Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Page 24
36
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1995
Allhvasst og él
Vilhjálmur Egilsson.
Nútíminn haldi
innreið í áfengis-
viðskipti
„Hinn venjulegi íslendingur
slær hins vegar hvorki hendinni
á móti landa né smyglaðri vöru
og fer í ríkið eða pantar í gegnum
póstinn þegar honum hentar...
Hér ber því allt að sama brunni.
Nauðsynlegt er að nútíminn fái
að halda innreið í áfengisvið-
skiptum, skrifar Vilhjálmur Eg-
ilsson í DV.
Kratar hafa ekkert lært
...Og þegar bærinn ætlar að
Ummæli
tölvuvæðast þá þykir honum
sjálfsagt að selja þeim gamla
móðurtölvu Hagvirkis-Kletts.
Svo birtast forustumenn Alþýðu-
flokks á forsíöum dagblaðanna
og sjónvarpsskermum gleiðbros-
andi. Það er bara sönnun þess að
þeir hafa ekkert lært..., segir
Ólafur Ragnar Grímsson í Tim-
anum.
Ekki verðugir fulltrúar
fólksins
„Þegar eitthvað annað er að veði
en hagur almennings, eins og t.d.
stólar, þá springur allt í loft upp.
Þannig að þessir menn eru ekki
verðugir þess að vera fulltrúar
fólksins," segir Sigurður Tr. Sig-
urðsson, formaður Hlifar í Hafn-
arfirði.
Er í minnihluta
„Ég er kominn í minnihluta og
mér dettur ekki í hug að gefa
nokkurn skapaðan hlut út um
annað því það er enginn meiri-
hluti til en það getur verið aö ég
styðji einhvern meirihluta...,“
segir Ellert Borgar Þorvaldsson,
bæjarfulltrúi í Hafnarfiröi, í DV.
Deyja eða verða
góðborgarar
„Það er þannig með rokkarana
að annaðhvort deyja þeir eða
verða góðborgarar. það er annað-
hvort haglabyssan eða sprautan
eða setjast niður og fara að taka
lífinu með ró,“ segir Mike Pollock
í Alþýðublaðinu.
Tíminn og sorgin
Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviöbrögö, stendur fyrir
samveru í kvöld í Gerðubergi kl.
20.00. Sigfinnur Þorleifsson,
sjúkrahúsprestur á Borgarspíta-
Fundir
lanum, mun þar íjalla um sorg
og viöbrögö fólks við henni i er-
indi sem hann kallar Tímann og
sorgina. Samtökin hvetja syrgj-
endur til aö koma og hlusta á
séra Sigfinn.
Fyrirlestur um dyslexíu
Annar fyrirlesturinn um dyslex-
íu verður í Norræna húsinu í
kvöld kl. 20.30 og er hann ætlaður
ungu fólki mneð dyslexíu.
Lindsay Peer, fræöslufulltrúi
breska dyslexíufélagsins, mun
fjalla um þau málefni sem ungu
fólki með dyslexíu eru efst í huga
og hvaö sé hægt aö gera.
Hvöss suðaustanátt sem var í morg-
un snýst í suðvestankalda með skúr-
um vestanlands en síðdegis verður
Veðrið í dag
vestan- og suðvestanátt á landinu,
stinningskaldi eða allhvasst og él
vestanlands en heldur hægari og létt-
ir til um austanvert landið. Hiti 0-5
stig í fyrstu en frystir aftur í dag,
fyrst vestanlands. Á höfuðborgar-
svæðinu er sunnan- og suðvestan-
kaldi með skúrum og súld. Gengur í
vestan- og suðvestan stinningskalda
með éljum upp úr hádegi. Hiti 1-4
stig í fyrstu en allt að þriggja stiga
frost síðar í dag.
Sólarlag í Reykjavík: 16.11
Sólarupprás á morgun: 11.00
Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.51
Árdegisflóð á morgun: 4.19
Heimild: Almanak Háskóians
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 2
Akurnes alskýjaö -2
Bergstaðir alskýjað 2
Bolungarvík rigning 5
Keílavíkurílugvöllur súld 4
Kirkjubæjarkla ustur rigning 2
Raufarhöfn alskýjað -2
Reykjavík rigning 4
Stórhöfði rigning 4
Bergen heiðskírt 2
Helsinki snjókoma -5
Ka upmannahöfn skýjað -1
Stokkhólmur snjókoma -2
Þórshöfn skýjaö -1
Berlín skýjað 0
Feneyjar heiðskírt 0
Frankfurt snjóélásíð. klst. 2
Glasgow skýjaö -2
Hamborg léttskýjað 1
London léttskýjað 2
LosAngeles skúr 14
Mailorca léttskýjað 11
Montreal alskýjað -15
New York rign. á síð. klst. 1
Nice léttskýjað 8
Orlando léttskýjað 13
París léttskýjað 1
Róm léttskýjað 5
Vín léttskýjaö 0
Washington þokumóða 2
Guðni A. Emilsson hljómsveitarstjóri:
Styrkurinn eykur möguleika á
þéttsetnum markaði
„Ég starfa núna sem aðalhljóm-
sveitarstjóri við Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar í Tubingen setn er
í útjaöri Stuttgart. Ég tók við þessu
starfi í haust og réð mig til eins
árs. Hljómsveitin hefur leikiö á
nokkrum tónleikum og unnum viö
meðal annars til fyrstu verölauna
í keppni hljómsveita í Suður-
Þýskalandi. Auk þess hef ég verið
gestastjórnandi við nokkrar hljóm-
Maður dagsins
sveitir," segir Guðni A. Emilsson
hljómsveítarstjóri en nýlega var
tilkynnt í Þýskalandi aö hann heföi
fengið heiöursverðlaun og styrk frá
Herbert von Karajan-stofnurúnni í
Berlín. Þetta er mikill heiður fyrir
Guðna og opnar honum marga
möguleika á markaöi í Evrópu sem
er þéttsetinn. Guðni hefur fengið
margs konar aðrar viðurkenningar
fyrir hljómsveitarstjórn. Til aö
mynda var honum veittur styrkur
hér á landi úr minningarsjóði Lind-
ar sem stofnaður var til minningar
Guðni A. Emilsson.
um hljómsveitarstjórann Jean Pi-
erre Jacquillat og hann hlaut einn-
ig önnur verðlaun í alþjóðlegri
keppni ungra hljómsveitarsfjóra
sem haldin var í Lugano í Sviss.
Guðni sagði aðspurður að hann
hefði hafið tónlistarnám hiá fóður
sínum, Emil Adolfssyni, sem rak
tónlistarskóla: „Leiö mín lá síðan i
Tónlistarskóla Reykjavíkur, þar
sem ég byrjaði á flðlu en fór síðan
1986 til Þýskalands til náms i pianó-
leik og hljómsveitarstjórn og lauk
námi síðastliðið vor.“
Guðni sagði að það væri mun
meira bóklegt nám að læra hljóm-
sveitarstjórn heldur en á píanó:
„Að öðru leyti er þetta svipað, þú
situr að vísu viö píanóiö en stenduf
við hljómsveitarstjórn en notar
fmgurnar í báðum tilfellum. Ég
komst að því að mín persóna var
meira sköpuð fyrir hljómsveitar-
stjóm en píanóleik."
Guðni sagði aö styrkurinn frá
Hebert von Karajan-stofnuninni
væri fyrst og fremst fjárhagslegt
atriði: „Þá er ekki síöur mikilvægt
að þessi styrkur gefur færi á sam-
bandi við sterka umboðsmenn sem
er mjög eríitt að nálgast."
Guðni sagði að framundan væri
ýmislegt, hann væri að æfa með
hljómsveití Stuttgartþarsem hann
verður gestastjórnandi og síöan
liggur leiðin til Numberg og Sofíu
í sömu erindagjöröum. Guöni A.
Emilsson býr ásamt konu og dóttur
í Trossingen í Þýskalandi.
Myndgátan
Lausn gátu nr. 1117:
Skjálistarhátíð
Myndlista- og handíðaskóli ís-
lands og Menningarstofnun
Bandaríkjanna standa í sjö daga
í janúar fyrir sýningum á skjálist
(video art) og er næsti sýningar-
dagur í dag og hefjast sýningar
Sýningar
klukkan 16.00. Verkin sem sýnd
eru spanna vítt svið hvað varðar
viðfangsefni, tækni og hug-
myndafræði. Þótt ómögulegt sé
að gefa neina heildarmynd af
þessum miöh eru myndböndin
valin með það fyrir augum að
veita innsýn í mismunandi notk-
un myndbandsins sem þróttmik-
ils og mikilvægs listmiðils. Verk-
in eru fengin frá Electronic Arts
Intermix safninu í New York.
Sýningin á myndböndunum
tekur um það bil einn og hálfan
klukkutíma og er gert stutt hlé á
milli myndbanda. Með deginum
í dag eru fjórir sýningardagar eft-
ir og er næst sýnt 17. janúatv
Skák
Þau athyglisverðu úrslit urðu í kvenna-
flokki á ólympíumótinu í Moskvu að
úkraínska stúlkan Ludmila Zsiltzova,
sem tefldi með sveit Alþjóðaskáksam-
bands blindra, náði bestum árangri á 1.
borði, fékk 10,5 v. af 13 mögulegum.
Zsuzsa Polgar (Ungverjalandi) hreppti
silfur og fyrrverandi heimsmeistari,
Maja Tsíbúrdanidze (Georgíu), brons en
sveit hennar varð ólympíumeistari.
Þeir sem sjóndaprir eru eða biindir
geta auðveldlega teflt skák og eflaust bet-
ur en margur sjáandi með því að snerta
taflborð með misháum reitum og sér-
stakri gerð af taflmönnum.
Þessi staða er frá Moskvu, úr skák
Zsiltzovu, með hvítt, og Mamedovu, Ús-
békistan:
8
7
6
5
4
3
2
1
36. Ðxh6! gxh6 37. Rxh6+ Kg7 38. Rf7
Rxe5 39. Dh6+ KÍ6 40. Rxe5 Rg7 41.
Rd7+ Ke6 42. He5+ Kd6 43. Dxg7 Og
svartur gafst upp.
Jón L. Árnason
I #
l m k
k m & k
mMm igf
k
A &mái
A A
É
ABCDEFGH
Bridge
Einn af meðlimum Dallas-ásanna, banda-
rísku sveitarinnar sem vann tjölda
heimsmeistaratitla, er Bob Hamman sem
margir telja besta spilara heims. Hann
gaf nýlega út bridgebók sem hefur að
geyma mörg skemmtilegt bridgedæmi.
Bókin heitir „At the Table“ og hér er eitt
spil úr bókinni. Hamman heldur því fram
að það sé besta dæmi um spilamennsku
sem hann hefur nokkurn tima séð. Sagn-
ir tók fljótt af, austur gjafari og allir á
hættu: 4 @
V G54
♦ Á652
+ Á8765
* 982
V Á103
♦ KG1043
+ 103
♦ ÁKG1075
V 972
♦ 87
+ 94
* D43
V KD86
♦ D9
+ KDG2
Austur Suður Vestur Norður
Pass 1 G Pass 3 G
P/h
Vestur ákvað að reyna aö hitta á lit fé-
laga og valdi að spila út spaðaníunni.
Austur sá að vestur átti sennilega tví-
spil, hugsanlega þríspil eða jafnvel ein-
spil í spaða. Hann setti spaðatíuna til að
halda samgangnum við félaga sinn og
samningurinn var strax dauðadæmdur
vegna þessa vel heppnaða útspils - eða
hvað? Sagnhafi, Bandarikjamaður að
nafni Hancock, var hins vegar á allt öðru
máli. Hann sá að hann átti aðeins 7 slagi
og ákvað að setja snotra blekkingu fyrir
austur og leyfði austri að eiga slaginn á
spaðatíuna! Austur taldi þá víst að sagn-
hafl hefði átt drottninguna fjórðu í upp-
hafi og leist ekki á að taka ÁK í litnum
og fría þarrnig ef til vill níunda slaginn.
Hann skipti því yfir í hjarta. Vestur drap
á ás og spilaði spaða en austur var enn
sannfærður um fjórlit suðurs og skipti
yfir í annan lit. Líklegt má telja aö andlit
hans hafi einnig skipt litum þegar hann
sá hvers kyns var.
ísak Örn Sigurðsson