykjavík.
EiginkonaJóns
erPetraBald-
ursdóttir. Þau
takaámóti
gestum i félagsheimiii Fram við
Safamýri á milli kl. 19 og 21 á af-
mælisdaginn.
Halldór B. Árnason,
Hnotubergi 11, Hafnarfirði.
Jóhann Guðmundur Guðjónsson,
Áslandi 18, Mosfellsbæ.
Guðfinna Hrefna Arnórsdóttir,
Ásklifi 1, Stykkishólmsbæ.
Snjólaug Guðrún Sttxrludóttir,
Glaðheimum 24, Reykjavik.
Sigurður Egill Einarsson,
Vestursíðu 6f, Akureyri.
Bry nhildur Agnarsdóttir,
írabakka 32, Reykjavík.
Guðmundur Karlsson,
Dvergagili 20, Akureyri.
Karl Snorrason,
Aðaltúni 10, Mosfellsbæ.
Elín G. Aspelund,
Fagragarði 6, Keflavík.
Clifford Roy Firus,
BUkahólum4, Reykjavík.
Sunneva Ilojaylah Engle,
Þorragötu 1, Reykjavík.
Ingvar ísdal Sigurðsson,
Njarðarholti 3, Mosfellsbæ.
Jönina Sigrún Ólafsdóttir,
Sigurhæö 1, Garðabæ.
Elisabet Þorgeirsdóttir,
Bjargarstíg 6, Reykjavík.
Halldóra Kristjánsdóttir,
Hrafnagilsstræti 25, Akureyri.
Sæmundur Rúnar Þórisson,
Víöimel 40, Reykjavik.
Eiður Sigmar Aðalgeirsson,
Fögrukinn 28, Hafnarfirði.