Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1995, Side 24
24
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1995
"Sviðsljós
Knrt Russell í
góðum málum
Kurt Russell gerir þaö gott þessa
dagana. Hann leikur í myndinni
Stjörnuhliðinu sem Regnboginn er
aö sýna og nýverið undirritaði hann
samning við Warner Bros. kvik-
myndafélagið um að koma fram í
hasarmyndinni Executive Decision.
Heimildarmenn herma að stráksi fái
hvorki meira né minna en hálfan
milljarð króna fyrir snúð sinn, að-
eins meira en hann fékk fyrir
Stjörnuhliðið.
Myndatökur heijast í vor en ekki
hefur enn verið ráðinn leikstjóri til
verksins. Handritið var upphaflega
skrifaf af bræðrunum Jim og John
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
9 9 • 1 7 • 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
Dregið daglega og
stjörnumáltíð fyrir tvo frá
McDonald's fyrir þá heppnu!
Munið að svörin við
spurningunum er að fmna í
blaðaukanum DV-helgin
sem fylgdi DV síðasta
fóstudag.
Sími 99-1750
Verð kr. 39,90 mínútan
Dregið daglega og
gjafakort með uttekt á
þrem myndbands-
spólum frá Bónus-
vídeó fyrir þá heppnu!
spununguni
finna í maði
Munið að svörin við
inum er að
laðauka DV
um dagskrá, mynd-
bönd og kvikmyndir
sem fylgdi DV síðasta
fimmt
immtudag.
BÖNUSViDEÖ
Nýbýlavegl 16
siml 564-4733
Opið virka daga frá 10-23.30 -
L laugard. og sunnud. frá 12 - 23.30 Á
Thomas og hefur það verið að þvæl-
ast milh manna í fjöldamörg ár, sjálf-
sagt með tilheyrandi breytingum.
Kurt Russell á að fara með hlut-
verk leyniþjónustumanns sem flæk-
ist fyrir hryðjuverkamönnum í leik
og starfi.
Aðrar þekktar myndir sem Kurt
Russell hefur leikið í eru vestrinn
Tombstone og hasarmyndin Tango
og Cash.
Ameriski kvikmyndaleikarinn Kurt Russell brá sér
mat hjá þeim starfsbræðrum sínum Stallone, Willis og
London. Hann notaði tækifærið til að kynna Stjörnuhliðið og leikmuni úr
Símamynd Reuter
Schwarzenegger í Planet Hollywood
myndinni.
Richard
Dreyfuss
slapp með
Kvikmyndaleikarinn Richard
Dreyfuss slapp með skrekkinn á
sunnudag þegar hann lenti i bíl-
slysi í Los Angeles. Hann var
fluttur á sjúkrahús en við rann-
sókn kom í ljós að hann hafði
ekki hlotið nein meiðsli. Hann
hafði hins vegar kvartað um
verki í brjósti og maga.
Dreyfuss var aleinn í Lexus
glæsihifreið sinni þegar hann ók
á Ijósastaur. Hann var með bíl-
beltið spennt og líknarbelgurinn
í bilnum blés út eins og vera ber
við svona aöstæður.
Richard Dreyfuss fæddist í New
York fyrir 47 árum. Hann hóf
leiklistarferil sinn á sviði en kom
fyrst fram í kvikmynd árið 1968.
Hann fékk svo óskarsverðlaun
fyrir frammistöðuna í myndinni
Goodbye Girl árið 1977.
Richard Dreyfuss hafði heppnina
með sér.
Til að forðast allan misskilning skal það tekið fram aö nakti maðurinn á
myndinni er ekki skiðaáhugamaðurinn Karl Bretaprins. Heldur er hér á
ferðinni ónafngreindur heitfengur Rúmeni sem fór allsnakinn niður brekk-
urnar í Poiana Brasov á skíðum í vikunni í fjórtán stiga gaddi. Simamynd Reuter
Símtal frá
Billy Crystal
Billy Crystal er manna kurteis-
astur. Hann gerði sér lítið fyrir
um daginn og hringdi i David
Letterman, spaugara og sjón-
varpshetju, til að óska honum
velgengni við óskarskynninguna
í mars. Bíily hefur sjálfur marg-
oft kynnt þessa miklu seremóníu.
Kappinn ætlar ekki að koma á
hátíðina nú, ekki fyrr en hann
verður útnefndur eða fenginn til
að kynna á ný.
Roseanne er
í rúminu
Sjónvarpsstjarnan þéttholda,
Roseanne, er kona ekki einsöm-
ul, eins og komið hefur fram í
fréttum. Því miður verðum við
að skýra frá því að ekki gengur
allt sem skyldi þar sem læknar
Roseanne hafa fyrirskipað henni
að hggja fyrir í rúminu. Það getur
hins vegar verið erfitt fyrir vin-
sæla leikkonu með eigin sjón-
varpsþátt. En Roseanne deyr ekki
ráðalaus. Hún ætlar bara að taka
þáttinn upp í rúminu.
Tjaldmaður
fyrir Juliu
Julia Roberts og Tim Robbins
þóttu standa sig svo rosalega vel
saman I nýjustu mynd Roberts
Altmans að kvikmyndajöfrar
keppast nú við að fá þau til að
leiða saman hesta sína á nýjan
leik. Meðal annars er Universal
að reyna að fá þau til að vera í
gamanmynd um mann sem falsar
eigin dauða í sviksamlegum til-
gangi og rannsóknarkonu frá
tryggingarfélaginu.
Nýjar stúlkur
fyrir Bond
Pierce Brosnan, öðru nafni of-
urspæjarirm James Bond, á von
á góðum liösauka í nýju mynd-
ina, Gullauga, þar sem eru leik-
konumar Izabella Scorupco og
Famke Janssen. Þær eiga að leika
hinar svokölluðu Bond-stúlkur,
sem ýmist eru vinveittar eða
óvinveittar, en eiga allar sameig-
inlegt að vera miklar þokkadísír.
Og flestar þeirra enda nú í bæhnu
hjá James.