Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1995, Side 28
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJORN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER OPIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGARDAG8- OG MÁNUDAGSMORGNA
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1995.
Snjóflóðið
kastaði
bílnum til
„Ég sá tilsýndar hvar flóðið kom
og náði að hægja mjög ferðina. Svo
skall flóðið á bílnum og hann kastað-
ist til um hálfan metra. Þetta var
svona meðalflóð og lokaði veginum
en hefði það verið miklu stærra hefði
getað farið verr því nokkra métra til
hliöar viö bílinn er snarbratt kletta-
belti niður í fjöru,“ sagði Baldur Ingi-
marsson, 21 árs beitningarmaður úr
Bolungarvík, í samtali við DV í morg-
un en seint í gærkvöldi skall snjóflóð
á bíl sem Baldur ók, við Skarfasker
skammt utan við Hnífsdal.
Fjöldi snjóflóða féll á veginn milh
Hnifsdals og Bolungarvíkur í gær-
kvöld. Skömmu eftir það fyrsta, laust
æftir klukkan 22, fór lögreglubíll á
vettvang til að kann hvort nokkur
hefði lent í flóðinu. Svo reyndist ekki
vera en þegar lögreglubílhnn var á
leiðinni til baka féh annað flóð á veg-
inn skammt fyrir framan hann og
lenti Baldur í því. Baldur sakaði ekki
en bíllinn sem hann ók, jeppi,
skemmdist lítillega. Hann náði að
losa hann úr flóðinu og eyddi nótt-
inni á ísafirði.
Þá féllu flóð á Súðavíkurveg í gær-
kvöld og fór svo að þrennt komst
_ekki leiðar sinnar vegna snjóflóða
sem þar féllu. Tvennt gekk til Súöa-
víkur en bíll sótti þann þriðja. -pp
Blaðauki umdag-
skrár, kvikmyndir
og myndbönd
LOKI
Ætli sá kanadíski tali ekki
bara norsku núna?
Þorsteinn getur haft
ofan af fyrir honum
segir Jón Baldvin - við verðum að tala við fólk, segir Þorsteinn
„Þorsteinn getur sjálfur haft ofan
af fyrir þessum sjávarútvegsráð-
herra sínum. Þetta er gestur Þor-
steins Pálssonar en ekki minn. Ef
hann hefði verið minn gestur þá
hefði ég bent honum á að spara sér
feröakostnaðinn. Sú staðreynd að
sjávarútvegsráðherra Kanada not-
ar tækifærið þegar hann er að
koma i heímsókn til þessara
tveggja þjóða til þess að gera bind-
andi milliríkjasamning, þar sem
Kanada viðurkennir algjörlega
sjónarmið Norðmanna, og gengur
lengra en þeir, sýnir náttúrlega að
það er ekki skynsamlegt að láta
sjávarútvegsráðherra gera mihi-
ríkjasamninga. Enda er það ekki
leyft á íslandi og tiðkast yfirleitt
hvergi," segir Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra.
Hann neitar að hitta kanadíska
sjávarútvegsráöherrann Brian
Tobin sem kemur hingað í opin-
bera heimsókn í dag.
mjög vandasamt og viðkvæmt víð-
ræðuferh milh íslands og Noregs,"
segir Jón Baldvin.
Viðkvæmt og vandasamt
deilumál
„Kanadiskum stjórnvöldum var
fulhjóst að'uppi væri viðkvæmt og
vandasamt deilumál mUli íslands
og Noregs. Hluti þess máls varðar
túlkun á Svalbarðasamningnum
sem Kanada er aðili að. Réttarstaða
hins svokallaöa fiskverndarsvæðis
Norðmanna er afar uradeild og
ekkert ríki hefur í reynd viður-
kennt sjálftökurétt Norðmanna á
svæðinu. Fjöldi ríkja hefur mót-
mælt formlega og það er í gangi
Frétti þetta frá kanadíska
ráðherranum
„Ég fékk formlega tUkynningu
um það að þessum fundi hefði ver-
ið aflýst, frá sjávarútvegsráðherra
Kanada en ekki frá utanríkisráö-
herra okkar. Ég hafði heyrt af því
ávæning að hann hefði verið að
hugsa um þetta en tilkynningin
barst með þessum hætti. Við höfum
ekkert upp úr því að hætta að tala
við aðrar þjóðir. Slíkt leiðir bara
af sér einangrun. Ef við ætlum að
fara í fýlu og tala ekki við menn
komast okkar sjónarmið ekki á
framfæri. Við sjáum í hvaða stööu
alþjóðleg deUumál lenda þegar
menn tala ekki saman. Meira að
segja arabar og ísraelsménn eru
farnir að tala saman.
Það urðu okkur mikU vonbrigði
að Kanadamenn skyldu bæta þessu
inn í samning sinn við Norðmenn,
án samráðs við okkur. Þegar í gær-
kvöldi gerði ég Brian Tobin grein
fyrir þessu sjónarmiði mínu og ég
mun ítreka það þegar liann kemur
hingað. Hann sagði að þetta hefðu
verið mistök, liann hefði staðið í
þeirri trú að embættismenn hans
hefðu verið í sambandi viö íslenska
embættismenn. Það hefði ekki ver-
ið ætlun hans að blanda sér í deUur
Íslands og Noregs," segir Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráöherra.
-rt
Bæjarstjóri
látinn víkja?
Endurbættur tólf síðna blaðauki
um dagskrár útvarps- og sjónvarps-
stöðva, kvikmyndir og myndbönd
fylgir blaðinu í dag og verður svo
"íramvegis á fimmtudögum. Fremst í
blaðaukanum er fjallað um mynd-
bönd. Þar er listi yfir 20 vinsælustu
myndböndin, gagnrýni og greinar
um myndir og leikara.
Þá koma sjö síður með dagskrám
sjónvarps- og útvarpsstöðva. Hver
vikudagur fær heila síðu.
í lok blaðaukans er fjallað um kvik-
myndir. Þar eru kynntar nýjar
myndir í kvikmyndahúsunum og
dómar um myndir sem verið er að
sýna og nýjar kvikmyndafréttir.
Létt verðlaunagetraun verður í
þessum vikulega blaðauka. Sjálfsagt
er fyrir lesendur að geyma blaðauk-
ann sem heldur fullu gildi í heila
viku.
Blaðauki um tónlist, sem verið hef-
ur á fimmtudögum, verður tvískipt-
ur, á fóstudögum og laugardögum.
Verulegar líkur eru á því að al-
þýðuflokksmenn leggi fram tillögu
um að láta Magnús Jón Árnason
bæjarstjóra hætta þegar í stað störf-
um á bæjarráðsfundi í Hafnarfirði í
hádeginu í dag. Tillagan verður borin
undir atkvæði á bæjarstjórnarfundi
á þriöjudag og gegnir Magnús Jón
störfum bæjarstjóra fram að því.
Líklegt er að oddvitar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags sendi
kæru til félagsmálaráðuneytisins í
dag vegna viðskipta bæjarstjórnar-
meirihluta Alþýðuflokks og Hag-
virkis-Kletts.
Þrjú slys á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Guðmundur J. Guðmundsson, lormaður Dagsbrúnar, er ábúðarfullur þar sem hann skoðar i pokann sinn á fundi
hjá vinnuveitendum með félögum sínum úr Flóabandalaginu i gær. Þar kynntu þeir kröfur félaga sinna i kom-
andi kjarasamningum. Fyrr um daginn höfðu verslunarmenn kynnt sínar kröfur. Sjá fréttaljós bls. 5. DV-mynd ÞÖK
Vinnuslys varð á athafnasvæði
flutningafyrirtækisins Dreka á Ak-
ureyri í gær er maður sem var að
vinna á þaki flutningabifreiðar féll
af henni. Falhð var um 4 metrar og
maðurinn úlnliðsbrotnaði.
Þá urðu tvær stúlkur fyrir bifreiö-
um á Akureyri í gær.
Veðrið á morgun:
Víða létt-
skýjað
Á morgun verður vestan- og
suðvestankaldi og él um vestan-
vert landið en víða léttskýjað um
austanvert landiö.
Hiti verður á bihnu -5 til 1 stig,
kaldast norðvestanlands.
Veðrið 1 dag er á bls. 36
I Brook
I (rompton
13333131
RAFMOTORAR
Hhm/xpii
SuAurtandsbraut 10. 8. 686499.
í
5
4