Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 11. MARS 1995
41
Tilnefnd til óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin:
i* *
Lystaukandi gamanmynd
- með sérkennilegum taívönskum sælkeraréttum
Þaö má búa til listaverk úr agúrkum, gulrótum Hér notar matreiöslumeistarinn kiwi og rækjur á Rækjur stinga sér til sunds og kikja upp úr sós-
eða hverju öðru eins og sjá má hér. skemmtilegan hátt. Kannski hér sé komin hug- unni. Þetta listaverk væri gaman að borða.
mynd fyrir fermingarhlaðborðið.
Matur, drykkur, maður, kona eöa
Eat, Drink, Man, Woman heitir ný
taívönsk gamanmynd sem Stjömu-
bíó sýnir nú en myndin er útnefnd
til óskafsverðlauna í ár sem besta
erlenda myndin. Leikstjóri myndar-
innar er Ang Lee sem kominn er í
hóp þeirra ungu leikstjóra sem hvað
mestar vonir eru bundnar við og
gerði m.a. Brúðkaupsveisluna eða
The Wedding Banquet sem sýnd var
í Háskólabíói fyrir nokkrum misser-
um við góðar undirtektir.
Matur, drykkur, maður, kona var
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Berlín 1993 og vann þar helstu verð-
laun hátíðarinnar, Gullbjörninn, og
var einnig útnefnd til Golden Globe
verðlaunanna sem besta erlenda
myndin.
Myndin segir frá herra Chu sem
er frægasti matreiðslumeistari Tapei
og á þrjár gjafvaxta og uppreisnar-
gjarnar dætur. Eiginkona hans er
látin fyrir nokkrum ármn þegar í
næsta hús flyst nöldursöm ekkja, frú
Liang. Dæturnar sjá um leið fyrir sér
að faðir þeirra muni senn elda sinn
fræga sælkeramat fyrir nýja kær-
ustu og líf aUra málsaðila tekur nýja
stefnu: Ein persónan verður barns-
hafandi, önnur er hryggbrotin, enn
önnur deyr og sú þriðja finnur hina
einu sönnu ást.
Ang Lee, leikstjóri og meðhöfundur
hans, framleiðandinn James Scha-
mus, sem m.a. hefur komið hingað
til lands og haldið námskeið um
kvikmyndagerð, bjóða í þessari
mynd upp á kvikmyndaveislu, sann-
kaUaöa lystaukandi gamanmynd
sem kitlar jafnt hláturtaugar sem
bragðlauka.
Helgarblaðið hefur fengið nokkrar
af þeim frábæru uppskriftum sem
koma fyrir í myndinni þannig að
kvikmyndahúsagestir geta eldað
þegar þeir koma svangir heim. Upp-
skriftirnar virðast ílóknar enda
framandi en geta áreiðanlega verið
spennandi. Myndirnar sem birtast
með gefa hugmyndir um hvernig
matreiðslumeistarinn útfærir krásir
sínar en þær eru sannarlega óvenju-
legar.
Steiktur taívanskur
skelfiskur
1 kg skelfiskur
2 litlar rauðar paprikur
8 lauf fersk basUika
2 msk. sojasósa
2 msk. hvítvín
1 tsk. hvítlaukur
1 tsk. sesamolía
2 msk. hnetuoUa tíl steikingar
Hreinsið skelfiskinn mjög vel undir
rennandi köldu vatni. Skerið paprik-
urnar í Utla bita. Blandið saman bas-
U, sojasósu, hvítvíni, pressuðum
hvítlauk og sesamolíunni.
Hitið hnetuolíuna í wok-pönnu eða
annarri góðri steikingapönnu. Þegar
oUan er orðin heit setjið þá skeljam-
ar útí, papriku og sósu. Lokið og sjóð-
ið við vægan hita þangað til skelfisk-
urinn hefur opnast. Borið fram sem
forréttur eða sem aðalréttur en þá
er hrísgrjónum eða núðlum bætt viö.
Gufusoðinn kjúkl-
ingur með svörtum
sveppum
3 kjúklingalæri
6 þurrkaðir svartir sveppir
2 tsk. sojasósa
/i tsk. hrísgrjónavín
1 tsk. kornsterkja
1 tsk. vatn
2 tsk. hakkaður skallottulaukur
Hreinsið skinnið af kjúklingalær-
unum og hlutið þau í tvennt. Setjið
sveppina í vatn þar til þeir eru mjúk-
ir, hendið stilkunum og skerið haus-
inn í tvennt. Blandið saman kjúkl-
ingnum, sveppunum, kornsterkj-
unni og kryddinu. Látið standa í
marineringu í hálfa klukkustund.
Gufusjóðið yfir háum hita í 20 mín-
útur. Slökkvið á hitanum og stráið
lauknum yfir.
Rækjur með salati
/i kíló djúpsjávarrækjur eöa venju-
legar rækjur
/i tsk. salt
1 tsk. kornsterkja
1/3 bolli saxaður laukur
1/3 bolli saxaður blaðlaukur
1/3 bolli baunir (nýjar eða frosnar)
ísbergsalathöfuö
2 Yiou-Tias eða „Chinese donuts"
(fæst í verslunum með austurlenskar
matvörur en ef ekki þá má sleppa
þessu)
kínversk olía
Marinering
4 saxaðir skallottulaukar
1 tsk. brytjaður engifer
1 msk. sojasósa
1 msk. kjúklingakraftur (eða vatn)
smávegis hvítur pipar
/i tsk. sesamolía'
Hreinsið rækjumar vel og þerrið,
ef þær eru stórar eru þær skornar í
bita, settar í marineringu í tíu mínút-
ur í salti og kornsterkju sem hrært
er saman við örlítið vatn. Ef mögu-
legt er að finna Yiou-Tias á íslandi
er það steikt þar til það verður
stökkt, flatt út en síðan brytjað smátt.
Rækjurnar eru steiktar í olíunni
þar til þær hafa breytt um lit. Þá er
laukurinn steiktur, rækjurnar settar
út í, kryddað og hrært saman. Loks
er Yio-’has bætt í. ísberg er skolað
og þerrað. Salatblöð eru síðan vafin
um rækjublönduna. Uppskriftin er
fyrir fjóra til sex.
Ath. ef Yiou-Tias fæst ekki er allt
í lagi að sleppa því. Rétturinn verður
jafnljúffengur þrátt fyrir það.
Grænmetisréttur
1 dós „baby“maís
14 kínversk græn salatblöð
2 bollar kjúklingasoð
2 msk. kínversk „heit“ olía
12 svartir sveppir
1 msk. sojasósa
8 plómutómatar
1 msk. kornsterkja
salt eftir smekk
Sjóðið „baby“maís og kálið í soðinu
í tvær mínútur. Saltið. Geymið soðið.
Steikið svörtu sveppina í tveimur
matskeiðum af „heitu" olíunni og
kryddið með 1 msk. af sojasósu. Sjóð-
ið í hálfa mínútu. Hrærið korn-
sterkju saman við teskeið af vatni,
bætiö sveppunum í og sjóðið í háifa
mínútu. Sjóðið tómatana í soðinu í
tvær mínútur og afhýðið þá og skipt-
iö í helminga. Raðið hverri grænmet-
istegund fyrir sig á disk í hring. Upp- J
skriftin ætti að nægja sem forréttur
fyrir fimm til sex.
Hinn frægi matreiðslumeistari, sem myndin Matur, drykkur, maður, kona
segir frá, en hann hikar ekki við að framkvæma sannkallaði matargerðarlist.
Myvatn 95
Vélsleðakeppnin Mývatn 95 verður haldin 16.-19. mars nk.
Allar nánari upplýsingar og skráning á kvöldin í símum 96-44211, Jóhannes,
og 96-44186, Ellert.
Skráningu lýkur kl. 22 þriðjud. 14. mars.
Undirbúningsnefndln
- 1 7 5 0
Verð kr. 39,90 mín.
BK-LEIKURINN er skemmtilegur leikur þar sem
þátttakendur eiga þess kost á að vinna Ijúffenga
vinninga frá Boston kjúklingi, Grensávegi 5. Það eina
sem þú þarft að gera er að hringja í síma 99-1750 og
svara fimm laufléttum spurningum. Svörin við
spurningunum er að finna í blaðaukanum DV-helgin
sem fylgir DV á föstudögum.
Fjölskylduveisla handa fjórum
þátttakendum í viku hverri!!!
Fimmtudagana 9., 16., 23. og 30. mars verða fjórir
heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum og hreppa
þeir fjölskylduveislu fyrir sex frá Boston kjúklingi,
Grensávegi 5.
Allir sem svara öllum fimm spurningunum rétt komast í
pottinn í hverri viku!
Nöfn vinningshafa verða birt í DV-helginni föstudaginn
eftir útdrátt.
Grensásvegi 5
S. 588-8585