Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1995, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1995 41 Sviðsljós Meryl Streep nýtur aðdáunar barnanna sinna fjögurra fyrir afrekin í kvik- myndinni Ógnarfljóti. Meryl Streep: Fjögurra bama móðir á fullu Meryl Streep, dáðasta kvikmynda- leikkona heims, er 45 ára og fjögurra barna móðir. Á fundi með frétta- mönnum, þar sem hún var að aug- lýsa spennumyndina Ógnarfljótið, hafði hún gaman af að segja frá því hvað bömin væru fjörug. „Þegar ég er á ferðalagi með þau er svo mikil fyrirferð á þeim á flug- völlum að ég get næstum því heyrt fólk hvíslast á um að þau séu illa uppalin." Áð sögn Meryl líta börnin ekki á móður sína sem kvikmyndastjörnu.' Þau nenna yfirleitt ekki að sjá mynd- imar sem hún leikur í en þau hafa þó haft gaman af Ógnarfljótinu. Yngsta bamiö er Louisa sem er 3 ára. Elstur er Henry sem 14 ára, næst kemur Mamie sem er 11 ára og þriðja í röðinni er Grace, 8 ára. Meryl kveðst aldrei hafa orðið jafn hrædd á ævinni og við tökurnar á Ógnarfljóti. „Ég samþykkti ýmislegt sem ég myndi aldrei gera aftur. Það er sama hversu vel maður undirbýr sig. Maður er alveg háður náttúruöfl- unum þegar maður situr í gúmbát í stríðum straumi. Ég æfði líkamsrækt í fjóra mánuði fyrir tökurnar og lærði aö sigla á fljóti. En þegar alvar- an blasir við er þetta aö allra mestu leyti komið undir afstööu manns sjálfs. Ef maður er þeirrar skoðunar að maður geti þetta þá getur maður það, annars er maður í lífshættu,“ segir Meryl sem notfærði sér stað- gengfl í örfá skipti viö tökurnar. Hún segir það mat manna að konur hafi sérstaka hæfileika í hættulegar fljótasiglingar. Þær reyni ekki í ör- væntingu að berjast á móti en það geti þær reyndar ekki gert jafn vel og karlar, heldur láti þær sig fljóta með straumnum og hlusti á fljótið. í viötalinu við fréttamenn viður- kennir Meryl að hafa orðið fyrir von- brigðum með viðtökurnar á kvik- myndinni Hús andanna. Henni fannst leikstjórinn Bille August hafa unnið gott verk og hún kveðst gjarn- an vflja vinna meö honum aftur. „Hann er einn af uppáhaldsleikstjór- unum mínum. Hann notar helst fyrstu tökuna og gerir hlutina ekki flóknari en nauðsynlegt er,“ segir Meryl og líkir Bille við Cíint East- wood. í kvikmyndinni Brýmar í Madi- sonsýslu leikur Meryl á móti Clint sem einnig leikstýrir myndinni. Tök- um á kvikmyndinni, sem gerð er eft- ir metsölubók, lauk í nóvember. Næsta mynd, sem Meryl leikur í, heitir Before and after og er hún einnig gerð eftir metsölubók. í þeirri mynd leikur Meryl á móti Liam Nee- son. Systkinin Michael og Sharon Stone. Sharon Stone: Aóstoðar bróöur sinn Michael Stone, bróðir Sharon Stone, segir það systur sinni og öðr- um fjölskyldumeðlimum að þakka að honum tókst að hætta fíkniefna- neyslu. Fyrir fjórtán árum var Mic- hael, sem er 43 ára, dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir aö hafa fíkniefni í fórum sínum. Michael hefur fengist við ýmislegt á undanfómum árum en er um þess- ar mundir að þreifa fyrir sér í kvik- myndabransanum. Hann leikur í vestranum The Quick and the Dead með systur sinni og Gene Hackman. Myndin verður frumsýnd síðar á þessu ári. Að sögn Michaels hefur það verið oröað við hann að leika í tveimur tfl þremur öðrum kvik- myndum en hann kveöst ekki viss um að hann vilji leggja kvikmynda- leik fyrir sig. Hann kveðst hafa miklu meiri áhuga á handritagerð og leik- stjórn. Illar tungur segja að Michael njóti góðs af frægð systur sinnar en hann bendir á að Sharon sé alltof greind tfl að taka áhættu bara tfl að gera bróður sínum greiða. „Sharon hefur hjálpað mér mikið og kynnt mig fyr- ir mönnum á bak við tjöldin í Hofly- wood. Hún hefur einnig leiðbeint mér um þaö hvemig maður kemst af í þessum heimi.“ Michael er nýtrúlofaður Tamöru Beckwith sem er upprennandi stjarna. Tamara, sem er bresk, er 24 ára. Hún á átta ára dóttur og Micha- el á 17 ára son frá fyrra hjónabandi. Tamara átti sjálf við fíkniefnavanda að stríða og segist því skflja hvað Michael hefur gengið í gegnum. opnar ~' \ Framsóknarmenn í Reykjaneskjördæmi opna aðalkosningaskrifstofu sina að W \ D ) BæJarhrauni 22 (2. hæð) í Hafnarfirði á laugardaginn 4. febrúar kl. 17-19. ------' Á opnunarhátfðinni flytur Siv Friðleifsdóttir ávarp, Jóna Einarsdóttir spilar á harmóniku, söngur og frambjóðendur verða með leyniatriði. Léttar veitingar. Kosningaskrifstofan verður opin í febrúar virka daga milli kl. 16-20 og laugardaga kl. 10-16. Opnunartími í mars og apríl verður auglýstur nánar I I síðar. Kosningarsími 565 5705 AUGL YSINGAR 563 2700 markaðstorg tækifæranna Notaðir bílar hjá Brimborg Saab 9000 turbo árg. 1988, ek. 70.000 km, dökkgrár, metallic, sjálfskiptur, sóllúga, rafd. rúður, speglar og læsingar, útv., segulb. Toppviðhald alla tíð. Verð 1.290.000. Ath. skipti á ódýrari. Allt að 36 mán. greiðslukjör og skipti á ódýrari Visa - Euro raðgreiðslur Opið laugardag 12-16 FAXAFENI 8 • SIMI 91- 685870 Volvo 850 GLE árg. 1993, ek. 30.000 km, hvítur, ABS, spól- vörn, sjálfsk./sport, econ og vetrarstilling, vökva-, velti- og aðdráttarstýri, útv., segulb., átta hátalarar, spoiler o.m.fl., 6 mán. ábyrgð. Verð 2.450.000. Ath. skipti á ódýrari. Daihatsu Feroza EL-II árg. 1991, ek. 80.000 km, vinrauður, 5 gíra, fjórhjóladrifinn, m/lágu drifi, útv. og segul- bandi. Verð 1.090.000. 6 mán. ábyrgð. MMC Lancer GLXi árg. 1992, ek. 31.000 km, blár, metallic, 5 gira, vökvastýri, rafdr. rúður, speglar og læsingar. Allur nýyfirfarinn. Verð 990.000. Ath. skipti á ódýrari. Mazda 626 GLXI 16 ventla, árg. 1992, ek. 31.000 km, vínrauð- ur, sjálfskiptur, rafdr. rúður, speglar og læs- ingar, sumar- og vetrardekk. Toppeintak. Verð 1.590.000. Ath. skipti á ódýrari. Subaru Legacy GL árg. 1990, ek. 75.000 km, beige, metallic, fjór- hjóladrifinn, vökva- og veltistýri, útv., seg- ulb., rafdr. rúður, læsingar og speglar. Verð 1.190.000. Ath. skipti á ódýrari. J i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.