Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1995, Side 32
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA OG
ÁSKRIFT ER OPIN;
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN
AFGREIÐSLU: 563 2777
Kl 6 81ALGARDAGS Ofi MANUDAGSMORGNA
MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1995.
i
Þök af tveimur húsum, sem eyðilögðust í snjóflóðinu í Súðavík, eins og samloka hvort ofan á öðru en innan um er allt í braki. Þökin eru við Aðalgötu en
þau höfðu færst 150-200 metra leið. Til að gefa hugmynd um fannfergið er fjögurra metra snjólag ofan á götunni. Hægra megin á myndinni glittir í pósthúsið
í Súðavik. DV-mynd Halldór Sveinbjörnsson
Kríslján An Arason, DV, Isafiröi:
„Eg á ekki von á því að allir
Súðvíkingar snúi til baka eftir að
hættuástandi hefur verið aflýst.
Sársaukinn er mikill og margir
misstu allt sitt í flóðinu. Það verð-
ur aldrei aftur byggt á þeim stað
sem flóöiö féll,“ segir Jónbjðrn
Björnsson, xbúi í Súðavík.
Jónbjörn var staddur heima hjá
sér þegar honum barst vitneskja
um að snjóflóð hefði fallið á hús
í þorpinu. Hann fór strax á stað-
imr og byrjaði björgunaraðgerðir
ásamt öðrum íbúum staðarins.
Fljótlega barst aðstoð frá ísafirði
og í kjölfar þess voru allflestir
íbúar Súðavíkur fluttir í frysti-
húsið og þaðan til isafjarðar.
Gífurleg sorg ríkir nú meðal
Súðv íkinga
Aldrei fleiri íbúar þurft að yfirgefa heimili síðan í Vestmannaeyjagosi:
Líklegt að um þúsund haf i
yf irgef ið heimili sín
Almannavamir ríkisins segja að ástandið geti enn versnað
„Þaö ástand sem sett var á á mánu-
dag er viðvarandi. Vegna þeirrar
vindáttar sem er þá hafa Almanna-
varnir ríkisins haft sérstakan vara á
varðandi Patreksfjörö og Flateyri.
Við erum með sólarhringsvakt og
miðað við veðurspá má búast við að
vindátt snúist í dag sem getur aukið
enn á hættuna á norðanverðum Vest-
íjörðum, það er ísafirði, Bolungarvík
og Flateyri," sagði Jóhannes Reyk-
dal, upplýsingafulltrúi Almanna-
varna ríkisins.
Öllu fleiri íbúar á Vestíjöröum
þurftu að færa sig um set í gærdag
vegna snjóflóða og snjóflóðahættu en
þegar höfðu flutt sig til. Gífurleg
snjósöfnun hefur átt sér stað frá því
um helgina þegar veðurofsinn gerði
fyrst vart vdð sig. Á ísafirði og víðar
á Vestfjörðum hafa íbúar utan yflr-
'lýstra hættusvæða yfirgefið heimili
Hvít ógn yfir Vestfjörðum
Hateyrl:
29 hús rýmd.
Snjóflöö féll skammt
fyrir innan þorpiö í gær ^
ogolli rafmagnsleysi. VJ
5
o
o
o
Núpur:
Gamla íbúöarhúsiö é Núpi hrynur
til grunna þegar, aö því aö taliö er,
vindhnútur skellur á þvl.
o
o
Bolungarvík:
50 hús og íbúöir rýmdar.
ísafjöröur:
16 hús og íbúðir rýmdar.
Tvó snjóflóö féllu á Skutulsfjaröarbraut
á mánudagskvöld og þriöjudagsmorgun.
Þriöja flóöiö féll í gærdag é veginn milli
ísafjaröar og Hnífsdals.
Súöavík:
Þrjú snjóflóö féllu á þorpiö é mánudag.
Kjarni þess er í rúst, 14 eru látnir
og hafa nær allir Súövíkingar yfirgefiö þorpiö.
Bildudalur: Drangsnes:
11 hús rýmd. 7 hús rýmd.
Patreksfjöröur:
110 hús og (búöir rýmdar.
Athafnalíf í liggur niöri aö mestu
líkt og víöast hvar annars staöar
á Vestfjörðum.
PVl
sín af ótta vdð snjóflóð og hefur því
fjölgað í hópi þeirra 800 Vestflrðinga
sem þegar höfðu flutt sig á öruggari
stað í gær.
Langflestir hafa þurft að færa sig
til á Patreksfirði eða hátt í þrjú
hundruð íbúar úr rúmlega hundrað
húsum og íbúðum. í Súðavík, þar
sem snjóflóðin féllu í fyrradag, hafa
næstum allir 230 íbúa farið frá heim-
ilum sínum. Þá hafa um 200 manns
leitað skjóls hjá vdnum og ættingjum
í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu
en 50 íbúðir og hús hafa verið rýmd
þar. Níu hús til viðbótar þeim 20 sem
þegar höfðu verið yíirgefin í gær
voru rýmd á Flateyri í gær en mikill
snjór hefur safnast fyrir í Eyrar-
fjalli. Er þar um hátt í hundrað íbúa
að ræða. Á ísafirði hafa 16 hús og
íbúðir verið rýmd að kröfu almanna-
varnanefndar. Þá hafa um 80 íbúar
yfirgefið 34 hús á Bíldudal og 16 íbú-
ar 7 hús á Drangsnesi.
Ástandið metið í dag
Víða ætluðu almannavarnanefndir
þeirra staða sem hér eru nefndir að
hittast í morgunsárið eða um hádegi
til að endurmeta hættuástand á þeim
stöðum sem hér hafa verið taldir upp
en ólíklegt má telja að breyting verði
til batnaðar hvað snjóflóðahættu
varðar ef mið er tekið af veðurspám.
Jóhannes sagði vdð DV í morgun
að líklega hefðu um eitt þúsund íbúar
á Vestfjörðum þurft að yfirgefa heim-
ili sín vegna yfirvofandi snjóflóða-
hættu. Sagði hann að jafnmargir
hefðu ek’ki þurft að fara frá heimilum
sínum síðan í Vestmannaeyjagosinu
árið 1973. -pp/rt
LOKI
Landssöfnunerhafin:
Nú má enginn bregðast!
Veðrið á morgun:
Hvassviðri
og
snjókoma
Á morgun verður norðlæg átt
vestanlands, víða hvassvdðri og
snjókoma norðvestanlands en
kaldi eöa stinningskaldi og él suð-
vestan til. Austanlands verður
suðaustan kaldi eða stinnings-
kaldi og él. Frost 0 til 8 stig, mild-
ast suðaustanlands.
Veðrið í dag er á bls. 28
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Poufxfffl
Suðuriandsbraut 10. S. 688499.
K I N G A
L#TT#
alltaf á
Miðvikudögnm
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4