Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995
39
Hann flutti mörg þúsund ára kínverska laeknisfræði til íslands:
Fjölskylduleyndarmálið
varðveitist í mér
- segir Jia Chang Wen sem hefur hjálpað mörgum íslendingum að losna við verki - forfeður hans eru allir þekktir læknar í Kína
„Fjölskylda mín er þekkt lækna-
fjölskylda í Kína og hefur varðveitt
flölskylduleyndarmál varöandi
lækningaaðferðir mann fram af
manni. Afi minn var einn þekktasti
læknir í Norður-Kína og móðir mín
hefur verið um áratugaskeið einn
þekktasti nálastungu- og jurtalæknir
í Kina. Hún varð að gefa út opinbera
yfirlýsingu þegar hún hætti störfum
vegna þess hversu mikið var leitað
til hennar en hún er nú á áttræðis-
aldri. Alla þá tækni sem forfeður
mínir hafa notað hef ég flutt með
mér hingað,“ segir Jia Chang Wen
sem margir þekkja sem kínverska
nuddarann á Skólavörðustígnum.
Jia Chang hefur hjálpað allmörgum
íslendingum sem þjást af vöðva-
bólgu, mígreni, bijósklosi, bakverkj-
um og verkjum í hálsi og hrygg. Auk
þess hafa fjölmargir hætt aö reykja
hjá honum og má sjá þess glöggt vitni
þegar komið er inn á stofuna til hans
því reykingamennimir skilja pakk-
ana sína eftir í körfu hjá honum.
Eftirspum hefur auk-
ist
Óhefðbundnar lækningaaðferðir
hafa verið að ryðja sér til rúms hér
á landi sem annars staðar í heimin-
um. Nálastunguaðferð er löngu kunn
og hefur reynst mörgum vel. Jia
Chang var bam að aldri er hann
byrjaði að aðstoða móður sína á
læknastofu hennar. Hann var því
ungur þegar hann læröi þessa sér-
grein Kínveija. „Ég prófaði nálarnar
á sjálfum mér og lærði þannig að
þekkja hvemig þær höföu áhrif á
hina ýmsa líkamsparta. Ég sat stund-
um tímunum saman og stakk mig
meö nálum þannig aö jafnvel móður
minni þótti nóg um,“ útskýrir Jia
Chang.
Það kom aldrei annað til greina en
að Jia Chang yrði læknir eins og for-
feður hans og því lá leið hans í lækn-
isfræði í háskóla. Hann stundaði kín-
verska læknisfræði í einum frægasta
læknaskóla í Asíu. Auk hinnar hefð-
bundnu læknisfræði lagði hann
stund á íþróttameiðsl sem sérgrein.
Þá stundaöi hann um tveggja ára
skeið nám í svokallaðri heimspeki
líkamans og nálastungum, sem er
óijúfanlegur hluti kínversku læknis-
fræðinnar, en Jia Chang getur lesið
úr andliti og líkama fólks hvað þjáir
það. Vegna þess hafa margir íslend-
ingar, sem til hans hafa leitað, talið
hann skyggnan. Jia Chang leggur
mikla áherslu á að svo sé ekki heldur
sé hér um ákveðna læknisfræði að
ræða sem þekkt er í Kína. „Þetta eru
mörg þúsund ára fræði."
Þjálfaói
blaklandsliðið
Jia Chang kom til íslands árið 1986
til aö þjálfa íslenska landsliðiö í blaki
og einnig starfaði hann hjá nokkrum
íþróttafélögum. Jia hefur þjálfað um
tvö hundruð íslenska blakmenn.
Hann hafði sjálfur verið atvinnu-
maður með kínverska blaklandshð-
inu í flmm ár og ferðast mikið um
heiminn með því. Einnig haföi hann
starfað um tveggja ára skeið sem
þjálfari. Jia þótti afburðasnjall
íþróttamaöur í heimalandi sínu. Þeg-
ar honum bauðst að koma til íslands
langaði hann aö prófa það í stuttan
tíma en sá tími hefur nú orðið að níu
árum. „Ég ætlaði fyrst aö vera hér í
þrjá mánuði en var beöinn að vera
lengur og sá tími lengdist stöðugt.
Það leiö ár og síðan annað og þannig
koll af kolli,“ útskýrir hann. „Mér
fannst ekki taka því að læra íslensku
þar sem ég ætlaði aldrei að vera hér
nema um tíma,“ heldur hann áfram.
Þrátt fyrir margra ára dvöl talar Jia
Chang lítið í íslenskunni en hefur
hug á að bæta úr því.
Giftist íslenskri konu
Fyrir flórum árum kynntist hann
eighikonu sinni, Rannveigu Hall-
varðsdóttur, á nokkuð skondinn
hátt. Hún var að koma meö dóttur
sína í meðferð vegna tognunar 1
hálsi. Rannveig var þá fráskilin
þriggja bama móðir. Það er skemmst
frá því að segja að hann gat hjálpað
baminu og þau Rannveig féllu hvort
fyrir öðru, eru gift í dag og hafa eign-
ast Önnu sem er fimmtán mánaða.
Fyrir átti Rannveig dótturina Rann-
veigu, sem er 17 ára, Egil, 13 ára, og
Ásmund, 6 ára.
„Nú fer ég varla nokkurn tíma aft-
ur frá íslandi," segir Jia og lítur bros-
andi í áttina til Rannveigar. Hún seg-
ir að hann sé mjög sáttur við ísland,
sérstaklega veðrið enda sé óheyri-
lega heitt á heimaslóðum hans á
sumrin og mjög kalt á vetrum.
Sterk fjölskyldubönd
Þar sem Jia Chang er eini sonur
foreldra sinna, hann á fjórar systur,
þótti móðurinni það leiðinlegt að
missa hann til svo fjarlægs lands.
En í hverri viku hefur flölskyldan
samband símleiðis og systir Jia er
nýfarin héðan eftir nokkurra mán-
aða dvöl. Fjölskyldan býr um hundr-
að kílómetra frá Peking. „Fjölskyldu-
sambandið er óvenjulega sterkt.
Móðir Jia og systur búa allar í sama
húsinu og það er ekkert gert í flöl-
skyldunni nema allir hafi samþykkt
það,“ segir Rannveig og bætir því við
að Jia hafi verið flölskyldu hennar
alveg sérstaklega góður. „Hann er
alinn upp við að bera virðingu fyrir
flölskyldu sinni og eldra fólki og það
á alveg eins við hér og í Kína. Hann
færir móður minni stundum mat eða
léttir undir með henni á annan hátt.
Þó að flölskyldu minni hafi verið
hálfbrugðið í fyrstu þegar hún vissi
um samband okkar þá breyttist það
mjög fljótt eftir að hún kynntist Jia
Chang. Það heiUast alhr af honum,“
segir Rannveig. Þau Rannveig hafa
ekki farið til Kína ennþá en langar
til þess þegar tækifæri gefst. Hins
vegar fór Jia Chang þangaö fyrir
tveimur og hálfu ári eftir að hann
varð íslenskur ríkisborgari en þá
hafði hann ekki komið heim til sín í
flögur ár.
„Það er ákaflega sérstakt hversu
sterk fiölskylduböndin eru og til
marks um það þá helst öll þekking í
fiölskyldum. Ef móðir Jia segir hon-
um frá einhveiju leyndarmáli í
læknisfræði tekur hún af honum lof-
orð um að hann segi aldrei neinum
það utan flölskyldunnar. Engum
myndi detta í hug að svíkja slíkt lof-
orð - það er alveg heilagt að halda
flölskylduleyndarmálin," segir
Rannveig.
Árið 1991 langaði Jia Chang aö
stunda fag sitt hér á landi og opnaði
htla stofu á Vesturgötu. Það spurðist
fljótt út hvað hann væri að gera og
umsvifin jukust. Hann hefur hins
vegar ekki fengið viðurkenningu
sem læknir. „Þeir taka ekki mark á
kínversku læknaprófi,“ segir Jia
Chang. „Þetta er einhvers konar
vandamál á milli austurs og vesturs.
Þeir eru kurteisir og segjast trúa mér
en geta ekki viðurkennt mig,“ bætir
hann við. Þá sótti hann um að fá við-
urkenningu sem sjúkranuddari en
það hefur ekki tekist. Jia Chang
verður því að kaha starf sitt kín-
verskar náttúrulækningar.
Hjálpar mörgum
„Ég hef hjálpað mörgum sem hafa
þjáðst lengi, t.d. af bakverkjum eða
höfuðkvölum,“ segir hann. „Einnig
hef ég getað hjálpað sumum bijósk-
lossjúkhngum og raunverulegt
þursabit get ég oftast læknað á tutt-
ugu th fiörutíu mínútum en stundum
þarf sjúkhngurinn að koma tvisvar.“
Jia Chang notar allan líkama sinn
þegar hann nuddar fólk. Hann notar
jafnt hendur, fætur, olnboga og axlir.
Auk þess notar hann jurtablöndur
sem hann kveikir í og setur síðan
logandi blöndima á sjúklingana. Jia
finnur ekkert fyrir því þó hann fari
meö finguma í logana en útskýrir
að þetta sé fom tækni úr hans eigin
fiölskyldu. Móðir hans hefur kennt
honum einum jurtablöndur sínar
sem hann nú notar á íslendinga.
Meðal þeirra eru jurtir ög nálastung-
ur sem gagnast vel getulausum karl-
mönnum.
Þrátt fyrir að Jia Chang geti hjálp-
að mörgum segist hann alls ekki vera
neinn kraftaverkamaður og margt
geti hann ahs ekki hjálpað með. „Eg
sendi fólk oft áfram th lækna þegar
ég sé hvað er að því,“ segir hann. „Þá
get ég ekkert gert fyrir þaö. Einnig
kemur fyrir að læknar vísa fólki tíl
mín. Hins vegar mætti þetta sam-
starf vera miklu meira og íslenskir
Rannveig varð mjög mikið veik á
meðgöngutímanum þegar mjaðma-
grind hennar gliðnaði með þeim
afleiðingum að hún þurfti að vera
spengd um sig miðja í nokkra mán-
uði. DV-myndir GVA
Nálarnar, sem Jia Chang notar, eru
af mörgum stærðum og gerðum.
Hann lærði nálastungur af móður
sinni sem er einn þekktasti grasa-
og nálastungulæknir í Kína.
læknar mættu syna startí mínu meiri
áhuga með því að kynna sér það.“
Margvíslegar nálar
Jia Chang vih alls ekki meina að
ahir séu jafnhæfir í nálastunguað-
ferðinni. Þetta sé aðferð sem menn
þurfa að hafa lært lengi og helst að
prófa á sjálfum sér th að finna áhrif-
in. „Mínar nálar eru af mörgum
stærðum, allt upp í þrettán sentí-
metrar. Þær eru notaðar eftir því
sem við á hveiju sinni.“
Jia Chang fær mikh viðbrögö frá
því fólki sem hann hefur hjálpað.
Fólkið hefur samband við hann eða
jafnvel sendir honum gjafir. Fyrir
stuttu var komið með bam th hans
sem hafði verið með 39 og 40 stiga
hita í tvær vikur án þess að nokkur
gæti ráðið viö það og m.a. legið á
sjúkrahúsi vegna þess. Jia Chang
tókst að gera bamið hitalaust með
nálastimgum og hann var ákaflega
glaður að geta hjálpað því.
Þá minnist hann manns sem hafði
verið með miklar bakkvalir í larigan
tíma án þess að fá nokkra þjálp.
Maðurinn kom inn og sagðist ætla
að prófa þessa aðferð .því það biði
hans hvort eð er ekkert nema upp-
skurður. Hann kom þrisvar th Jia
Chang og fékk bata. „Ég býst við að
ég geti hjálpað í 60% tilfeha af brjósk-
losi. Ég vh aldrei lofa fólki fyrirfram
bata en vh gjaman prófa,“ segir
hann.
Gatekkihjálpaö
eiginkonunni
Svo virðist sem íslendingar hafi
Uppgötvaö þessa nýju óhefðbundnu
lækningaaöferð hér á landi. Að
minnsta kosti er þéttsetinn bekkur-
inn hjá Jia Chang. „Ef ég get hjálpað
einhverjum þá lætur hann aðra vita
og þannig fréttist af mér. Stundum
kemur manneskja hingað inn sem
þjáist af mikihi þreytu en þá get ég
hjálpað bæði með nuddi og grösum
sem auka orkuna í líkamanum. Ef
einhver mjög erfið tilfelli koma upp
þá hringi ég gjarnan í móður mína
og ræði það við hana. Hún kann ráð
við öhu,“ segir Jia Chang.
Eins og áöur var getið getur Jia
alls ekki hjálpað öllum og þannig var
það einmitt með eiginkonu hans,
Rannveigu, sem veiktist mjög mikið
á meðgöngutímanum. Að vísu gat
hann hjálpað henni með morgunó-
gleði í upphafi meðgöngu með nálast-
ungum. Hins vegar varð Rannveig
fyrir því að hún fékk mjög slæmt
grindarlps frá tíundu viku með-
göngu. Á 33. viku var hún tekin í
aðgerð og mjaðmagrindin spengd
saman með hofímangrind sem hún
þurfti að vera meö í níu vikur. Bam-
ið fæddist sex vikum fyrir tímann
vegna þessa og Rannveig þurfti að
hggja í þijá mánuði á sjúkrahúsi.
Ehefu mánuðum síöar var mjaðma-
grindin spengd að innan og hún fékk
aftur hoffmangrindina í sjö vikur. „í
þessu tilfelli vora það vestrænu
læknavísindin ein sem gátu bjargað
og það var Hahdór Jónsson, yfir-
læknir á bæklunardeild Landspítal-
ans, sem bjargaði mér,“ segir Rann-
veig og undirstrikar þar með að
stundum eru það vestrænir læknar
sem einir geta bjargað og svo getur
það hka verið öfugt.
Góður kokkur
Rannveig hefur því verið mikill
sjúklingur frá því að hún varð ófrísk.
Vegna þessa hefur hún ekkert getað
gert frá því Anna litla fæddist og
heimihsverkin hafa að mestu komið
niður á Jia Chang og heimhishjálp
sem þau hafa. „Það hefur verið gam-
an að fylgjast með hversu vel þau
feðginin ná saman. Vegna þess að ég
hef algjörlega verið rúmhggjandi og
ekki einu sinni mátt halda á henni
eru þau mjög náin. Annars er Jia
algjör hstakokkur og hefur ekki haft
mikið fyrir að hjálpa við eldhússtörf-
in. Hann býr til alveg frábæran mat
og sérstaklega er gaman að fylgjast
meö hvemig hann notar grænmeti,“
segir Rannveig sem er nú á batavegi
eftir þessi erfiðu veikindi.
„í fiölskyldu Jia þótti ahs ekki við
hæfi að karlmenn elduðu mat og því
var það ekki fyrr en hann kom hing-
að th lands sem hann byijaði í elda-
mennskunni. Hann vann meira að
segja um tíma í veitingahúsinu
Asíu,“ bætir hún við.
„Ég hef lært mikiö um samsetn-
ingu fæðunnar og hvernig maður
varðveitir best vítamínin úr henni. í
Kína lærði ég hvernig maður á að
blanda saman matnum, t.d. varðandi
fituinnihald og þess háttar. Ég hef
haft mjög gaman af að stúdera þetta.
Margir sem koma hingaö spyija mig
og biðja um ráðleggingar varðandi
mataræði," segir Jia.
Tveir aðstoðarmenn
Ástæða þess að Jia opnaði sína eig-
in nuddstofu á íslandi var sú að eftir
aö hann hætti aö þjálfa leituöu marg-
ir, sem um hann vissu, th hans með
Með nálastunguaðferðinni hefur Jia Chang hjálpað mörgum að hætta að
reykja. En þegar hann nuddar fólk notar hann allan líkamann, jafnvel fæt-
urna og þá gengur hann á fólki.
Jia Chang Wen, Rannveig Hallvarðsdóttir og dóttir þeirra, Anna, sem er fimmtán mánaða. Rannveig á einnig þrjú börn frá fyrra hjónabandi.
ýmsa kvhla. Það hafði nefnilega frést
að blakþjálfarinn hefði hjálpað
íþróttamönnunum mikið ef þeir
meiddust. Hann hafði þvi orðið tals-
vert mikiö aö gera í þessu, raunar
án þess að átta sig á því. Eftirspumin
kom honum því th þess að opna
nuddstofuna.
Jia hefur nú fengið tvo aðstoðar-
menn, sem eru nálastungumeistarar
frá Kína, sér th hjálpar þó hann hafi
yfirumsjón með öllum þeim sem
koma til hans. Eftir að kona hans
veiktist gat hann ekki sinnt nudd-
stofunni einn og því sendi flölskylda
hans honum aðstoöarmann. Fyrir
stuttu kom síðan annar. Jia segir að
þeir séu menntaðar læknar en hann
leiðbeinir þeim með sína tækni. Jia
Chang vih leggja áherslu á að engir
tveir fái sömu meðferð hjá honum
þar sem aht er þetta háð jafnvægi
líkama fólks og hvað hijáir það.
Jia Chang ítrekar aö hann virði
mjög læknavísindi vestrænna lækna
en hann langar mikiö til að um ein-
hvers konar samvinnu geti verið að
ræða. „Við þyrftum að blanda því
besta saman úr austri og vestri," seg-
ir hann.
Rannveig segir að Jia Chang hafi
hjálpað bróður sínum sem hafði
þjáðst lengi af magaverkjum. „Chang
sagði honum aö hann mætti ahs ekki
drekka kalda drykki og það dugði.
Stundum duga hlægilega einfóld ráö.
Ég hef líka séð hann ná frábærum
árangri með fólk sem þjáist í öxl-
um.“
Jia Chang bætir við að verkir
í öxl sé miðaldursvandamál, sérstak-
lega hjá konum. „Ef ekkert verður
að gert verða þær skakkar með aldr-
inum,“ segir hann og bætir við aö
þetta sé hægt að laga.
Vandmeðfarin tækni
„Nálastungur eru vandmeðfamar
og það eru ekki allir sem geta stund-
að þær. í Kína eru þær hluti lækna-
námsins og hafa þekkst í árþúsund-
ir. Ég vh að fólk komi og prófi þessa
gömlu kínversku lækningaaðferö og
athugi hvort hún getur ekki hjálpaö.
Stundum þarf fólk að koma tvisvar
eða þrisvar th að ná bata en íslend-
ingar eru óþohnmóöir og vilja helst
fá bata eftir eitt skipti," segir Jia
Chang Wen sem vonast til að fá við-
urkenningu á störfum sínum hjá ís-
lenskum læknum.