Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1995, Blaðsíða 15
14
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
27
íþróttir_____________________________________ -___________________
HK - Selfoss (10-16) 20-30
1-1, 4-4, 6-7, 7-10, 8-13, (10-16), 11-18, 14-19, 15-22, 17-26, 18-30, 20-30.
• Mörk HK: Óskar Elvar 6/3, Björn 3, Asraundur 3, Gunnleifur 2, Jón
Bersi 2, Róbert 2, Alexander 1, Atli 1.
Varin skot: Baldur 8, Hlynur 9.
• Mörk Seifoss: Gríraur 7/5, Einar Gunnar 6, Hjörtur
6, Atli Marel 4, Sigurjón 3, Einar Guðm. 1, Sigurður
1, Árni 1, Sturla l.
Varin skot: Hallgrimur 13/1, Gestur 1.
Dómarar: Jóhannes Felixson og Lárus Lárusson.
Áhorfendur: Um 70.
Maður leiksins: Hjörtur Leví Pétursson, Selfossi.
„Létlfleiki yf ir þessu“
Sveinn Helgason skrifar
„Menn voru frískir og þaö var létt-
leiki yfir þessu hjá okkur, enda lítil
pressa. Vömin var góð og sóknin
sæmileg," sagöi Hjörtur Leví Péturs-
son, hinn efnilegi leikmaður Selfyss-
inga, sem lék mjög vel í öruggum
Það var rétt í byrjun sem HK hélt
í við Selfyssinga en síðan bættu þeir
varnarleikinn og þá skildi leiðir. Auk
Hjartar lék Atli Marel Vokes vel í
hægra horninu og jaxlamir skiluðu
sínu. Hjá HK var fátt um fína drætti
en Óskar Elvar átti spretti. Leikur
liðsins bar þess merki að það er fall-
sigri þeirra á HK í Digranesi í gær- ið í 2. deild.
kvöldi, 20-30.
KA - ÍH (15-11) 27-23
3-3, 6-3, 11-6, (15-11), 19-14, 21-17, 24-20, 27-23.
• Mörk KA: Patrekur 7/3, Einvarður 4, Sverrir 4, Valdímar 3, Þorvaldur
3, Helgi 2, Atli 2, Jóhann 1, Erlendur 1.
Varrn skot: Bjöm 16.
• Mörk ÍH: Jón Þ. 7/1, Siguröur 4, Hilmar 3, Ólafur
2, Gunnlaugur 2,Ásgeir 1, Halldór 1, Guðjón S. 1, Ragn-
ar 1, Guöjón G. 1.
Varin skot: Revine 16/1.
Dómarar: Einar Sveinsson og Krístján Sveinsson,
ágætir. Áhorfendur: 431.
Maður leiksins: Alexander Revine, ÍH.
Kyndug uppstilling
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það var kyndug uppstilling hjá
nýkrýndum bikarmeisturum KA
þegar þeir unnu botnlið ÍH, 27-23, í
gærkvöldi í frekar döprum leik.
Alfreð Gíslason lék ekki með,
Sigmar Þröstur, Leó Öm Þorleifsson,
Eríingur Kristjánsson og Valur Arn-
arson sátu allir á bekknum og komu
ekkert inn á og Patrekur Jóhannes-
son spilaði fyrstu 20 mínútumar,
skoraði þá 7 mörk en fékk síðan
rauða spjaldið fyrir að skjóta í andlit-
ið á Alexander Revine, markverði ÍH,
úr vítakasti!
Þetta var því leikur „vindlanna" og
það fór vel á því að þeir fengju að
spreyta sig enda léku leikmennirnir
úr brandarabænum „sinn“ bolta!
ÍR - KR (14-14) 28-25
3-0,3-2,5-5,11-6,11-11, (14-14), 16-14,18-17,19-19,22-22,25-23,26-25,28-25.
• Mörk IR: Jóhann 7/4, Njörður 5, Guðfinnur 5, Magnús Þ. 4, Ölafur G.
3, Dimltríjevic 2, Róbert 2.
Varin skot: Magnús S. 15/2.
• Mörk KR: Einar Baldvin 8, Magnús 5, Sigurpáll
4, Páll 3, Hilmar 3, Guðmundur 1, Björgvin 1.
Varin skot: Gísli Felix 3, Sigurjón 5.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og Guðjón Sigurðsson,
ágætir.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Magnús Sigmundsson, ÍR.
ÍR í úrslitakeppnina
Þórður Gíslasan skrifer:
ÍR-ingar tryggðu sér í gærkvöldi
endanlega sæti í úrslitakeppninni um
íslandsmeistaratitilinn í handknatt-
leik þegar þeir unnu KR-inga, 28-25,
í sveiflukenndum leik í Seljaskóla.
KR minnkaði muninn í eitt mark
þegar þrjár mínútur vora eftir en þá
lokaði Magnús Sigmundsson marki
ÍR og það réð úrslitum. Þá vóg þungt
hjá KR-ingum að Páll Beck, sem hafði
leikið ipjög vel í fyrri hálíleik, veiktist
í leikhléi og gat ekkert spilað eftir þaö.
Guðfinnur Kristmannsson lék mjög
vel með ÍR í seinni hálfleik og skoraöi
mikilvæg mörk og Magnús Þórðarson
og Njörður Árnason spiluðu vel. Ein-
ar Baldvin Ámason og Magnús
Magnússon voru bestir KR-inga.
Valuv - Aftuvelding (12-14) 23-23
1-3, 3-4, 5-6, 9-8, 9-12, (12-14), 12-17, 16-18, 18-22, 23-22, 23-23.
• Mörk Vals: Géir 4, Dagur 4, Jón 4, Sigfús 3, Ólafur 3, Frosti 2, Davíð
1, Finnur 1, Júlíus 1.
Varin skot: Guðmundur 7, Axel 6.
• Mörk Aftureldingar: Jason 8, Páll 6, Ingimundur
4/3, Róbert 2, Jóhann 2, Gunnar 1.
Varin skot: Ásmundur 15.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir Sveinsson,
þokkalegir. Áhorfendun Um 300.
Maður leiksins: Jason Ólafsson, Aftureldingu.
Valur áfram á toppnum
Kóbert Róbertssan skrifar:
Valur heldur efsta sætinu í 1. deild
eftir jafntefli, 23-23, gegn Aftureld-
ingu á Hlíðarenda í gærkvöldi. Leik-
urinn var mjög sveiflukenndur en
gestimir úr Mosfelisbæ höfðu foryst-
una lengst af og virtust vera með sig-
urinn í höndunum. Þeir leiddu 18-22
þegar 6 mínútur voru til leiksloka
en Valsmenn gerðu þá 5 mörk í röð
og komust yfir. Aftureldingarmenn
náðu síðan að jafna 18 sekúndum
fyrir leikslok og þar við sat.
Jason ólafsson var bestur hjá Aft-
ureldingu og þeir PáU Þórólfsson og
Ásmundur Einarsson markvöröur
stóðu sig einnig mjög vel. Geir
Sveinsson var bestur í jöfnu höi Vals.
Ólafur Stefánsson lék sinn fyrsta leik
með Val eftir slæm meiðsli og stóð
sig með ágætum.
Konráð Olavsson átti góðan leik með Stjörnunni í gærkvöldi og skoraði tvö mörk með uppstökkunum fyrir utan. Á myndinni er Konráð að skora annað þeirra án þess
að Víkingar fái rönd við reist. DV-mynd Brynjar Gauti
Vörnin skipti sköpum
- þegar Stjaman vann Víking, 28-26,1 hörkuskemmtilegum leik
Jón Kristján Sigurösson skrilar:
Stjarnan komst á ný upp i annað sæt-
ið í 1. deild eftir sigurinn gegn Víking-
um, 28-26, í Garðabæ í gærkvöldi. Liðin
höföu sætaskipti og fóra Víkingar í
kjölfar tapsins úr öðru sætinu í það
þriðja. Leikurinn hafði því mikla þýð-
ingu fyrir hæðin liðin og bar hann þess
merki. Á heildina htið var viðureignin
skemmtileg og vel leikin og allt var lagt
undir.
Stjarnan hóf leikinn af miklum krafti
og náði fljótlega þriggja marka forystu.
Allt gekk upp hjá Stjömunni á þessum
kafla á meöan Víkingar vissu vart sitt
rjúkandi ráö. En þetta átti eför að taka
töluverðum breytingum því Víkingar
tóku sig saman í andlitinu, vömin var
bundin saman og ungur nýliði, Hlynur
Mortens, sýndi oft snilldartakta í mark-
inu. Um miðjan fyrri hálíleikinn tóku
Víkingar leikinn í sínar hendur, léku
eins og þeir gera best en á sama tíma
gekk Stjörnunni allt í mót. Vörnin hrip-
lek og aUt lak inn hjá markvörðum Uðs-
ins.
Allt annað Stjörnuhð kom til leiks í
síðari hálfleik og mátti greinilega sjá
að Viggó Sigurðsson, þjálfari hðsins,
haíði lesið hressilega yfir hausamótun-
um á sínum mönnum. Varnarleikurinn
hrökk í gang, tekið var fast á Víkingun-
um, þó ekki gróft, og var ekki að sökum
aö spyija að Ingvar Ragnarsson fór að
verja meö prýði í markinu. Stjarnan
náði aftur forystunni, 20-19, þegar tíu
mínútur voru til leiksloka og létu hana
ekki af hendi eftir það. Munurinn var
þó aldrei meiri en 1-2 mörk en vel hvatt-
ir áfram af stuðningsmönnum sínum
hélt Stjaman haus og Dmitri Filippov
gulltryggöi sigurinn úr vítakasti
skömmu fyrir leikslok.
„Við fóram rækilega yfir stöðuna í
hálíleik, hvernig bæta mátti vömina og
eins aö ná upp góðri baráttu. Þetta gekk
eftir og gott betur og liðið sýndi sinn
besta hálfleik í vetur. Ég er ekki i
nokkram vafa um aö ég hef mannskap
í höndunum sem hefur alla burði til aö
fara alla leið á íslandsmótinu," sagði
Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar,
við DV eftir leikinn.
Sigur Stjömunnar var kærkominn
eftir tvö töp í röð í leikjunum á undan.
Sigurður Bjamason sýndi gömul og góð
tilþrif í síðari hálfleik og má hiklaust
segja að innlegg hans hafi ráðið miklu
þegar upp var staðið. Konráð Olavson
lék líka vel og Dmitri Filippov er alltaf
öryggið uppmálað, yfirvegaður og
hugsandi leikmaður og liði sínu gífur-
lega dýrmætur.
Víkingshðið lék oft vel í leiknum en
góður varnarleikur Stjörnunnar sló þá
alveg út af laginu. Sigurður Sveinsson
skilaði sínu vel og Rúnar Sigtryggsson
er alltaf traustur. Hlynur Mortens kom
skemmtilega á óvart í markinu, aldrei
aö vita nema hér sé á ferðinni nýtt
framtíðarefni.
Stjarnan - Víkinguv (13-16) 28-26
24), 4-1, 5-5, 6-8, 9-11, 11-16, (13-16). 15-18, 19-19, 21-19, 25-23, 26-25, 28-26.
• Mörk Stjömunnar: Fílippov 7/4, Sigurður B. 5, Skúli G. 5, Konráö O.
5, Magnús S. 4, Einar E. 1, Hafsteinn H. 1. Varin skot: Ingvar 8, Gunnar 4/1,
Ellert 2/1.
• Mörk Víkings: Siguröur S. 8/7, Rúnar S. 6, Gunnar
G. 4, Bjarki S. 4, Birgir S. 4. Varin skot: Hlynur 13,
Reynir 1.
Dóraarar: Stefán Amaldsson og Rögnvald Erlingsson,
frábærir.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Sigurður Bjarnason, Stjömunni.
STAÐAN
Nissandeildin:
Valur ..20 14 4 2 480-404 32
Stjaman.. ..20 15 0 5 537-487 30
Víkingur. ..20 13 3 4 557-492 29
FH ..20 13 2 5 499-459 28
Aftureld.. ..20 11 3 6 513-455 25
KA ..20 9 5 6 500-464 23
Haukar ..20 10 1 9 532-501 21
ÍR ..20 10 1 9 474-493 21
Selfoss ..20 6 3 11 445-499 15
KR „20 6 0 14 446-496 12
HK „20 1 1 18 435-519 3
ÍH „20 0 1 19 393-542 1
STAÐAN
1. deild kvenna
Stjaman....l5 14 1 0 353-238 29
Fram....15 13 0 2 342-256 26
Víkingur... 16 12 0 4 381-306 24
ÍBV.....16 9 1 6 383-322 19
KR......15 9 1 5 283-280 19
FH......16 4 4 8 317-351 12
Haukar..16 4 1 11 328-390 9
Ármann.... 16 3 2 11 303-330 8
Fylkir.....15 2 1 12 265-364 5
Valur......16 1 3 12 238-356 5
í kvöld kl. 20 mætast Fylkir og
Stjaman í Austurbergi og Fram
og KR í Framhúsinu.
„Stefnum á titilinn“
Guðmundur Hilmarsson skrifar:
„Það er aðeins til ein Hafnarfiarðarhrað-
lest og hún er komin í gang. Betra liðið
vann en auðvitað var maöur orðinn
smeykur þegar Haukarnir voru komnir
sex mörkum yfir. Viö eigum enn raun-
hæfa möguleika á deildameistaratithnum
en höfum sett stefnuna á íslandsmeistara-
titilinn," sagði Hans Guðmundsson, FH-
ingur, eftir sigur á Haukum í Strandgöt-
unni í gærkvöldi, 23-25.
Leikurinn var mjög sveiflukenndur,
FH-ingar byriuðu betur, en síðustu 15
mínúturnar í fyrri hálfleik léku Haukarn-
ir mjög vel og skoraðu níu mörk gegn
tveimur FH-inga. Fyrstu tvö mörk síðari
hálfleiks voru frá Haukum og virtist þá
afit stefna í stórsigur þeirra en þá hrökk
allt í baklás hjá liðinu. FH-ingar náðu
þriggja marka forystu undir lokin en
Haukar spiluðu vörn sína framarlega og
náöu að minnka muninn í eitt mark og
fengu færi á jafna 11 sekúndum fyrir leiks-
lok en dæmd var lína á Þorkel Magnús-
son. Haukarnir mótmæltu þessum dómi
kröftuglega og í kjölfarið fékk Gústaf
Bjarnason rautt spjald.
Petr Baumruk og Þorkell voru bestir hjá
Haukum en hjá FH sem lék sinn 10. leik
i röð í deildinni án taps, var Guðjón Árna-
son bestur. Magnús bróðir hans var sterk-
ur í markinu og þeir Sigurður Sveinsson
og Hans Guðmundsson voru mjög drjúgir
á lokakafla leiksins.
Haukar - FH (14-10) 23-25
O-l, 2-5, 5-8, 9-9, (14-10), 16-10, 16-16, 17-16, 17-19, 20-23, 23-24, 23-25.
• Mörk Hauka: Baumruk 8/2, Þorkell 5, Sigurjón 4/2, Gústaf 3, Páll 1, Aron 1, Jón
Freyr 1.
Varin skot: Bjarni 10/1.
• Mörk FH: Guðjón 8, Sigurður 6, Hans 5, Stefán 3,
2, Guðmundur 1/1.
Varin skot: Magnús 16.
Dóraarar: Gunnar Kjartansson og ÓIi P. Ólsen, höföu engin tök
á leiknum.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Guðjón Árnason, FH.
Gesturfertil
Stromsgotset
Ægir Már Kaxason, DV, Suðumesjuin:
Gestur Gylfason, knattspyrnu-
maður frá Keflavík, gekk í gær
frá tveggja ára samningi viö
norska félagið Strömsgodset frá
Drammen og fór alfarinn utan í
morgun.
„Mér líst mjög vel á mig í
Drammen, allar aðstæður era
mjög góðar og mikill áhugi fyrir
fótbolta 1 bænum,“ sagði Gestur
í spjalli við DV í gær.
Strömsgodset er eitt af kunnari
liðum Noregs en hefur átt erfitt
uppdráttar síðustu árin. Liðið féll
úr úrvalsdeildinni í haust eftir
aðeins eins árs dvöl og spilar því
í 1. deild í ár.
Sheff. Wed. og Chelsea
féllu út úr bikamum
Úrvalsdeildarliðin Chelsea og
Sheffield Wednesday féllu í gær-
kvöldi út úr 4. umferð ensku bikar-
keppninnar í knattspyrnu, bæöi gegn
1. deildar liðum eftir framlengingu
og vítaspyrnukeppni. Chelsea beið
lægri hiut fyrir Millwall og Wednes-
day fyrir Wolves.
Matthew Le Tissier skoraði tvö
mörk fyrir Southampton sem vann
Luton létt, 3-1, og Sheron skoraði tvö
marka Norwich sem vann Coventry,
3—1, eftir framlengingu.
Úrshtin í bikarleikjunum í gær-
kvöldi:
Chelsea - Millwall..............1-1
1-0 Stein (71.), 1-1 Savage (79.) Mill-
wall vann vítakeppni, 5-4, og mætir
QPR á útivelli.
Norwich - Coventry.............3-1
1-0 Sheron (8.), 1-1 Ndlovu (32.)1'94
Eadie (103.), 3-1 Sheron (108.) Norwicii
mætir Everton úti.
Southampton - Luton............6-0
1-0 Le Tissier (6.), 2-0 Magilton (32.),
3-0 Le Tissier (35.), 4-0 Heaney (40.),
5-0 Monkou (50.), 6-0 Hughes (67.) So-
uthampton mætir Tottenham úti.
Wolves - Sheff. Wed............1-1
1-0 Kelly (12.), 1-1 Bright (56.) Wolves
vann vítakeppni, 4-3, og mætir Leic-
ester heima.
AC Milan vann
Stórbikar Evrópu
Evrópumeistarar AC Milan
tryggðu sér Stórbikar Evrópu í
gærkvöldi þegar þeir unnu Evr-
ópubikarmeistara Arsenal, 2-0, í
síðari leik liðanna sem fram fór á
San Siro leikvanginum í Mílanó.
Liðin höfðu áður skilið jöfn í Lon-
don, 0-0.
Zvonimir Boban skoraði fyrra
markið á 40. minútu. lan Wright
skoraði fyrir Arsenal á 60. mínútu
en markið var dæmt af þar sem
John Hartson braut áður á varnar-
manni ítalanna. Fjórum mínútum
síðar skoraði Daniel Massaro með
skalla, 2-0, og þar meö voru úrslit-
in ráðin.
Gummersbach og Dormagen skildu jöfn
JafntefliVals
og Ármanns
Helga Sigmundsdóttir skrifer:
Þrír leikir voru í 1. deild kvenna
í handbolta í gærkvöld. Valur
fékk Ármann í heimsókn og lauk
leiknum með jafntefli, 20-20,
Staðan í leikhléi var 9-12 fyrír
Ármann.
Mörk Vals: Kristjana 9, Gerður
6, Eivör 2, Sortja 2,.Dagný 1.
Mörk Árraanns: frína 5, Guðrún
4, Sigurbjörg 4, Kristin 2, Margrét
2, Ásta 2, María 1.
Haukar og ÍBV áttust við í
Strandgötu og fór ÍBV með sigur
24-29. Staðan í leikhléi var 12-13
fyrir fBV.
Mörk Hauka: Harpa 9, Kristin
5, Rúna Lísa 4, Erna 2, Hjördís 1,
Heiðrún 1.
Mörk ÍBV: Andrea 11, Juditli 10,
Sara 3, Íris2, Stefanía 1, Ingibjörg 1.
Víkingur sigraöi FH í Víkinni,
23-20. Staðan í leikhléi var 12-9
fyrir Víking.
Mörk Víkings: Halla Maria 12,
Svava 3, Guðmunda 2, Heiða 1,
Helga J. l, Helga B. 1, Hanna l,
Matthildur 1. Heiðrún 1.
Mörk FH: Björk 7, Björg 5,
Thelma 3, Lára 2, Hildur P. 2, Hild-
ur L
Júlíus Jónasson skoraöi tvö mörk
fyrir Gummersbcah sem geröi jafn-
tefli, 20-20, við Dormagen, sem Krist-
ján Arason þjálfar, í gærkvöldi. Leik-
urinn fór fram í Köln að viðstöddum
þrjú þúsund áhorfendum.
Knattspyma:
Guðmundur
í Stjörnuna
Guðmundur Steinsson, knatt-
spymumaður úr Fram, gekk í gær
tÚ hös við 2. deildar lið Stjörnunnar
og spilar með því í sumar.
Guðmundur, sem er 34 ára gamall,
er einn mesti markaskorari í sögu
íslenskrar knattspyrnu en hann hef-
ur gert 101 mark í 227 leikjum í 1.
deild. Hann er annar markahæsti
leikmaður deildarinnar frá upphafi
og sá þriðji leikjahæsti.
Stjarnan hefur þar meö fengið tvo
reynda leikmenn til sín með skömmu
millibili en eins og DV hefur áður
sagt frá gekk Bjarni Sigurðsson, fyrr-
um landsliðsmarkvörður, til liðs við
félagiö á dögunum.
FH-ingarmisstu
Podunavací
Rauðu stjörnuna
Drazen Podunavac, júgóslav-
neski knattspyrnumaðurinn sem
lék meö FH síðasta sumar, er
genginn til Hös viö Rauðu stjörn-
una, þekktasta knattspyrnufélag
Júgóslavíu. Þar meö verður ekk-
ert af því að hann komi til íslands
á ný en samkvæmt heimildum
DV höfðu FH-ingar áhuga á að fá
hann til sín aftur.
Podunavac hefur í vetur leikið
með OFK Belgrad í júgóslav-
nesku 1. deildinni, eins og hann
gerði áður en hann kom til FH-
inga. Honum hefur gengið mjög
vel í stöðu bakvarðar.
Ljubomir Petrovic, sem var
þjálfari Rauðu stjörnunnar þegar
Uöið varö Evrópumeistari og
heimsmeistari félagsliða árið
1991, er tekinn við því að nýju
eftir dvöl í Grikklandi og stefnir
að því að hefia það til vegs og
virðingar á alþjóölegum vett-
vangi á ný.
Óskartil
Sampdoria
- Bjami til Besiktas
Óskar Ingimundarson, þjálfari 1.
deildar Uðs Leifturs í knattspyrnu,
fer til Ítalíu síðar í þessum mánuði
og fylgist með æfingum hjá hinu
fræga félagi Sampdoria í eina viku.
Bjami Jóhannsson, þjálfari Breiða-
bliks, verður líka á faraldsfæti því
hann fer alla leið til Tyrklands og
fylgist með æfingum hjá Besiktas,
liði Eyjólfs Sverrissonar.
Phoenix stendur best
Phoenix státar af besta vinnings-
hlutfallinu í NBA en hðiö vann í
nótt 12. sigur sinn í síðustu 14 leikj-
um þegar Uðið vann góðan útisigur
á Utah Jazz. Charles Barkley meidd-
ist á auga í fyrri hálfleik og lék ekk-
ert í þeim síðari en þrátt fyrir það
tókst Phoenix að innbyrða sigur.
Nýðinn Wesley Person var með 23
stig fyrir Phoenix en Karl Malone
gerði 30 fyrir Utah. Úrslit leikja í
NBA í nótt urðu þannig:
Atlanta - New Jersey......111-88
Boston - Cleveland....... 75-67
Detroit - Charlotte 78-106
Indiana-NewYork.......... 77-96
Miami - Washington........111-107
Orlando - Dallas..........110-92
Milwaukee - Minnesota.....100-93
Utah - Phoenix............104-108
Portland - Chicago........116-103
LA Lakers - SA Spurs......115-99
Sacramento - Houston...... 86-97
• Anthony Peeler skoraði 26 stig
fyrir LA Lakers og þeir Vlade Divac
og Eddie Jones 25. Vandræðageml-
ingurinn Dennis Rodman fékk rei-
supassann í hði Spurs í síðasta leik-
hlutanum.
• Dino Radja skoraði 18 stig í liði
Boston gegn Cleveland sem skbraði
aðeins 27 stig í síðari hálfleik.
• Patrick Ewing var með 24 stig og
tók 22 fráköst fyrir New York en
Reggie MUler 22 fyrir Indiana.
• Dell Curry skoraði 21 stig fyrir
Charlotte en Rafael Addison gerði 25
stig fyrir Detroit.
• Cliff Robinson gerði 28 stig fyrir
Portland en Scottie Pippen 26 stig
fyrir Chicago.
• Glen Rice gerði 27 stig í liði Miami
en hjá Washington skoraði Juwan
Howard 31 stig.
• Hakeem Olajuwon átti ílnan leik
fyrir Houston og skoraði 31 stig, tók
17 fráköst og blokkaði 8 skot en liðiö
lék án Vemon Maxwell sem dæmdur
var í 10 leikja bann auk sektar. Mitch
Richmond skoraði 28 fyrir Sacra-
mento.
• Anfemee Hardaway var með 20
stig og Shaquille O’Neal 19 í Uði Or-
lando gegn Dallas sem tapaði 11. leik
sínum af síðustu 13.
íþróttir
ureyrar áttust við á íslandsmót-
inu í isknattleik á skautasvellinu
á Akureyri i fyrrakvöld. A-liðiö
vann stórsigur, 20-3. Heiðar Ingi
Ágústsson og Sigurður Sigurðs-
son voru markahæstir hjá A-liö-
inu en þeir skoruðu 4 mörk hvor.
Baggioaðbraggast
ítalski knattspymumaðurinn
Roberto Baggio vonast til aö vera
kominn í slaginn með Juventus
síðar í þessum mánuöi en hann
hefur veriö meiddur í hné síðan
í nóvember og var skorinn upp
að þeim sökum. Baggio hefur sett <
stefnuna á að leika gegn Samp-
doria sem er 26. febrúar.
Grikkirsigruðu
Grikkir báru sigurorð af Rúm-
enum, 1-0, í vináttulandsleik í
knattspymu í gær. Sigurmarkið
skoraði Panayotis Tsalaouhides.
Norðmennlíka
Norðmenn unnu Kýpurbúa,
0-2, á Kýpur og skoraðu Öyvind
Leonhardsen og Jostein Flo
mörkin.
StórieikurHiguita
Rene Higuita lék á ný í marki
Kólumbíumanna og átti stórleik
þegar þeir gerðu jafntefli við
Ástrali, 0-0, i vináttulandsleik í
Brisbane í gær.
Cantona mætti ekki
Eric Cantona, hinn alræmdi
franski knattspyrnumaður, lét
ekki sjá sigá boðuðum tíma í yfir-
heyrslu hjá lögreglunni í London
í gær, vegna árásarinnar á áhorf-
andann á dögunum, en talið er
að hann dvelji á eyju í Karíba-
hafinu. Talsmaður lögreglunnar
segir að Cantona hafi sýnt mikil-
vægri lögreglurannsókn mikla
lítilsviröingu með þessu.
Lögregiu mótmæit
Lögfræðingur Cantona mót-
mælti þessum viðbrögðum lög-
reglunnar og sagöi að henni hefði
verið fullkunnugt um að Cantona
væri erlendís.
Incehandtekinn
Paul Ince, félagi Cantona hjá
Manchester United, var handtek-
inn í gær og fluttur tii yfirheyrslu
vegna sama máls, Hann er sagöur
hafa slegið áhorfanda en neítar
því alfarið. Ince var látinn laus
gegn tryggingu síðar í gær.
Áfram i landsiiðinu
Enska knattspyrnusambandiö
tiikynnti í gærkvöldi að Paul Ince
yrði áfram í landsliðshópnum,
þrátt fyrir handtökuna enda hafi
hann ekki verið kærður.
Þorsteirvn Gurmarsson, DV, Eyjww
Magnús Sigurðsson, knatt-
spymumaöur úr ÍBV, fór um
helgina til æfinga í Skotlandi.
Hann mun dvelja hjá Rangers,
SL Mirren og Motlterwell og einu
1. deildar liði til viðbótar. Hann
hefur fengið leyfi til að spila æf-
ingaleiki í Skotlandi.
Bjamóifurtsi Spurs
Annar Eyjamaður, unglinga-
landsliðsmaðurinn Bjarnólfur
Lárusson, mun dvelja í tvær vik-
ur hjá enska félaginu Tottenham.
Hann heldur utan 27. febrúar og
æfir með varaliði félagsins.
Þórðurmeiddist
Þóröur Guðjónsson, knatt-
spyrnumaður hjá Bochum í
Þýskalandi, meiddist á ökkla í
æfingaferð á dögunum og getur
líklega ekki spilað næstu tvo
mánuðina.