Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
Fréttir
Persónukosningamar hafa blómstrað þverpólitískt síðustu vikur:
Sveitungar standa saman
án tillits til f lokksbanda
líklegt að þetta sé reyndin, segir Svanur Kristjánsson stjórnmálafræðingur
Stuðningsmenn stjómmálaflokk-
anna virðast greiða atkvæði þver-
pólitískt í prófkjörum flokkanna í
auknum mæli. Þannig hafa borist
fregnir af því að framsóknarmenn
og alþýðubandalagsmenn í Kópavogi
hafi stutt sveitunga sinn, Rannveigu
Guðmundsdóttur félagsmálaráð-
herra, í fyrsta sæti á hsta Alþýðu-
flokksins í Reykjanesi um síðustu
helgi. Grindvíkingar fjölmenntu í
prófkjör krata í Reykjanesi til að
styðja Petrínu Baldursdóttur alþing-
ismann og framsóknarmenn og sjálf-
stæðismenn á Norðurlandi vestra
bundust samtökum um að koma
ákveðnum frambjóðendum að um
miðjan janúar.
„í prófkjöri Alþýðuflokksins í
Reykjanesi vom átökin milli Hafn-
firðinga og Kópavogsbúa auðvitað
sérstaklega áberandi. Hér í Grinda-
vík kusu margir í prófkjöri Alþýðu-
flokksins til að styðja okkar fulltrúa,
Petrínu Baldursdóttir. Ég hef tekið
eftir því að fólk vill hafa áhrif á það
hvernig framboðslistar eru skipaðir
án tillits til flokka, sérstaklega yngra
fólkið. Það kýs fyrst persónukosn-
ingu og kýs svo flokk. Þetta endur-
speglar óneitanlega þörfina á breyttu
kosningafyrirkomulagi," segir Krist-
mundur Ásmundsson, oddviti Al-
þýðuflokksins í Grindavík.
Siglfirðingar
studdu sinn mann
Fullyrt var í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi vestra fyrir
nokkru að Vilhjálmur Egilsson al-
þingismaður hefði veriö látinn gjalda
fyrir ESB-málin og hafi framsóknar-
menn í Húnavatnssýslum mætt í
prófkjörið í stórum stíl til að kjósa
séra Hjálmar Jónsson í fyrsta sætið.
Þá voru stuðningsmenn Vilhjálms
sakaðir um að hafa leitað til óháðra,
yflrlýstra stuðningsmanna F-hstans.
Eftir talningu í prófkjöri Fram-
sóknarflokksins á Noröurlandi
vestra um miöjan janúar var rætt
um að stuðningsmenn Páls Péturs-
sonar alþingismanns bundist sam-
tökum um að kjósa ekki Stefán Guð-
mundsson og hafi skipting atkvæða
farið nákvæmlega eftir svæðum.
Stefán hafi átt stuðning í Skagaflrði
og Sauöárkróki og Páll í Húnavatns-
sýslum og á Siglufirði.
Þegar raða átti á framboðshsta í
Alþýðubandalaginu á Norðurlandi
vestra fyrir nokkru kom krafa frá
alþýðubandalagskonu á Sauðárkróki
um að fá annað sætið og var gerð
tillaga um það í uppstihingarnefnd
en Siglfirðingar hafa gjarnan haft
fuhtrúa sinn í þessu sæti. Þegar Sigl-
firðingar stóðu frammi fyrir því að
geta haft áhrif á það hver skipaði
sætið fjölgaði verulega í Alþýðu-
bandalaginu á Siglufirði.
Ekkert nýtt
„Mér hefur ahtaf virst vera dáhtið
um að menn horfi á hverjir eru lík-
legastir til að vinna vel fyrir byggðar-
lagið burtséð frá flokkapóhtík. Mér
er þetta ahs ekki nýtt en það er
kannski farið að bera meira á því að
fólk horfir á þetta um leið og það
horfir á flokkana," segir Björn Valdi-
marsson, bæjarstjóri á Siglufirði.
Og á Vestfjörðum sökuðu stuðn-
ingsmenn Péturs Bjamasonar
fræðslustjóra stuðningsmenn Gunn-
laugs Sigmundssonar um að hafa
smalað meðal stuðningsmanna ann-
arra flokka í prófkjöri Framsóknar-
flokksins fyrir áramót.
„Árið 1978 tóku 11 þúsund manns
þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins
í Reykjavík, á Vesturlandi og Norð-
urlandi vestra en flokkurinn fékk
innan við 8.000 atkvæði í kosningun-
um. Það er ólíklegt og reyndar úthok-
að annað en að fólk úr öðrum flokk-
um hafi tekið þátt í prófkjörinu.
Manni sýnist líklegt að þetta sé
reyndin núna hjá Framsóknar-
flokknum á Norðurlandi vestra og
Alþýðuflokknum á Reykjanesi en
maður verður að bíða eftir kosning-
unum th að sjá hvað þetta er um-
fangsmikið," segir Svanur Kristjáns-
son stjórnmálafræðingur.
Elísabet Ásdís ásamt foreldrum sínum. DV-mynd Guðfinnur
Átvær ömmur
sembáðar
erulOOára
Guðfinnur Finribogason, DV, Hólmavik:
Elísabet Ásdís heitir hth stúlka sem
fæddist 13. maí 1994. Foreldrar henn-
ar eru Kristján Garðarsson og Her-
dís Rósa Reynisdóttir, ábúendur í
Skálavík í Norður-ísaflarðarsýslu.
Elísabet Ásdís er án vafa eini ís-
lendingurinn sem á tvær ömmur sem
báðar áttu 100 ára afmæli á síðasta
ári. Önnur er langamma hennar en
hin langalangamma og ef th vill hef-
ur þetta ekki áður gerst hér á landi,
hver veit?
Kristín Petrea Sveinsdóttir, amma
Herdísar Rósu, bjó lengi í Neðri-
Gufudal í Austur-Barðastrandar-
sýslu. Hún varð 100 ára 24. ágúst sl.
Hólmfríður Þóra Guðjónsdóttir,
langamma Kristjáns, fyrrum hús-
móðir í Ármúla í Önundarfiröi, varð
100 ára 21. sept. sl.
Oháður Ogmundur
Fyrir nokkrum árum kusu opin-
berir starfsmenn sér nýjan for-
mann í BSRB. Sá heitir Ögmundur
Jónasson og var lengi fréttamaður
á sjónvarpi. Ögmundur hefur sjáif-
sagt verið kosinn formaður út á
andhtið, enda verða menn þekktir
í þjóðfélaginu þegar þeir sjást á
skerminum og gildir þá einu hvort
eða hvað þeir segja af viti. Eflaust
hefur Ögmundur virt reglur hins
hlutlausa og óháða fréttamanns í
starfi sínu á sjónvarpinu og sá eig-
inleiki hefur gert hann aðlaðandi
og eftirsóttan sem formann í BSRB.
Þar þurfa menn hlutlausa og óháöa
menn.
Síðan þá hefur Ögmundur verið
beinskeyttur talsmaður opinberra
starfsmanna og allra þeirra sem
eiga um sárt að binda og raunar
hefur hann gengið svo vasklega
fram í þessu hlutverki sínu að
hlustendur og áheyrendur hafa
fyllst samúð með þessum manni
sem borið hefur allar heimsins
byrðar á bakinu. Hann má ekkert
aumt sjá, hann má ekki heyra
minnst á stjómvöld og alls ekki á
peninga öðruvísi en að fjargviðrast
út af því og mótmæla því sem fyrir
ber í samfélaginu.
Segja má með sanni að Ögmund-
ur hafi verið hlutlaus og óháður í
öllum sínum málflutningi og sjálf-
um sér samkvæmur að því leyti að
hann er á móti öllu sem til fram-
fara horfir.
Þessi málatilbúnaður formanns
BSRB hefur vakið slíka hrifningu
annarra óháðra þegna þessa lands
aö þeir hafa nú lagst á eitt um að
fá Ógmund þennan á þing.
Niðurstaðan hefur orðið sú að
Ögmundur lætur tiheiðast og hefur
fengið Alþýðubandalagið í liö með
sér. Allaballar ætla að styðja lista
óháðra í Reykjavík í komandi
kosningum. Það er vegna þess að
alþýðubandalagsfólk vill í rauninni
vera óháð og vill gjarnan losna við
þann stimpil að það hafi skoöanir
sem eru háðar skoðunum flokksins
eða þeirra sem innan hans starfa.
Að því er varðar framboð Ög-
mundar Jónassonar á lista Alþýðu-
bandalagsins er það óháð því að
Alþýðubandalagið bjóði fram. Al-
þýöubandalagið er bara til uppfyll-
ingar fyrir Ögmund af því að ekki
fengust nógu margir á lista óháðra
th að þeir geti verið einir í fram-
boði og til að undirstrika sjálfstæði
sitt og hlutleysi verður Ögmundur
óháður í þessum kosningum þótt
Alþýðubandalagið sé með honum á
hsta. Það má enginn rugla því sam-
an.
í raun og veru hefur Alþýðu-
bandalagið hætt við framboö í
Reykjavík en hefur þess í stað
ákveðið að taka upp óháða stefnu
í höfuðborginni til að geta stutt
Ögmund á þing!
Það að vera óháður þýðir að
menn eru ekki háðir neinum og
heldur ekki listanum sem þeir eru
á og sennilega ekki því að vera í
forystu BSRB og alls ekki háður
þeim sem eru óháðir að öðru leyti.
Ögmundur er og verður óháöur,
svo það mun örugglega ekki há
honum þótt hann sé á lista með
Alþýðubandaiaginu og öðrum,
vegna þess að hann vill ekki bind-
ast neinum flokki.
Með því að fá Alþýðubandalagið
með sér á hsta er Ögmundur að
leggja áherslu á að hann sé óháð-
ur, algjörlega óháður, flokkum og
stefnum og öllu því jákvæða sem
til framfara horfir í þjóðfélaginu,
af því að hann er óháður og getur
þess vegna ekki veriö háöur því.
Ef maður verður háður peningum
og breytingum og íhaldinu er hætta
fram undan og Ögmundur hefur
gætt þess vel að vera óháður í við-
horfum sínum og býður sig fram á
hsta með Alþýðubandalaginu, sem
hefur einn flokka sérstakan skiln-
ing á því að Ögmundur verður að
vera óháður.
Þetta verður sterkt framboð og
sterkur þingflokkur með Ögmund
og aha allaballana sem styöja
óháða þingmenn og Alþýðubanda-
lagið mun hér eftir verða óháður
stjórnmálaflokkur til að Ögmund-
ur nái sem mestum frama fyrir
hönd opinberra starfsmanna, sem
hljóta aö fagna því mjög hvað Ög-
mundur er óháður á lista Alþýðu-
bandalagsins. Opinberir starfs-
menn eru í eðli sinu óháðir upp til
hópa og hljóta þess vegna að geta
stutt framboðslista Ögmundar og
Alþýðubandalagsins til aö vinna
óháðri pólitík brautargengi. Óháð
hugsjón er á framtíðarbraut.
Dagfari