Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 13 Sviðsljós Jodie Foster og Randy Stone. JodieFoster ástfangin Vinir Jodie Foster voru ekki undrandi þegar hún birtist með hinn fallega Randy Stone við hlíð sér á frumsýningu nýjustu mynd- ar hennar, Nell. Randy er nefni- lega fluttur inn í hús Jodie ná- lægt Los Angeles. Arum saman hafa menn verið að velta því fyrir sér hvort kvik- myndastjaman hafi ekki viljað vera í nánu sambandi t kjölfar skelfdegrar reynslu 1981. Þá fékk náungi, að nafhi John Hinckley Jr„ Jodie á heilann og skaut að Reagan forseta til að „sanna“ ást sína. Aöspurður vill Randy ekki láta hafa neitt eftir sér um það hvort skötuhjúin séu búin að gera ein- hverjar áætlanir um sameigin- lega framtíð. Henry Leconte og Marie Sara. Henry Leconte í hnapp- helduna Tennisstjaman Henry Leconte gekk nýlega að eiga Marie Söra Bourseiller sem er eini kvenkyns ríðandi nautabaninn í heimi. Marie var fjórtán ára þegar hún sá nautaat í fyrsta skipti. Það var í bænum Camargue í Les-Saint- es-Maries-de-la-Mer og þar var brúðkaupið haldið. Gestir í brúð- kaupinu vora auðvitað nauta- banar auk nokkurra leikara og stjómmálamanna. Meðal þeirra síðastnefndu var Jacques Chirac, borgarstjóri Parísar, en hann var svaramaður við brúðkaupið. Faðir Marie er óperustjóri í Nancy. Móðir hennar, sem er lát- in, var leikkona. Að komast upp á lagið með fjármálin Greiðsluþjónusta SgP&fSSXisí Sparisjóðurinn býður þér nú Greiðsluþjónustu, sem er þægileg og örugg leið í fjármálum þínum og heimilisins. Greiðsluþjónustan er fjölþætt þjónusta sem kemur lagi á fjármál ólíkra viðskiptavina sparisjóðsins. Greiðsluþjónustan sparar þér tíma og fyrirhöfn, skilvís greiðsla reikninga verður í takt við útgjöld sem hægt er að jafna yfir árið ef þess gerist þörf. Þessi þjónusta hentar þeim sem leiðist að standa í biðröðum um hver mánaðamót og láta reikninga ekki slá sig út af laginu. SPARISJOÐIRNIR -Jyrirþig og þína

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.