Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
Hugh Grant, leikarinn vinsæli, sést hér mæta til Golden Globe kvikmyndaverðlaunaafhend-
ingarinnar um síðustu helgi. Konan glæsilega sem er honum við hlið heitir Elizabeth Hurley en
hún er leikkona. Pau kynntust við töku myndar árið 1987 og hafa búið saman síðan. Grant var
valinn besti gamanleikari síðasta árs fyrir hlutverk sitt í myndinni Fjögur brúðkaup og jarðarför.
Diskótröllið John Travolta, sem flestir héldu að væri búinn að vera sem leikari, kom mönnum
heldur betur á óvart á síðasta ári þegar hann sýndi stórgóðan leik í myndinni Pulp Fiction. Hann
hlaut Golden Globe tilnefningu sem besti leikarinn um síðustu helgi. Kona hans heitir Kelly
Preston. Símamyndir Reuter
Uppskeruhátíð Holly-
wood-stjarna hafin
Golden Globe kvikmyndaverð-
launin voru veitt um síðustu helgi.
Það þykir jafnan mikill heiður að
hljóta þessi verðlaun en þau koma
næst óskarsverðlaununum á virð-
ingarmælikvarðanum. Þau þykja
líka vera góður mælikvarði á hver
hlýtur óskarsverðlaunin í hverjum
verðlaunaflokki ár hvert. Það eru
Samtök erlendra fréttamanna í
Bandaríkjunum sem standa að
verlaunaafhendingunni. Óskars-
verðlaunin verða veitt í mars.
Sú mynd sem bar sigur úr býtum
að þessu sinni var ótvirætt Forrest
Gump en hún fékk langflestar til-
nefningar og verðlaun. Hún var val-
in besta myndin, Tom Hanks besti
leikarinn og Robert Zemeckis besti
leikstjórinn. Quentin Tarrantino
fékk verðlaun fyrir besta handritið í
myndinni Pulp Fiction, Jessica
Lange fyrir bestan leik kvenna í
aðalhlutverki og Dianne West fyrir
bestan leik í aukahlutverki. Breski
leikarinn Hugh Grant fékk verðlaun
sem besti gamanleikarinn og Jamie
Lee Curtis var talin besta gam-
anleikkonan fyrir frammistöðuna í
myndinni Sannar lygar
í flokki gamanmynda og söng-
leikja hreppti teiknimyndin Kon-
ungur dýranna verðlaunin.
Reuter
Hún heldur sér alltaf vel, gamla kynbomban hún Sophia Loren.
Hún smellti kossi í átt til Ijósmyndara eftir að hafa fengið Cecil
B. DeMille verðlaunin fyrir frábært framiag til kvikmyndanna
og skemmtiiðnaðarins í gegnum árin á Golden Globe
verðlaunaafhendingunni um síðustu helgi.
Tom Hanks er óumdeildur kóngur í leikarastéttinni í Hollywood
um þessar mundir. Hann var valinn besti leikarinn á Golden
Globe hátíðinni fyrir hlutverk sitt í Forrest Gump og þykir mjög
líklegur til að hreppa óskarsverðlaunin Ifka, annað árið í röð.
i—rm—r~r
Leikkonan Jessica Lange var valin besta leikkonan fyrir
hlutverk sitt í myndinni Blue Sky. Hún hefur oft verið tilnefnd
til óskarsverðlauna en aðeins einu sinni hiotið þau. Það var
fyrir aukahlutverk í Tootsie.