Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1995, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995 Útlönd_____________________________________________________________ Að mlnnsta kosti 27 létu ffið í hörðum jarðskjálfta 1 Kólumbíu: Horfðum á framhlið hússins hrynja niður Öflugur jarðskjálfti skók borgir og bæi í vesturhluta Kólumbíu í gær og herma fréttir að tuttugu og sjö manns að minnsta kosti hafi látið líf- ið og rúmlega tvö hundruð særst. Tugir íbúðarhúsa og skrifstofubygg- inga eyðilögðust 1 skjálftanum sem mældist 6,4 stig á Richter. „Við horfðum á hluta framhliðar dagblaðsbyggingarinnar springa og síðan brotna og falla niður á götu,“ sagði Rosmira Corro, fréttastjóri dagblaðsins La Tarde í borginni Pe- reira. „Fólk hér er skelfingu lostið." Suður-Ameríka IPV1 brother. Merkivélarnar Verð frá kr. 13.995 Nýbýlavegi 28 - sími 44443. 9 9*17*50 Verð kr. 39,90 mín. Dregið daglega og stjörnumáltíð fyrir tvo frá McDonald's fyrir þá heppnu! Munið að svörin við spurningunum er að finna í blaðaukanum DV-helgin sem fylgdi DV síðasta fóstudag. Björgunarsveitamenn fjarlægja lík manna sem fórust I öfiugum jarðskjálfta sem lagði tugi húsa I Pereira i Kólumbíu í rúst og varð tugum manna að bana. Símamynd Reuter Svo virðist sem skemmdir og manntjón hafi nær eingöngu verið í iðnaðar- og kafiiborginni Pereira sem er um 150 kílómetra vestan höf- uðborgarinnar Bogota þar sem skrif- stofufólk hljóp út á götu í hræðslu sinni. Carlos Alberto Pulido Barrantes, yfirmaður lögreglunnar, sagði að rúmlega sextíu byggingar hefðu eyðilagst í Pereira, þar á meðal aðset- ur fylkisstjórnarinnar, háskóli, bankar, lögreglustöð og skrifstofu- byggingar. Neyðarástandi var lýst yfir í borginni og björgunarsveitir með hjálpargögn voru sendar á stað- inn. íbúar í Pereira, þar sem 300 þúsund manns búa, sögðu frá því að vatn hefði beinlínis stokkið upp úr sund- laugum, þakplötur hefðu losnað og stórar sprungur hefðu myndast í veggjum húsa. Sjónvarpsmyndir sýndu hvar björgunarsveitarmenn og vegfarendur leituðu að fórn- arlömbum í húsarústunum. Sjónarvottar sögðu að rafmagn hefði farið af borginni og símasam- band hefði rofnaö þegar jarðskjálft- inn varð laust fyrir klukkan tvö eftir hádegi að staðartíma. Juan Manuel Arango borgarstjóri lýsti yfir út- göngubanni í miðborginni og sendi þangað aukinn íjölda hermanna og lögreglu til aö koma í veg fyrir rán og gripdeildir. Reuter Magrar en árangursríkar vikur hjá Gro Harlem Brundtland: Þurrt hrökkbrauð að morgni og svo aftur í hádeginu - sósur, sætabrauð og koníak efst á bannlistanum í megrunarkúmum Gísli Kristjánsson, DV, Ósló: Það er bannað að sýna nestispakka á skrifstofu Gro Harlem Brundland, forsætisráðherra Noregs. Ritari hennar er þó grunaður um að blóta á laun. Því neitar hann og segist fara út til að maula brauöið sitt. Allir Norðmenn hafa með sér nesti í vinn- una, nema Gro sem er á ströngum en árangursríkum megrunarkúr. Norskir fjölmiðlar fylgjast náið með framgangi mála hjá Gro. Árang- urinn er veginn og mældur og nú munu nær sjö kíló hafa horfið frá því um áramót. Enginn vill þó gefa upp hve mörg prósent það eru. í Noregi er þyngd Gro ríkisleyndar- mál. Dagblaðið norska hóf um áramótin leikinn með aukakíló forsætisráð- herrans. Þá spurðist að Gro hefði skráð sig í meðferð hjá megrunar- konu að nafni Grete Roedes. Dag- blaðið greindi frá máhnu með for- síðuuppslætti og nokkurra síðna umfjöllun. Eftir það hafa önnur blöð tekið megrunarmálið upp og keyra Að mati skopteiknara Aftenposten hugsa Norðmenn ekki um annað en aukakilóamissi Gróu og höfuð- djásnsmissi Sonju um þessar mund- ir. það fram af miklum þunga. Upplýst er að Gro má bara borða 50 grömm af hrökkbrauði á morgn- ana. Magurt álegg má vera á brauð- inu svo fremi að það innihaldi ekki meira en 80 hitaeiningar. Sama skammt fær hún í hádeginu og auk þess grænmeti að vild. Til kvöldverðar má hún hafa 150 grömm af kjöti eða fiski og 100 grömm af kartöflum og ómælt af grænmeti. Sósur eru stranglega bannaðar, sem og sætabrauð og rjómakökur. Undanrennu má hún hafa út á kaffið en sykur er strang- lega bannaður. Allt áfengi er einnig í banni og kon- íaksglasið, sem Gro var vön að fá sér á kvöldin, er nú jafnfjarri og höfuð- djásnið stolna af kolh Sonju drottn- ingar. „Vhji er allt sem þarf,“ er haft eftir megrunarfræðingnum Grete Roede. Enginn efast um að Gro er viljasterk kona og því vonast menn th að sjá hana í þyngdarflokki með Sonju drottningu í vor. Stuttar fréttir i>v Bardagarfluftir Bardagar Rússa og Tsjetsjena hafa flust burt frá Grosni eftir að uppreisnarmenn fluttu stöðvar sinai' þaðan. Síraon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, lýsti yfir ánægju sinni; með aðgerðir J’elstínumanna gegn herskáum öflum sem eru andvíg friðarsamningnum við ísrael og sagði þær marka tíma- mót. Horfff í vestur Jozef Oleksy, nýr forsætisráð- herra Póllands, ætlar að leggja áherslu á samskipti við Vestur- lönd. Perúmenn sprengja Flugvélar Perúmanna gerðu loftárásir á stöðvar Kkvadora við umdeild iandamæri ríkjanna. Lítil aðstoð Aðstoð Vesturlanda við þróun- arlöndin hefur ekki veriö minni i tvo áratugi. í uppnámi Bandaríkjamenn eru reiðubún- ir aö hætta við kjamorkusamn- ing við Norður-Kóreumenn ef þeir neita að tala við sunnan- menn. Syndiríland Franski sundmaðurinn á leiö yfir Atlantshafið nær landi í dag á Barbados. Grænviðskipti Gro Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, segir að fyrirtæki verði að „hugsa grænf ‘. Málamiðlun Danir og Færeyingar ætla að reyna að ná málamiðlun i deil- unni um rannsókn á banka- hneykslinu i Færeyjum. Majorsnupraður Major, forsætisráðherra Breta, var snupraður á þingi fyrir að kaha formann Verkamanna- flokksins kjána. GæsiaiAngóla Öryggisráð SÞ hefur heimilað rúmlega sjö þúsund friðargæslu- hða í Angóla th að bínda enda á striðið þar. Savimbitilbúinn Jonas Sav- imbi, leiðtogi uppreisnar- mannaUNlTAí Angóla, sagðist thbúinn að hitta dos Santos að máh og gæti sætt sig við hann á forsetastóli ef hann fylgdi réttri stefnu. Engintengsl Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, neitar að stjóm sín teng- ist dauðasveitum á 9. áratugnum. Reutcr Ertu ekki búinn að tryggja þér númer í Happdrættinu?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.