Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 Túbuleikarinn Harri Lidsle. TónlistúrBleika pardusinum og Jurassic Park Einn þáttur í starfi Sinfóníu- hljómsveitar íslands er að halda árlega tónleika sem eru sérstak- lega ætlaðir ungu fólki. Hljóm- sveitin reið á vaðið með slíka tón- leika í fyrra og var þá leikið fyrir fullu húsi og voru viðtökur feiknagóðar. í þetta sinn hefur verið fenginn til liðs við hljóm- sveitina finnskur túbuleikari, Harri Lidsle aö nafni. Tónleikar Túba er ekki algengt einleiks- hljóðfæri. Sennilega er hún þekktust hér á landi af tónverk- inu Tobbi túba sem oft hefur ver- ið leikið á tónleikum Sinfón- íunnar. í þetta sinn verður Tobba sleppt en í staöinn verður leikiö Göngulag filsungans (Baby Elep- hent Walk) eftir Henri Mancini og Czardas eftir Monti, en það verk er skrifað fyrir fiðlu. Harri Lidsle hóf að læra á básúnu níu ára gamall en sneri sér að túb- unni þrettán ára gamall. Hann hefur víða komið fram sem ein- leikari. Auk áðurnefndra verka eru á efnisskrá tónleikanna þáttur úr 5. sinfóníu Beethovens og úr kvikmyndum, meðal annars úr Jurassic Park eftir John Williams og Bleika pardusinum eftir Henri Mancini. Hljómsveitarstjóri er Osmo Vánská og kynnir er Einar Örn Benediktsson. Tónleikarnir eru í Háskólabíói í dag og hefjast kl. 20.00. Bikarúrslit í handbolta Þaö verður mjög mikiö um aö vera í íþróttum um helgina og keppt á mörgum vígstöðvum. Hæst ber úrslitaleikina í bikar- keppninni í handbolta og má bú- ast við mikilli stemningu í Laug- ardalshöliinni á morgun. í bikar- úrsiitum kvenna leika Fram- Stjaman og er það viðureign efstu liöanna í deildinni og er öruggt að þar verður um jafha íþróttir og spennandi viðureign að ræða. Sá leikur hefst kl. 13.30. KA og Valur leika síðan til úrslita í bik- arkeppni karla kl. 17.00. Valur er almennt talið vera með sterkasta liðið í deildinni um þessar mund- ir og selur sig örugglega dýrt en KA-liðiö er mikið stemningslið og verða örugglega í miklum ham í dag og má því búast við spenn- andi og tvísýnni viöureign. Af öörum íþróttaviöburöum helgarinnar má nefha að Norður- landamótinu í keilu lýkur í dag, en þar hefur verið boðið upp á frábæra og spennandi leiki. Hin árlega SKjaldarglíma Ármanns er i dag og eru það margir sem hafa gaman af þessari þjóðlegu íþrótt íslandsmótið í badminton fer fram um helgina og heil um- ferð verður í úrvalsdeildinni í körfubolta annað kvöld. Þá verð- ur einnig leikið f 1. deild kvenna í körfúboltanum. Eins og sjá má af framangreindu verður helgin einstaklega flörug á sviði íþrótta. OO Éljagangur og hvassviðri í dag verður suðvestlæg átt á land- inu. Víða verður kaldi og allhvasst í Veðrið í dag éljum sem munu ganga yfir sunnan- og suðvestanlands. Skýjað verður meö köflum en að mestu þurrt norð- an- og austanlands. É1 verða annars staðar á landinu. Hitinn verður sunnan- og austaniands aðeins yfir frostmarki. Á Vestfjörðum er spáð smávægilegu frosti og eins á Norður- landi en frostið' ætti ekki aö vera meira en tvö stig. Á höfuðborgar- svæðinu veröur suðvestlæg átt með éljum og hitinn um eina gráðu. Sólarlag í Reykjavík: 17.24 Sólarupprás á morgun: 9.57 Síðdegisflóð i Reykjavík: 21.38 Árdegisflóð á morgun: 9.55 Heimild: Almanak Háskólans Veörið kl. 12 í gær: Akureyri skýjað 0 Akumes rigning 3 Bergsstaðir skýjað 1 Bolungarvík alskýjað -1 Keflavíkurflugvöllur rigning 2 Kirkjubæjarklaustur skúrásíð. klst. 3 Raufarhöfn skýjað 0 Reykjavík alskýjað 3 Stórhöfði rigning 5 Bergen rigning 6 Helsinki léttskýjað 0 Kaupmarmahöfn skýjað 2 Stokkhólmur skýjað -1 Þórshöfn skýjað 7 Amsterdam skýjað 7 Berlín skýjað 3 Feneyjar þokumóða 9 Frankfurt skýjað 4 Glasgow skúr 9 Hamborg alskýjaö 4 London súld 10 LosAngeles heiðskírt 14 Lúxemborg skýjað 3 Mallorea alskýjað 13 Montreal heiðskírt -17. New York heiðskirt -8 Nice léttskýjað 14 París skýjað 7 Róm heiðskírt 13 Vín skýjað 4 Washington heiðskírt -i Síöastliðið Ðmmtudagskvöld hóf vinsæii bar-píanisti í Evrópu, Ricky Danieis, leik á Café Óperu og Café Romance og mun hann skemmta gestum staöanna næstu tvo mánuði. Ricky Daniels er fyrst og fremst þekktur fyrir iiflega framkomu í söng og leik og hefur hann skemmt gestum flestra vinsæiustu píanó- bara á Spáni, í Þýskalandi, Noregi, Danmörku, Sviss og Hollandi en þar hefur hann verið vinsæll skemmtikraftur á Maxim's, þess fræga píanóbars, sem margir ís- lendingar þekkja. Það verður því sannkölluð partístemning á Óperu og Romance með Ricky Daniels á næstu vikum. 61 Bruce Willis leikur nú í tveimur myndum í Regnboganum. Hér er hann i hlutverki sinu í Reyfari. Heitasta verð- launamyndin Regnboginn hefur sýnt undan- farið við miklar vinsældir úrvals- myndina Reyfari, (Pulp Fiction) sem segir frá ófyrirleitnum glæpamönnum á sjöunda ára- tugnum. Fjölmargir þekktir leik- ara fara með hlutverk í mynd- inni, má þar nefna John Travolta, Uma Thurman og Bruce Willis. Hér á landi hefur myndin fengið Kvikmyndir góða dóma hjá gagnrýendum ekki síður en erlendis. Gagnrýnendur sem hafa að undanfömu verið aö birta niður- stöður sínar yfir síðasta ár hafa ekki skiliö Pulp Fiction útundan og viröist hún vera sigurvegari hjá mörgum. í Los Angeles Var Pulp Fiction valin besta kvik- myndin og fékk auk þess þrjár aðrar viðurkenningar; besti leik- stjóri (Quentin Tarantino), besti leikari (John Travolta) og besta handritiö (Tarantino). Eins og kollegar þeirra í Los Angeles völdu kvikmyndagagnrýnendur í Boston og New York Pulp Fiction bestu mynd ársins 1994 og Quent- in Tarantino besta leikstjórann. Það má því með sanni segja að þessi ungi og eftirtektarverði leikstjóri sé kominn á breiðu brautina í kvikmyndabransan- um. Nýjar myndir Háskólabíó: Skuggalendur Laugarásbíó: Timecop Saga-bíó: Pabbi óskast Bíóhöllin: Wyatt Earp Stjörnubíó: Frankenstein Bíóborgin: Leon Regnboginn: Litbrigði næturinn- ar Mjallhvít og dvergamirsjö Leikfélag Mosfeilsveitar hefur sýnt undanfamar helgar við miklar vinsæidir fjölskylduleik- ritið Miallhvít og dvergana sjö og Leikhús er næsta sýning í dag kl. 15.00. Leikstjóri verksins er Guörún Þ. Stephensen og vann hún líka leikgerðina upp úr hinni frægu barnasögu. Með hlutverk Míjall- hvítar fer Dagbjört Eiríksdóttir. Gunnhildur Sigurðardóttir fer með hlutverk drottningarinnar en alls taka 24 leikarar þátt í sýn- ingunni. Jens Hansson samdi tónlist við leikritið og Jón Sævar Baldvinsson gerði leikmynd. Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 31. ■ 03. febrúar 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 67,080 67,280 67,440 Pund 106,120 106,440 107,140 Kan. dollar 47,700 47,900 47,750 * Dönsk kr. 11,1950 11,2400 11,2820 5 Norsk kr. 10,0820 10,1230 10,1710 Sænsk kr. 9,0140 9,0500 9,0710-1 Fi. mark 14,2440 14,3010 14,281 Fra. franki 12,7340 12,7850 12,8370 Belg. franki 2,1446 2,1532 2,1614, Sviss. franki 52,2200 52,4300 52,9100 Holl. gyllini 39,4000 39,5600 39,7700 Þýskt mark 44,1900 44,3200 44,5500 it. líra 0,04172 0,04192 0,04218 Aust. sch. 6,2730 6,3050 6,3370 Port. escudo 0,4267 0,4289 0,4311 Spá. peseti 0,5078 0,5104 0,5129 Jap.yen 0,67420 0,67620 0,68240 irsktpund 104,780 105,300 105,960 SDR 98,54000 99,03000 99,49000 ECU 83,2900 83,6200 84.1700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.