Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Síða 19
LAUGARDAGUR 11. MARS 1995
19
pv Bridge
Val á kvenna-
landsliði
Evrópumót í sveitakeppni verður
spilað í Algarve, Portúgal, 17. júní til
1. júlí. Frá íslandi verða send lið í
opinn flokk og kvennaflokk sem ný-
lega hefur verið valinn. Spilarar i
kvennalandsliði á EM eru Esther
Jakobsdóttir, Valgerður Kristjóns-
dóttir, Hjördís Eyþórsdóttir, Ljósbrá
Baldursdóttir, Anna ívarsdóttir og
Gunnlaug Einarsdóttir. Þetta er
sama lið og spilaði fyrir íslands hönd
á síðasta Evrópumóti og náði 12.
sæti þar. Fyrirliði hðsins er Guð-
mundur Sv. Hermannsson.
Bridgefélag
kvenna
Mánudaginn 27. febrúar var annað
kvöldiö af fjórum spilað í parakeppni
félagsins og staða efstu para er nú
þannig:
1. María Haraldsdóttir-
Páll Valdimarsson...............482
2. Kristín Jónsdóttir-
Ólafur Ingvarsson...............450
3. Anne M. Kokholm-
Lilja Halldórsdóttir............435
3. Margrét Þorvarðardóttir-
Hólmfríður Gunnarsdóttir........435
Laugardaginn 11. mars verður árs-
hátíð félagsins haldin á Hótel Borg
og hefst klukkan 11 f.h. Að venju
verður spilaður léttur tvímenningur,
glæsilegt borðhald og er verðið 2.500
krónur á mann. Nánari upplýsingar
gefur Guðný (612112), Gróa (10116)
og Óhna (32968).
Silfurstigatví-
menningur SÁÁ
Laugardaginn 25. febrúar var spil-
aður silfurstigatvímenningur hjá
SÁÁ. Þar spiluðu 22 pör barómeter
með forgefnum sphum. Keppnis-
stjórn og útreikningur voru í góðum
höndum Jakobs Kristinssonar.
Lokastaða efstu para í mótinu varð
þannig:
1. Jón Stefánsson-
Sveinn Sigurgeirsson............111
2. Murat Serdar-
Þórður Björnsson................108
3. Yngvi Sighvatsson-
Orri Gíslason....................50
Þriðjudaginn 28. febrúar var spilaður
eins kvölds tölvureiknaður mitchell
með forgefnum spilum. Átján pör
spiluðu 9 umferðir með 3 spilum á
milli para. Meöalskor var 216 og efstu
pör í NS urðu:
1. Sigmundur Hjálmarsson-
Hjálmar Hjálmarsson...........245
2. Gestur Pálsson-
Nicolai Þorsteinsson..........231
3. Birgir Ólafsson-
Fannar Dagbjartsson...........223
- og hæsta skor í AV:
1. Hlynur Magnússon-
Magnús Torfason...............256
2. Tryggvi Guðmundsson-
Óskar Kristinsson.............245
3. Gunnlaugur Karlsson-
Guömundur Sigursteinsson......237
Bridgefélag
Homafjarðar
Nýlokið er aðalsveitakeppni félags-
ins og vann sveit Hótel Hafnar örugg-
an sigur, hlaut 108 stig. í sveitinni
spiluðu Árni Stefánsson, Jón Sveins-
son, Baldur Kristjánsson, Ágúst Sig-
urðsson og Skeggi Ragnarsson. í
öðru sæti lenti Gestur Halldórsson
með 78 stig og rétt á hæla þeirra kom
Örn Ragnarsson með 75 stig. Hrein-
dýramóti BN lauk í síðustu viku og
lokastaða efstu para varð þannig:
1. Þorsteinn Sigjónsson-
Gestur Halldórsson............561
2. Sigurpáll Ingimarsson-
Valdemar Einarsson............543
3. Sverrir Guðmundsson-
Ragnar B./KolbeinnÞ...........537
.etftsstarf Íslaílt/
að
Vib erum hluti af vistkerfi heimsins og þurfum ab lifa í sátt vib þab.
Flestar athafnir okkar hafa áhrif á umhverfib á einn eba annan hátt.
Þess vegna leitast íslandsbanki vib ab sameina daglegan rekstur og um-
hverfisvernd. íslandsbanki og starfsfólk hans hefur haft frumkvcebi í umhverfismái-
um bæbi meb myndarlegum fjárframlögum sem og meb gróbursetningu á tugþús-
undum trjáplantna víbs vegar u'm land. Sérstakt umhverfisfélag innan íslandsbanka
vinnur ab margháttubum verkefnum á svibi umhverfismála.
Endurnýting og endurvinnsla
í daglegum rekstri bankans er markvisst stefnt ab notkun á visthæfum
rekstrarvörum. Nefna má ab megnib af þeim pappír sem bankinn notar er vistvænn.
Stór hluti alls pappírs sem til fellur innan bankans er flokkabur og endurnýttur.
Markvisst verbur haldib áfram á braut endurvinnslu og endurnýtingar.
Frœösla er forsenda árangurs
Nú hefur íslandsbanki gefib út bœkling um umhverfismál
sem er fullur af fróbleik og ábendingum um þab hvab þú getur gert
til ab lifa í sátt vib umhverfib. Bæklingurinn liggur frammi í öllum
útibúum bankans.
Þab er von íslandsbanka ab ábyrg stefna hans í
umhverfismálum verbi öbrum fyrirtœkjum hvatning til aö
sýna vistvœn vinnubrögb í verki.
ÍSLAN DSBAN Kl
••99*56*70**
—
Wmmmmíf l
Námskynninsu 1995