Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 Dagur í lífi Iilju Ólafsdóttur, forstjóra SVR: Rabb við pottfélaga hápunktur morgunsins Viðhorf viðskiptavina, starfsmannamál og endurskoðun leiðakerfisins með erlendum ráðgjöfum voru nokkur þeirra mála sem Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR, sinnti á mánudaginn. DV-mynd Brynjar Gauti Mánudagurinn 30. janúar hófst eins og virkir dagar gera venjulega hjá mér meö því að ég dreif mig í fótin og skellti í mig einu glasi af ferskum gulrófusafa en það er morgunmaturinn sem eiginmaður- inn útbýr á hverjum morgni. Síðan lá leið okkar í sundlaugamar í Laugardalnum eins og vanalega. Sundspretturinn var hressandi og það var kærkomin tilbreyting að hitastigið var ofan við núllið. Hápunktur morgunsins er að setjast í pottinn að afloknu sundinu og ræða við hina daglega pottfé- laga. Okkar pottur er venjulega sá kaldasti, 38-39 stiga heitur, nema í dag þegar hann var lokaður vegna hita. Við félagarnir urðum því að gera strandhögg í næsta potti og vorum að sjálfsögðu ekki eins heimarík og þaulsætin eins og við hefðum verið á okkar yfirráða- svæði. Satt að segja náðum við ekki því háflugi hugans í morgunrabb- inu sem við erum vanalega svo sammála um að einkenni hópinn. En það var notalegt samt. Ég kom í vinnuna klukkan tutt- ugu mínútur yfir átta. Þótt það sé upphaf daglegs vinnutíma á skrif- stofu SVR virtust allir vera komnir á fullt skriö við störf sín þegar ég rölti inn ganginn. Það liggur já- kvæðni og jafnvægi í loftinu á skrif- stofu SVR sem fyllir mig þæginda- tilfmningu þótt ég hafi aðeins starf- að þar í tæpan mánuð. Rætt um viðhorf við- skiptavina Skrifborðið mitt hefur þá undar- legu náttúru að vera sífellt þakið pappírum og mitt fyrsta verk á morgnana, eftir að hafa kveikt á tölvunni og prentaranum, er að fara í gegnum það sem liggur fyrir. Ég er vön að hafa daghókina í tölvu en þurfti að skipta yfir í handvirka dagbók þegar ég skipti um starf um áramótin. Nú er verið að koma í gang dagbókarkerfi á tölvunetinu en ég er ekki búin að læra almenni- lega að nota það. Fundur, sem ákveðinn var með samstarfsaðila kl. níu, féll niður. Tímann gat ég notað til að skrifa tiilögu að reglum um reykingar sem síðan verða unnar áfram í samstarfi við starfsmenn fyrirtæk- isins. Klukkan tíu átti ég stuttan fund með einum af stjórnendum borgarinnar. Fram að hádeginu fór tíminn í að huga aö úrbótum á aðstöðu fyr- ir vagnstjóra á Lækjartorgi og að ræða við samstarfsmann um hug- myndir að könnun á viðhorfi við- skiptavinanna til þjónustu fyrir- tækisins. Verið er að vinna að end- urskoðun leiöakerfisins með er- lendum ráðgjöfum og ég fór stutt- lega yfir stöðu þeirra mála eftir hádegið. Einnig fór nokkur timi í umræður um starfsmannamál og ýmsir aðilar hringdu vegna ólíkra málefna. Unnið er að skipulags- breytingum í fyrirtækinu og fund- ur var ákveðinn á morgun vegna þeirrar vinnu. Um hálfQögur hitti ég forstjórann hjá einum af stærstu birgjum fyrir- tækisins og við skruppum niður á lager og verkstæði. Þaö sem eftir var vinnudagsins fór í að huga að umsögn um umferðaröryggisáætl- un sem umferðarnefnd hefur óskað eftir. Þorramatur á rólegu kvöldi Á mánudagskvöldum heimsækj- um við hjónin venjulega móður mína ásamt syni okkar og tengda- dóttur og borðum kvöldmat hjá henni. í þetta sinn voru fleiri gestir þar í þorramat og við horfðum á fréttir í sjónvarpinu áður en við fórum heim. Kvöldið var óvenjurólegt, meira að segja síminn þagði. Kisurnar mínar fengu því næga athygli og þótti gott að liggja í kjöltu minni á meðan ég horfði á danska fram- haldsmyndaflokkinn Þorpið í sjón- varpinu. Yfirleitt gef ég mér ekki tíma til að lesa blöðin fyrr en á kvöldin og á mánudögum er blaða- lestur ekki fyrirferðarmikill, ég rétt hljóp yfir DV. Ég gekk svo frá þvottinum sem ég þvoði um helgina á meðan við hjónin fórum yfir hugmyndir að endurnýjun á sturtubaðinu og ákváðum hvemig skyldi staðið að þeim. Það var gott að svífa inn í draumalandið, mátulega þreytt að loknum þægilegum degi. [|Ks= ar Finnur þú finnn breytingar? 295 Greifynjan er stungin af með mjólkurpóstinum. Getur yðar náð drukkið siðdegisteið mjólkurlaust? Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir tvö hundruð nítugustu og þriðju getraun reyndust vera: 1. Sunna K. Jónsdóttir, 2. William Jensen, Einholti, Brændgárdvej 5, 3tv, 755 Stöðvarfirði. 7400 Heming, Danmörku. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni tii hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurveg- aranna. 1. verðlaun: Zodiac Sigma 300 sími aö verðmæti kr. 4.950 frá Hljómbæ, Hverfisgötu 103, Reykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verð- laun heíta: Líki ofaukiö og Bláhjálmur úr bókaflokknum Bróðir Cadfael aö verð- mæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Fijálsri fjölmiðiun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 295 c/o DV, póstltólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.